Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR HATIÐAR- MESSA TÓNLIST Digraneskirkja SÖNGTÓNLEIKAR Nemendur í söngdeild Nýja tónlistarskólans flutti Messe Solennelle, eftir Rossini. Sljómandi: Ragnar Bjömsson Sunnudagurinn 21. april, 1996. MIKIL gróska á sviði tónlist- armenntunar, frá stofnun Tón- listarskólans í Reykjavík 1930 til dagsins í dag, er yfir 50 tón- listarskólar um land allt veita ungu fólki góða undirstöðu- menntun í öllum greinum tón- listar, er merkileg saga og um margt hreint ótrúleg. I kringum 1930 mátti telja atvinnutónlist- armenn á fingrum annarrar handar en nú eru, eins og fyrr segir, starfandi yfir 50 tónlistar- skólar hér á landi, með vel menntuðu kennaraliði. Sífellt meiri kröfur eru gerðar til orgel- leikara við kirkjur landsins og fjöldi kóra er í raun sérstakt ævintýri en við þá starfa bæði raddþjálfarar og stjórnendur. Hljóðfæraleikarar eru orðnir fjölmenn starfsstétt, er fæst við alls konar tóngefandi störf. Töl- vísir menn hafa sagt að um 6.000 nemendur stundi tónlist- amám og er þá átt við byijend- úr jafnt sem lengra komna á tónlistarbrautinni. Vaxandi umfang tónlistar- námsins hefur leitt til þess, að stærri tónlistarskólarnir hafa náð því marki, er telja má jafn- gilda menntun framhaldsskól- anna og hafa íslenskir tónlistar- nemar getið sér gott orð við erlenda skóla, þar sem margra alda hefð er varðandi stöðu og kunnáttu atvinnutónlistar- manna. —- Á síðari árum hefur söng- nemum fjölgað og í æ ríkara mæli hafa tónlistarskólamir lagt áherslu á flutning óperu og söngverka. Nú er svo komið, að ekki verður hjá því komist að fjalla um tónleikahald skól- anna, því margir sem þar koma fram, hafa náð þeim árangri að sjálfgefið er að tónlistin verður þeirra lífsstarf. Á síðari árum hafa söngnemar haft sig æ meir í frammi og staðið fyrir flutningi stærri söngverka. Söngnemar í Nýja tónlistar- skólanum fluttu sl. sunnudag, Litlu hátíðarmessuna eftir Ross- ini, undir stjórn skólastjórans Ragnars Bjömssonar en við flutninginn aðstoðuðu tveir kennarar skólans, Krystyna Cortes og Jónas Sen, með leik sínum á orgel og píanó. Þetta er nokkuð viðamikið verk og verðugt viðfangsefni atvinnu- söngvara, svo að í stórt hefur verið ráðist, fyrir nemendur Nýja tónlistarskólans og er óhætt að fullyrða, að í heild hafí söngurinn og flutningurinn tekist með ágætum. Það gefur auga leið að nem- endur era mislangt komnir en sem heild skipuðu þeir kór, sem söng á köfium mjög vel. Ein- söngsþáttunum var skipt á milli nemenda. Tenóraríunni Domine Deus var skipt á milli þriggja tenórsöngvara, en það voru Þrá- inn Sigurðsson, Þorsteinn Lang- er og Óskar Sigurðsson, sem sungu aríuna til skiptis. Sama var gert við Quoniam þáttinn, sem er fyrir bassasóló. og Cras- ifixus, sem er fyrir sópransóló. Bassamir voru Þorvaldur Þor- valdsson, Garðar Friðjónsson og Valdimar Hilmarsson, en sópra- söngkonurnar vora Katla B. Rannversdóttir og Guðrún H. Stefánsdóttir. Tvísönginn í Qui tollis sungu Guðrún H. Stefáns- dóttir og Valgerður Ólafsdóttir, sem einnig söng einsöng í lo- kakafla verksins, Agnus Dei. Aðrir sem sungu einsöng vora Ósk Ingadóttir, Helena Fredriksen, Jónas Steinsson, Örn Amarson, Ásthildur