Morgunblaðið - 18.01.1996, Page 1
88 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
14. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Talið að mikið mannfall hafi orðið i Pervomaískoje sem Rússar hafa nánast jafnað við jörðu
Hóta því að átökin
breiðist frekar út
Moskvu, Istanbúl, London, Tsjetsjníju,
skammt frá Pervomaiskoje. Reuter.
HERSTJÓRNANDI tsjetsjenskra
uppreisnarmanna hótaði því í gær
að sjálfstæðir hópar uppreisnar-
manna kynnu að færa átökin í
Tsjetsjníju enn frekar inn í Rúss-
land. Talsmaður rússnesku stjórn-
arinnar lýsti því yfir í gær að látið
hefði verið af frekari tilraunum til
að frelsa gíslana sem eru í haldi
tsjetsjenskra skæruliða í bænum
Pervomaiskoje. „Ákvörðun hefur
verið tekin um að ljúka aðgerð-
inni,“ sagði talsmaðurinn. Gerðu
Rússar geysiharðar árásir á bæinn
í gær og er nær engin von til að
þeir sem þar eru, lifi þær af. I
gærkvöldi var óljóst hvort Rússar
hefðu tekið bæinn en þeir segja að
tekist hafi að bjarga 28 gíslum. í
gærkvöldi sögðu gíslatakarnir á
Svartahafi að þeir kynnu að sleppa
öllum 200 gíslunum af farþegaskip-
inu Avrasíu, sem þeir tóku í fyrra-
kvöld, kæmust þeir óáreittir til Ist-
anbúl.
Neitar aðild að gíslatöku
Aslan Maskhadov, herstjórnandi
Tsjetsjenaleiðtogans Dzhokars
Dúdajevs og aðalsamningamaður
hinna mörgu uppreisnarhópa
Tsjetsjena er samið var um vopna-
hlé í júlí, sagðist í gær ekki hafa
átt neinn þátt í gíslatökumálunum
Mögulegt að gísl-
ar á Svartahafi
verði látnir lausir
í Dagestan og á Svartahafi. Hann
sagðist heldur ekki hafa staðið fyr-
ir brottnámi 30 Rússa í Grosní á
þriðjudag en markmiðið með þeirri
aðgerð hefði verið að þvinga Rússa
til að leyfa Salman Radújev og
mönnum hans, er enn halda tugum
gísla í Dagestan, að fara til
Tsjetsjníju. Sjálfstæðir hópar upp-
reisnarmanna hefðu verið að verki.
Maskhadov, sem er fyrrverandi
liðsforingi í her Sovétríkjanna
gömlu og barðist í Afganistan, var-
aði stjórnina í Kreml við í gær.
„Ægilegasta stund átakanna er að
renna upp, þegar þau breiðast út
yfir landamæri Tsjetsjníju,“ sagði
hann. „Það kæmi mér ekki á óvart
ef einn af hópunum okkar birtist
fljótlega í Mozdok, Vladíkavkaz,
Saratov, Moskvu eða Astrakan".
Gagnrýna Tyrki
Öryggisráðstafanir voru hertar á
flugvöllum Moskvu í gær vegna
gíslatökumálanna. Aðstoðarlög-
reglustjórinn á Séremetévo-flugvelli
sagði að ijölgað hefði verið í lögregl-
uliði á öllum vegum er lægju til
vallarins. „Eftirlitsmenn kanna alla
grunsamlega bílaumferð og skilríki
ökumanna," sagði hann.
Rússar sögðust í gær hafa oftar
en einu sinni varað tyrknesk stjórn-
völd við því að útlægir Tsjetsjenar
þar í landi gætu gripið til hryðju-
verka en stjórnvöld í Ankara hefðu
hundsað þær viðvaranir. Jafnframt
var gefið í skyn í Moskvu að menn
Dúdajevs hefðu fengið að þjálfa sig
í Tyrklandi og fengið þar lyf án
þess að reynt hefði verið að grípa
inn í.
- Mannræningjarnir á Svartahafi,
sögðu í gær að eina ósk þeirra
væri sú að öryggissveitir hefðu
ekki afskipti af gíslamálinu. „Við
erum ekki morðingjar," sagði einn
þeirra. Yfírmaður tyrknesku leyni-
þjónustunnar, Sonmez Koksal, hét
hópnum því að skipið gæti haldið
óáreitt til Istanbúl.
Harkalegar aðgerðir Rússa gegn
Tsjetsjenum nú vekja æ meiri
áhyggjur á Vesturlöndum og gætu
valdið því að þeir fengju ekki aðild
að Evrópuráðinu. í næstu viku
verða á þingi ráðsins greidd at-
kvæði um umsókn Rússa sem hafa
haft áheyrnarfulltrúa frá 1992.
