Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Fyrsta lambið og fé af fjalli
Islandsbanki
í rýmri
húsakynni
Húsavík - íslandsbanki opnaði útibú
á Húsavík fyrir skömmu í stækkuð-
um og endurbættum húsakynnum.
Þegar Landsbankinn seldi íslands-
banka Samvinnubankann flutti hann
starfsemi sína í hús Samvinnubank-
ans við Stóragarð. Að sögn Amar
Bjömssonar, útibússtjóra, hefur hús-
næðið verið stækkað og breytt í ný-
tískulegra form með sérstöku tilliti
til þróunar tölvutækninnar. Hann
sagði jafnframt að þróun viðskipta
undanfarin ár hefði krafist stærri,
bættari og betri húsnæðis. .
í tilefni þessara tímamóta afhenti
Öm Bjömsson, útibússtjóri, fyrir
hönd íslandsbanka, Björgunarsveit-
inni Garðar á Húsavík tvær talstöðv-
ar. Við gjöfinni tók Jón Kjartansson,
formaður sveitarinnar, sem minnti
Morgunblaðið/Silli
ÖRN Björnsson, útibússtjóri
íslandsbanka á Húsavík, af-
henti Jóni Kjartanssyni, for-
manni Björgunarsveitarinnar
Garðar á Húsavík, tvær tal-
stöðvar.
um leið á að þegar Íslandsbanki yfirt-
ók rekstur Samvinnubankans á sín-
um tíma hefði bankinn gefið deild-
inni tvær talstöðvar sem enn væm
í fullum notum.
Margir komu til að skoða hin nýju
húsakynni og þáðu veitingar.
Morgunblaðið/Ólafur Bemðdusson
Yngstu
börnunum
boðið í
brúðuleikhús
Skagaströnd - Yngstu krakkarnir
í grunnskóianum fengu góða
heimsókn einn skóladaginn fyrir
skömmu. Það var Hallveig
Thorlacius sem kom með „sögusv-
untuna" sína og sýndi krökkunum
brúðuleikhúsið Húfa Guðs.
Foreldrafélag leikskólans
Bamabóls og foreldrafélag
Höfðaskóla stóðu fyrir komu Hall-
veigar og mættu allir leikskóla-
krakkarnir í „stóra skólann" til
að horfa á leikritið. Ef til vill
væri nær að segja að krakkarnir
hafi upplifað leikritið fremur en
horft á það því svo mikinn þátt
tóku þau í sýningunni. Eftir dálit-
inn grát þjá einstaka leikhúsgesti
í byrjun sekmmtu allir sér hið
besta og áhuginn og innlifunin
skein úr hverju andliti.
Vistmenn færa
Dvalarheimilinu
Asi listaverk
Hveragerði - Hópur vistmanna á
Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði
afhenti nýlega Gísla Páli Pálssyni,
framkvæmdastjóra dvalarheimilis-
ins, vatnslitamynd sem hópurinn
hafði málað í sameiningu. Myndin
er máluð í tilefni af 50 ára afmæli
Hveragerðisbæjar og sýnir það sem
helst einkennir Hveragerðisbæ að
mati listamannanna.
Hópurinn hefur hist vikulega und-
anfarna tvo vetur og málað undir
handleiðslu Helenu Guttormsdóttur,
listakonu og starfsmanns Grænu
Smiðjunnar. Aðspurðir sögðust vist-
mennimir hafa notið þess ríkulega
að fá að taka þátt í þessu starfí.
Þetta hefði verið skemmtilegt og
lærdómsríkt.
Síðastliðinn vetur lauk starfi hóps-
ins með sýningu en í ár var ákveðið
að fara nýjar brautir og mála sameig-
inlega mynd. Hver einstaklingur í
hópnum málaði hluta myndarinnar
og er afrakstur þeirrar vinnu einstak-
lega skemmtileg vatnslitamynd sem
prýða mun húsakynni Dvalarheimilis-
ins Áss um ókomna framtíð.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
GÍSLI Páll Pálsson, framkvæmdastjóri
Dvalarheimilisins Áss, ásamt listamönnunum.
Vogum - Fyrsta ærin hjá Þorkeli
Kristmundssyni að Efri-Brunnastöð-
um á Vatnsleysuströnd bar einu
lambi fyrir nokkru. Á myndinni er
Daníel Sigvaldason ungur Vogabúi
að skoða lambið.
Níu kindur sem gengu úti í vetur
komu nýlega fram í Kúagerði. Sjö
kindanna voru af Vatnsleysuströnd
og tvö lömb úr Reykjanesbæ. Kind-
umar voru vel á sig komnar eftir
útiverana enda vetur ekki harður.
Kindanna var oft leitað í vetur en
ekkert sást til þerra fyrr en þær
komu fram í Kúagerði.
kr. 19.172
í júlí og ágúst
Heimsferðir bjóða nú beint flug til Parísar alla miðvikudaga í júlí og ágúst
í sumar. Flug, flug og bfll eða flug og hótel á frábaeru verði.
verð kr. 19.172
Hjón með 2 böm, 3. júlí, flug og skattar.
verð kr. 22.000
Fargjald fyrir fullorðinn með sköttum, 3. júlí.
verðkr. 35.800
Bókaðu meðan
enn er laust.
HEIMSFERÐIR
Vika í París. flug, gisting, skattar,
m.v. 2 í herbergi Edouard IV, 3. júlí.
^ MM® „
Austurstræti 17.2. hæð. Sími S62 4600.
Fagmennska borgar sig
íslendingar eiga öfluga stétt faglærðra iðnaðarmanna
sem leggja áherslu á gæði og vönduð vinnubrögð.
Innlend framleiðsla þarf að standast harða samkeppni
og það skiptir sköpum fyrir þjóðarhag að fjármunir, sem
varið er til verklegra framkvæmda, nýtist sem best.
Samiðn hvetur fólk til að skipta við menntaða
iðnaðarmenn og kanna fagleg réttindi þeirra sem
bjóða þjónustu sína. Fagmennska borgar sig.
Samiðn er samband stéttarfélaga í byggingar-
iðnaði, málmiðnaði, bíliðnaði, garðyrkju
og netagerð. í Samiðn er 31 félag um land
allt með um 5500félagsmenn.
-
iir
Samiðn
SAMBANDÍÐNFÉLAGA
Suðurlandsbraut 30. 108 Reykjavtk.
Sími 568 6055. Fax 5681026.
Heimasíða: http://www. rl. is/samidn. html