Morgunblaðið - 18.11.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1995 33
AÐSENDAR GREINAR
M
PANTIÐ JÓLACJAFIRNAR
OC JÓLAFÖTIN TÍMANLECA 1
SUMAR VÖRUTECUNDIRNAR SEUAST UPP!
PÖNTUNARSÍMI 5552866. ,
£YRIRTfEKI
og
STOfNANIR
r VELJIÐ
ÍSLENSKAR
VÖRUR
<2)
íslenskt Qjátakk
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
Góður pappír
til endurvinnslu
Athyglisverð
skýrsla
RÍKISENDURSKOÐUN birti
nýlega skýrslu um stjórnsýsluúttekt
á Ríkisútvarpinu. Skýrslan var unn-
in að beiðni fjárlaganefndar. Út-
varpslög hafa verið til endurskoðun-
ar á undanförnum árum. Nefnd,
þar sem undirritaður gegndi for-
mennsku, skilaði tveimur frumvörp-
um um breytingu á útvarpslögum.
Var það fyrra einkum tengt aðild
að EES-samningnum og varð að
lögum 1993. Hið síðara var lagt
fram 1994 á 117. og 118. löggjafar-
þingi en ekki mælt fyrir því. Það
frumvarp er nú til skoðunar í
menntamálaráðuneytinu. Skýrsla
Ríkisendurskoðunar er gagnlegt
framlag til umræðunnar um mál-
efni Ríkisútvarpsins.
Dreifing útvarpsefnis
Skýrslan virðist byggð á sjálf-
stæðum athugunum að mestu leyti
og er því fróðlegt að bera tillögur
Ríkisendurskoðunar saman við til-
lögur útvarpslaganefndar frá 1994.
Á þessu sjálfstæði skýrslunnar er
þó ein undantekning. í kafla skýrsl-
unnar um dreifingu útvarpsefnis
metur Ríkisendurskoðun það svo
að það sé þjóðhagslega mun hag-
kvæmara að leigja ljósleiðara af
Póst- og símamálastofnun en að
endumýja eigið dreifikerfí. Þar virð-
ist Ríkisendurskoðun byggja mat
sitt eingöngu á skýrslu, sem Há-
skóli íslands vann fyrir útvarps-
laganefnd á árinu 1993 og leiddi
til þess að nefndin gerði tillögu um
það til menntamálaráðherra að Rík-
isútvarpið dreifði efni sínu um ljós-
leiðara í stað þess að endurnýja
sitt eigið dreifikerfi, og sparaði þar
með 400 milljónir í fjárfestingar-
kostnaði. Að sjálfsögðu er í því lít-
ill akkur að Ríkisendurskoðun end-
urtaki það sem þegar hefur verið
sagt á öðrum vettvangi, nema þar
komi til sjálfstætt mat stofnunar-
innar, en um það virðist ekki hafa
verið að ræða.
Skipulag og stjórn
Að því er varðar stjórnskipulag
Ríkisútvarpsins leggur Ríkisendur-
skoðun til að RÚV skiptist í tvær
megindeildir, hljóðvarp og sjónvarp,
en fjármáladeild og tæknideild verði
skilgreindar sem stoðdeildir. í frum-
varpi útvarpslaganefndar var lagt
til að RÚV skiptist í tvær megin-
deildir en verkefni fjármála- og
tæknideildar færðust til megin-
deilda. Stöður framkvæmdastjóra
fjármála- og tæknideilda átti að
leggja niður. Hér er því að mörgu
leyti um sambærilegar tillögur að
ræða.
Sömu sögu er að segja um ráðn-
ingu æðstu stjómenda RÚV. Ríkis-
endurskoðun leggur til að ráðning
útvarpsstjóra verði tímabundin. Til-
lögur útvarpslaganefndar voru á
þá leið að útvarpsstjóri og fram-
kvæmdastjórar hljóðvarps og sjón-
varps yrðu ráðnir til 5 ára með
heimild til endurráðningar einu
sinni. Bæði útvarpslaganefnd og
Ríkisendurskoðun leggja til að horf-
Ríkisútvarpið á tilvist
sína o g framtíð undir
því, segir Tómas I.
Olrich, að því takist að
nýta vel það fjármagn,
sem ríkisfjölmiðillinn
hefur umfram aðra ljós-
vakamiðla, til að gegna
því hlutverki og þeim
skyldum, sem hvíla á
stofnuninni umfram
aðra miðla.
ið verði frá því að menntamálaráð-
herra skipi í stöður framkvæmda-
stjóra.
