Morgunblaðið - 18.01.1996, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
j
Jarð-
skjálfti við
Grenivík
JARÐSKJÁLFTI sem mældist
rúmlega 4 á Richter fannst
greinilega á Grenivík klukkan
rúmlega 18 í gær. Upptökin
voru 8 km norðan við þorpið.
Jónas Baldursson bóndi og
trésmiður á Grýtubakka var að
vinna í kjallara húss þegar
skjálftinn reið yfir og kvaðst
hafa heyrt í honum og sagði
að félagi sinn hefði fundið jörð-
ina hristast. Fjölskylda Jónasar
varð skjálftans vör heima við
og hafði Jónas eftir dóttur sinni
að hringlað hefði í húsbúnaði
í hillum. Ekki er kunnugt um
skemmdir.
Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur, sagði fólk á
Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði og
í Hrísey hafa fundið skjálftann.
Fáeinir eftirskjálftar mæld-
ust. Ragnar kvaðst ekki hafa
ástæðu til að ætla að skjálftinn
vissi á áframhaldandi hræring-
ar á svæðinu en sagði að þama
væri mikið brotasvæði, allt frá
annesjum norðanlands og norð-
urundir Grímsey.
Jónas Baldursson sagði að
allsnarpur skjálfti hefði orðið á
Grenivík fyrir 3-4 ámm, sá
fyrsti og jafnframt sá eini sem
hann ræki minni til að þar hefði
fundist þar til í gær.
FRÉTTIR
Reglugerð um breytilegan lánstíma húsbréfa
Afföll breytast eft-
ir lengd lánstíma
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur
gefíð út reglugerð um breytilegan
lánstíma nýrra húsbréfalána. Hér
eftir geta húsbréfalán verið til 15
ára, 25 ára eða 40 ára eftir atvikum,
en vom áður einungis til 25 ára.
Afföll af húsbréfum til lengri tíma
em meiri en af húsbréfum til
skemmri tíma ef miðað er við sömu
ávöxtunarkröfu.
Gert er ráð fyrir að húsbréfaút-
gáfa í ár nemi 13 milljörðum kr.
Grétar Guðmundsson, þjónustustjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins, segir
að gefnir verði út þrír fiokkar hús-
bréfa, til 15, 25 og 40 ára. Upphæð
í hverjum flokki verði háð eftir-
spurn. Gengið verði frá upphæð
hvers flokks þegar honum verður
lokað.
Nær einungis til nýrra lána
Við kaup á fasteign þurfa kaup-
andi og seljandi eignarinnar að koma
sér saman um lánstíma húsbréfa-
lánsins sem sótt er um og kemur
það fram á umsókn um lánið. Ekki
verður hægt að lengja eða stytta
lánstíma áhvílandi húsbréfalána, þar
sem breytingin nær aðeins til nýrra
lána.
Grétar sagði erfitt að áætla skipt-
ingu milli einstakra flokka lána. Þó
mætti búast við í byijun að þeir sem
ættu lítið eigið fé eða væru að kaupa
í fyrsta sinn hefðu áhuga á 40 ára
lánstíma sem væri lengri lánstími
en boðið hefði verið upp á til þessa.
Síðan myndi það ráðast af ávöxtun-
arkröfunni hvert framhaldið yrði.
Miðað við sömu ávöxtunarkröfu
verða afföll hærri á húsbréfum til
lengri tíma. Miðað við 6% ávöxtunar-
kröfu eru afföll á húsbréfum til 15
ára 8,10%, afföll á bréfum til 25 ára
eru 11,7% og afföll á húsbréfum til
40 ára eru 15,5%. Til þess að afföll-
in yrðu svipuð þyrfti ávöxtunarkrafa
á 15 ára bréfum að vera 6,25%,
ávöxtunarkrafa á 25 ára bréfum að
vera 5,75% og ávöxtunarkrafan á
40 ára bréfum 5,50%.
Grétar sagði að skiptar skoðanir
hefðu verið um það hver ávöxtunar-
krafa á húsbréfum til 40 ára yrði.
Þetta hefði verið kannað fýrir félags-
málaráðherra á síðasta ári og með
hliðsjón af þeirri reynslu sem fengist
hefði í Svíþjóð ætti vel að vera mögu-
legt að fjárfestar sættu sig við lægri
ávöxtunarkröfu á lengri bréfunum,
ef þeir hefðu trú á markaðnum.
Þetta væri þó háð þeim væntingum
sem menn hefðu varðandi framvindu
í vaxtamálum og reynslan gæti ein
skorið úr í þessum efnum.
----------------------------- j
Bílaleigan Hasso-ísland
hefur starfsemi í dag
Sólarhringsleiga
ábíl 2.500 krónur 1
BÍLALEIGAN Hasso-ísland ehf. -
byrjar í dag útleigu 8 fólksbíla
af gerðinni Fiat Punto og
tveggja jeppabifreiða af Suzuki
Vitara-gerð. Bílaleigan er í eigu
Hassos Schiitzendorfers,
auðkýfings á Mallorca, sem þar
rekur 6.000 bíla leigu.
