Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 4
J
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996
FRÉTTIR
Forræðismál Sophíu Hansen og Halim A1 í Tyrklandi
U ndirr éttur úr-
skurðar á sum-
ardaginn fyrsta
ÍSLENSK sendinefnd sem tók þátt
í fundum Alþjóðaþingmannasam-
bandsins í Tyrklandi í síðustu viku
átti fund með Irfan Köksalan for-
manni Tyrklandsdeildar Alþjóða-
þingmannasambandsins um mál
Sophíu Hansen og dætra hennar.
Sophía er stödd í Istanbúl en undir-
réttur mun kveða upp úrskurð í
máli hennar og Halim A1 á sumar-
daginn fyrsta, 25. apríl nk. Sophía
veit ekki hvar dætur sínar eru nið-
urkomnar.
Margrét Frímannsdóttir, alþing-
ismaður og varaformaður íslands-
deildar Alþjóðaþingmannasam-
bandsins, segir að hver sem niður-
staða undirréttar verður mun úr-
skurðinum verða áfrýjað til Hæsta-
réttar og lokaniðurstaðan er þá
væntanleg á þessu ári.
„Við áttum fund með lögfræðingi
Sophíu, Hasip Kaplan, og sagði hann
að ekki yrði um frekari áfrýjanir að
ræða eftir að Hæstiréttur kveður
upp sinn úrskurð því öll þau gögn
sem beðið hefur verið um liggja nú
fyrir og um frekari gagnasöfnun
verður ekki að ræða. Kaplan er hins
vegar ákveðinn í því að falli dómur-
inn ekki Sophíu í hag haldi hann
áfram með málið fyrir mannréttinda-
dómstól. Hann sagði okkur jafn-
framt að um 600 konur annars stað-
ar S heiminum biðu niðurstöðu þessa
máls. Málið hefur vakið athygli fyrir
margra hluta sakir, ekki síst vegna
þess hve oft því hefur verið vlsað
milli dómstóla," sagði Margrét.
Geir H. Haarde, formaður ís-
landsdeiidar Aiþjóðaþingmanna-
sambandsins, segir að héma sé
dómsmál á ferðinni og mjög erfitt
eða ógerningur er fyrir tyrknesk
stjórnvöld að grípa inn í málið.
Sophía fær vernd lögreglu
Margrét sagði að gögn Kaplans
væru ótvíræð í þá átt að Halim A1
er íslenskur ríkisborgari og Sophía
hefur samkvæmt íslenskum lögum
forræði telpnanna sem var sú stað-
festing sem vantaði sem og staðfest-
ing á því að börn sem eru getin hér
á landi utan hjónabands verða skil-
getin er foreldrarnir ganga í hjóna-
band.
Margrét sagði að skilaboð Kapl-
ans hefðu verið þau að íslendingar
gætu fyrst og fremst tryggt öryggi
Sophíu við réttarhöldin og dvölina í
Tyrklandi. Staðfesting hefur fengist
á því að farið hafi verið fram á það
við tyrknesku lögregluna að Sophía
fengi vernd við réttarhöldin eins og
áður.
„Ég gerði mér ekki grein fyrir
því fyrr en þarna að þær hættur sem
Sophía er í eru engar ýkjur í hvert
sinn sem réttað er í þessu máli.
Lögfræðingur hennar sagði okkur
það að hann gengur með byssu
meðan réttarhöldin standa yfir. Sop-
hía hefur haft lífvörð sem er í raun
í sjálfboðavinnu því hún hefur ekki
ráð á því að greiða laun,“ sagði
Margrét.
Söfnunarreikningur Sophíu í Bún-
aðarbanka íslands í Kringluútibúi
er númer 9.000.
Morgunblaðið/Landhelgisgæslan
Vinnuskóli Reykjavíkur
T ekj uskerðing hja
16 ára unglingum
Siglingastofnun
Hermann
einn um-
sækjenda
SIGLINGASTOFNUN ríkisins
tekur formlega til starfa 1.
október næstkomandi. Um-
sóknarfrestur um starf for-
stjóra stofnunarinnar rann út
19. apríl síðastliðinn. og var
umsækjandi einn, Hermann
Guðjónsson vita- og hafnamála-
stjóri.
Með Siglingamálastofnun
renna Vita- og hafnamálastofn-
un og Siglingamálastofnun rík-
isins saman. Embættið heyrir
undir samgönguráðuneytið.
Siglingamálastofnun flyst
væntanlega suður í Vesturvör
í Kópavogi þar sem Vita- og
hafnamálastofnun er nú til
húsa.
Nýtt siglinga- og hafnaráð
mun fjalla umsókn um starf
forstjóra Siglingastofnunar en
ennþá á eftir að skipa í ráðið.
Samgönguráðherra mun síðan
veita embættið.
Fjögurra tíma
björgunarflug
BJÖRGUNARÞYRLA Landhelgis-
gæslunnar TF-LÍF sótti sl. laugar-
dag færeyskan sjómann í togar-
ann Akraberg frá Færeyjum. Mað-
urinn hafði slasast við vinnu um
borð og var m.a. fótbrotinn. Þegar
óhappið varð var skipið statt rétt
utan við 200 mílna mörkin á
Reykjaneshrygg.
Dalborgin fékk
í skrúfuna
DALBORGIN frá Dalvík fékk veiðar-
færi í skrúfuna í gærmorgun, en
skipið er að veiðum á Flæmska hatt-
inum við Kanada. Klara Sveinsdóttir
tók skipið í tog og er á leið með það
til Nýfundalands þar sem kafari mun
skera veiðarfærin úr skrúfunni. Búist
er við að skipin komi til hafnar á
morgun.
