Morgunblaðið - 19.03.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 19
ERLENT
Elytis
látinn
GRÍSKA ljóðskáldið Odysseas
Elytis, sem hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels 1979, lést á
heimili sínu í Aþenu í gær af
völdum hjartaáfalls. Elytis var
hálfníræður
þegar hann
lést og hafði
þjáðst af
hjartasjúk-
dómi í tíu ár.
Elytis naut
mikillar hylli
meðal al-
mennings í
Grikkiandi og
útvarps- og sjónvarpsstöðvar
rufu dagskrána til að skýra frá
tíðindunum og léku lög við ljóð
hans. Ljóð Elytis eru lofgjörð
til lífsins og í þeim koma fram
sterk súrrealísk áhrif. Ljóðin
fjalla um sólina og sjóinn,
grísku eyjarnar og Eyjahafið
bláa, strendurnar og sigur
mannsandans. Þau hafa heillað
fóik af öllum stéttum, unga sem
aldna.
Tónskáldin Mikis Theodorakis
og Manos Hadzidakis áttu mik-
inn þátt vinsældum Elytis og lög
þeirra við ljóð hans eru oft sung-
in á kaffihúsum og krám í
Grikklandi. Elytis lýsti sér sem
súrrealista en leit á ljóð sín sem
framhald af hefðbundinni grískri
ljóðagerð frá tímum Hómers.
Meðal þekktustu ljóðabóka hans
eru „Ilíos ó prótos" (Sólin fyrsta)
og „Tó azíon esti“ (Vert er).
Carlsson seg-
ir af sér
INGVAR Carlsson sagði í gær
formlega af sér sem forsætis-
ráðherra Svíþjóðar. Goran Pers-
son fjármálaráðherra tók við
af honum sem leiðtogi Jafnað-
armannaflokksins á flokksþingi
um helgina.
Irakar semja
um viðræður
BOUTROS Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, og Tareq Aziz, for-
sætisráðherra íraks, sömdu í
gær um að hefja þriðju lotu
viðræðna um afnám viðskipta-
banns á írak í New York 8.'
apríl. Viðræðurnar hafa gengið
illa vegna deilu um hvernig
standa eigi að dreifingu mat-
væla og lyfja á svæðum Kúrda.
Elytis
Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku, krefst fulls skilnaðar við Winnie
Framferði
Jóhannesarborg. Reuter.
FRAMFERÐI Winniear Mandela og framhjá-
hald er hneyksli og hið mesta vandræðamál
fyrir eiginmann hennar, Nelson Mandela, for-
seta Suður-Afríku. Kom þetta fram fyrir
hæstarétti í Jóhannesarborg í gær en þar er
endanlegur skilnaður þeirra hjóna til umfjöll-
unar.
„Frá því þau hjónin skiidu að borði og sæng
í apríl 1992 hefur framferði Winniear og ótrú-
leiki valdið hneisu, sem forsetinn hefur liðið
fyrir,“ sagði lögfræðingur Nelsons Mandela
og bætti því við, að hann væri tilbúinn til að
nefna mörg dæmi um það máli sínu til sönnun-
ar ef nauðsynlegt reyndist. Þá sagði hann, að
sættir milli þeirra hjóna væru ekki til umræðu
en Winnie hefur farið fram á, að þær verði
reyndar.
Ættarhöfðingi býður aðstoð
Nelson Mandela, sem er 77 ára að aldri, og
Winnie, 61 árs, voru viðstödd réttarhöldin en
forðuðust að líta hvort til annars. Lögfræðing-
ur Winniear las upp bréf frá höfðingja Tembu-
ættbálksins, sem þau hjónin tilheyra, og þar
kom fram, að samkvæmt lögum ættflokksins
mætti ekki leysa upp hjónaband án undangeng-
hennar sagt hneyksli
Nelson
Winnie
inna sáttaumleitana. Bauðst höfðinginn til að
leita um sættir en haft er eftir Mandela, að
hann beri mikla virðingu fyrir gömlum siðum
en viti ekki til, að þeir taki til mála af þessu tagi.
