Morgunblaðið - 11.01.1996, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Tökum forystuna
FYRIR 10 árum
leystist úr læðingi frá
íslandi mikill kraftur
sem breytti heims-
mynd okkar. Eftir leið-
togafundinn í Höfða
Ieið kalda stríðið undir
lok og þáttaskil urðu í
heiminum. Okkur ís-
lendingum var gefið
það í vöggugjöf að
gegna forystuhlutverki
í því að leiða heiminn
til friðar. Á árinu 1996
mun kraftmikla ísland
byija að bijóta af sér
ísinn enn frekar og
vakna af löngum vetr-
ardvalanum. Við mun-
Ástþór
Magnússon
og tilbrigðum sem
fylgja fegurð náttúr-
unnar.
íslendingar geta og
eiga að gera friðarboð-
skap að atvinnugrein.
Okkur er það í blóð
borið að flytja út fyrir
landsteinana dýrmæta
reynslu sem er kær-
komin og nauðsynleg
fyrir allan heiminn. Við
eigum þjóðhöfðingja
sem stendur utan dag-
legs amsturs stjórn-
sýslunnar sem hlut-
laust tákn þjóðarinnar.
í hugum okkar flestra
stendur embætti for-
um hefjast handa við það merkilega
verkefni sem forfeður okkar lögðu
homstein að fyrir nær þúsund árum
er þeir lögðu niður vopn og víkinga-
klæði. Á íslandi hefur ríkt friður
allar götur síðan. Meðan blóðugar
styijaldir hafa geisað um heiminn,
hafa íslendingar einir þjóða aldrei
tekið sér vopn í hönd til að leysa
úr deilumálum hvað sem yfir þjóð-
ina hefur dunið. Hreint og fagurt
land, friðsælt og gott mannlíf, sam-
hjálp ojg samhugur er vitnisburður
okkar Islendinga um árangur friðar
og afvopnunar.
Hinar óhugnanlegu náttúruham-
farir á Súðavík og Flateyri sýndu
glöggt hve þjóðin stendur saman
eins og klettur þegar á reynir. Auk
þess að sýna samhug í verki, hafa
Islendingar leyst farsællega úr
mörgum vandamálum með umburð-
arlyndi. Kristnitakan á Þingvöllum
er dæmi um slíkt umburðarlyndi
"sem Ieiddi til friðsamlegrar lausnar
á miklu vandamáli þess tíma. Þá
voru leiddar saman í sátt og sam-
lyndi um trúmálin fylkingar úr
mörgum áttum á íslandi, og síðar
reis hér land friðarins. Þessi reynsla
mun verða mikilvægasta útflutn-
ingsvara okkar íslendinga á kom-
andi árum. Okkar bíður það hlut-
verk að leiða heiminn til friðar, að
kenna bömum jarðarinnar þörfina
á umburðarlyndi og samhug manna
á meðal, og hvernig fagna beri líf-
inu í öllum þeim mismunandi litum
seta Islands sem tákn um samstöðu
þjóðarinnar. Frú Vigdís Finnboga-
dóttir hefur á undanförnum 16
árum komið viða fram og unnið
hjörtu fólks fyrir hönd okkar sem
geislandi verndarengill þjóðarinnar.
Lögð hefur verið rík áhersla á að
forsetinn standi utan umræðu um
stjómmál sem þingmenn og ráðherr-
ar deila um á mismunandi viðeig-
andi hátt. Ef forsetinn væri með á
þeim vettvangi, er hætt við að emb-
ættið myndi fljótt missa þá ímynd
samhugar sem það hefur í dag.