Um 25 íslensk skip eru við rækju-
veiðar á Flæmska hattinum og hefur
veiðin verið þokkaleg að sögn Snorra
Snorrasonar útgerðarmanns. Dal-
borgin hefur t.d. verið tvær vikur
að veiðum og hefur á þeim tíma feng-
ið 80 tonn.
HILMAR Guðlaugsson borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins segir að
16 ára ungiingar sem verða í Vinnu-
skóla Reykjavíkur í sumar verði
fyrir verulegri tekjuskerðingu.
Vinnustundir á dag verði sjö í stað
átta og vinnuvikumar sjö í stað
átta.
Hilmar sagði að nú væri í fyrsta
sinn gert ráð fyrir að 16 ára ungl-
ingar yrðu i Vinnuskóla borgarinn-
ar. „Þessir krakkar voru í Vinnu-
skólanum í fyrra og fengu þá á sig
verulega kauplækkun vegna breyt-
inga á vinnutímanum," sagði hann.
„Þetta árið verða þau áfram í
Vinnuskólanum og breytingin sem
gerð hefur verið er sú að vinnutí-
mátta stundum og ráðningartíminn
er sjö vikur í stað átta vikna. Þetta
gerir að kauplækkun hjá þeim verð-
ur veruleg."
Létt undir með fjölskyldum
Hilmar sagði að þegar Sjálfstæð-
isflokkurinn hafí verið við völd í
borginni hafi verið leitast við að
bjóða öllu skólafólki 16-25 ára
vinnu í minnst átta vikur án nokk-
urra skilmála. „En núna á ekki ein-
göngu að breyta vinnutilhögun 16
ára unglinga heldur einnig 17 og
18 ára,“ sagði hann. „Þetta er
grundvallarbreyting á vinnutilhög-
un unglinganna. Með því að skapa
unglingunum vinnu töldum við að
verið væri að létta undir með fjöl-
skyldum þeirra bæði félagslega og
fjárhagslega."
Hann benti á að í fyrra hafí 2.320
unglingar verið í vinnuskólanum og
nú bætast við um 1.000 16 ára
unglingar, þannig að búast mætti
við um 4.000 unglingum í Vinnu-
skólann í sumar.
MORGUNBLAÐIÐ
Forsvarsmenn
Stöðvar 3
Bíða svars
útvarps-
réttar-
nefndar
FORSVARSMENN Stöðvar 3
hafa ekki tekið ákvörðun um
hvort þeir vísa þeirri ákvörðun
útvarpsréttarnefndar að aftur-
kalla leyfi sjónvarpsstöðvar-
innar til endurvarps á tveimur
örbylgjurásum og færa leyfíð
til Sýnar hf. til Samkeppnis-
stofnunar, en haft var eftir
forstöðumanni samkeppnis-
sviðs stofnunarinnar í Morg-
unblaðinu siðastliðinn laugar-
dag að hugsanlega stangaðist
þessi ákvörðun á við sam-
kepjpnislög.
Úlfar Steindórsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar 3, sagði að
útvarpsréttarnefnd ætti að fá
tækifæri til að svara erindi
Stöðvar 3 þar sem ákvörðun
nefndarinnar var mótmælt, og
síðan yrði staðan metin í fram-
haldi af því. Hann sagði ekki
útilokað að málinu yrði vísað
til Samkeppnisstofnunar ef tal-
in væri þörf á því, en menn
tryðu hins vegra ekki að á það
þyrfti að reyna.
Kjartan Gunnarsson sagði
að ekki hefði verið tekin'
ákvörðun um hvenær næsti
fundur útvarpsréttamefndar
yrði haldin, en það yrði ein-
hverntíma á næstu vikum.
Stofnun Bíórásarinnar hf., sem
er að mestu í eigu sömu aðila
og Stöð 3, og umsókn þess
fyrirtækis um leyfi til endur-
varps sjónvarpsefnis á sex ör-
bylgjurásum myndi ekki flýta
fyrir því að fundur yrði hald-
inn.
„Það eru haldnir fundir eftir
þörfum og kannski reynt að
safna saman nokkram málum
þannig að menn séu ekki að
hittast út af einu og einu máli.
Þetta hefur sinn eðlilega far-
veg allt saman,“ sagði Kjartan.
Til meðvit-
undar eftir að
vera bjargað
frá drukknun
TUTTUGU og fimm ára kona
var hætt komin í sundlauginni
í Laugardal á sunnudag. Hún
var flutt mjög þungt haldin á
gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu var konan
komin til meðvitundar í gær-
morgun.
Laugargestur sá konuna
liggja lífvana á bakinu á botni
norðvesturenda laugarinnar,
en þar er laugin grann. Marg-
ir gestir voru í laugunum á
þessum tíma, svo lögreglan
telur mjög ólíklegt að konan
hafi legið lengi á botninum án
þess að nokkur yrði hennar
var. Lífgunartilraunir læknis
og hjúkrunarfræðings, sem
voru gestir í lauginni, báru
árangur og var konan flutt á
sjúkrahús. Hún lá mjög þungt
haidin á gjörgæslu, en sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar var hún á batavegi í
gær, komin til meðvitundar.
Ekki er vitað hvað olli því
að konan missti meðvitund og
lá við drukknun. Hugsanleg
skýring er að konan, sem er
flogaveik, hafí fengið floga-
kast í sundlauginni.