Sameining fréttastofa
Lagt er til í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að fréttastofur Hljóð-
varps, Sjónvarps og íþróttadeild
verði sameinaðar. Hér er vikið í
grundvallaratriðum frá tillögum
útvarpslaganefndar, sem lagði til
að styrkja rekstrarlegt sjálfstæði
hvorrar deildar fyrir sig. Hljóðvarp
og sjónvarp eru mjög ólíkir miðlar.
Til þess að vel sé tekið á fréttum
og fréttatengdu efni í hljóðvarpi og
sjónvarpi er nauðsynlegt að hvor
miðillinn fyrir sig fái að njóta sér-
stöðu sinnar og nálgast viðfangs-
efni sín með eigin hætti. Sjónvarp
er mjög sterkur miðill, en hefur
sökum kostnaðar og tímaskorts til-
hneigingu til að vera ærið yfirborðs-
kenndur. Fréttaflutningur í sjón-
varpi getur af þessum sökum orðið
beinlínis villandi vegna flausturs-
legrar umfjöllunar. Hljóðvarp getur
veitt og á að veita sjónvarpi aðhald
og bjóða upp á ítarlegri úrvinnslu
og víðari umfjöllun en sjónvarp
getur tryggt. Það er því brýnt að
tryggja að hljóðvarp falli ekki i
skuggann af starfsemi sjónvarps.
Engu að síður er hægt að hafa
samstarf um fréttaöflun, sem getur
leitt til sparnaðar í rekstri.
Hlutverk útvarpsráðs
Ríkisendurskoðun gerir tillögur
um að hlutverki útvarpsráðs verði
breytt og því fengið hlutverk rekstr-
arstjórnar. í skýrslunni segir:
„Stofnunin telur að breyta eigi lög-
um um Ríkisútvarpið á þann veg
að útvarpsstjóri verði einn ábyrgur
gagnvart menntamálaráðuneytinu
og útvarpsráði vegna
starfsemi Ríkisút-
varpsins." Ennfremur
segir: „Útvarpsráð
ætti... að hafa eftirlit
með rekstri stofnunar-
innar og fylgjast með
því að kostnaður sé
innan ramma áætl-
ana.. Útvarpsstjóri
yrði ábyrgur gagnvart
útvarpsráði á rekstri
Ríkisútvarpsins, en út-
varpsráð ábyrgt gagn-
vart stjómvöldum."
Ljóst er af þessu að
gerð er tillaga um að Tómas I.
hlutverk útvarpsráðs Olrich
verði aukið verulegá.
Samkvæmt gildandi lögum er
útvarpsráði einkum falið það hlut-
verk að vinna að stefnumótun í
dagskrárgerð og annast eftirlit með
að ákvæðum laga um dagskrárefni
og fréttaflutning sé framfylgt. Ef
útvarpsráði er fengið það hlutverk
að vera rekstrarstjórn yfir Ríkisút-
varpinu, og útvarpsstjóri verður
ábyrgur gagnvart ráðinu á rekstri
stofnunarinnar, en útvarpsráð
ábyrgt á rekstrinum gagnvart
stjórnvöldum, þá horfir mjög til hins
verra með stjórnsýslulega ábyrgð á
málefnum stofnunarinnar.
Útvarpsráð er kosið af Alþingi.
Ef ráðið ber rekstrarlega ábyrgð á
Ríkisútvarpinu, hlýtur að mega
rekja einhveija fjármálalega ábyrgð
til Alþingis, sem skipar menn til
setu í útvarpsráði. Ríkisútvarpið
heyrir hins vegar undir mennta-
málaráðherra. Alþingi hefur eftir-
litshlutverki að gegna gagnvart
framkvæmdavaldinu, og á að veita
ráðherrum aðhald. Alþingi getur
því trauðla sinnt eftirlits- og að-
haldshlutverki sínu, ef tillögur Rík-
isendurskoðunar eru teknar alvar-
lega. Ollum er ljóst að það er ekki
ákjósanlegt kerfi í stjómsýslu að
aðilar hafí eftirlit með sjálfum sér.
Sú tillaga sem Ríkisendurskoðun
gerir varðandi útvarpsráð býður
upp á óljósa ábyrgð og gengur þvert
á viðleitni löggjafans að skerpa
aðskilnað löggjafarvalds, fram-
kvæmdavalds og dómsvalds. Er eins
og ekkert hafi lærst af reynslunni.
