Morgunblaðið - 25.01.1996, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
STARFSMENN Tojmuseet tóku enga áhættu þegar þeir tóku
herklæði Friðriks VIII til hreinsunar.
Söfnin hreinsuð
Veruleiki o g
sýndarveruleiki
MIKIÐ hreinsunarátak er nú í
gangi á Tajmuseet (Klæðasafn-
inu) í Kaupmannahöfn þar sem
í ljós hefur komið að um 5.000
safngripanna hafa verið úðaðir
með DDT og methoxyklór til að
koma í veg fyrir að þeir skemm-
ist. Er fyrst og fremst um að
ræða herklæði sem voru úðuð
með þessum efnum á árunum
1955 til 1975 en efnin geta verið
krabbameinsvaldandi. Fullyrt er
að safngestir þurfi engar áhyggj-
ur að hafa en ákveðið hafi verið
að hreinsa munina til að draga
úr hættunni fyrir þá sem unnið
hafa á söfnum í lengri tíma og
handfjatlað muni sem hafa verið
meðhöndlaðir með hættulegum
efnum. Nú eru safngripirnir yfir-
leitt varðveittir við rétt hita- og
rakastig.
Að minnsta kosti einn starfs-
maður safnsins hefur fundið fyr-
ir lasieika í mörg ár, t.d. ógleði
og svima. í kjölfar hreinsunar-
átaksins í Tojmuseet hefur þess
verið krafist að atvinnumálaráð-
herrann, Jytte Hilden, hlutist til
um það að rannsókn verði gerð
á því hvernig ástatt sé í öðrum
dönskum söfnum.
KVIKMYNDIR
Iláskólabíó
„ VIRTUOSITY" ★ ★
Leikstjóri: Brett Leonard. Handrit:
Eric Bernt. Framleiðandi: Gary
Lucchesi. Aðalhlutverk: Denzel Was-
hington, Kelly Lynch, Russell Crowe,
William Forsythe og Louise Fletc-
her. Paramount. 1995.
„VIRTUOSITY“ heitir ný hasar-
mynd Háskólabíós og er samsuða
úr ýmsum áttum. Hún byggir á
tækni og möguleikum sýndarveru-
leikans, endursegir að nokkru sög-
una um vísindamanninn Franken-
stein og er dæmigerð formúlu-
hasarmynd um lögguna sem hefur
allt á móti sér en bjargar heiminum
af ekkert síðri djörfung en James
Bond.
Myndin gerist á ótilgreindum
tíma en líklega í nálægri framtíð
þegar tekist hefur að þróa sýndar-
veruleikann svo mjög að sneyða
má af þetta orð sýndar og setja
raun í staðinn. Nýjasta afrek vís-
indanna er geðbilaður morðingi
með alla verstu eiginleika óberma
eins og Hitlers og Mansons. Hann
er þó aðeins sýndarveruleiki, tölvu-
mynd notuð til æfinga fyrir lög-
reglumenn. En í sönnum anda allra
B-mynda hefur vísindamaðurinn
tekið slíku ástfóstri við afkvæmi
sitt að hann gefur því frelsi og þar
með gengur fjandinn laus í raun-
veruleikanum.
Myndin er alger fantasía og
nýjasta afkvæmi tölvubrelludell-
unnar í kvikmyndagerðinni. Leik-
stjóranum Brett Leonard tekst að
skapa þokkalega afþreyingarmynd
með því að bræða saman raun- og
sýndarveruleika. Russell Crowe
leikur morðhundinn sem verður
raunveruleg martröð og lætur ekk-
ert halda aftur af sér í túlkun sinni
eins og hann sé að reyna að ná
sömu áhrifum og Jack Nicholson
þegar hann lék Jókerinn í Batman.
Hann er forritaður sem tölvuleikur
og morð eru skemmtun. Með sýnd-
arveruleika og tölvuleikjapersón-
um verður ofbeldið, og það er tals-
vert mikið af því í þessari mynd,
ijarska fjarlægt áhorfandanum
sem gerir hann næstum stikkfrí
frá að taka afstöðu. Sömu lögmál
gilda og í tölvuleikjum, ekkert er
raunverulegt, allt er gaman. Og
svo er keyrt á sprengingum, skot-
bardögum og hávaðasömu rokki.
Stjama myndarinnar, Denzel
Washington, leikur lögreglumann-
inn en fellur nokkuð í skuggann
af kvikindinu. Hann er hasar-
myndaklisja með þunga fortíðar á
herðum en handritið eftir Eric
Bernt er í raun lítið frumlegt form-
úluverk og full léttvægt fyrir góðan
leikara eins og Washington. Upp-
byggingin er ekki flóknari en í
hverjum öðrum tölvuleik. Með
minni hlutverk fara William Fors-
ythe og Louise Fletcher og þétta
myndina.