Að sögn Sigurðar Bjarnason-
ar, starfsmanns bílaleigunnar,
var Hasso tilbúinn að senda
hingað 100 bíla en hann hefði
ekki treyst sér til að byrja með
nema fimm til tíu. Úr varð að
tíu bílar voru sendir og komu
þeir til landsins frá Mallorca
með ms. Hvítanesi í fyrrakvöld.
Þeir fengu síðan skoðun og
skráningu í gær og starfsemi
leigunnar hefst í dag.
Sigurður segist hafa fengið
fjölda fyrirspurna og pantana.
Hasso hafi það að yfirlýstu
markmiði að vera alltaf ódýrast-
ur á markaðnum og hann ætli
sér að vera það hér einnig. Sig-
urður ætlar að leigja fólksbílinn
á 2.500 krónur á sólarhringinn
og ekki taka neitt kílómetra-
gjald. Hann reiknar með því að
aðrar bílaleigur lækki verðið í
kjölfarið en Hasso sé tilbúinn
að bregðast við því með því að
leigja bílana endurgjaldslaust
að öðru leyti en því að trygg-
ingagjöld og skattar verði
greiddir.
Sigurður segir Hasso mikinn
íslandsvin og til marks um það
hafi hann boðið íslendingum
fría bílaleigubíla á Mallorca allt
árið í fyrra og það tilboð standi
út þetta ár.
Sigurður segist byrja smátt.
Starfsemin verði til að byija
með á heimili hans á Hringbraut
62 í Hafnarfirði en hann sé
þegar farinn að leita sér að
húsnæði til kaups í Hafnarfirði
sem henti undir starfsemina.
Hann er eini starfsmaður leig-
unnar enn sem komið er en
starfsemin verður stækkuð eftir
hendinni. „Hasso er reiðubúinn
að senda hingað allt að 3.000
bíla ef markaðurinn þolir það,“
segir Sigurður. Þá segist hann
fara utan um páskana til að
sækja Rolls Royce, sem muni
bætast í flotann.
Ætlunin að segja upp samningi Bjargs
Ems og að
splundra heimili
GEÐDEILDIR Ríkisspítalanna ætla
að segja upp samningi sínum við
Hjálpræðisherinn um rekstur Vist-
heimilisins Bjargs. Rannveig Hös-
kuldsdóttir, forstöðumaður heimilis-
ins, segir að verið sé að slíta 28 ára
farsælu samstarfí og splundra heim-
ili heimilismannanna. Hún segir að
heildarkostnaður Ríkisspítalanna sé
aðeins 5.255 kr. á dag fyrir hvern
heimilismann og því sé ógemingur
að ná fram spamaði vegna
umönnunar þeirra.
Rannveig lagði áherslu á að Bjarg
væri fyrst og fremst heimili. Heimil-
ismenn hefðu verið 12 til 14 að jafn-
aði og meðaldvalartími tólf ár. Einn
heimilismannanna hefði verið heimil-
isfastur á Bjargi frá stofnun heim-
ilisins og tveir lengur en tuttugu og
þijú ár. „Við höfum verið í góðu
samstarfi við Landspítalann. Heimil-
ismenn hafa komið af geðdeildunum
og fengið umönnun hér. Á heimilinu
hefur verið hjúkrunarfræðingur og
læknir komið einu sinni í viku,“ sagði
Rannveig.
Hún sagði að Ríkisspítalarnir
hefðu greitt 5.255 kr. daggjöld fyrir
hvern heimilismann. „Hjálpræðis-
herinn hefur lagt til húsnæðið og
daggjöldin staðið straum af öllum
öðrum kostnaði. Eg trúi því ekki að
óreyndu að hægt sé að fmna hag-
kvæmara rekstrarform. Mér finnst
a.m.k. að sýna þurfi fram á fjárhags-
lega hagkvæmara rekstrarform áður
en farið er út í að leysa upp heimili
með þessum hætti til til að ná fram
spamaði eins og lýst er yfir. Eini
hugsanlegi spamaðurinn fyrir Rík-
isspítalana væri ef þeim tækist að
gera sveitarfélögin ábyrg fyrir ein-
hveijum verkefnum," sagði hún.
„Nauðungarflutningar"
Hún lagði hins vegar áherslu á
að mikilvægasti þátturinn væri sá
mannlegi. Hver sem er gæti gert sér
í hugarlund þann sársauka og til-
finningarót sem yrði þegar heimili
manns til margra ára og jafnvel
áratuga væri sundrað. Fæstir væm
færir um að ganga heilir gegnum
slíka reynslu og síst þeir sem ættu
við geðræn vandamál að stríða fyr-
ir. „Það er mat okkar að langflestum
heimilismönnum Bjargs yrðu „nauð-
ungarflutningar" eins og þeir sem
fyrirhugaðir eru um megn. Við telj-
um að hætta sé á að andlegri heilsu
þeirra hraki og þeim árangri sem
náðst hefur kastað fyrir róða,“ sagði
Rannveig.
