Morgunblaðið - 23.04.1996, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996__________________________________________
FRÉTTIR
Tveimur bátsveijum bjargað í þyrlu úr trillu sem strandaði á skeri
„Mátti ekki tæpara standa“
Haffjörbui
Jlvalseyjar
4
♦Þofmóbssker
Bogga HF 272 *
strandaði á skeri \
við Hvaiseyjar í
gær. Komið var
með Boggu til Akraness
um kvöldmatartleytið "
Akranes
S° '
TVEIR bátsveijar á tíu tonna trefja-
plastbát frá Hafnarfirði, Boggu
HF-272, höfðu samband við Loft-
skeytastöðina í Reykjavík á neyðar-
rás skipa um klukkan tvö í fyrrinótt
og greindu frá því að báturinn væri
strandaður uppi á skeri, líklega upp
á Mýrum, en engin staðsetningar-
tæki voru um borð í bátnum.
Veður var gott þegar þetta gerð-
ist og hreyfist báturinn lítið á sker-
inu. Veður versnaði hins vegar í
gærmorgun og segir Halldór Ás-
geirsson hjá SVFÍ að hefði bræla
verið komin þegar báturinn steytti
á skeri hefði verið tvísýnt um ör-
yggi mannanna.
Landhelgisgæslan kallaði þegar
út þyrlu sínaj TF-LÍF, og
Slysavamarfélag Islands kallaði út
björgunarsveitir á Akranesi og í
Reykjavík á þremur björgunarbát-
um. Báturinn mun hafa verið á leið
frá Patreksfirði til Hafnarfirði, sam-
kvæmt upplýsingum frá Landhelgis-
gæslunni.
Fluttir til Reykjavíkur
Þyrlan gat náð sambandi við
bátinn stuttu eftir að hún kom frá
Reykjavík og um þrjúleytið greindi
áhöfn þyrlunnar neyðarblys frá
bátnum. Hún kom að honum um
klukkan 3.15 en Bogga reyndist
vera föst á skeri suðvestur af Hvals-
eyjum á Mýrum. Sigmaður þyrlunn-
ar seig niður í bátinn og voru báðir
skipbrotsmennirnir hífðir um borð
og fluttir til Reykjavíkur, en þar
lenti þyrlan klukkan rúmlega hálf-
fjögur í fyrrinótt, að sögn Páls
Ægis Péturssonar, deildarstjóra hjá
Slysavarnafélaginu.
Björgunarbátur Slysavamafé-
lagsins á Akranesi kom síðan að
Boggu um 50 mínútum síðar og
dró bátinn á flot. Menn fóru um
borð og könnuðu skemmdir og
reyndist talsverður leki vera kominn
að bátnum. Vél bátsins var í gangi
en stýri hans óvirkt. í morgunsárið
komu björgunarbátar SVFÍ, þeir
Heniý A. Hálfdánsson og Jón E.
Bergsveinsson, á strandstað með
dælu og pumpuðu sjó úr Boggu,
en því verki lauk um klukkan sjö.
Var þá búið að þurrka bátinn og
stöðva lekann að mestu.
Basl að hálda bátnum á floti
Henrý tók Boggu síðan í tog og
dró til Akraness og sóttist ferðin
fremur hægt þar sem veður var
tekið að versna með suðsuðaustan
golukalda, auk þess sem leki var
talsverður. Talið er að ekki hafi
„mátt tæpara standa að bjarga
bátnum," segir Páll Ægir.
Komið var með bátinn að landi
á Akranesi rétt fyrir klukkan 13 í
gær. Halldór Ásgeirsson, skipstjóri
á Henrý, segir að drátturinn hafi
verið erfiður, enda um sex vindstig
og leiðinlegt sjólag sem hafi verið
til trafala. Hefði þetta veður ríkt á
strandstað hefði verið tvísýnt um
öryggi skipbrotsmanna og báturinn
hefði án efa eyðilagst gjörsamlega.