Bern- harðsdóttir og Margrét Hall- dórsdóttir ef ekki hefur yfirsést um nafn, því nær allir kórfélag- ar sungu einsöng en aðrir í kómum vora Svava H. Frigeirs- dóttir, Lyndita Óttarsson, Helma Ýr Helgadóttir, Ingibjörg H. Guðmundsdóttir Anna Jóns- dóttir, Guðríður Agnarsdóttir og Ingólfur. Jóhannesson, er ásamt einsöngvurunum mynd- uðu ágætan kór. I heild vora þetta góðir nemendatónleikar og ljóst, að þama era á ferðinni góð efni í söngvara en eins og þeir eru þegar vitandi um, þá er lífið stutt en listin löng og leiðin upp „Parnassum" ströng og reynir í þeirri raun bæði á þolgæði og hæfileika þeirra er þangað vilja halda til samvista við listagyðjurnar. Jón Ásgeirsson GUÐMUNDUR og Saga í Bar Pari. 50. sýning á Bar Pari síðasta vetrardag SÍÐASTA vetrardag verður 50. sýning á leikritinu Bar Par eft- ir Jim Cartwright. Þessi sýning hefur gengið fyrir fullu húsi síðan í október á Leynibarnum í Borgarleikhúsinu, en þar situr fólk við borð og getur notið veitinga á meðan á sýningu stendur. Það eru Saga Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson sem leika öll hlutverkin, 14 að tölu. Leik- stjóri er Helga E. Jónsdóttir, leikmynd og búninga gerði Jón Þórisson, en lýsingu annaðist Lárus Björnsson. Fáar sýningar eru eftir og lýkur þeim í maí. Sýningin síðasta vetrardag hefst kl. 20.30. Nýjar bækur Rúnir djúpsins RÚNIR djúpsins heitir nýútgefin ljóðabók. Höfundur er Þórarinn Guðmundsson. Þetta er þriðja ljóðabók hans. Bækurnar Ljós og skuggar og Dagar komu út 1995. í kynningu segir: „Bókin skiptist í fjóra kafla. Sá fyrsti nefnist Lífrúnir. Þar er horft til margbrotinnar ís- lenskrar náttúru svo sem hrikabjarga við sæ og dal, blóma á engjum, hreiðurkörfu eða bjartra nátta og unnið er með hughrif- in sem við það vakna. Annar kafli heitir Þjóðmál. Þar er dag- legt líf í brennidepli og nokkurs efa gætir þar hvort mannleg sam- Þórarinn Guðmundsson skipti hafi alltaf réttsýni að leið- arljósi. Þriðji kaflinn er nefndur Reynsla. Þar er efni fjölbreytt og víða komið við heima og erlendis. Fjórði kaflinn ber nafnið Árstíðir. Þar eru myndir frá blíðri tíð og strangri og sýnd áhrif breytinganna á þá sem lifa, njóta og sakna.“ Höfundur gefur bókina út. Ljóðabókin er 72 bls. 43 Ijóð. Ljós- mynd á kápu tók Þór- arinn Guðmundsson. Filmuvinnu, prentun og band annaðisLOff- setstofan, Akureyri. Bókin kostar 1.100 kr. VINURÍ HUNDSLÍKI LEIKHST Bíóleikhúsið, S eIf os s i SAGA ÚR DÝRAGARÐINUM eftir Edward Albee. Leikstjóri: Svanur Gísli Þorkelsson Sviðs- og tæknimaður: Sigtryggur B. Kristins- son Leikendun Davíð Kristjánsson, Kristinn Pálmason Leikfélagi Selfoss, frumsýning, 19. april. ÍSLENDINGAR virðast ekki óttast Edward Albee þessa dag- ana. Verk eftir hann eru á svölun- um bæði í Reykjavík og á Sel- fossi. í þeim er að finna erfiðar rallur fyrir þá leikara sem eru óragir við að færast mikið í fang og vilja annaðhvort sýna snilli sína eða vaxa við raunina. Mig grunar að hið síðamefnda eigi við um Davíð Kristjánsson í hlutverki Jerrys hér. Davíð hefur sýnt það undanfarin ár að mikils má af honum vænta sem leikara og hann hefur verið óragur við að takast á við þung verkefni. Þó verður að segja að hér hefur hann ekki