Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEMPAR GREIMAR Hreyfingarleysi nemenda, dug- leysi stjórnvalda EIN er sú list sem synir jarðar og dætur hafa iðkað frá ómunatíð, að rækta líkama sinn og stæla. I Grikklandi hinu forna voru leikar haldnir á Ólympíusléttunni, Seifi til heiðurs. Þar áttust við ungir íþróttagarpar og þreyttu með sér hinar margvíslegu þrautir. Þessir ungu menn voru tákn hreinleikans og heilbrigðra lifnaðarhátta og tóku þátt með það að leiðarljósi að vera með og gera sitt besta. Nú, tugum öldum síðar, á tím- um örra framfara í vís- indum og tækni, þar sem vitneskja um mannslíkamann og í raun lífið sjálft nálgast sífellt nær algerri full- komnun, er mönnum það fyllilega Ijóst hvað til þarf svo einstakling- ar geti talist lifa heil- brigðu líferni. Á leið okkar upp lífsstigann, í gegnúm skólakerfið og svo þegar út í alvör- una er komið er haft fyrir okkur hvað þarf til og hvaða lifnaðar- hætti við þurfum að temja okkur til að geta talist tiltölulega heilbrigðir ein- staklingar. Á öldum ljósvakans glymja svo sífellt í eyrum okkar ráðleggingar og ábendingar varð- andi ýmsa starfsemi þar að lút- andi. Ætla mætti að ýmsum ráða- mönnum ríkis og borgar sé varla kunnugt um að í hópi þeirra sem á hreyfingu þurfa að halda séu framhaldsskólanemendur. Og má í því sambandi sérstaklega nefna til sögunnar nemendur Mennta- skólans við Hamrahlíð. Síðan skól- inn var reistur sem fyrsti mennta- skólinn sem íslendingar stofnuðu í höfuðborg sinni, árið 1966, hefur hann skilað hlutverki sínu vel og af kostgæfni undirbúið nemendur sína fyrir bæði frekara nám og þátttöku í atvinnulífínu, með stað- góðri menntun. Að einu leyti hefur skólinn þó ekki getað sinnt skyld- um sínum við nemendur: hann hefur aldrei haft aðstöðu til að geta séð nemendum fyrir þeirri líkamsrækt sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum. Vandinn er sá að ekkert íþróttahús er við skól- ann. Með tilkomu íþróttahúss fengju nemendur sína lögboðnu líkamsrækt og hægt væri að veita fötluðum nemendum skólans mun betri þjónustu en hægt er í dag. Loforð hafa verið gefin, fyrirliggj- andi eru teikningar af íþróttahúsi og er lóð við austurenda skólans ætluð til byggingarinnar sem þeg- ar hafa verið teknar þrjár „fyrstu“ skóflustungur fyrir! Hins vegar hafa allar áætlanir og fram- kvæmdir dagað uppi í kerfinu og allar fyrirspurnir varðandi seina- ganginn kæfðar og settar í nefnd- ir. Brotalömin er hjá ríki og borg sem greinilega hafa ekki líkams- rækt og góða heilsu í fyrirrúmi, því miður. Brugðið var á það til skamms tíma að taka á leigu íþróttahús Knattspyrnufélagsins Vals að Hlíðarenda. Þar er góð aðstaða til íþróttaiðkanna af ýmsu tagi, en þessi lausn hafði vissa annmarka. Tímaskipulag fór allt úr skorðum og mikils óhagræðis gætti í gerð stundataflna nemenda, því gera þurfti ráð fyrir tíma aukalega svo nemendur gætu komist ferða sinna milli íþróttahúss og skóla, þannig að oft nýttist ekki nema helmingur þess tíma sem líkams- ræktinni var ætlaður, til hreyfíng- ar að einhverju tagi. Aukinheldur lá leiðin milli Hlíðarenda og MH yfir fjölfarin gatnamót og er a.m.k. eitt dæmi þess að nemandi hafí slasast á leið sinni til líkams- ræktar (!). Svo þegar öllu var á botninn hvolft var álitið að þessi lausn skilaði ekki tilætluðum ár- angri, nemendur hefðu meira ógagn af en gagn. Af þessum sök- um sem og vegna knappra fjárveit- inga var þessi lausn, sem aldrei átti þó að vera nema til bráðbirgða - eða þar til íþrótta- hús yrði byggt, gefin upp á bátinn. Síðast- liðnar annir hafa nemendur MH því verið án nokkurrar aðstöðu til líkams- ræktar. Þó hefur fag- ið líkamsrækt ávallt fengið sinn sess í töflu nemenda, senni- lega eingöngu svo ráðamenn skólans bijóti ekki lög um framhaldsskóla. All- ir, sem er málið skylt, Gunnar eru Þess meðvitaðir Þórarinsson að sú hreyfíng sem nemendum er gefínn kostur á í skólatíma er hvergi til þess fallin að bæta líkamlegt ástand þeirra sem á þurfa að halda. Þrátt fyrir mikið hug- myndaflug og lofsvert framtak lík- amsræktarkennara við að þjálfa nemendur í að rækta líkama sinn Vandinn er sá, segir Gunnar Þórarinsson, að ekkert íþróttahús er við Menntaskólann við Hamrahlíð. vantar alveg kjarna