Skiljanlega, nú þegar ganga skal
til kosninga um nýjan forseta, er
rætt um þetta embætti, tilgang
þess og markmið. Sumum finnst
þetta hálfgerð vandræðastaða, þar
sem embættið hefur nánast engin
völd í landinu og forsetanum því á
margan hátt miklar skorður settar
hvað varðar viðræður og samneyti
við forseta annarra þjóða, sem flest-
ir hveijir gegna forystuhlutverki í
stjórnsýslunni. Lítil þjóð sem íslend-
ingar hefur ógjarnan efni á því að
hafa einhveija skrautdúkku með
tilheyrandi fylgdarliði á Bessastöð-
um. I Bretlandi er fólk gjarnan
þeirra skoðunar að halda beri kon-
ungsijölskyldunni uppi vegna þeirra
miklu ferðamannatekna og kynn-
ingar í ijölmiðlum um allan heim
sem skapast í kringum þetta fólk.
Það er hveijum hugsandi manni
augljóst að við íslendingar þurfum
að sníða okkur stakk eftir vexti eða
íslendingar eiga að
gera friðarboðskap að
atvinnugrein, segir
—
Astþór Magnússon,
sem hér skrifar um
heimsfriðinn.
finna nýtt hlutverk og nýjar tekju-
lindir á móti kostnaði okkar af
embætti forseta.
Ef rétt verður haldið á spilunum
á næstu mánuðum og árum, getur
forseti íslands orðið mesta tekjulind
þjóðarinnar. Forseti okkar hefur þá
óvenjulegu stöðu að standa utan
við stjórnsýslu þjóðarinnar, og það
er einmitt mikil þörf á slíkum óhlut-
drægum aðila, einskonar sáttasemj-
ara til friðar, á alþjóðlegum vett-
vangi. Undanfarin ár hafa Banda-
ríkjamenn gegnt forystuhlutverki
við friðarsamninga. Hins vegar eru
mjög skiptar skoðanir innan Banda-
ríkjanna um þetta hlutverk, og alls
óvíst eftir forsetakjör þarlendis á
þessu ári, hvort þetta hlutverk helst
óbreytt. Einnig er það oft óhjá-
kvæmilegt að ýmsir hagsmuna-
árekstrar verði milli viðsemjenda
og stórvelda svo sem Bandaríkj-
anna. Það er einnig kaldhæðnislegt
að ætlast til þess að stærsti vopna-
sali heimsins, Bandaríkin, gegni
óhlutdrægu hlutverki við að koma
á afvopnunarstefnu um heiminn.
Það hefur komið glöggt í ljós á
undanförnum mánuðum að á þeim
garðinum kennir ýmiss tvískinn-
ungsháttar í þeim málum, m.a. hvað
varðar kjarnorkuafvopnun. Það er
alls ekki hægt að ganga að því vísu
að forseti Bandaríkjanna geti gegnt
hlutverki sáttasemjara við öll tæki-
færi eða boðað frið á jörð á óhlut-
drægan hátt.
Enginn er betri í þetta hlutverk
en forseti íslands. Þjóð okkar er
virt og vel liðin um allan heim og
við erum sú þjóð, sem búið hefur
lengst af öllum við frið á jörð. Við
erum sú þjóð ein sem aldrei hefur
oeso»r
HIGH DESERT
24-HOUR ROYAL JELLY
(DROTTNINGARHUNANG)
^H-DESERl
J4-hour
JELLY
«'r. -1.«
DROTTNINGARHUNANG er sannarlega stórmerkilegt
náttúruefni, sem hefur verið notað af mannkyninu
gegnum aldir. Ef eiginleikar drottningarhunangs eiga að
skila sér, er skynsamlegt að neyta þess í hreinu, lífrænu
og óunnu formi.
HIGH DESERT DROTTNINGARHUNANG er ferskt og
óunnið (ekki verksmiðjuunnið) lífrænt undursamlegt
náttúruefni. Peim fjölgar stöðugt sem neyta HIGH
DESERT DROTTNINGARHUNANGS.
' tyðÍH oesert
n í póstkröfu um land allt.
mmmn 1 ^
blómouQl
Borgarkringlunni 2 hæð.
