Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 50

Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ 5Ö FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996 ® Tölvuskóli L Reykjavíkur Viðskipta- og skrifstofutækninám Markmið námsins er að mennta fólk til starfa í nútíma viðskipta- og skrifstofuumhverfi. Námið skiptist í tvo hluta: I. Sérhæfð skrifstofutækni Aðaláhersla er lögð á tölvugreinar, þ.e. notendaforrit og internet, en einnig er tekin fyrir bókfærsla og verslunarreikningur. Almenn tölvufræði, Windovs og DOS, 16 klst Ritvinnsla, 16 klst. Töflureiknir og áætlanagerð, 16 klst. Tölvuf|arskipti, Internet o.fl., 16 klst Glærugerð og auglýsingar, 16 klst. Bókfærsla, grunnur, 16 klst. Verslunarreikningur, 16 klst. Tölvubókhald, 16 klst. 2. Bókhaldstækni Markmiðið er að þáttakendur verði færir um að starfa sjálfstætt við bókhald fyrirtækja allt árið. Almenn bókhaldsverkefni, víxlar og skuldabréf, 16 klst. Launabókhald, 12 klst. Lög og reglugerðir, 4 klst. Virðisaukaskattur, 8 klst. Raunhæf verkefni, fylgiskjöl og afstemmingar, 12 klst. Tölvubókhald, 32 klst. Tölvunámskeið Við bjóðum einnig sérhæfð námskeið um stýrikerfi og einstök notendaforrit. PC-grunnnámskeið Windows 3.1 og '95 Word Perfect 6.0 grunnur Word 6.0 grunnur, uppfærsla og framhald Excel 5.0 grunnur, uppfærsla og framhald Access 2.0 Paradox fýrir Windows PowerPoint 4.0 Tölvubókhald PageMaker 5.0 Novell netstjórnun Tölvunám barna og unglinga Internet, grunnur, framhald, heimasíðugerð Skráning er hafín. Upplýsingar í síma 561-6699 eða í Borgartúni 28 I DAG SKÁK Umsjon Margeir Pétursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp í viður- eign tveggja ungra stór- meistara á stórmótinu í Wijk aan Zee í Hollandi sem hófst um helgina. Ivan Sokolov (2.665), Bosníu, hafði hvítt og átti leik gegn Loek Van Wely (2.585), Hollandi. 24. Hxd4! - Bxd4 25. fxg6 — f6 (Þetta lýsir fullkominni örvæntingu, en svartur vildi greinilega ekki fá á sig nýja fóm eftir 25. — fxg6 sem yrði 26. Bxg6! og vinnur) 26. Dh5 - Hb7 27. g7! og Van Wely gafst upp, því hann getur ekki varið h7 peðið og er óverj- andi mát í fimmta leik. Það stefnir í mikið jafnteflismót, nema hvað Van Wely hefur tapað öllum þremur skákum sínum. Stað- an: 1.-5. Anand, Ivant- sjúk, Drejev, Ivan So- kolov og Piket 2 v. af 3, 6.-11. Gelfand, Hiibner, Timman, Leko, Topalov og Tivj- akov l'A v. 12.-13. Shirov og Adams 1 v. 14. Van Wely 0 v. B-flokkurinn er einnig mjög öflugur og þar tefiir Helgi Ass Grétarsson, stór- meistari. Hann gerði jafn- tefli við stórmeistarann Gild- ardo Garcia frá Kólumbíu í fyrstu umferð. I gær átti hann að tefla við Tony Miles, stigahæsta keppandann í flokknum, og í dag við al- þjóðlega meistarann" Strip- unsky frá Úkraínu. COSPER Pabbi, ég held að það hafi bitið á hjá mömmu. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Forsetaefni ÉG HEF verið að fylgj- ast með vangaveltum um hugsanleg forseta- efni í fjölmiðlum. Þar hefur nafn Guðrúnar Agnarsdóttur verið nefnt og finnst mér hún mjög frambærilegur fulltrúi og' raunar sú eina sem gæti tekið við af frú Vigdísi Finnboga- dóttur og haldið áfram hennar góða starfi. Ingibjörg Gamlajómfrú ÞÓRNÝ hringdi og vildi kanna hvort einhver kynni spilið „Gamla jómfrú“. Þetta spil er mjög skemmtilegt fyrir krakka. Ef einhver kann spilið vinsamlegast hringið í síma 553-7099. Gleraugu töpuðust KRINGLÓTT gleraugu í dökkgrárri málmumgörð töpuðust á Háskólaballi í Perlunni 21. desember sl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 562-4877. Úr fannst KVENÚR fannst á aug- lýsingadeild Morgun- blaðsins föstudaginn 5. janúar. Upplýsingar um úrið eru veittar þar. Tapað/fundið Hjól tapaðist DBS Classic kvenhjól hvarf við skautasvellið í Laugardal 