„Báturinn er mikið laskaður, sér-
staklega botninn að framanverðu,
og búið að vera basl að halda hon-
um á floti. Lekinn var mikill og við
dældum bæði með dælu sem við
fluttum með okkur og dælu sem
björgunarbáturinn frá Akranesi
kom líka með, en vorum hins vegar
á tímabili hræddir um við værum
að missa hann. Við urðum að stoppa
og gerðum ráðstafanir til að taka
um borð björgunarmenn sem fóru
með Boggu,“ segir Halldór.
Skipveijamir tveir vildu ekki tjá
sig við íjölmiðla í gær. Að sögn
Hálfdáns Guðmundssonar hjá Auð-
bergi eh., sem var að taka við út-
gerð bátsins, sluppu þeir algerlega
ómeiddir úr þessu óhappi. Hann
sagði að vél skipsins væri óskemmd
og þess vegna yrði að öllum líkind-
um ekki mjög kostnaðarsamt að
gera við bátinn.
BOGGA komin upp á bryggju á Akranesi. Morgunblaðið/Gunnlaugur Jónsson
Gunnlaugur Sigmundsson í alþingisumræðum um bankafrumvarp ríkisstj órnar innar
Efast um hæfi Sverris
Hermannssonar bankastjóra
Ekki svaravert, segir Sverrir
Hermannsson
GUNNLAUGUR Sigmundsson
þingmaður Framsóknarflokks
sagði á Alþingi í gær að ýmis
ummæli Sverris Hermannssonar
bankastjóra Landsbankans gerðu
það að verkum að hann efaðist um
að Landsbankinn væri hæfur til
að fara með efnahag sem sé yfir
hundruð milljarðar króna.
Verið var að ræða stjómarfrum-
varp um viðskiptabanka og spari-
sjóði sem fyrst og fremst er flutt til
að gera ýmsar tæknilegar breytingar
á löggjöf í framhaldi af nýjum til-
skipunum Evrópusambandsins. En í
frumvarpinu er einnig bráðabirgða-
ákvæði sem gerir ráð fyrir því að
ríkisbankar geti endurfjármagnað
víkjandi lán sem þeir hafa tekið, en
með því móti gætu þeir bætt eigin-
fjárstöðu sína.
Þetta ákvæði á aðeins við um
Landsbankann og hefur stjórn bank-
ans lagt á það mikla áherslu, m.a.
í bréfi til efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, að ákvæðið verði
í frumvarpinu. Fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar í nefndinni, og Pétur
Blöndal þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, hafa hins vegar lagst gegn
ákvæðinu, þótt þeir styðji frumvarp-
ið að öðru leyti, á þeirri forsendu
að Landsbankinn þurfi ekki á sér-
stakri aðstoð að halda.
Húskarl
Gunnlaugur sagðist hafa sam-
þykkt ákvæðið en upp á síðkastið
hefði hann fengið efasemdir um að
sú ákvörðun væri rétt.
„Ég fór að fá efasemdir um það
að einn bankastjóri Landsbankans,
Sverrir Hermannsson, væri í jafn-
vægi til að fara með þetta lánsfé,
miðað við þau ummæli sem hann
hefur viðhaft í fjölrniðlum um ráð-
herra í ríkisstjórn íslands.
Mig undrar það, að húskarl hjá
ríkisstjóm íslands, skuli leyfa sér
það að líkja fjármálaráðherra við
fúaspýtu. Það undrar mig líka að
sami karl skuli leyfa sér það að
væna hæstvirtan dóms- og sjávar-
útvegsráðherra um að hafa farið illa
með fjármuni ríkisins og nánast
glutrað þeim út úr höndum sér í
tengslum við söluna á SR-mjöli. Og
það undrar mig einnig að bankaráð
Landsbankans skuli líða starfsmanni
sínum að tala þannig um hæstvirtan
viðskiptaráðherra að hafa ekki vit á
bankamálum, eins og haft var eftir
þessum bankastjóra í einhveiju
blaði,“ sagði Gunnlaugur.
Reksturinn versnar
Hann bætti við að eftir að hann
sá reikninga bankans hefðu efa-
semdimar aukist. Því þar hefði kom-
ið fram að samhliða því að framlag
í afskriftareikning hefði lækkað milli
áranna 1994 og 1995 um 721 millj-'
ón króna, hefði hagur bankans ekki
batnað nema um 155 milljónir.
