Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 54
54 FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
Emma Thompson Jonathan Pryce
FRUMSYIMING: IUYARSMYIUDIN
AMERÍSKI FORSETIIUIU
MICHAEL DOUGLAS ANNETTE BENING
ÞENZEL UASHINGTON
Emma Thompson og Jonathan Pryce í
margverölaunaöri, magn-þrunginni
kvikmynd um einstætt samband lis-
takonunar Doru Carrington við skáldið
Lytton Stracchey
Sýnd kl. 5, 8.50 og 11.15.
Frumsýnd 26. janúar
Feiknalega sterkt og vandað
drama, besta jólamyndin.
Á. Þ. Dagsljós
★★1/2S.V.MBL
„Myndin er alltaf lífleg,... Michael Douglas hefur þá reisn
sem þarf til í hlutverkið.... Annette Bening naer að skapa
einstaklega skemmtilega og aðlaðandi persónu" HK.DV.
Hann er valdamesti maður í heimi en einmanna eftir að hann
missti konu sína. En því fylgja ýmis vandamál þegar
forsetinn heldur að hann geti bara farið á stefnumót þegar
honum sýnist. Eiginlega fer allt í klessu.-Frábær gamanmynd
frá grínistanum frábæra Rob Reiner (When Harry met Sally,
A Few Good men, Misery og Spinal Tap).
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15.
Ágeng en jafn-
framt fyndin,
hlýleg og upp-
byggileg.
kick ÓHT Rásí.
PRIEST
PRESTUR
Frumsýnd á morgun!
Ofurmenn-
ið setur á
sig skíðin
►DEAN Cain, sem leikur Of-
urmennið í sjónvarpsþáttunum
Lois og Clark, er íþróttamaður
góður. Hér sýnir hann móður
sinni, Sharon, hvernig á að
setja á sig skíðin, en þau skíð-
uðu niður snævi þaktar brekk-
urnar í Austin á nýársdag.
IÍjLíIi j IB a m/.ti 8 uIt.it- i
lrrlnlnlliili1Flliii.il
jfflnilfilj
t“ ? bÍ“ 5. íi ’i! í H.,TlJwJL'í' Rl
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
sími 462 1400
• SPORVAGNINN GIRND
eftir Tennessee Williams
Sýn. fös. 19/1 kl. 20:30, lau. 20/1 kl.
20:30, fös. 26/1 kl. 20:30, lau. 27/1
kl. 20:30.
Miðasalan opin virka daga kl. 14-18
nema mánud. Fram að sýningu sýn-
ingardaga. Símsvari tekur við miða-
pöntunum allan sólarhringinn.
■ ÓÐAL Hljómsveitin Ýktir leikur
fyrir dansi fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld. Hljómsveitin
hefur starfað í 46 daga og hana skipa
Hafsteinn Hafsteinsson, söngur,
kassagítar, Rúnar Þór Guðmunds-
son, trommur og Birgir Jóhann
Birgisson, píanó, rafgítar og bassi.
Enginn aðgangseyrir er í Óðal.
■ RÚNAR ÞÓR leikur á Café Roy-
ale, Hafnarfirði, föstudags- og laug-
ardagskvöld en það er orðið langt um
liðið síðan Rúnar Þór lék síðast á
höfuðborgarsvæðinu.
■ CAFÉ AMSTERDAM Trúbador-
inn Ingvar Valgeirsson frá Akur-
eyri leikur fímmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld.
■ SÁLIN HANS JÓNS MÍNS leik-
ur á Ingólfscafé um heigina en þetta
verða síðustu tónleikar hennar í
Reykjavík að sinni. Framundan er
langt frí og ekki ljóst hvenær sveitin
kemur saman á ný. Ástæða orlofsins
er sú að tveir meðlimir hljómsveitar-
innar hyggjast setjast að á erlendri
grundu um sinn. Annar þeirra er
Atli Örvarsson sem þegar er farinn
til Bandaríkjanna og innan skamms
siglir svo í kjölfar hans Guðmundur
Jónsson en leið hans liggur til Lund-
úna. Sálarmenn fá sér til fulltingis
sérstakan gest en það er einn af stofn-
endum hljómsveitarinnar Jón Ólafs-
son, hljómborðsleikari. Þess má geta
að á þessu ári er væntanleg önnur
sólóskífa Stefán Hilmarssonar.