Morgunblaðið/Sverrir
HASSO-bílarnir fá skrásetningarnúmer hjá Bifreiðaskoðun íslands í gær.
Sómabátur frá Reykjavík í hafnauð í mynni Hvalfjarðar
Rak næstum upp í sker '
LÍTILL Sómabátur, Drífa RE 311,
með tveimur mönnum innanborðs
varð vélarvana í hríðarkófi við
Brekkuboðann í mynni Hvalfjarðar
um níuleytið í gærkvöldi. Bátinn var
í þann veginn að reka upp í sker
þegar hjálp barst. Að sögn Tilkynn-
ingaskyldu var mikil hætta á ferðum.
Björgunarsveitimar á Akranesi og
Kjalamesi vom kvaddar út og áhöfn
þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍFs, var í viðbragðsstöðu. Björgun-
arsveitarmenn á Akranesi komu að
bátnum kl. 21.40 og tóku hann í
tog. Bátur björgunarsveitarinnar er
lítill og réð ekki vel við að draga
Drífu og var því hafnsögubáturinn
frá Akranesi fenginn til aðstoðar.
Um kl. 22.30 í gærkvöldi hafði hafn-
sögubáturinn tekið Drífu í tog og var
búist við bátunum til hafnar á Akra-
nesi laust fyrir miðnætti.
Ekkert var vitað um ferðir bátsins
því að áhöfn hans hafði ekki sinnt
tilkynningaskyldu.
Enginn fjarskiptabúnaður var um
borð annar en GSM-farsími sem var
rafmagnslítill, að sögn starfsmanns
Tilkynningaskyldunnar. Úr honum |
hafði annar bátsveijinn hringt í |
kunningja sinn á Akranesi sem síð-
an hafði látið Tilkynningaskylduna
vita.
Um það bil 3.800 manns eru á kjörskrá við stjórnarkjör í Y erkamannafélaginu Dagsbrún
Lokarimman 1 baráttunni
um forystu Dagsbrúnar
Erfitt að spá í spilin, segir Sigurður R. Magnússon
FORYSTUMENN A-lista og B-lista, sem beij-
ast um forystu í Verkamannafélaginu Dags-
brún, leiða saman hesta sína á kosninga-
fundi, sem haldinn verður í Borgarbíói við
Snorrabraut í dag. Ógemingur er að meta
fylgi Iistanna, en talsmenn hvors tveggja segj-
ast hafa meðbyr. Kosningamar hefjast á
morgun og standa fram á laugardag. Að sögn
Snæs Karlssonar, formanns Iqorstjórnar, eru
um 3.800 manns á kjörskrá Dagsbrúnar.
„Það er erfitt að spá í spilin,“ sagði Sigurð-
ur Rúnar Magnússon, varaformannsefni B-
listans, í gær. „Við finnum þungan meðbyr,
sérstaklega meðal þeirra, sem lökust hafa
kjörin, fólks í fiskvinnslu og á bensínstöðvum.
En við erum að beijast við kosningavant
batterí og vana kosningasmala."
Ámi H. Kristjánsson, kosningastjóri A-list-
ans, sem gefur kost á sér í embætti ritara,
sagði að undirtektir félagsmanna í Dagsbrún
hefðu verið góðar.
Harðir fundir
„Þetta hafa verið harðir fundir, en þegar
við höfum skýrt stefnu og fyrirætlanir Á-list-
ans á vinnustaðafundum, höfum við fundið
að okkur er vel tekið. Við höfum tekið fram
að ætlunin er að leggja af stað með vemleg-
ar breytingar á ýmsu fyrirkomulagi hjá félag-
inu og ég held að þær tillögur, sem A-listinn
er uppi með í þeim efnum, séu í anda þess,
sem félagsmenn vænta.“
Frambjóðendur af báðum listum hafa þrætt
flesta vinnustaði, sem Dagsbrúnarfélagar
vinna á, undanfamar vikur. Kosningabarátt-
an nær svo hámarki þegar listarnir koma
fram á framboðsfundi í Borgarbíói klukkan
fimm í dag. Tíu manns munu taka til máls, |
fimm af hvorum lista.
Sigurður Rúnar sagði að B-listinn hefði
gert tillögu um að reynt yrði að hafa dag- <
skrá fundarins sem stysta. Árið 1991 hefði
verið farinn að þynnast bekkurinn þegar yfír
lauk og það væri óþarfi að slíkt endurtæki sig.
Árni sagði að fundurinn yrði „lokahnykk-
urinn“ og hann yrði notaður til að koma
stefnu A-listans á framfæri.
Kosningarnar hefjast klukkan níu á föstu-
dagsmorgun og verður hægt að kjósa til
klukkan níú um kvöldið. Hafíst verður handa
að nýju klukkan níu að morgni laugardags
og lýkur kosningunum klukkan níu þá um |
kvöldið. Aðeins er hægt að kjósa í höfuðstöðv- 1
um Dagsbrúnar í Lindargötu.