Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
/ j?/)£>r HALOA ALU& AðBg
' FS-JoT/ B/USAOFANA l/FFV/AJC/)
Ó6 g/& EFf/F þl/rAE>B/eÁÐ//i
Bi/erts-r
0
o-
Grettir
HVAP /MEE> Af? BOfeÐA KART-
ðnon.ÖGUKAOfe- ?OKA /MEP
/vtáie?./
s)
JÓH, HVAO V&& és AP 6EKA Tit
APSAUMFÆKA f>(6 UM AP Af'<3
LANöAK EKKl
puswe
Tommi og Jenni
HÓPURINN í Hlíðardalsskóla.
Þegar hugsjónir
rætast
BREF
TDL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Ljóska
MARCIE, I PON'TTHINK
YOU HAVE UIHAT IT
TAKE5 T0 0E A
FOOTBAtL PLAYER..
Magga, ég held að þú
hafír ekki það sem þarf
til að verða góður leik-
maður...
viss . . . ég get enn
orðið annar Joe Iowa!
Gildir einu
Frá dvalargestum í Hlíðardals-
skóla:
Á LIÐNU sumri bauð vina- og líkn-
arfélagið Bergmál þijátíu og fimm
konum og körlum, þeim að kostnað-
arlausu, til vikudvalar í Hlíðardals-
skóla og var það boð endurtekið eina
helgi í október. Hópinn skipaði fólk
er glímir við þann sjúkdóm sem í
daglegu tali kallast krabbamein. Það
sem fyrir gestgjöfunum vakti var að
létta líf þessa fólks og auðvelda því
að tjá sig, því oft getur reynst erfitt
að ræða sjúkdóminn, jafnvel við nán-
ustu aðstandendur, og því ómetan-
legt fyrir marga að fá tækifæri til
að skoða reynslu sína í ljósi reynslu
annarra, Stöðugar framfarir hafa
orðið í lækningum á krabbameini og
æ fleiri hafa öðlast bata, því geta
þessi samskipti haft mjög jákvæð
áhrif og styrkt sjúklinginn í baráttu
sinni.
Allur aðbúnaður var eins og best
verður á kosið. Fæði var framúrskar-
andi gott og heilnæmt, hjúkrunar-
fræðingar voru meðal annarra á
staðnum til aðstoðar og dagskráin
afar fjölbreytt. Má þartil nefna: slök-
un, fótanudd, snyrtingu, föndur, fyr-
irlestra um næringu og heilbrigt lí-
ferni, og reynslusögu af baráttu við
téðan sjúkdóm. Þá voru kvöldvökum-
ar vægast sagt stórkostlegar undir
stjórn Reynis Guðstemssonar þar
sem fiutt voru ljóð, Ámi Johnsen
skemmti og söng, og söngkvartettinn
Acappella kom fram. Karlakór
Reykjavíkur söng, félagar úr kór
Bústaðakirkju sungu ásamt ein-
söngvumm. Garðar Cortes kom og
fram ásamt fjölskyldu sinni og síðar
með Kór óperunnar. Allt var frábær-
lega vel flutt svo semf við var að
búast af fyrsta flokks listamönnum.
Allir gáfu vinnu sína og eiga miklar
þakkir skilið. Síðast en ekki síst má
nefna Bergmálskórinn undir stjórn
hins mikla söngmeistara og kórstjóra
Jóns Hjörleifs Jónssonar, sem söng
einsöng jafnframt því að seiða hreina
tóna úr hverjum hálsi sem í salnum
sat. Á daginn var farið í ferðalög
um nágrennið og meðal annars hlýtt
á messu í Stokkseyrarkirkju.
Bergmál er félag fyrrverandi nem-
enda Hlíðardalsskóla og formaður
þess er Kolbrún Karlsdóttir. Til að
þessi hugsjón félagsmanna gæti orð-
ið að veruleika þurfti að gera upp
eina álmu skólans sem varla gat tal-
ist íbúðarhæf. Félagsmenn, ásamt
sjálfboðaliðum, stóðu fast að baki
formanninum og lögðu nánast nótt
við dag svo húsnæðið yrði þeim til
sóma, sem það og varð. Mest er þó
vert um þá vináttu og þann snertan-
lega kærleika sem umvafði gestina
í Hlíðardalsskóla þetta liðna sumar,
því munu þeir aldrei gleyma.
Hafið þökk fyrir, Guð blessi ykkur
öll.
F.h. dvalargesta,
PÉTUR MAGNÚSSON.
Virðingarleysi
Frá Kristínu Björnsdóttur:
í MORGUNBLAÐINU sunnudaginn
12. október er frétt um að fjórir þing-
menn, þar á meðal Siv Friðleifsdótt-
ir, hafi lagt fram frumvarp um að
„aldurstakmörk til kaupa og neyslu
áfengis verði lækkuð úr 20 árum í
18“.
Þingmenninrir leggja fram grein-
argerð með frumvarpinu, þar sem
þeir rökstyðja þessar skoðanir sínar
á ýmsa vegu en reka endahnútinn á
rökstuðning sinn með því að slá um
sig siðferðissjónarmiðinu og segja:
„Ut frá siðferðissjónarmiði vakni
spuming um áhrif þess að ungt fólk
alist upp við að það sé ekkert mál
að bijóta lög.“
Þessu síðasta er ég alveg sam-
mála, það er mjög áríðandi að börn
og ungt fólk alist upp við að virðing
sé borin fyrir lögum.
En hvar var þetta siðferðissjón-
armið Sivjar Friðleifsdóttur þegar
hún lýsti því yfir opinberlega að hún
bryti lögin um vernd barna og ung-
menna, vegna þess að hún teldi þau
úrelt?
Það er að vísu ánægjulegt að sjá
að Siv hefur ákveðið að fara rétta
leið og reyna að breyta þeim lögum
sem hún ber ekki virðingu fyrir í
staðinn fyrir að bijóta þau. En þrátt
fyrir það hefur Siv með virðingar-
leysi sínu tapað virðingu margra
ábyrgra foreldra sem bera hag barna
sinna fyrir brjósti.
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR,
Miðgarði 4, Egilsstöðum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesljók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á ánnan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.