Morgunblaðið - 19.03.1996, Page 20

Morgunblaðið - 19.03.1996, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MBH M WMBBWjMj ■ Reuter Snjóhótel í Svíþjóð SVÍINN Yngve Bergqvist hefur eru 15 herbergi fyrir allt að 50 október. Hótelið nýtur mikilla reist 1.000 fermetra snjóhótel í manns. Allir veggirnir eru gerð- vinsælda meðal ferðamanna Lapplandi og notað til þess ir úr snjó og ís og hótelið þiðn- þótt frostið í herbergjunum sé 2.000 tonn af snjó. í hótelinu ar á vorin en er endurreist í yfirleitt um 5 stig. Viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar á Spáni Aznar ánægð- ur með viðræð- ur við Pujol Madrid. Reuter. JOSÉ Maria Aznar, leiðtogi spænska Þjóðarflokksins, sagði í gær að stjórnarmyndunarviðræð- um hans við aðra flokka miðaði vel áfram. Flokkur Aznars vann sigur í þingkosningum þann 3. mars en náði ekki hreinum þing- meirihluta. Aznar átti á sunnudag fund með Jordi Pujol, leiðtoga flokks Katal- óna. Sá flokkur fékk sextán þing- sæti í kosningunum og ræður því úrslitum við stjórnarmyndun. Á blaðamannafundi sagði Aznar fundinn með Pujol hafa verið „ein- staklega áhugaverðan og jákvæð- an“ og lagði hann mikla áherslu hversu næmur Pujol væri á hags- muni ríkisins. „Hlutimir mjakast á sínum hraða og samkvæmt þeirri áætlun Rússneskir hermenn og aðskilnaðarsinnar berjast víða í Tsjetsjníju Rússar ná Samashki á sitt vald Moskvu. Reuter. RÚSSNESKIR hermenn og skæraliðar í Tsjetsjníju börðust í gær í vesturhluta landsins en um helgina misstu Rússar 12 menn, þar af 11 í einni fyrirsát. Bærinn Samashki féll í hendur Rússum í gær eftir tveggja daga stórskota- liðshríð. Jtar-Tass-fréttastofan sagði, að 11 rússneskir hermenn hefðu fall- ið í fyrirsát, sem þeim var gerð á 12 rússneskir hermenn falla sunnudag, og 20 hefðu særst. Sá 12. hefði fallið í öðrum átökum og níu særst. Hefur bærinn Sam- ashki fallið Rússum í hendur en þeir tóku hann einnig í apríl í fyrra og vora þá sakaðir um að myrt ijölda óbreyttra borgara. Rússar segja, að skæruliðar hafi notað Samashki sem bækistöð og hafa einnig girt af nálægan bæ, Achkhoi-Martan, af sömu sök- um. Þá hefur yfirmaður héraðs- stjórnarinnar í Nozhai-Yurt í Suð- austur-Tsjetsjníju sakað Rússa um árásir á mörg þorp, bæði af landi og úr lofti. Sókn stendur einnig yfír gegn skæruliðum í Bamut, 45 km suðvestur af höfuðborg- inni, Grosní, þar sem þeir hafa búið vel um sig. Mikill viðbúnaður og eftirlit er í Moskvu eftir að lögreglan þar fann og gerði óvirka öfluga sjtrengju í strætisvagni í borginni. Ottast er, að Tsjetsjenar hafi kom- ið henni fyrir en leiðtogi þeirra, Dzhokhar Dúdajev, hefur ítrekað hótanir um að færa átökin yfir á rússneskt land. sem við höfðum gert,“ sagði Azn- ar. Viðræðurnar hefðu ekki snúist um einstök mál heldur þann al- menna grundvöll, sem nauðsynleg- ur væri til að ná samkomulagi við Convergencia i Unio (CiU), flokk Katalóna. Aznar afhenti einnig tillögur Þjóðarflokksins í sex mikilvægum málum. Hann vill að stefnt verði að því að Spánveijar geti tekið þátt í fyrsta áfanga peningalegs samrana Evrópuríkja (EMU); að umbætur verði gerðar á hagkerf- inu til að draga úr atvinnuleysi; að hið félagslega öryggi velferðar- kerfisins verði varðveitt; að sjálf- stæði einstakra héraða Spánar í skattamálum verði aukið; að bar- áttunni gegn aðskilnaðarsinnuðum Böskum í ETA-samtökunum verði haldið áfram og að nýju lífi verði blásið í spænskar stjórnarstofnan- ir. Stjórn um miðjan apríl? Fréttaskýrendur telji að Pujol muni draga viðræðurnar við Þjóðarflokkinn á langinn og reyna að knýja Aznar til eins mikilla málamiðlana og mögulegt er. Pujo! vildi ekki tjá sig efnislega um fundinn með Aznar að honum loknum og sagði einungis að ítar- legar viðræður hefðu farið fram. Talið er líklegt að samkomulag um nýja stjórn verði tilbúið um miðjan næsta mánuð þó svo að samningamenn Aznar hafi gefið í skyn að stjórnarmyndun gæti dregist fram í maí. Carl B. Hamilton yfirhagfræðingur Handelsbanken Skammsýni að afla ESB vin- sælda út á atvinnusköpun Kaupmannahöfn. Morgpmblaðið. CARL B. Hamilton, yfírhagfræðingur Handelsbanken, sem á sínum tíma stýrði baráttunni fyrir aðild Svía að Evrópusam- bandinu, ESB, er áhyggjufullur yfír að sænskir stjómmála- menn skuli leggja svo mikla áherslu á að leysa sænskt atvinnu- leysi í gegnum ESB. Hann hefur litla trú á að vandinn verði leystur af ESB og þetta sé tæpast að- ferðin til að afla sam- bandinu vinsælda