■ PÖNK 96 Á föstudagskvöld verða
haldnir tónleikar í Norðurkjallara
MH undir yfirskriftinni Pönk 96.
Fram koma Maunir, Örkuml, Sakt-
móðigur, Forgarður helvítis,
Kuml, Hljómsveitin Kúkur, Fallega
gulrótin og Hundraðkallarnir.
Leikurinn hefst um kl. 21. Miðaverð
er 300 kr.
■ FEITI DVERGURINN Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Texas two step rokk
og kántrý tónlist.
■ CAFÉ ÓPERA Á föstudagsköld
syngur Berglind Björk ásamt Tríói
Pálma Sigurhjartarsonar frá kl.
23-3. Á _ iaugardagskvöld syngur
Bryndís Ásmundsdóttir við undir-
leik Kjartans Valdimarssonar og
Þórðar Högnasonar.
■ ÓPERUDRAUGURINN Hljóm-
sveitin Extra frá Ólafsvík ieikur um
helgina frá kl. 23.30-3.
Skemmtanir
UNDIRBÚNINGSNEFND Pönks ’96.
RÚNAR Þór leikur á Café Royale föstudags- og laugardagskvöld.
HLJÓMSVEITIN Ýktir leikur á Óðali um helgina.
■ RÓSENBERG Rokkhljómsveitin
Langbrók leikur um helgina hressa
rokktónlist.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fímmtu-
dags-, föstudags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin Skítamórall. Á
sunnudags- og mánudagskvöld tekur
svo við hljómsveitin 66 og á þriðju-
dagskvöld hljómsveitin So What.
Hljómsveitin 3 to One leikur svo
miðvikudags- og fimmtudagskvöld.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudags-
kvöld er skagfirsk sveifla með hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar.
Húsið opnað kl. 22 og er enginn að-
gangseyrir. Á laugardagskvöld verð-
ur lokað í aðalsalnum vegna einka-
samkvæmis. í Ásbyrgi (austursal)
verður opnað kl. 22 en þá leikur
Gabriel Garcia San Salvador en
Gabriel er spánskur söngvari og
hljómborðsleikari.
■ GARÐAKRÁIN Dúettinn Klapp-
að og klárt leikur hressa danstónlist
föstudags- og laugardagskvöld.
■ HÓTEL SAGA Á Mímisbar leika
Ragnar Bjarnason og Stefán Jök-
ulsson föstudags- og laugardags-
kvöld. Einkasamkvæmi er í Súlnasal
laugardagskvöld.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtu-
dags- og föstudagskvöld leika Hálft
í hvoru en föstudags- og laugardags-
kvöld skemmtir hljómsveitin Sól-
dögg. Grétar Örvarsson og Sigga
Beinteins skemmta sunnudags- og
mánudagskvöld en þá taka við félag-
arnir Ingi Gunnar og Eyjólfur
þriðjudagskvöld.
■ GULLÖLDIN Á laugardagskvöld
frá kl. 21 skemmtir Heiðar Jónsson
gestum Gullaldarinnar. í tilefni
kvöldsins er boðið upp á partý-disk á
895 kr. Ókeypis aðgangur.
■ SVEITARSETRIÐ BLÖNDU-
ÓSI Á laugardagskvöld verður haldið
amerískt steikarkvöld en þá gefst
kostur á að fá ekta nautasteik að
amerískum hætti á 2.300 kr. og á
eftir verður stiginn dans með hljóm-
sveit Ingu Eydal. Húsið opnað fyrir
aðra en matargesti kl. 23 og er að-
gangseyrir 900 kr.
■ VINIR DÓRA leika fimmtudags-
kvöld á Kringlukránni en á laugar-
dagskvöld leikur hljómsveitin á
Langasandi, Akranesi. 5. hver gest-
ur fær óvæntan glaðning.