Ákvörðun var frestað í fyrra vegna
óánægju með mannréttindabrot
Rússa í Tsjetsjníju.
■ Aðild Rússa/17
■ Flugskeyti og þungavopn /18
RÚSSNESKIR sérsveitarmenn taka sér hlé frá bardögum við
bæinn Pervomaiskoje í gær. Skömmu síðar skutu Rússar Grad-
flaugum að bænum en þær valda gifurlegri eyðileggingu.
Grískir sósíalistar velja leiðtoga
Fjórir sækjast
eftir embættinu
Aþena. Reuter.
Reuter
SILVIO Berlusconi lítur um öxl í réttarsal í gær. Réttarhöldum
yfir honum og tíu öðrum var frestað um lVi viku.
Berlusconi fyrir rétti
Mílanó. Reuter.
GRISKI sósíalistaflokkurinn (PA-
SOK) hyggst kjósa eftirmann
Andreas Papandreou forsætisráð-
herra á þingflokksfundi í dag.
Papandreou sagði af sér í byijun
vikunnar en hann hefur legið al-
varlega veikur á sjúkrahúsi um
nokkurt skeið.
Ejórir frammámenn í flokknum
hafa lýst því yfir að þeir gefi kost
IRAKAR eru reiðubúnir að ganga
til viðræðna við Sameinuðu þjóð-
irnar um olíusölu án skilyrða, að
sögn hinnar opinberu fréttastofu
landsins, INA.
„Irakar munu bregðast við
áskorun um að mæta til viðræðna
um olíu í skiptum fyrir mat og
lyf, svo fremi sem það verður eng-
á sér í embætti flokksleiðtoga og
forsætisráðherra; Gerassimos Ars-
enis, fyrrum varnarmálaráðherra,
Costas Simitis, fyrrum iðnaðarráð-
herra, Yannis Charalambopoulos,
fyrrum varnarmálaráðherra, og
Akis Tsohatzopoulos innanríkis-
ráðherra.
Ekki er búist við að fleiri flokks-
menn gefi kost á sér.
um skilyrðum háð,“ hafði frétta-
stofan eftir Tareq Aziz, aðstoðar-
forsætisráðherra. Kvaðst Aziz
hafa beðið sendiherra íraks hjá
SÞ að koma þessu á framfæri við
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóra SÞ.
■ Saddam segir/21
SILVIO Berlusconi, fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu, kom í
gær fyrir rétt í Mílanó vegna
ákæru um spillingu. Auk Berl-
usconis eru bróðir hans, Paolo,
og níu aðrir ákærðir í málinu en
aðeins fjórir úr hópnum voru
viðstaddir réttarhöldin. Berlusc-
oni var brosmildur og afslappað-
ur þegar hann kom til réttarins.
Hann ítrekaði sakleysi sitt í sam-
tali við fréttamenn og veitti eig-
inhandaráritanir í réttarhléi.
Réttarhöldunum var í gær
frestað til 26. janúar nk.
„Ég tel mig ekki vera sakborn-
ing,“ sagði Berlusconi. „Þjóðin
veit hverjir eru sekir og hverjir
eru fórnarlömb, hverjir eru góð-
ir og hverjir vondir. Fólk veit
fullvel hvað er að gerast.“
Þeir þrír sem mættu til réttar-
ins í gær eru skattaeftirlitsmenn
en á meðal þeirra sem kusu að
sitja heima var skattaráðgjafi
Fininvest, fyrirtækjasamsteypu
Berlusconis. ForsvarsmennFin-
invest eru sakaðir um að hafa
greitt skattaeftirlitsmönnum
mútur.
Op ræn-
ingjaí
réttarsal
Ósló. Reuter.
NORSKUR dómstóll dæmdi í
gær fjóra menn til fangavistar
fyrir að stela málverki Edvards
Munchs, „Ópinu“, og reyna að
selja það. Einn sakborninga,
Paal Enger, grýtti vatnskönnu
í gólf réttarsalarins er dómur
var kveðinn upp og æpti: „Ég
er saklaus. Ég hef aldrei stolið
neinu málverki." Varð að
draga Enger út úr réttarsaln-
um.
Réttarhöldin yfir fjórmenn-
ingunum hafa staðið í fjóra
mánuði. Hinn 28 ára gamli
Enger, sem talinn er höfuð-
paurinn, var dæmdur í sex ára
og þriggja mánaða fangelsi og
William Aasheim, sem er tví-
tugur, hlaut þriggja ára og níu
mánaða fangelsisdóm. Þá voru
tveir aðrir menn dæmdir í fjög-
urra og tveggja ára fangelsi
fyrir að selja stolna muni og
hafa lagt á ráðin um sölu
„Opsins".
Fjórmenningarnir hafa
áfrýjað dómnum.
Irakar fallast á að
ræða olíusölu við SÞ
Baghdad. Reuter.