Nelson Mandela sat í fangelsi í 27 ár vegna
baráttu sinnar gegn aðskilnaðarstefnunni og í
þann tíma stóð Winnie með honum og var
mikils metin. Fljótlega eftir að Mandela var
látinn laus 1990 kom þó í ljós, að hjónabandið
var aðeins „á pappírnum11 eins og hann hefur
sjálfur sagt.
Mandela sagði fyrir réttinum í gær, að hann
hefði verið mjög einmana í hjónabandinu með
Winnie eftir að hann losnaði úr fangelsi. Hún
hefði aldrei komið inn í svefnherbergi þeirra
meðan hann var vakandi og alltaf forðast eðli-
legar umræður.
„Þótt öll veröldin segði mér að sættast við
hana, þá gerði ég það ekki. Ég vil losna úr
þessu hjónabandi," sagði Nelson Mandela.
Krefst á fjórða hundrað millj. kr.
Dagblaðið The City Press sagði um helg-
ina, að Winnie, sem er skuldum vafin, krefð-
ist helmings eigna Mandela en þær eru metn-
ar 660 millj. kr. Þá fer hún fram á, að hann
greiði rúmlega átta millj. kr. lán á villu, sem
hún á í Soweto, en hún hefur verið undir
hamrinum vegna vanskila.
Winnie Mandela, sem situr nú á þingi fyrir
Afríska þjóðarráðið, nýtur ekki lengur sömu
virðingar og áður enda hefur hún gengið
fram af flestum með framkomu sinni.
Robert Mugabe einn í framboði í forsetakosningunum í Zimbabwe
Lítíl kjörsókn
mikið áfall fyr-
irforsetann
Harare. Reuter, The Daily Telegraph.
AÐEINS um 31,5% kjörsókn var í
forsetakosningunum í Zimbabwe
um helgina, enda var Robert
Mugabe forseti einn i framboði og
ljóst að hann yrði endurkjörinn.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
sniðgengu kosningarnar eða drógu
sig í hlé á síðustu stundu. Þessi
samstaða um að taka ekki þátt í
kosningunum hefur sett Mugabe
og flokk hans, ZANU-PF, sem ræð-
ur lögum og lofum í landinu, í mjög
vandræðalega stöðu. Stjórnarflokk-
urinn hafði vonað að kosningarnar
yrðu til þess að sannfæra umheim-
inn um að Zimbabwe væri meðal
lýðræðisríkja.
Aftökurnar á rithöfundinum Ken
Saro-wiwa og átta öðrum stjórnar-
andstæðingum í Nígeríu í fyrra
hafa leitt til háværari krafna um
að efnahagsaðstoð við Afríkuríki
verði tengd lýðræðislegum umbót-
um. Dr. Iden Wetherall, stjórnmála-
skýrandi í Harare, segir að Mugabe
hafi mistekist að sýna fram á að
Zimbabwe væri lýðræðisríki. „Um-
heimurinn dregur nú pá ályktun að
lýðræðið í Zimbabwe standi ekki
undir nafni og að stjórnvöld berjist
gegn hvers kyns andstöðu. Þessar
kosningar sanna það.“
„Þetta er mikið áfall fyrir
Mugabe, einkum þegar haft er í
huga hversu hart hann lagði að sér
í kosningabaráttunni," sagði John
Makumbe, við Zimbabwe-háskóla í
Harare. Mugabe, sem er 72 ára,
efndi til 40 kosningafunda og hvatti
landsmenn til að flykkjast á kjör-
staði til að að sanna fyrir umheimin-
um að hann nyti enn mikilla vin-
sælda eftir að hafa verið við völd
í 16 ár, eða frá því að Zimbabwe
öðlaðist sjálfstæði frá Bretlandi.
