Morgunblaðið - 11.01.1996, Page 20

Morgunblaðið - 11.01.1996, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Erfiðir tímar fyrir Clinton-hjónin Ný gögn tal- in reiðarslag fyrir Hillary Washington. Reuter. NÝJAR upplýsingar hafa komið fram um, að Hillary, eiginkona Bills Clintons Banda- ríkjaforseta, hafi verið meiri þátttakandi í svo- kölluðu Whitewater- og Travelgate-máli en hún hefur hingað til viljað viðurkenna. Kemur þetta sér afar illa fyrir hana og Clinton,. ekki síst nú á kosningaári, auk þess sem hann á sjálfur undir högg að sækja vegna ásakana konu nokkurrar um að hann hafi sýnt henni kynferðislega áreitni. Orðstír Hillary hefur farið mjög vaxandi að undanförnu og um þess- ar mundir er hún að leggja upp í ferð um Bandaríkin til að fylgja eftir bók, sem hún hefur skrifað um börn. Upplýsingarnar, sem nú hafa komið fram, eru því mikið reiðarslag fyrir hana og raunar taldar alvarlegri fyrir Clinton í kosningabaráttunni framundan en þær ásakanir um kynferðislega áreitni, sem hann stendur sjálfur frammi fyrir. Hillary hefur áður svarið eið að Sjáftu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsins! Hillary Clinton því að hafa aðeins unn- ið lítilljörleg verk fyrir sparisjóðinn Madison Guaranty, sem tengd- ist svokölluðu Whitew- ater-máli, fasteigna- og fjármálabráski í Arkansas, en nú virðist af gögnum, sem Hvíta húsið hefur birt, að hún hafí komið meira við sögu en hún vill vera láta. Sparisjóðurinn varð gjaldþrota og kostaði það skattgreið- endur fjóra milljarða króna. Hvíta húsið hefur einnig gert opinber minnisblöð, sem benda til, að Hillary hafi ráðið mestu um, að sjö starfsmönnum ferðaskrifstofu Hvíta hússins var sagt upp störfum 1993 en hún hef- ur alltaf þvertekið fyrir að hafa haft nokkur afskipti af því. Vinsældirnar minnka í skoðanakönnun, sem ABC-sjón- varpið gerði í fyrradag, kváðust 46% aðspurðra vera ánægð með störf forsetafrúarinnar en mestra vinsælda naut hún í apríl 1994 þeg- ar 60% voru á þessu sama máli. Þeim hefur líka fjölgað, sem telja hana segja ósatt um Whitewater- málið, og tæplega helmingur segir það skipta verulegu máli. Fréttaskýrendur segja of snemmt að spá í hvaða afleiðingar þetta mál hefur fyrir Clinton en ýmsir telja, að hún gerði best í að svara þessum nýju grunsemdum opinber- lega og frammi fyrir alþjóð. mmttíwM Reuter PALESTÍNSKAR konur hlusta á útvarpsfréttir um 800 palestínska fanga sem Israelar létu lausa í gær. Hussein fagnað í Israel Tel Aviv, Jerúsalem. Reuter. HUSSEIN Jórdaníukonungur kom í eins dags opinbera heimsókn til Tel Aviv í gær og var tekið með miklum fögnuði. Mörg þúsund manns voru við göturnar sem bíla- lest konungs fór um, fánum land- anna va_r veifað. „Ég minnist þess ekki að ísraelar hafi beðið með jafn mikilii eftirvæntingu eftir nokkrum gesti og yður, herra konungur," sagði Shimon Peres forsætisráð- herra. Konungur flaug sjálfur þyrlu til herflugvallar í útjaðri borgarinnar og er hann kom út úr þyrlunni föðmuðust hann og Peres. Jórdanía og ísrael undirrituðu friðarsamn- inga í október 1994 en vitað er að Hussein hefur áður heimsótt Tel Aviv á laun þótt ríkin tvö hafi form- lega átt í stríði. Geysilegar öryggisráðstafanir voru vegna heimsóknarinnar og tókst því fáum úr röðum almenn- ings að koma auga á konung, flest- ir urðu að láta sér sjónvarpsútsend- JANUARTILBOÐ TONIG þraktæki TG-702 PM Þrekhjól m. púlsmæli ★ Tölvu-púlsmælir ★ Newton þyngdarstillir ★ Breitt, mjúkt sæti Verð 26.306. Nú 18.414. TG-1828 Klifurstigi Deluxe ★ Tölvumælir ★ Stillanleg hæð fyrir hendur ★ Mjög stöðugur Verð 31.460. Nú 22.022. TM-302 Þrekstigi Deluxe ■k Tölvumælir •k Mjúkt, stórt, „stýri" tr