Mörg dæmi eru um það að stofnan-
ir, sem heyra undir framkvæmda-
valdið en lúta stjórn þingkjörinna
stjórna, lendi í einhvers konar
stjómsýslulegu tómarúmi, þar sem
ráðherraábyrgð er drepið á dreif
og dregið er úr stjómsýslulegu að-
haldi. Eru bankaráð ríkisbankanna
meðal þessara dæma.
Afnotagjöld og skattar
Mikil óánægja er með afnota-
gjöld Ríkisútvarpsins og hafa verið
stofnuð samtök til að beijast gegn
þeim. í raun eru gjöldin löngu hætt
að vera þjónustugjöld og ættu því
fremur að flokkast undir skatt, þar
sem skattstofninn er viðtækjaeign.
Ríkisendurskoðun bendir réttilega
á fjölmarga galla afnotagjaldsins.
Innheimta gjaldsins er kostnaðar-
söm og ekki sérlega árangursrík,
en byggist á víðtækri
upplýsingaöflun um
persónulega hagi
manna, sem jafna má
við persónunjósnir.
Leggur Ríkisendur-
skoðun til að leitað
verði nýrra leiða í þess-
um efnum, og bendir á
þá möguleika að af-
notagjöld verði bundin
við íbúðir og þau inn-
heimt með opinbemm
gjöldum í stað þess að
miðast við eignarhald
á viðtækjum ellegar að
gjaldið verið innheimt
sem nefskattur.
Útvarpslaganefnd
gerði sér vel grein fyrir margvísleg-
um göllum afnotagjaldsins og kann-
aði möguleika á öðrum leiðum. Að
því er nefskatt varðar, virtist inn-
heimtukerfi ríkisins ekki falla vel
að þeim skilyrðum sem nefndin setti
um innheimtu nefskatts. Ef reiknað
er með sömu tekjum RÚV og af-
notagjaldið gefur, og því er jafnað
niður á alla einstaklinga 16 ára og
eldri ásamt lögaðilum, yrði fjöldi
greiðenda um 212.000 og nefskatt-
urinn á ári kr. 8.160 (miðar er við
áætlaðar tekjur RÚV í íjárl.frv.
1994). Ljóst er að byrði barn-
margra fjölskyldna af slíkum skatti
yrði mun meiri með þessum hætti
en með núverandi afnotagjaldi, en
allar undanþágur myndu flækja
mjög innheimtu og gera hana
kostnaðarsamari. Ef skatturinn
dreifðist á þá sem greiða tekju- og
eignaskatt, yrði greiðendahópurinn
um 115.000, en skattbyrði þess
hóps er nú þegar ærin og tæplega
á bætandi. Sú hugmynd að miða
gjaldið við fasteignir hefur einnig
augljósa galla. Þar yrði í raun um
aukna fasteignaskatta að ræða,
sem féllu á um 78.000 greiðendur.
Er erfítt að sjá hvaða efni standa
til að skilgreina fasteignaeigendur
sem sérstakan grunn tekjustofns
fýrir Ríkisútvarpið önnur en hag-
kvæmni í innheimtu. Sjálfsagt er
hins vegar að gaumgæfa betur aðra
kosti en afnotagjaldið. Flestir eru
sammála um að á því séu alvarleg-
ir vankantar.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
koma fram fjölmörg athyglisverð
atriði er lúta að bættum rekstri
Ríkisútvarpsins. Verða þau ekki tí-
unduð hér en lögð áhersla á að
Ríkisútvarpið á tilvist sína og fram-
tíð undir því að því takist að nýta
sem best það fjármagn, sem ríkis-
fjölmiðillinn hefur umfram aðra
ljósvakamiðla til að gegna því hlut-
verki og þeim skyldum, sem hvíla
á stofnuninni umfram aðra miðla.
HSfundur er alþingismaður.
Strikamerkj alesarar
og handtölvur
vörutalningu.
RQC
LÁCMARKS OFNkFMI
ENGIN ILMEFNI
GAGNASTÝRINGmí
Suðuriandsbraut 46 • Sími 588 4900 • Fax 588 3201
- meö hollum mat!
Manneldisráð
Kays listinn ókeypis, jólalistinn kominn.
Full búð af vörum, alltaf útsala.
Opið 9-6 og
11-14 iaugard.
- kjarni málsins!