Símar 85 42 117 & 566 8593.
rekið skipulagðan hernað eða gegnt
herþjónustu. Smæð þjóðarinnar er
okkar máttur á þessum vettvangi
og gerir okkur kleift að taka á
málum án hlutdrægni. Með því að
gera forseta íslands að boðbera
friðar til heimsins mun rísa á ís-
landi ný og kærkomin atvinnugrein
sem getur bjargað milljónum
mannslífa og linað þjáningar um
allan heim.
Mörgum þeim sem enn sofa vetr-
ardvalanum finnst ég vafalaust
boða einhveija fjarstæðu þegar ég
tala um ísland sem leiðandi afl til
friðar. En þeir láta blindast af
umíjöllun fjölmiðla um mikilvægi
Bandaríkjanna í friðargæslu og
hvernig vopnaðar sveitir NATO
ætli að koma á friði t.d. nú í Bosn-
íu. Það gleymist, að friður er hugar-
ástand sem ekki er hægt að koma
á með byssu í hendi.
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
Þannig voru það skrif, ræður og
áhrif sem áttu sér upptök hjá að-
eins einum valdagráðugum manni,
Slobodan Milosevic formanni
kommúnistaflokksins í gömlu Júgó-
slavíu, sem í upphafi komu á stað
hinu blóðuga stríði á þeim bænum.
Slobodan er alls ekki eini bijálæð-
ingurinn sem hefur kallað yfir heim-
inn slíkar hörmungar á þessari öld
með því að misnota fjölmiðlatækn-
ina. Ádolf Hitler, Saddam Hussein
tókst þetta og Zhírínovskíj hefur
ekki farið leynt með fyrirætlanir
sínar komist hann til valda. Á sama
hátt og hægt er að æsa fólk til stríðs
með fjölrcuðlum, er hægt að nota
fjölmiðlatækni til að koma á friði.
Með jákvæðri fjölmiðlun má gefa
almenningi dýpri skilning á tilveru
sinni. Almenningur í fyrrverandi
Júgóslavíu er þreyttur á stríðsbrölt-
inu og flestir eiga enga ósk heitari
en að búa í sátt og samlyndi með
nágrönnum sínum. Hins vegar er
endalaust alið á þjóðernishyggju og
sundrung. Hér þarf að koma til
nýtt jákvætt afl, sem lýsir leiðina
til friðar. Við þurfum að opna hjörtu
fólksins fyrir ljósinu.
ísland, með forseta okkar í farar-
broddi sem tákn um frið og sam-
hug, gæti sem eina vopnlausa þjóð-
in í NATO bandalaginu orðið aflið
til að vinna friðinn með kærleika
og rökhyggju að vopni. Máttur orðs-
ins er mikill. Við eigum mikið af
góðu fjölmiðlafólki sem gæti veitt
þessu máli lið og innleitt jákvæða
fjölmiðlun í alþjóðlegu samstarfi.
Island gæti byijað á því að boða
frið og kærleika í Bosníu með því
að koma á fót samstarfi um friðar-
útvarp í Sarajevó. í stað þess að
skipa fólki í flokka eins og nú er
gert þegar rætt er um vandamál
stríðsins, yrði lögð áhersla á að
leysa málið með samhug allra
landsmanna, gjarnan með því að
fólk úr öllum áttum komi saman í
útsendingu. Slík fjölmiðlun gæti
komið á jákvæðri skriðu til friðar
um allt landið.