8. janúar sl. Hjólið er bleikfjólublátt á litinn. Ef einhver hefur orðið var við hjólið, vin- samlega hringið í síma 568-2334 eða hafið sam- band við lögregluna í Reykjavík. Tapað/fundið Parker-penni tapaðist GYLLTUR Parker- penni með áletrun hrökk upp úr tösku sl. mánudag, líklega fyrir utan Lautasmára í Kópavogi eða fyrir utan Morgunblaðshúsið. Hafi einhver fundið pennann er hann beðinn að láta vita í síma 564-3938 á kvöldin, eða í síma 569-1323 á daginn. Pels tapaðist SVARTUR, síður kið- lingapels var tekinn í mis- gripum á Háskólaballi í Perlunni 21. desember sl. Viti einhver um pelsinn er hann beðinn að hringja í slma 481-2606. Gæludýr Kettlingar BLÍÐIR og skemmtilegir kettlingar óska eftir heimili. Upplýsingar í síma 565-0632. 8. bekkur í Æfingaskóla KHÍ lagði sitt af mörkum fyrir jólin í söfnunina „Samhugur í verki“. Bekkurinn safnaði alls kr. 20.350 með áheitum í tengslum við íþróttamara- þon og auglýsingum í auglýsingablað sem bekkurinn sá síðan um að dreifa. Víkveiji skrifar... VINUR Víkverja hefur það fyrir sið að horfa aldrei á áramóta- skaupið á gamlárskvöld. Astæðan er sú, að hann er svo hræddur um að verða fyrir vonbrigðum. Hins vegar tekur hann skaupið upp á myndband og horfir á það seinna. Á mánudagskvöldið horfði hann á skaupið og varð mjög ánægður. Hann segir skaupið að þessu sinni óvenju vel skrifað og án upphróp- ana. Þá hafi leikur verið góður og oft framúrskarandi. Víkveiji tekur mikið mark á þessum vini sínum og telur álit hans hið bezta hrós sem Karl Ágúst Úlfsson og hans fólk geti fengið. xxx ANNAR vinur Víkverja hefur einnig fyrir sið að taka ára- mótaskaupið upp á myndband til þess að skoða síðar. En það gerir hann af annari ástæðu. Hann treystir ekki á það að athyglisgáfan sé í lagi þegar hann horfir á skaup- ið á gamlárskvöld! xxx EN Víkveiji á ekki bara vini, hann á einnig vinkonur. Ein þeirra barmaði sér mikið eftir helg- ina. Maðurinn hennar er forfallinn áhugamaður um íþróttir og hefur gerst áskrifandi að nýjum sjón- varpsstöðvum um leið og þær hafa verið settar á laggirnar. Og afleið- ingin er sú að sögn konunnar, að helgarnar fara að mestu í sjón- varpsgláp hjá eiginmanninum. Hún segir ástandið vera verst á sunnudögum. Þá sýni Stöð 2 íþróttaefni frá klukkan 13 til 17. Stöð 3 sýni íþróttaefni frá kl. 13 til 19 og Sýn sé með íþróttaefni frá kl. 18.30 til 23.30. Að auki hefur eiginmaðurinn aðgang að Eurosport allan daginn. Ekki er Víkveiji í vafa um að aukið framboð íþróttaefnis í sjón- varpi hefur valdið togstreitu í fleiri hjónaböndum en því sem hér er lýst. En Víkveiji hefur trú á að í þessu sem öðru muni menn velja og hafna þegar fram í sækir. XXX FYRIR nokkru brá Víkveiji sér á veitingastaðinn Kaffi Reykjavík á fimmtudagskvöldi. Þar sem Víkvetji sat var ekki hægt að sjá á hljómsveitarpállinn. Fljótlega hóf Sigríður Beinteinsdóttir söng við undirleik hljómsveitar sem Vík- veiji taldi víst að væri Stjórnin. En mikil var undrun hans þegar hann gekk fram hjá hljómsveitar- pallinum 'seinna um kvöldið og sá að „hljómsveitin" var aðeins einn maður, Grétar Örvarsson. Grétar hefur komið sér upp mjög fullkomnum búnaði og getur að vild framkallað hljóma hinna ýmsu hljóðfæra. Þessu stjórnar hann síð- an með venjulegi hljómborði. Á þessu sviði sem öðrum hafa orðið gríðarlegar frámfarir á allra síð- ustu misserum. Grétar tjáði Vík- veija að hann treysti sér til þess spila undir einn á fjölmennri árshá- tíð, með Siggu sér við hlið auðvitað. Það vakti einnig athygli Vík- veija að þetta kvöld, þ.e. á virkum degi, var skemmtistaðurinn troð- fullur, líklega einhver hundruð manna. Kaffi Reykjavík virðist augljóslega vera vinsælasti sam- komustaður höfuðborgarinnar um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.