Mjög stöðugur Verð 26.306. Nú 18.414. Póstsendum um land allt . Reióhjólaverslunin — ORNINNÞ* Opið laugardaga kl. 10-14 ( EE V'SA SKEIFUNNI 11, SÍMI 588 9890. ingu nægja. Síðar var ætlunin að Hussein sæmdi tvo menn, Jórdaníu- mann og ísraela, friðarverðlaunum. Átti athöfnin að fara fram við Gal- íleuvatn að viðstöddum Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Wash- ington hafa heitið Jórdaníu miklum efnahags- og hergagnastuðningi fyrir að semja frið við Israel. Palestínumenn lítt hrifnir Dagblöð Palestínumanna gagn- rýndu flest konung fyrir heimsókn- ina, sögðu að eðlilegra hefði verið að Hussein hefði fyrst heimsótt svæði undir stjórn Frelsissamtaka Palestinumanna (PLO. Samskipti konungs og PLO hafa lengi verið stirð en um helmingur íbúa Jórdaníu á rætur að rekja til Palestínu. Vesturbakkinn var undir stjórn Jórdaníu til 1967 er ísraelar hernámu hann í sex daga stríðinu. 1988 ákvað Hussein að gera ekki lengur tilkall til svæðisins. Fangar leystir úr haldi Israelsstjórn lét í gær lausa um 800 fanga úr röðum Palestínu- manna en samið var um það í sept- ember að alls yrðu 1.200 iátnir laus- ir fyrir þingkosningarnar á her- numdu svæðunum sem verða 20. janúar. Margir fanganna eru félag- ar í vinstrisinnuðum hópum eða samtökum heittrúarmanna er barist hafa á móti friðarsamningum við Israela. Palestínumenn segja að enn séu þúsundir pólitískra fanga í haldi Israela, flestir þeirra sitji inni vegna andstöðu við hernámið. Alþjóðleg eins dags ráðstefna um 50 ríkja var haldin á þriðjudag til þess að fjalla um aðstoð við upp- byggingarstarf sjálfstjórnarinnar á Vesturbakkanum og Gaza. Búist var við að ríkin 50 myndu heita sjálfstjórn PLO jafnvirði eins millj- arðs Bandaríkjadala í aðstoð, eða sem svarar 65 milljörðum króna. Ný skoðanakönnun í Noregi Heimsmet í tíðni vetrardrunga Ósló. Reuter. HVERGI í heiminum er svo- nefndur vetrardrungi jafn al- gengur og í Noregi, segir í nýrri skýrslu sálfræðideildar háskólans í Tromso. Að sögn Aftenposten tóku 6.300 stúdentar við hjúkrun- ar- og kennaraskóla frá Kristian- sand í suðri til Hammerfest í norðri þátt í könnuninni. Vetrardrungi er ólíkur öðrum andlegum kvillum að því leyti áð hann leggst eingöngu á fólk á veturna, kemur á haustin en hverfur á vorin. Fólkið hefur það prýðilegt á sumrin. Mest er tíðni þunglyndisins hjá unga fólkinu yfir fjóra dimmustu vetrarmán- uðina á Bodo-svæðinu. Þar segj- ast 27% fyllast depurð á þessum árstíma. Þótt einkennilegt megi virðast er hlutfallið lægst í nyrstu fylkjum Noregs, Troms og Finn- mörku þar sem sólin sést ekki í samfleytt tvo mánuði yfir vetur- inn. „Hugsanleg skýring á því að .tíðnin-er minni í nyrstu fylkjun- um gæti verið að þeir sem hafi þolað skammdegið verst hafi flutt frá svæðinu," segir Arne Holte prófessor. „Einnig getur verið að undanfarin 10.000 til 15.000 ár hafi átt sér stað erfða- fræðilegt náttúruval; því norðar sem haldið sé þeim mun betur hafi íbúarnir lagað sig að þessum aðstæðum." Sjaldgæft í Florida Sé hugað að alþjóðlegum könn- unum er ljóst að meðal fólks í Suður-Noregi er vetrardrungi mjög tíður, 17% kvarta undan honum en t.d. í Florida er hlut- fall árstíðabundins þunglyndis aðeins um 1%. Vetrardrungi hefur ekki verið mikið rannsakaður að sögn Holte. Hann er mun algengari meðal kvenna en karla, skiptingin er í þessum efnum jafnari í Noregi en í öðrum löndum. Mjög er misjafnt hve þungt þessi andlegi kvilli leggst á fólk, oft er aðeins um að ræða svolitla depurð en stundum er vandinn svo mikill að fólk þarf læknis- hjálpar við. Sjálfsvíg vegna þung- lyndis af þessu tagi munu vera fátíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.