al- mennings. Þetta kom fram í sam- tali hans við Morgunblaðið er hann hélt fyrirlestur í Kaupmannahöfn nýlega. Hann sagðist trúaður á að myntkerfíð evrópska yrði að veru- leika, en öllu máli skipti að það yrði sveigjanlegt. Um hugsanlega aðild íslendinga að ESB benti hann á að þar sem Norðmenn væra utan ESB væri meira svigrúm til að semja sérstaklega við Islendinga um hélstu hagsmunamál þeirra. Carl B. Hamilton sagði að sveigj- anleiki myntkerfísins gæti ráðið úrslitum um hvort það yrði að veru- CarlB. Hamilton leika eða ekki. Ef hald- ið væri of fast við aðild- arforsendurnar, sem eru að opinberar skuld- ir fari ekki fram úr 60 prósentum vergrar þjóðarframleiðslu, verðstöðugleiki og lágir vextir ríki og að halli fjárlaga nemi ekki meira en 3 prósentum, væri hætta á að ekkert land nema kannski Lúxemborg uppfyllti þær. Við þær aðstæður skipti öllu máli að sýna sveigjanleika, til dæmis þannig að meir en 3 prósenta halli væri metinn sem undantekning. Hvemig sem allt veltist sagði Hamilton að ljóst væri að ekkert yrði úr myntkerfínu nema að bæði Þjóðveijar og Frakkar væra með frá byrjun. Enn væri hins vegar óljóst hvort forsendunum yrði hald- ið til streitu, en bráðlega þyrfti að koma í ljós, hvernig á þeim yrði tekið, því næsta ár yrði viðmiðunar- árið, ef myntkerfíð ætti að komast á 1999. Ef þetta yrði ekki bráðlega ljóst, væri hætta á vaxandi spá- kaupmennsku, sem myndi beinast gegn frankanum og gæti leitt til ★★★★^. EVRÓPA^ vaxandi gjaldeyrisóróa. Hann sagði hugsanlegt að Þýskaland og Frakk- land gerðu mér sér einhver hrossa- kaup, þannig að Frakkland tryggði sér stuðning Þjóðveija, gegn því að styðja heils hugar aðild Austur- og Mið-Evrópulandanna að ESB, sem væri hjartans mál Þjóðveija. Um aðstöðu Svía sagði Hamilton að Svíar hefðu komið inn í undir- búning myntsambandsins í miðjum klíðum. Svíar gætu að öllum líkind- um uppfyllt forsendurnar nema varðandi erlendar skuldir, sem lík- lega yrðu um 80 prósent þjóðar- framleiðslu. Ef fjármálaráðherrann segði Svía ekki geta verið með, gæti enginn þvingað þá til þess, svo að segja mætti að Svíar hefðu annan háttinn á varðandi aðild en Danir, sem hefðu tryggt sér undanþágu frá aðild. En þó Svíar stæðu utan þyrftu þeir samt að uppfylla svipaðar kröf- ur, án þess að hljóta nokkra umb- un, heldur þyrftu að gjalda fyrir það með hærri vöxtum og svipað yrði með Dani. ESB án Noregs opnar íslandi leið að sérsamningum í samtali við Morgunblaðið sagði Hamilton að það vekti sér ugg hve Sænska stjómin legði mikla áherslu á að ESB ætti að leysa atvinnuleys- isvandann. Hann stafaði af kerfís- göllum heima fyrir og yrði ekki leystur annars staðar en þar. Ef það væri svo einfalt að hægt væri að beita ESB til þess væri vandséð af hveiju Þýskaland og Benelux- löndin hefðu ekki löngu fitjað upp á því. Hættan væri að þegar i ljós kæmi að ESB dygði ekki í þessu sambandi þá misstu Svíar enn frek- ar áhuga á aðild. Um aðstöðu íslendinga sagði Hamilton að skoðun hana væri að það væri íslendingum fyrir bestu að ákveða aðild sem fyrst. Það væri engin áhætta að sækja um aðild. Þar sem Norðmenn væru utan ESB og yrðu jiað vísast um langa hríð gæfí það Islendingum tækifæri til að ná klæðskerasaumuðum samningum um þau mál, sem skiptu þá mestu, þar sem ekki þyrfti að taka afstöðu til hagsmuna Norð- manna. Ekkert til sparað í evró-her- ferð Kohls Bonn. Reuter. HELMUT Kohl, kanzlara Þýzka- lands, hefur tekizt að herja aukafjárveitingu út úr sjóðum Evrópusambandsins til að fjár- magna kynningarherferð evró- myntarinnar í Þýzkalandi. Með herferðinni á að sannfæra þýzk- an almenning um að fórna megi þýzka markinu fyrir hina sam- eiginlegu Evrópumynt, evró, sem tekin verður upp í lok aldar- innar. í tímaritinu Der Spiegel kem- ur fram að Kohl hafi þótt tíu milljóna marka (450 milljóna ísl. króna) fjárveiting upplýsinga- skrifstofu sambandsstjórnarinn- ar í Bonn til kynningár á evróinu of mögur. Kanzlarinn fékk því aðra eins upphæð frá Evrópu- sambandinu til að leggja í her- ferðina á þessu ári og búizt er við að fjárveitingin hækki á næstu árum. Að sögn Der Spiegel er búizt við að einkafyrirtæki muni einn- ig leggja mikið fé til kynningar á Evrópumyntinni. í áætlunum þýzka kanzlaraembættisins er gert ráð fyrir að tryggingafélög, bankar og fleiri fyrirtæki muni eyða um 100 milljónum marka á næstu árum til kynningar á evró- inu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.