Sundruð
slj órnarandstaða
Mikil óeining ríkir innan stjórnar-
andstöðunnar í Zimbabwe og sam-
staðan um að sniðganga kosning-
arnar kom því á óvart. Abel Muz-
orewa, biskup og leiðtogi Samein-
uðu fiokkanna, og Ndabaningi Sit-
Reuter
FATLAÐUR maður hvílir sig eftir að hafa greitt atkvæði i for-
setakosningunum í Zimbabwe um heigina.
hole, leiðtogi lítils hægriflokks,
ZANU-Ndonga, tilkynntu á síðustu
stundu að þeir hefðu hætt við fram-
boð. Áður höfðu leiðtogar fjögurra
flokka neitað að taka þátt í kosning-
unum vegna kosningalöggjafarinn-
ar, sem þeir segja að sé Mugabe
og stjórnarflokknum til framdráttar
og ganga í berhögg við stjórnar-
skrána.
Stjórnmálaskýrendur eru sam-
mála um að með því að sniðganga
kosningarnar hafi stjórnarandstað-
an valdið Mugabe meiri skaða en
hún hefði getað með þátttöku í
kosningunum.
Flokkur Mugabes er með 147
sæti af 150 á þinginu eftir kosning-
ar í fyrra sem fimm stjórnarand-
stöðuflokkar sniðgengu. Fjórir aðrir
flokkar tóku þátt í kosningunum
en aðeins ZANU-Ndonga fékk
þingmenn kjörna, þar af tvo í
heimahéraði Sitholes í austurhiuta
landsins. Sithole ákvað að hætta
við framboð á þriðjudag og sagði
leyniþjónustu stjórnarinnar hafa
spunnið upp ásakanir um að hann
hefði lagt á ráðin um að myrða
forsetann og steypa stjórn hans.
Kjörstjórn hafnaði beiðni um að
kosningunum yrði frestað eftir að
frambjóðendurnir drógu sig í hlé
og nöfn þeirra voru á kjörseðlunum
þar sem frestur þeirra til að hætta
við framboð hafði runnið út.
SP-BILALAN TIL ALLT AÐ 6
MANAÐA
NU VANTAR OKKUR NYLEGA BILA A STAÐINN - FRIAR AUGLYSINGAR - FRITT INNIGJALD
Kláraðu
dæmið
með
SP-bílaláni
Með SP-bílalán inní myndinni kaupir
þú bil scm hæfir greiðslugetu þinni
CWj
Sími 588-7200
FJÁRMÖGNUN HF
Nissan Terrano II árg. ‘96, ek. 5
þús. km., dökkblár, 33“ dekk, ál-
felgur, brettak., 5 g.
Verð kr. 3.000.000. Ath. skipti.
S Dodge Ram 2500 diesel Turbo
S Intercooler árg. '95, ek. 40 þús. km.,
k hvítur, 35" dekk, álfelgur, sjálfsk.,
* áhv. bílalán.
Verð kr. 3.400.000. Ath. skipti.
; Daihatsu Charade TR árg. '95, ek.
! 9 þús. km., grænn, sjálfsk.
: Verð kr. 990.000. Ath. skipti.
Toyota Carina E 2,0 GLi árg. '93,
ek. 61 þús. km., vínrauður, sjálfsk.
Verð kr. 1.420.000. Ath. skipti.
fGrand Cherokee Infineti árg. '94,
ek. 29 þús. km., grádrapp., sjálfsk.,
2 leður, álfelgur, áhv. bílalán.
* Verð kr. 3.950.000. Ath. skipti.
M. Benz 350 SDL diesel Turbo árg.
'91, ek. 150 þús. km., svartur, leður,
sjálfsk., álfelgur, sóllúga. Góður bill fyrir
leigubílstjóra. Áhv. bílalán.
Verð kr. 3.500.000. Ath. skipti.
MMC L-300 árg. '88, ek. 150 þús. km.,
hvítur, nýtt lakk, mikiö upptekinn.
Verð kr. 950.000. Ath. skipti.
BMW 316i árg. '89, ek. 88 þús. km..
dökkgrár, 5 g. Verð kr. 850.000. Vill
skipta á dýrari fólksbíl eða jeppa með
allt að 1 millj. ó milli.
Félag Löggiltra Bifreidasala
NÝJA BÍLAHÖLUN FUNAHÖFDA V S: S67-2277
Félag Löggiltra Bifreidasala