Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 21
ERLENT
Fimm ár liðin frá Persaflóastríði
Saddam segir Iraka
hafa hrósað sigri
Bagdad. Reuter.
SADDAM Hussein, forseti íraks,
minntist þess í gær, að fimm ár
voru liðin frá upphafi Flóabardaga,
„Móðurorrustunnar miklu“, og
sagði, að írakar en ekki fjölþjóða-
herinn hefðu farið með sigur af
hólmi.
„Náhrafnarnir og híenurnar
héldu, að írakar, þjóð trúfestinnar
og hins heilaga stríðs, væru að falla
og því vældu þau öll í kór. írakar
sigruðu hins vegar óvini sína með
því að verja sjálft meginvígið,"
sagði Saddam í sjónvarpsávarpi en
viðurkenndi þó, að þjóðin hefði liðið
mikið vegna stríðsins og efnahags-
legra refsiaðgerða.
Úthúðaði
arabaleiðtogum
Saddam minntist ekki á deilur
íraka og öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna en haft er eftir heimildum
innan samtakanna, að Saddam sé
nú reiðubúinn að semja við þau um
takmarkaða olíusölu. í upplýsinga-
málaráðuneytinu í Bagdad er því
þó neitað, að einhver breyting hafí
orðið á afstöðu íraksstjórnar.
Ávarp Saddams tók hálfa aðra
klukkustund í flutningi og þar út-
húðaði hann ónefndum leiðtogum
arabaríkja, sem gengju erinda út-
lendinga, og þeim, sem krefðust
breytinga á íraksstjórn þrátt fyrir
yfírgnæfandi sigur hans í forseta-
kosningunum.
Saddam nefndi engan á nafn en
Hussein Jórdaníukonungur, sem
studdi íraka f Persaflóastríðinu,
hefur hvatt til breytinga á stjórn-
inni í Bagdad. Hann hefur skotið
skjólshúsi yfir tvo íraska flóttamenn
og eiginkonur þeirra, dætur Sadd-
ams, og hann hefur boðið íröskum
stjórnarandstæðingum að koma
saman til fundar í Jórdaníu.
í ávarpi sínu kvaðst Saddam þó
fús til að setja niður deilur sínar
og annarra arabaleiðtoga og sagði,
að fyrirgefningin stæði sér hjarta
næst.
Keuter
Getur ekki fyrirgefið
Þjóðveijum
EZER Weizman, forseti ísraels,
er í fjögurra daga opinberri
heimsókn í Þýskalandi og
ávarpaði þýska þingið á þriðju-
dag. Hann kvaðst ekki geta fyr-
irgefið Þýskalandi glæpi þýska
ríkisins og hvatti Þjóðveija til
að leggjast gegn starfsemi ný-
nasista. Hann talaði hebresku,
ávarpaði þingmennina sem
„vini“ og þakkaði Þjóðveijum
fyrir stuðning þeirra við Israel
og friðarumleitanir í Miðaustur-
löndum. Hann kvað þó ekki
auðvelt fyrir sig að vera í
Þýskalandi vegna sex milljóna
gyðinga sem þýskir nasistar
drápu og hvatti gyðinga í
Þýskalandi til að flyljast til Isra-
els.
„Sem forseti Ísraelsríkis get
ég syrgt þessi fórnarlömb og
heiðrað minningu þeirra en
ekki fyrirgefið í nafni þeirra,“
sagði hann.
A myndinni er Weizman með
Helmut Kohl, kanslara Þýska-
lands.
Carlsson játar mistök
Stokkhólmi. Reuter.
INGVAR Carlsson forsætisráð-
herra Svíþjóðar hefur viðurkennt,
að það hafi verið mistök að senda
níu kúrdísk börn og mæður þeirra
til Tyrklands í lok síðustu viku.
Sænska stjórnin hefur sætt
harðri gagnrýni fyrir ákvörðun-
ina um að vísa úr landi tveimur
Kúrdafjölskyldum sem komu
þangað á röngum forsendum. í
eigin flokki hefur Carlsson verið
sakaður um ómannúðlega með-
ferð á bömum. Kúrdarnir komu
tii Svíþjóðar fyrir fimm árum og
sögðust hafa flúið frá Irak þar
sem Kúrdar hafa sætt illri með-
ferð af hálfu stjórnar Saddams
Husseins' forseta.
Norska dómsmálaráðuneytið
áformar, að sögn blaðsins Aft-
enposten, að breyta reglum á
þann veg, að flóttamenn, sem
njóta þar skjóls, verði sendir aftur
til heimalandsins hljóti þeir fang-
elsisdóma fyrir hegningarlaga-
brot.
Nýrmidi
Nú eru miklu meiri möguleikar
á að þú getir sent miða í þáttinn
og fengið tækifæri til að skafa af
milljón
strax
Barnagullin
Fjöldi aukavinninga
dreginn út í þættinum
SamviiMiilerðir
Lanúsýn
[H| EJ.ECTRIC JAPIS S
Skafðu fyrst og horfðu svo!
milljónir
Þú getur líka unnið
Nýr leikur í þættinum
þar sem krakkarnir skafa til sín leikföng.