Leiðtogafundurinn í Reykjavík
fyrir 10 árum gaf heiminum tæki-
færi sem má ekki ganga okkur úr
greipum. Við lok kalda stríðsins
skapaðist fýrst möguleiki á því að
koma á heimsfriði. Það er sorglegt,
að enn í dag byggjum við jörð sem
er næstum járni klædd af ógnvæn-
legum útrýmingarvopnum, og lítið
lát á tvískinnungshætti og hinum
geðveikislegu tilburðum þjóðanna
til að halda áfram að fjárfesta í
dauðanum. í dag er eyðslan í hern-
aðarbröltið talin vera 144 milljarðar
íslenskra króna hvern einasta dag
ársins. Þetta er þó aðeins um 6%
af heildinni og atvinnugreinar svo
sem ferðaþjónusta eru nú mun
stærri en vopnaiðnaður. Þrátt fyrir
þetta eru sumar þjóðir enn fastar
í gamla tímanum svo sem Frakkar
sem halda áfram tilraunum með
kjarnorkuvopn og virða að vettugi
mótmæli annarra jarðarbúa. Frakk-
ar komast upp með þetta ódæði
gegn jörðinni því í augum stjórn-
valda á Vesturlöndum tilheyra
Frakkar „ábyrgum þjóðum“. Mikil
þörf er á sáttmála sem setur jarð-
arbúum skýrar reglur um umgengni
við náttúruna og mannfólkið og
setja myndi alþjóðleg lög gegn
kj arnorkuvopnum.
Míkhaíl Gorbatsjov braut blað í
sögunni á leiðtogafundinum í
Reykjavík fyrir 10 árum og er sú
persóna sem á hvað mestar þakkir
skilið fyrir lok kalda stríðsins. Þessi
merki maður starfar enn í þágu
mannkyns, nú sem einn frumkvöð-
ullinn að jarðarsáttmála. Alþjóða-
stofnunin Friður 2000, sem stofnuð
var á íslandi fyrir nokkrum mánuð-
um, hefur gerst stuðningsaðili þessa
átaks, og vinnur að því að kynna
þann möguleika að leiðtogar heims-
ins hittist á Þingvöllum árið 2000
til að undirrita jarðarsáttmála.
Stefnt er á undirbúningsráðstefnu
um þetta mál síðar á þessu ári. Þá
um leið er ráðgert að setja upp
minnismerki í tilefni af leiðtoga-
fundinum og hefja afhendingu ár-
legra friðarverðlauna frá íslandi.
Ég kynnti þetta mál lítillega á ráð-
stefnu grasrótarsamtaka hjá Sam-
einuðu þjóðunum í New York í októ-
ber sl. Þar eins og annars staðar
sem ég hef boðað friðarboðskapinn
frá Islandi, er Islandi tekið með
opnum örmum sem landi friðarins.
Nú er á annað þúsund íslendinga
og meira en eitt hundrað fjöldasam-
tök hvaðanæva úr heiminum aðilar
að íslensku sjálfseignarstofnuninni
Friður 2000. Meðal annars er unnið
að því að koma upp internetmiðstöð
hér á landi fyrir bandarísku stofn-
unina CCC-UN, sem stofnuð var
af fyrrverandi forsetafrú Bandaríkj-
anna, Eleanor Roosevelt, til að
miðla upplýsingum til almennings
um störf Sameinuðu þjóðanna. Til-
gangurinn með internetmiðstöðinni
á Islandi er að samhæfa aðgerðir
á annað þúsund grasrótarsamtaka
um allan heim frá landi friðarins.
íslendingar, stöndum saman um
stærsta og mikilvægasta málefni
allra tíma, heimsfriðinn. Brettum
um ermar og göngum til verka.
Bregðumst ekki skyldu okkar við
mannfólkið og náttúruna. Skorum
á Alþingi að forseti íslands og
stjórnvöld beiti sér fyrir því á alþjóð-
legum vettvangi að tekin verði upp
ný og farsælli stefna í friðarmálum
heimsins.
Höfundur er talsmaður „Friðar
2000“.
Frábært námskeið fyrir byrjendur:
WllÍöWS9Word ©g licel
hk 96011
Tölvu- og verkfræölþipnustan
TölvurSögjöf • námskeiö • útgáfa
Grensásvegi 16 •
■ útgáfa
• sími 568 8090
Rosenthai
• Brúðkaupsgjaíir +
• Tímamótagjafir u
• Verð við allra hæfi f\C)úe/l/x^\L-
Hönnun Oggxði 1 sél'flokki Laugavegi 52, sími 562 4244.