Arnaldur Indriðason
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
og Anna Pálína Ámadóttir
Berrössuð
átánum
TÓNLISTARDAGSKRÁIN
Berrössuð á tánum verður flutt í
Möguleikhúsinu við Hlemm laugar-
daginn 27. janúar kl. 14.
I kynningu segir: „Hér er á ferð-
inni dagskrá með nýjum ljóðum,
lögum og sögum sem tengjast veðri,
árstíðum, dýrum, litum og ýmsu
fleiru sem börn á aldrinum 2ja - 6
ára brjóta gjarna heilann um.“
Höfundar og flytjendur eru þau
Anna Pálína Amadóttir og Aðal-
steinn Ásberg Sigurðsson, en dag-
skrá þessi var sett saman með styrk
frá Barnamenningarsjóði.
Berrössuð á tánum var fmmflutt
í nóvember síðastliðnum og hefur
síðan verið flutt á leikskólum á
höfuðborgarsvæðinu.
Aðeins verður um eina sýningu
að ræða í Möguleikhúsinu að þessu
sinni og hefst hún eins og fyrr seg-
ir kl. 14.
lómaframleiðendur og blómaverslanir
óska íslenskum karlmönnum til hamningju
með Bóndadaginn.
Aldahvörf - saga
sparísjóðs Dalasýslu
SPARISJÓÐUR Dala-
sýslu - Aldahvörf
heitir nýútkomið rit
undir ritstjórn Friðjóns
Þórðarsonar, fyrrver-
andi sýslumanns Dala:
sýslu og ráðherra. í
ritinu er fjallað um
sögu sparisjóðsins og
atvinnulífs í sýslunni
frá stofnun hans.
Sparisjóður Dala-
sýslu var stofnaður
árið 1891 og rekinn
eins og hver annar
sparisjóður til 1965 en
þá tók Búnaðarbanki
Islands við rekstrin-
um. Varasjóður spari-
sjóðsins var þó varðveittur áfram
en nafni hans var síðar breytt.
Heitir hann nú Menningar- og
framfarasjóður Dalasýslu, Dala-
sjóður, og eru reglulega veittir
styrkir úr honum til héraðsmála.
Efni ritsins einskorðast ekki við
sögu sparisjóðsins og segir í for-
mála að því sé ætlað að bregða
nokkurri birtu á vissa þætti í sögu
og lífsbaráttu íbúa Dalahéraðs á
þessari öld. í ritinu er ritgerð eftir
séra Ásgeir Ásgeirsson, fyrrver-
andi prófast í Hvammi
í Dölum, endurbirt
óbreytt en þar er rakin
saga sparisjóðsins á
árunum 1891-1946
eða fyrstu 55 ár hans.
Síðan rekur Friðjón
Þórðarson söguna
áfram og íjallar m.a.
um aðdraganda þess
að Búnaðarbankinn
tók við rekstrinum og
starfsemi bankaúti-
búsins í Búðardal síð-
an. Þá er einnig fjallað
um starfsemi vara-
sjóðsins, og síðar
Menningar- og
framfarasjóðs Dala-
sýslu, Dalasjóðs.
Menningar- og framfarasjóður
Dalasýslu gefur ritið út og er það
105 blaðsíður að lengd. Fjölmargar
myndir prýða það en þar eru einnig
birtar skrár yfír framlög í sparisjóð-
inn og Dalasjóð og styrki úr þeim,
yfir þá ábyrgðarmenn sparisjóðsins
frá upphafi, sem heimildir fínnast
um, og stjómendur og starfsmenn
sjóðsins. Þá er greint frá þeim sjóð-
um, sem runnið hafa í Dalasjóð og
skipulagsskrár þeirra birtar.
Friðjón
Þórðarson
Rússneskir sérfræðingar
skoða íkon í eigu Islendinga
I TILEFNI af sýningu á íkonum frá
Norður-Rússlandi, sem opnuð verð-
ur í Listasafni íslands föstudaginn
26. janúar, eru hér staddir tveir
sérfræðingar frá Listasafninu í
Arkangelsk, þaðan sem sýningin
kemur.
Þessir sérfræðingar, Maya
Mitkevich og Tatyana Koltsova,
munu taka að sér að skoða og
meta gömul rússnesk íkon í eigu
íslendinga gegn vægu gjaldi.
Sérfræðingarnir verða til staðar
í fundarsal Listasafns íslands laug-
ardaginn 27. janúar milli kl. 12 og
16.
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir
þá mörgu íslendinga sem eignast
hafa íkon á undanförnum árum að
fá upplýsingar um uppruna þeirra
og myndefni," segir í kynningu.
í
l
i
f.
í
>
l
I
i
I
I
t
I
I
i
I
I
I
í
[
l
I
í