Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 14. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Talið að mikið mannfall hafi orðið i Pervomaískoje sem Rússar hafa nánast jafnað við jörðu Hóta því að átökin breiðist frekar út Moskvu, Istanbúl, London, Tsjetsjníju, skammt frá Pervomaiskoje. Reuter. HERSTJÓRNANDI tsjetsjenskra uppreisnarmanna hótaði því í gær að sjálfstæðir hópar uppreisnar- manna kynnu að færa átökin í Tsjetsjníju enn frekar inn í Rúss- land. Talsmaður rússnesku stjórn- arinnar lýsti því yfir í gær að látið hefði verið af frekari tilraunum til að frelsa gíslana sem eru í haldi tsjetsjenskra skæruliða í bænum Pervomaiskoje. „Ákvörðun hefur verið tekin um að ljúka aðgerð- inni,“ sagði talsmaðurinn. Gerðu Rússar geysiharðar árásir á bæinn í gær og er nær engin von til að þeir sem þar eru, lifi þær af. I gærkvöldi var óljóst hvort Rússar hefðu tekið bæinn en þeir segja að tekist hafi að bjarga 28 gíslum. í gærkvöldi sögðu gíslatakarnir á Svartahafi að þeir kynnu að sleppa öllum 200 gíslunum af farþegaskip- inu Avrasíu, sem þeir tóku í fyrra- kvöld, kæmust þeir óáreittir til Ist- anbúl. Neitar aðild að gíslatöku Aslan Maskhadov, herstjórnandi Tsjetsjenaleiðtogans Dzhokars Dúdajevs og aðalsamningamaður hinna mörgu uppreisnarhópa Tsjetsjena er samið var um vopna- hlé í júlí, sagðist í gær ekki hafa átt neinn þátt í gíslatökumálunum Mögulegt að gísl- ar á Svartahafi verði látnir lausir í Dagestan og á Svartahafi. Hann sagðist heldur ekki hafa staðið fyr- ir brottnámi 30 Rússa í Grosní á þriðjudag en markmiðið með þeirri aðgerð hefði verið að þvinga Rússa til að leyfa Salman Radújev og mönnum hans, er enn halda tugum gísla í Dagestan, að fara til Tsjetsjníju. Sjálfstæðir hópar upp- reisnarmanna hefðu verið að verki. Maskhadov, sem er fyrrverandi liðsforingi í her Sovétríkjanna gömlu og barðist í Afganistan, var- aði stjórnina í Kreml við í gær. „Ægilegasta stund átakanna er að renna upp, þegar þau breiðast út yfir landamæri Tsjetsjníju,“ sagði hann. „Það kæmi mér ekki á óvart ef einn af hópunum okkar birtist fljótlega í Mozdok, Vladíkavkaz, Saratov, Moskvu eða Astrakan". Gagnrýna Tyrki Öryggisráðstafanir voru hertar á flugvöllum Moskvu í gær vegna gíslatökumálanna. Aðstoðarlög- reglustjórinn á Séremetévo-flugvelli sagði að ijölgað hefði verið í lögregl- uliði á öllum vegum er lægju til vallarins. „Eftirlitsmenn kanna alla grunsamlega bílaumferð og skilríki ökumanna," sagði hann. Rússar sögðust í gær hafa oftar en einu sinni varað tyrknesk stjórn- völd við því að útlægir Tsjetsjenar þar í landi gætu gripið til hryðju- verka en stjórnvöld í Ankara hefðu hundsað þær viðvaranir. Jafnframt var gefið í skyn í Moskvu að menn Dúdajevs hefðu fengið að þjálfa sig í Tyrklandi og fengið þar lyf án þess að reynt hefði verið að grípa inn í. - Mannræningjarnir á Svartahafi, sögðu í gær að eina ósk þeirra væri sú að öryggissveitir hefðu ekki afskipti af gíslamálinu. „Við erum ekki morðingjar," sagði einn þeirra. Yfírmaður tyrknesku leyni- þjónustunnar, Sonmez Koksal, hét hópnum því að skipið gæti haldið óáreitt til Istanbúl. Harkalegar aðgerðir Rússa gegn Tsjetsjenum nú vekja æ meiri áhyggjur á Vesturlöndum og gætu valdið því að þeir fengju ekki aðild að Evrópuráðinu. í næstu viku verða á þingi ráðsins greidd at- kvæði um umsókn Rússa sem hafa haft áheyrnarfulltrúa frá 1992. Ákvörðun var frestað í fyrra vegna óánægju með mannréttindabrot Rússa