málsins: að sjá til þess að nemendur fái þá lögbundnu hreyfíngu sem þeim er ætluð samkvæmt Iögum. Kennarar og umsjónarmenn lík- amsræktarkennslunnar hafa stundum reifað þann mögleika að hafa enga líkamsrækt inni í töflu nemenda. Þar með væri íslensk menntastofnun að bijóta lög af illri nauðsyn. Fróðlegt væri að sjá viðbrögð ráðamanna við þess hátt- ar aðgerðum. Þegar ný borgarstjórn var kosin vorið ’94, tóku við stjómartau- munum skörungslegir kvenmenn. I máli þeirra um málefni er vörð- uðu íþróttir var lögð á það áhersla að íþróttir og hreyfíng almennings skiptu miklu máli, jafnvel meira en keppnisíþróttir. Þetta hefur margoft sést í verki. Hins vegar hefur hreyfíng og heilsa fram- haldsskólanemenda borgarinnar aldrei komist almennilega inn í umræðuna. Sama mætti segja um æðsta yfírmann skólakerfisins, Menntamálaráðherra (það er jú ekki enn búið að flytja skóla frá ríki til bæja!), sem ætti nú aldeilis að vera umhugað um að reglur í skólamálum séu virtar. Honum ætti ekki að vera sama um heilsu nágranna sinna í Hamrahlíðinni. Hér með lýsi ég eftir lausnum sem stjórnendur ríkisins og borgarinnar hafa í huga varðandi úrbætur. Sú lausn ætti samt ekki að vera sú að aðilar bendi hvor á annan, því það á að vera allra hagur að ungmenni Islands alist upp hraust, kát og heilbrigð. Höfundur cr skólastjórnarfulltrúi nemenda í Mcnntaskólanum við Hamrahlíð. * Vel heppnuð ferð Islend- inga til Blackpool! Morgunblaðið/Jóhann SIGURSTEINN Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir unnu þann stærsta sigur sem íslenzkt danspar hefur unnið. Þau urðu sigurvegarar í stóru latín-keppninni, en höfðu áður unnið til silfur- verðlauna í samba-keppninni. PANS B lackpool Towcr Ballroom ÓOPINBER HEIMSMEIST- ARAKEPPNI í DANSI Rúmlega 150 íslendingar héldu í danskeppnisferð til Englands á dög- unum. LAUGARDAGINN 6. apríl hélt stór hópur íslenzkra dansara og aðstandenda þeirra í keppnisferð til Blackpool á Englandi, til að taka þátt í einni stærstu barna- og ungl- ingadanskeppni sem haldin er í heiminum í dag. Þessi keppni hefur oft verið nefnd hin óopinbera heims- meistarakeppni barna og unglinga í dansi og stendur hún venjulega yfír frá mánudegi, 2. i páskum og fram á laugardag. Fjölmargar keppnir eru í boði, í einum dansi og svo auðvitað stóru keppnirnar í suður-amerísku dönsunum og standarddönsunum. Að mestu er keppt í tveimur flokkum, 11 ára og yngri og 12-16 ára, reyndar er einnig boðið upp á keppni fyrir 12-13 ára. Mánudagur Fyrsti keppnisdagurinn var runn- inn upp og áttu yngri krakkarnir að keppa í eha, cha, cha. Hundrað pör voru skráð til leiks og þar af voru 11 íslenzk. 011 íslenzku pörin héldu áfram í 2. umferð og fímm fóru áfram í þá þriðju. í fjórðu umferð, 24 para úrslitin, komust 3 íslenzk pör, Grétar Khan og Bára Sigfúsdóttir, Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helgadóttir, og Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Hall- dórsdóttir, en þau tvö síðarnefndu komust í undanúrslit. Davíð og Halldóra fóru svo alla leið í úrslitin og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu. ÖIl pörin í þessum aldurshópi stóðu sig frábærlega vel, sérstaklega þó Davíð og Halldóra, sem dönsuðu af öllum lífs og sálar kröftum og unnu svo sannarlega verðskuldaðan sigur, en það ber einnig að hafa í huga að þau eiga eftir að keppa eitt ár I viðbót í þessum aldurs- flokki. Flokkur 12-16 ára byijaði í vín- arvals-keppni og hófu um 160 pör leikinn, þar af 20 frá íslandi. Af þeim fóru 10 í aðra umferð og 4 í þá þriðju. í 24 para úrslit komust 3 íslenzk pör; Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir, Brynjar Órn Þorleifsson og Sesselja Sigurð- ardóttir og Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir. Öll stóðu þau sig prýðis vel, enda verð- ur að hafa í huga að við höfum átt miklu erfíðara uppdráttar í stand- arddönsunum en suður-amerísku dönsunum. Þriðjudagur Yngri keppnishópurinn keppti í „stóru“ standardkeppninni þennan dag, og voru dansaðir 4 dansar. Rétt tæplega 100 pör voru skráð til leiks, þar af 10 íslenzk og kom- ust 7 þeirra áfram í aðra umferð, en í 24 para úrslit fóru tvö pör, Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helgadóttir og Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir, en þau komust í undanúrslit 12 para í strandarddönsum, sem er frábær árangur. Á þriðjudeginum var boðið upp á keppni fyrir 12-13 ára í cha, cha, cha og rúmbu, þar sem 80 pör voru skráð til leiks. Islenzku pörin 7 stóðu sig mjög vel og komust 6 þeirra áfram í 2. umferð og 3 fóru í 24 para úrslit, en það voru; Haf- steinn Jónasson og Laufey Karítas Einarsdóttir, Gunnar Hrafn Gunn- arsson og Ragnheiður Eiríksdóttir og Snorri Engilbertsson og Dóris Ösk Guðjónsdóttir, en þau síðast- nefndu náðu þeim glæsilega ár- angri að komast í úrslit í þessum flokki og fengu þau 7. verðlaun. Snorri og Dóris dönsuðu einstak- lega vel og er mikil og samvisku- samleg vinna nú greinilega að skila sér. Flokkur 12-16 ára keppti einung- is í einum dansi þennan dag og var það samba. Af þeim 210 pörum sem skráð voru til leiks voru 20 frá ís- landi og komust þau öll áfram í aðra umferð, en 9 íslenzk pör fóru í þá þriðju. I fjórðu umferð fóru 7 íslenzk pör og er það frábær árang- ur í svona sterkri keppni og fjögur þeirra fóru áfram í 24 para úrslitin. Það voru Snorri Engilbertsson og Dóris Ósk Guðjónsdóttir, Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdótt- ir, Brynjar Örn Þorleifsson og Sess- elja Sigurðardóttir og Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Haralds- dóttir. Þau þijú síðastnefndu fóru í undanúrslitin og alla leið í úrslit. Það aetlaði allt um koll að keyra í hópi íslendinganna, að eiga þijú pör í úrslitum var hlutur sem fólk lét sig einungis dreyma um. Þessir fulltrúar okkar voru svo sannarlega glæsilegir á gólfínu og dönsuðu vel, enda fór svo að Islendingar eignuðust sigurvegara og voru það Brynjar Öm Þorleifsson og Sesselja Sigurðardóttir. Við áttum einnig parið sem varð í 2. sæti, það voru Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir og þriðja íslenzka parið kom svo í 4. sæti og það voru Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir. Ég held að þetta hafí verið ein glæsilegasta úrslita- umferð fyrir íslendinga sem hafði verið dönsuð til þessa. Miðvikudagur Yngri hópurinn keppti einungis í jive á miðvikudeginum og voru 9 íslenzk pör mætt til leiks, því veik- indi höfðu sagt til sín og tvö pör urðu að sitja heima vegna þeirra. Öll íslenzku pörin sem kepptu kom- ust áfram í 2. umferð og fímm þeirra fóru áfram í þriðju umferð. Tvö íslenzk pör komust í 24 para úrslit, þau Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helgadóttir og Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Hall- dórsdóttir, en þau síðarnefndu fóru alla leið í úrslit og enduðu í 2. sæti á eftir brezku pari. Flokkur 12-16 ára keppti í „stóru“ standardkeppninni og af tæplega 200 pörum sem skráð voru voru 20 frá íslandi og fóru 11 þeirra í 2. umferð. Fjögur pör fóru áfram í þriðju umferð og 2 komust í 24 para úrslit, en það voru Brynjar Óm Þorleifsson og Sesselja Sigurð- ardóttir og Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir, en þau síðarnefndu fóru áfram í und- anúrslit. Þessi pör dönsuðu vel og er standardinn greinilega á réttri leið hér á landi. Fimmtudagur Yngri hópurinn keppti í vínar- valsi og komust 7 pör áfram í aðra umferð og 4 komust í 24 para úr- slit, það vom: Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helgadóttir, Davið Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórs- dóttir, Sigurður Gunnarsson og Stefanía Tinna Miljevic og Grétar Khan og Bára Sigfúsdóttir. Eldri hópurinn keppti í „stóru“ suður-amerísku dansa keppninni. íslenzku pörin 20 fóru öll í 2. um- ferð og 19 fóm í þá þriðju. Þá var enn skorið niður og 7 íslenzk pör komust í 4. umferð, í 24 para úr- slit, undanúrslit og í úrslit komust svo 3 íslenzk pör. Ég held að það sé mun meiri og betri árangur en nokkur hafði þorað að vona og er þetta án efa glæsileg- asta afrek íslenzkra dansara hingað til. Ekki var nú öllu lokið enn, því Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar þegar úrslit vom kynnt. Þau dönsuðu frábærlega í úrslitunum og það hafði greinilega skilað sér, þetta var toppurinn, það sem lengi hafði verið stefnt að. ís- lendingamir fögnuðu dátt og var stemmningin eins og á góðum hand-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.