Morgunblaðið - 18.01.1996, Side 34

Morgunblaðið - 18.01.1996, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ •'' DUNDUR ÚTSALA 25-70% afsláttur \ pósdtfö'U OPIÐ MÁNUDAG - FÖSTUDAG frákl. 10-18 LAUGARDAG frá kl 10 - 16 Gísli Ferdinandssonfif SKOVERSLUN Lækjargötu 6a • 101 Reykjavík Sími 551 471 I iKÓLINN laiMtSjSCtfit Peter Chadwick Enska II frh.þri.kl. 18:30 - 20:00 Enska lll þri. kl. 20:10-21:40 Enska-talmál fi. kl. 20:10 - 21:40 Franska I mi. kl. 20:10-21:40 Franska II fi. kl. 20:10 - 21:40 Ann Sigurjónsson Reiner Santuar Þýska I má. kl. 18:30 - 20:00 Þýska II má. kl. 20:10 - 21:40 Þýska III þri.kl. 18:30 - 20:00 Þýska IV þri. kl. 20:10 - 21:40 Hilda Torres Spænska I fi. kl. 18:30 - 20:00 Spænska II þri. kl. 18:30 - 20:00 Spænska III má. og mi. kl. 18:30 - 20:00 (5 vikur) Spænska-talmál þri. kl. 20:10 - 21:40 Carmen Ortuho Paolo Turchi ísamvinnu við Stofnun Dante Alighieri á Islandi ítalska I má. og fi. kl. 20:30 - 22:00 (5 vikur) ítalska II má. og fi. kl. 20:30 - 22:00 (5 vikurfrá 29. feb.) Kennsla hefst 24. janúar Innritun er þegar hafin Sími 588 22 99 Kennsla fer fram í gamla Stýrimannaskólanum Öldugötu 23 Skrifstofa, Grensásvegi 16A. AÐSENDAR GREINAR Fjárveitingar til háskóla VIÐ afgreiðslu fjár- laga verður ætíð nokk- ur opinber umræða um fjárveitingar til hinna ýmsu þátta í ríkis- rekstrinum. Sýnist þá sitt hveijum og ber mest. á kvörtunum frá þeim sem eru tengdir ríkisrekstri og teija sína stofnun hlunn- farna. Að þessu sinni hefur mest verið fjallað um tjárveit'ngar innan heilbrigðis- og mennta- kerfisins enda fara um 75% útgjalda ríkisins til þessara málaflokka. I velferðarkerfi okk- vilja menn fá góða _ Þórir Olafsson ar og helst ókeypis þjónustu frá opinberum aðilum en borga sem minnsta skatta. í viðleitni stjórnvalda til að veita góða þjónustu en draga jafn- framt úr halla á ríkissjóði þarf sem nákvæmasta greiningu á því hvern- ig ríkisstofnanir veija sínu fé. Fag- ráðuneytin og fjármálaráðuneytið hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því í samvinnu við ríkisstofnanir að skiigreina megin- markmið og verkefni hverrar stofn- unar og áætla eftir föngum kostnað við hvert verkefni um sig. Slík vinna er forsenda hagræðingar, aðhalds og sparnaðar í ríkisrekstri án þess að slakað sé á kröfum um gæði. I kjölfar slíkra úttekta er unnt að veita ríkisstofnunum meiri fjár- hagslega ábyrgð sem mun tvímæla- laust gera rekstur þeirra markviss- ari og hagkvæmari. Sjöunda janúar sl. birtist ágæt grein í Morgunblaðinu um nám á háskólastigi hér á landi, unnin af einum af blaðamönnum blaðsins. Þar er m.a að finna töflur yfir fjölda innritaðra nemenda á haustmisseri og rekstrarkostnað samkvæmt íjár- lögum í nokkrum skólum á háskóla- stigi. Rangtúlka má slíkar töflur ef eigi er ljóst hvað að baki liggur. Það er t.d. misvísandi að reikna rekstrarkostnað á hvern nemanda í Kennaraháskóla Islands út frá þeim tölum sem voru í töflunni. Undanfarin ár hafa stórir námshóp- ar hafið nám í KHÍ við upphaf vor- misseris (í janúar) og afar lítið brottfall stúdenta verður um ára- mót eins og t.d. í Háskóla ísiands. í töflunni, sem var birt um rekstrar- kostnað KHÍ, er kostnaður vegna margskonar þjónustu sem er óvið- komandi kennslu í grunn- og fram- haldsnámi við skólann svo sem endurmenntun kennara, kennslumið- stöð og lestrarmiðstöð sem báðar veita fag- lega ráðgjöf, hvor á sínu sviði. Þessar stofnanir þjóna fyrst og fremst hópum utan Kennaraháskólans og rekstrarkostnaður þeirra getur því ekki talist hluti af kostnaði við kennslu stúdenta við skólann. Við afgreiðslu fjár- laga fyrir fjórum árum birti Háskóli íslands súlurit sem átti að sýna rekstrarkostnað á hvern nemanda í nokkrum skólum hér á landi. Því árum. Því miður