Morgunblaðið - 20.12.1995, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.12.1995, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ *************i Aðventutilboð kr. 300. HÁSKOLABÍÓ SÍMI 552 2140 Háskólabíó STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SAUR ERU FYRSTA FLOKKS. FRUMSÝND Á ANNANí JÓLUM STEPHEN DORFF GABRIELLE ANWAR B. DV v Mþl. aaslios Frumsýning jolamyndin 1995 ★★ Aðventutilboð 300 kr. Aðventutilboð 300 Dann er mættur aftur betri en nokkru sinni fyrr! Pierce Brosnan er James Bond. Mynd sem enginn íslendingur má mresa af! APOLLO ÞRETTANDI ★★ Pagsljós Aðventutilboð kr. 300. Aðventutilboð kr. 300. rj P.U Sýnd kl. 11. B. i. 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9 EMMA THOMPSON OG JONATHAN PRYCE í MARGVERÐLAUNAÐRI MAGNÞRUNGINNI KVIKMYND UM EINSTÆTT SAMBAND LISTAKONUNNAR DORU CARRINGTON VIÐ SKÁLDIÐ LYTTON STRACCHEY. HÚN ÁTTI MARGA ELSKHUGA, EN AÐEINS EINA SANNA ÁST. SÁLIN hans Jóns míns í miklum ham. Tveggj a skóla ball ►VERZLUNARSKÓLI fs- lands og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti héldu sameiginlegt jólaball á Hótel íslandi síðast- liðið fimmtudagskvöld. Kom- ust færri að en vildu, en gest- ir voru um 1.900 talsins. Páll EVA Albertsdóttir og Erna Ástvaldsdóttir voru komnar í jólaskap. Óskar Hjálmtýsson, Party Jóns míns héldu fjörinu uppi, Zone-gengið og Sálin hans ásamt fjölda plötusnúða. BJARKI Guðmundsson, Ragnar M. Ragnarsson, íris Ósk Valþórs- dóttir og Jóel Kristinsson ferðuðust alla leið frá Keflavík til að skemmta sér. Iðilfagur söngur TONLIST Gcisladiskur BITTE NÚ Geislaplata Borgardætra, sem eru: Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjáns- dóttir og Berglind Björk Jónasdóttir. Upptökustjóm, útsetning radda og hrynhljóðfæra: Eyþór Gunnarsson. Útsetning blásturshljóðfæra Ossur Geirsson og Eyþór Gunnarsson. Hljóðfæraleikarar: Eyþór Gunnars- son pianó, slagverk, harmonika. Þórður Högnason kontrabassi, Eð- varð Lámsson gítar, Einar Valur Scheving trommur og slagverk, Gunnlaugur Briem slagverk í „Rjartalag". Blásarar: Óskar Guð- jónsson, Jóel Pálsson, Haukur Grön- dal, Sigurður Flosason, Kristinn Sva- varsson, Eiríkur Óm Pálsson, Snorri Sigurðarson, Guðni Franzson, Kjart- an Óskarsson, Össur Geirsson. Bem- ardel kvartettinn: Zbigniew Dubik, Gréta Guðnadóttir, Guðmundur Kristmundsson, Guðrún Th. Sigurð- ardóttir. Sérstakir gestir í „Gott líf“: Ragnar Bjamason, Kristján Krist- jánsson og Ásbjöm Morthens. Upp- tökumenn: Eyþór Gunnarsson, Óskar Páll Sveinsson, Nick Cathcart Jones. Spor hf. gefur út. 29:30 mín, 1.999 krónur. BORGARDÆTUR sendu frá sér geislaplötu í fyrra sem féll í góðan jarðveg enda var þar vandað til verka. Á nýrri geislaplötu, Bitte nú, halda þær áfram þar sem frá var horfið og er sú nýja ekki síðri en hin fyrri, betri ef eitthvað er. Platan er að mörgu leyti keimlík hinni fyrri, en hefur þó breiðari skírskotun þegar að er gáð. Að vísu má alltaf deila um hversu langt eigi að ganga í því að dusta rykið af gömlum erlendum lögum og semja við þau íslenska texta. En Borgard- ætur eru ekki einar um það, því til- hneigingin í íslenskri hljómplötuút- gáfu virðist öll vera í þá veru um þessar mundir. Borgardætur ganga hreint til verks í þessum efnum og hafa það kannski fram yfir marga aðra að þær gera þetta afskaplega vel, nánast óaðfinnanlega liggur mér við að segja. Höfuðprýði Borgardætra er hinn íðilfagri söngur þeirra Andreu, Ell- enar og Berglindar Bjarkar. Raddir þeirra falla ákaflega vel saman og þessi failegi kvennasöngur yljar manni óneitanlega um hjartaræt- urnar á dimmum skammdegiskvöld- um. Eyþór Gunnarsson, sem hefur útsett raddirnar, á hér stóran hlut að máli. Það virðist vera alveg sama hvað sá maður tekur sér fyrir hend- ur á tónlistarsviðinu, það gengur allt upp. Eyþór á einnig heiðurinn af útsetningum hrynhljóðfæra og að hluta til útsetningum blásturs- hljóðfæra og strengjahljóðfæra, auk þess sem hann sér um upptöku- stjórn og spilar öll hljómborð, hluta af slagverki og sitthvað fleira. Þótt útsetningar taki allar mið af frumút- gáfu laganna, dylst engum, sem hlustar á þessa plötu, að hér er afar fagmannlega að verki staðið. Auk Eyþórs tekur einvalalið hljóðfæraleikara þátt í undirleiknum og stendur sig vel, þótt píanóleikur Eyþórs sé þar í sérflokki að mínu mati. Má sem dæmi taka yfirferð hans í laginu Marteinn (Miss Otis Regrets eftir Cole Porter), sem er eitt skemmtilegasta lag plötunnar, af mörgum góðum. Einnig er ánægjulegt innlegg þeirra Ragnars Bjarnasonar, Kristjáns Kristjáns- sonar og Ásbjörns Morthens í Iaginu Gott iíf. Besta lag pjötunnar er þó að mínum dómi Ég man hana mömmu (I Remember Mama eftir Charles Tobias), fallegt, rólegt lag með hugðnæmum texta eftir Friðrik Erlingsson. Hann semur reyndar flesta texta plötunnar og eru þeir með þeim betri sem hér hafa heyrst lengi. Einn texti er eftir Einar Thor- oddsen, Karlinn minn, og Ragnheið- ur Ásta Pétursdóttir á ágætan texta við lagið „Don’t Fence Me In“ sem hér heitir Frelsi ég finn. Ekki er ástæða til að gera upp á milli Borgardætra, enda hafa þær hver sinn ólíka söngstíl. Ég verð þó að játa að ég hef alltaf verið dálítið „svag“ fyrir Andreu, - sem söng- konu, og vil gjarnan koma þeirri skoðun minni á framfæri að mér finnst löngu tímabært að hún syngi inn á sólóplötu. Og ég veit að það eru fleiri en ég sem bíða spenntir eftir því. Með þessu er ég ekki að kasta rýrð á framlag hinna tveggja því Bitte nú er fyrst og fremst af- rakstur velheppnaðrar samvinnu þeirra þriggja, undir leiðsögn og stjórn Eyþórs Gunnarssonar, sem á hér allan heiður skilinn. Sveinn Guðjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.