í Tsjetsjníju. ■ Aðild Rússa/17 ■ Flugskeyti og þungavopn /18 RÚSSNESKIR sérsveitarmenn taka sér hlé frá bardögum við bæinn Pervomaiskoje í gær. Skömmu síðar skutu Rússar Grad- flaugum að bænum en þær valda gifurlegri eyðileggingu. Grískir sósíalistar velja leiðtoga Fjórir sækjast eftir embættinu Aþena. Reuter. Reuter SILVIO Berlusconi lítur um öxl í réttarsal í gær. Réttarhöldum yfir honum og tíu öðrum var frestað um lVi viku. Berlusconi fyrir rétti Mílanó. Reuter. GRISKI sósíalistaflokkurinn (PA- SOK) hyggst kjósa eftirmann Andreas Papandreou forsætisráð- herra á þingflokksfundi í dag. Papandreou sagði af sér í byijun vikunnar en hann hefur legið al- varlega veikur á sjúkrahúsi um nokkurt skeið. Ejórir frammámenn í flokknum hafa lýst því yfir að þeir gefi kost IRAKAR eru reiðubúnir að ganga til viðræðna við Sameinuðu þjóð- irnar um olíusölu án skilyrða, að sögn hinnar opinberu fréttastofu landsins, INA. „Irakar munu bregðast við áskorun um að mæta til viðræðna um olíu í skiptum fyrir mat og lyf, svo fremi sem það verður eng- á sér í embætti flokksleiðtoga og forsætisráðherra; Gerassimos Ars- enis, fyrrum varnarmálaráðherra, Costas Simitis, fyrrum iðnaðarráð- herra, Yannis Charalambopoulos, fyrrum varnarmálaráðherra, og Akis Tsohatzopoulos innanríkis- ráðherra. Ekki er búist við að fleiri flokks- menn gefi kost á sér. um skilyrðum háð,“ hafði frétta- stofan eftir Tareq Aziz, aðstoðar- forsætisráðherra. Kvaðst Aziz hafa beðið sendiherra íraks hjá SÞ að koma þessu á framfæri við Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóra SÞ. ■ Saddam segir/21 SILVIO Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, kom í gær fyrir rétt í Mílanó vegna ákæru um spillingu. Auk Berl- usconis eru bróðir hans, Paolo, og níu aðrir ákærðir í málinu en aðeins fjórir úr hópnum voru viðstaddir réttarhöldin. Berlusc- oni var brosmildur og afslappað- ur þegar hann kom til réttarins. Hann ítrekaði sakleysi sitt í sam- tali við fréttamenn og veitti eig- inhandaráritanir í réttarhléi. Réttarhöldunum var í gær frestað til 26. janúar nk. „Ég tel mig ekki vera sakborn- ing,“ sagði Berlusconi. „Þjóðin veit hverjir eru sekir og hverjir eru fórnarlömb, hverjir eru góð- ir og hverjir vondir. Fólk veit fullvel hvað er að gerast.“ Þeir þrír sem mættu til réttar- ins í gær eru skattaeftirlitsmenn en á meðal þeirra sem kusu að sitja heima var skattaráðgjafi Fininvest, fyrirtækjasamsteypu Berlusconis. ForsvarsmennFin- invest eru sakaðir um að hafa greitt skattaeftirlitsmönnum mútur. Op ræn- ingjaí réttarsal Ósló. Reuter. NORSKUR dómstóll dæmdi í gær fjóra menn til fangavistar fyrir að stela málverki Edvards Munchs, „Ópinu“, og reyna að selja það. Einn sakborninga, Paal Enger, grýtti vatnskönnu í gólf réttarsalarins er dómur var kveðinn upp og æpti: „Ég er saklaus. Ég hef aldrei stolið neinu málverki." Varð að draga Enger út úr réttarsaln- um. Réttarhöldin yfir fjórmenn- ingunum hafa staðið í fjóra mánuði. Hinn 28 ára gamli Enger, sem talinn er höfuð- paurinn, var dæmdur í sex ára og þriggja mánaða fangelsi og William Aasheim, sem er tví- tugur, hlaut þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm. Þá voru tveir aðrir menn dæmdir í fjög- urra og tveggja ára fangelsi fyrir að selja stolna muni og hafa lagt á ráðin um sölu „Opsins". Fjórmenningarnir hafa áfrýjað dómnum. Irakar fallast á að ræða olíusölu við SÞ Baghdad. Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.