Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
IMEYTEIMDUR
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 21
Kjúklinga-
staðir snar-
lækka verð
Segja af og frá að
brostið sé á verðstríð
TVEIR kjúklingastaðir á höfuð-
borgarsvæðinu hafa lækkað verð
á kjúklingum verulega undanfarna
daga með tilboðum og gagntilboð-
um. Annar þeirra, Southern Fried
Chicken, lækkaði verðið um helg-
ina, á miðvikudag lækkaði
Kentucky Fried Chicken og fyrr-
nefndi staðurinn svaraði samdæg-
urs með því að lækka verð kjúkl-
ingabita á nýjan leik.
Báðir staðir hafa fylgt þessum
lækkunum eftir með auglýsingum
í blöðum, en í samtölum var þver-
tekið fyrir það að brostið væri á
Bjarni Þór Þórhallsson hjá Bost-
on kjúklingum segir að líklega
verði svar sitt við afmælisafslætti
Kentucky Fried Chicken að lækka
verðið á afmæli Boston kjúklinga
sem er eftir hálfan mánuð. „Þá
verðum við með verulegan afslátt
af okkar kjúklingum", segir hann.
Bjarni segir að aðaláhersla Boston
kjúklinga sé á fjölskyldupakka og
sá ódýrasti kosti 1.290 krónur. I
honum eru sex kjúklingabitar, stór
skammtur af frönskum, hrásalat
og kokteilsósa.
Southern Fried Chicken, sem er
í sama húsi og Svarta pannan,
auglýsti um helgina kjúklingabit-
ann á 99 krónur, en hann kostaði
áður 179 krónur. Á miðvikudag
var verðið lækkað niður í 89 krón-
ur eftir að Kentucky Fried Chicken
auglýsti 95 króna tilboð.
„Við erum ekki í neinu verð-
stríði,“ sagði Kristinn Gunnarsson,
matreiðslumaður á Kentucky Fried
Chicken, sem einnig rekur stað á
Selfossi. „Framleiðendur hafa
lækkað verðið undanfarið og við
lækkuðum álagninguna tímabund-
ið til þess að láta viðskiptavininn
njóta hagstæðra innkaupa. Tilboð-
ið mun standa til mánaðamóta."
Lækkun vegna afmælis
Kristín Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri Kentueky Fried
Chicken, sagði að staðurinn seldi
nú kjúklinga á tilboði af tilefni 15
ára afmælis skyndibitastaðarins.
Kjúklingabitinn kostaði nú 95
krónur, en hefði kostað 165 krónur
áður.
Kristín sagði að tilboðið myndi
standa í 15 daga og á meðan fengi
hún lægra verð frá framleiðanda.
Hún benti á að í október hefði
verið „kjúklingaveisla“ í Kentucky
Fried Chicken og bitinn verið seld-
ur á 99 krónur. „Ég er stærsti
kaupandinn [á kjúklingum] á ís-
landi og framleiðendur hafa ævin-
lega komið til móts við mig þegar
við höfum verið með tilboð,“ sagði
Kristín.
Bjarni Ásgeir Jónsson, forstjóri
Holtakjúklings, sem selur báðum
kjúklingastöðum, kvaðst hafa
marga viðskiptavini og nokkrum
sinnum á ári væru þeim gerð sér-
stök tilboð. Þegar veitingastaðir
seldu kjúklingabita á tilboðsverði
tæki framleiðandinn þátt í því.
A
Ovenju snemma opnað á
skíðasvæðinu í Seljalandsdal
ísafirði. Morgunblaðið.
SKIÐASVÆÐIÐ á Seljalandsdal
var opnað um síðustu helgi og
mættu vel á annað hundrað manns
á svæðið, þegar mest var. Ekki
er vitað til þess að skíðasvæði ís-
firðinga hafí verið opnað svo
snemma áður, en fyrir nokkrum
árum tókst að opna það viku
seinna, eða 18. nóvember.
Að sögn Eyjólfs Bjarnasonar,
forstöðumanns tæknideildar ísa-
fjarðarkaupstaðar, mun tíðarfarið
ráða áframhaldandi opnun svæðis-
ins, en mikinn snjó hefur tekið upp
að undanförnu eftir óveðurskafl-
ann undir lok síðasta mánaðar.
„Það sér mikið á, dag frá degi,
og því mun tíðarfarið ráða því
hvort svæðið verður' opið um
næstu helgar. Skíðafærið var mjög
gott á sunnudag þrátt fyrir að
nokkur hiti væri í lofti,“ sagði
Eyjólfur.
Eins og staðan er í dag, er nokkuð
langt í að Tungudalurinn verði
opnaður," sagði Eyjólfur, sem
einnig tjáði blaðinu að engar fram-
kvæmdir yrðu á skíðasvæði ísfirð-
inga á komandi vetri sökum pen-
ingaskorts.
Tilboð fimmtudag til sunn
jólastjörnur í bakka
kr. 999 bakkinn
Ath.:
og fínar
jólastjörnur
(aðeins kr. 333 stk.)
ODYR JOLAMARKAÐUR
-----Beinn innflutningur-------
Höfum opnað jólamarkað í heilu húsi
með verði sem aldrei hefur sést áður.
Hér eru örfá sýnishorn: K
Jólaveinn 10 cm
Jólahús m/kerti
Jólabjalla
m/ártölum
Drylckjarmál
Jólasnjókúla
verö frá kr. í
Jólasveinn i
hæð 50 cm