„Með öðrum orðum: rekstur bank-
ans versnar um nærri hálfan millj-
arð,“ sagði Gunnlaugur og bætti við
að það sama mætti segja um Búnað-
arbankann, því hann hefði lagt 142
milljónum minna á afskriftarreikn-
ing en hagnaður bankans jókst að-
eins um 11 milljónir.
Gunnlaugur sagði að í Lands-
bankanum væri einnig ágætis fólk
og nefndi þar Björgvin Vilmundar-
son bankastjóra og Kjartan Gunn-
arsson formann bankaráðsins. Þeim
sagðist Gunnlaugur treysta til að
halda utan um fé bankans og því
hefði hann á endanum staðið að
frumvarpi stjómarmeirihlutans.
Ekki svaravert
Sverrir Hermannsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið þegar ummæli
Gunnlaugs Sigmundssonar voru bor-
in undir hann að þau væru ekki
svaraverð. „Ég hirði ekki um að
svara þessu einu orði því þetta er
ekki svaravert,“ sagði Sverrir.
Stuggað
við er-
lendum
togurum
VARÐSKIP Landhelgisgæsl-
unnar hefur undanfama sólar-
hringa haft afskipti af nokkr-
um erlendum togurum við
landhelgismörkin á Reykja-
neshrygg, en þar em nú 58
skip að veiðum, flest rússnesk
og íslensk, en einnig frá Port-
úgal, Þýskalandi, Spáni, Eist-
landi og fleiri ríkjum.
„Eitt og eitt nálgast línuna
og læðist jafnvel yfir og eru
skipin þá látin vita að þau em
komin á mörkin og beðin um
að færa sig utar. Við tökum
ýmis skekkjumörk með í reikn-
inginn en segja má að þau
dansi á línunni," segir Helgi
Hallvarðsson skipherra hjá
Landhelgisgæslunni.
Áfram á varðbergi
Hann kveðst gera ráð fyrir
að áfram verði stuggað við
erlendum skipum sem em að
veiðum við mörkin, en síðan
um helgi virðist fiskurinn hafa
fært sig inn fyrir línuna með
þeim afleiðingum að skipin
færist nær.
„Meðan fiskurinn heldur sig
á þessum slóðum má búast við
ati við línuna, en það er enn
sem komið er á vinsamlegum
forsendum og verður áfram á
meðan skipin fara ekki óheyri-
lega langt inn fyrir,“ segir
hann.
Stefnt að
hvalveiðum
Alþjóða þingmannasam-
bandið hefur samþykkt álykt-
un um vemdun og nýtingu
fiskistofna þar sem ríki heims
em hvött til þess að tryggja
sjálfbæra og skynsamlega
nýtingu sjávarlífvera, þar með
talda sjálfbæra nýtingu sjáv-
arspendýra, þ.e. hvala og sela.
Ályktunin byggir á drögum
sem Islandsdeild Alþjóðaþing-
mannasambandsins lagði
fram á þinginu.
Umíjöllun um málið fór
fyrst fram í vísinda- og um-
hverfisnefnd þingsins og var
hún síðan Iögð fyrir þingið.
Þar samþykktu þingfulltrúar
ályktunina með lófaklappi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Is-
land hefur lagt fram ályktun-
artillögu ásamt greinargerð
fyrir þing sambandsins.
■ Ríkisstyrkir/18
Jafntefli
í keppni
Israels og
íslands
LIÐ íslands og ísraels gerðu
jafntefli í fyrri umferð lands-
keppni þjóðanna í skák, sem
háð var í gær. Jóhann Hjartar-
son og Hannes Hlífar Stefáns-
son unnu Lev Psakhis og Bor-
is Alterman. Margeir Péturs-
son og Leonid Yudasin gerðu
jafntefli, en Karl Þorsteins og
Helgi Áss Grétarsson töpuðu
í viðureignum sínum við Yona
Kosashvili og Alon Greenfeld.
Seinni umferð keppninnar fer
fram á morgun.