virðast reiknifor- sendur svipaðar og þá, a.m.k. hvað KHÍ varðar. Að beiðni undirritaðs hefur ijármálastjóri Kennaraháskól- ans gert samanburð um kostnað á nemanda við HÍ og KHÍ á sömu forsendum og fjármálastjórar skól- anna gerðu fyrir fjórum árum. Nið- urstaðan er sú sama og þá, eða svip- aður kostnaður á hvem nema við þessa skóla. Kennslukostnaður háskóladeilda er afar misjafn eftir greinum og þarf að hafa það í huga við saman- burð milli ólíkra deilda og skóla. Sú aðferð að telja einungis innritaða nemendur getur einnig verið misvís- Háskóli íslands hefur góðan málstað að verja, miður byggðist súluritið á röngum forsendum. Margir gerðu þá at- hugasemdir við útreikninga Há- skóla íslands, m.a. undirritaður í bréfi til háskólaráðs. í kjölfar þess- ara athugasemda_ voru Ijármála- stjórar HI og KHÍ beðnir að bera saman gögn um kostnað. í súlurit- inu sem hafði verið dreift til ijár- laganefndar og fréttamanna var því haldið fram að kostnaður á hvern stúdept væri all miklu hærri í KHÍ en HÍ, en fjármálastjórar skólanna komust að þeirri niðurstöðu að hann væri svipaður. Háskóli íslands leið- rétti fyrri útreikninga sína, m.a. í bréfi til ijárlaganefndar Alþingis og fréttastofu útvarps. Níunda janúar sl. birtist gi’ein í Morgunblaðinu undir heitinu „Há- skólastefna á villigötum" eftir Jónas Elíasson prófessor við Háskóla ís- lands. Þetta er ein af mörgum grein- um sem hafa birst undanfarið um fjárveitingar til Háskólans. Fjár- hagsvandi hans er vissulega mikill enda er skólanum gert skylt að veita öllum stúdentum inngöngu án tillits til íjárveitinga. Meginniðurstöður íyrrnefndrar greinar eru að háskólar á íslandi séu alltof margir og að litlu skólamir (allir nema HÍ) séu alltof dýrir. Fyrra atriðinu get ég verið sammála enda þótt „háskólamir" geti varla talist 30-40 eins og grein- arhöfundur telur. í samstarfsnefnd háskólastigsins em nú fulltrúar 13 " skóla og í menntamál aráðuneytinu er unnið markvisst að því að sam- eina 7 þeirra í 2 háskóla. En til að rökstyðja síðari niðurstöðuna birtir greinarhöfundur svipað súlurit og Háskóli íslands lagði fyrir fjárlaga- nefnd og fréttamenn fyrir fjórum segir Þórir Ólafsson, en talsmenn hans verða að túlka tölur rétt í umfjöllun um aðra skóla. andi. Eðlilegt er að telja jafnframt útskrifaða nemendur hvers árs og meta vægi námsins sem þeir hafa að baki. Fjárveitingar til háskóla víða erlendis, t.d. í Danmörku, era m.a. reiknaðar með hliðsjón af síð- ari aðferðinni. Háskóli íslands hefur góðan mál- stað að veija í baráttu fyrir traustri háskólamenntun. En í umræðu um þessi mál verður að gera þá kröfu til sérfræðinga hans að tölur séu rétt túlkapar í umfjöllun um aðra skóla á íslandi. Markvisst skóla- starf, allt frá leikskóla til háskóla, ásamt öflugum rannsóknum og sí- menntun, er undirstaða þekkingar- innar. Ný lög um grannskóla, fram- varp til laga um framhaldsskóla og undirbúningur nýrra laga fyrir há- skóla endurspegla skilning _ stjórn- valda á þýðingu menntunar. í lögum þessum er m.a. gert ráð fyrir reglu- bundnu mati á skólastarfi í anda þess sem var rætt í upphafí þessar- ar greinar. En fleira þarf að koma til. Ohjákvæmilegt verður að hækka íjárveitingar til menntamála. Besta fjárfesting okkar á næstu áram er í menntun og rannsóknum, því þekk- ingin verður okkar helsta auðlind og veganesti á næstu öld. Höfundur er rektor KHÍ. fctr osdct Fyrirlestraröð: Fullkomið heilbrigði / 19.-22. janúar. írskur læknir sem sérþjálfaður er í Maharishi Ayur veda - elstu náttúrulækningahefð heims - flytur fyrirlestra og veitir fólki einkaráðgof. Nánari upplýsingar og skráning í síma 588 8178. Plhuqamannahónur um Maharie>hí fíuur oecía. VEGGBORÐAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.