er- indi sem erfiði. Lítum stuttlega á söguna: Menntamaður situr á bekk í Miðgarði í New Yorkborg og ætlar að líta í bók. En Jerry, stráksláni sem er nýkominn úr dýragarðinum og hefur að eigin sögn framið þar eitthvert óhæfuverk, sest að hon- um svo friðurinn er úti. í meðför- um Davíðs verður Jerry, sem er kominn á ystu nöf í mannlegum samskiptum og jafnvel fram af henni, að ósköp venjulegum, örlít- ið ráðvilltum pilti með hendur í vösum og heimspekilegt viðhorf. Sá sem setið hefur á bekk í Miðgarði og verið ávarpaður á ögrandi hátt á von á hinu versta. Af Jerry í meðföram Davíðs stafar engin ógn, hann er jafnvel kump- ánlegur á stundum, jafnlyndur og allt að því æðralaus fram að hinstu stundu. Jerry gengur hinsvegar ekki mjúklega inn í nóttina. Hann spymir ærlega við fótum þegar stórborgarfirringin strípar hann af þeirri sáluhjálp sem felst í sam- neyti við annað fólk. Strípar hann jafnvel af vinfengi við hunda. Þá var framsögn Davíðs áfátt á stundum. Kristinn Pálmason leikur menntamanninn á bekknum og ferst það vel úr hendi ef frá er talið lokaatriðið en þar falla leikar- arnir báðir í þá gildra að ofleika og verða farsakenndir. Þess vegna missir örvæntingin, óttinn og reitarhelgunin í verkinu marks og verður í besta lagi að gremju- fyndni, í versta lagi skrípaleg. Þeir félagar kalla framtak sitt Bíóleikhúsið til styrktar þeirri til- lögu að leikstarfsemi á Selfossi fái inni í ókláraðum bíósal staðarins. Það er svo sannarlega verðugt markmið, ekki einungis fyrir þá, heldur fyrir alla þá mörgu félaga þeirra í Leikfélagi Selfoss sem á undanförnum árum hafa auðgað menningarlíf Sunnlendinga svo um munar. Guðbrandur Gíslason Málog menning fékk Fjöl- miðlabikar Á FUNDI Ferðamálaráðs sem haldinn var 19. apríl á Kirkjubæjarklaustri, afhenti Halldór Blöndal samgöngu- málaráðherra svokallaðan „Fjölmiðlabikar Ferðamála- ráðs“. Hann er veittur árlega fyrir umfjöllun um ferðamál í fjöl- miðlum og er þetta í 13. sinn því hann var fyrst afhentur árið 1982. Það var að þessu sinni Mál og menning sem bikarinn hlaut, m.a. fyrir stóraukna útgáfu á bókum fyrir innlenda og erlenda ferðamenn. Á árinu 1995 voru gefnir út 17 titlar af því tagi, sumar bækurnar gefnar út á þremur tungumálum. Þá má þess geta að í bóka- verslun Máls og menningar á Laugavegi 18 hefur verið komið til móts við óskir og þarfir er- lendra ferðalanga t.d. með því að hafa opið alla sjö daga vik- unnar til kl. 10 á kvöldin. Einnig hafa bókaverslanir Máls og menningar gefíð út bókaskrá „Books on Iceland" sem dreift er í miklu magni til bókaverslana, bókasafna og háskóla erlendis. Það kom því fram í máli ráð- herra að Mál og menning er verðugur bikarhafi fyrir árið 1995. Nýjar bækur • FÉLA GS VÍSINDASTOFNUN hefur nú í samvinnu við Háskóla- útgáfuna sent frá ser bókina/íug- arfar og hagvöxt- ur. Menning, þjóð- félag og framfar- irá Vesturlönd- um, eftir Stefán Ólafsson prófessor við Háskóla ís- lands. í kynningu segir: „I þessari bók er fjallað um hugarfar nútímamanna. Höfundur rekur þætti úr hugmyndasögu þjóðfélags- fræðanna frá miðöldum til nútímans og sýnir hvemig veraldleg lífsskoðun varð smám saman ríkjandi í menn- ingu Evrópumanna. Þá sýnir höf- undur hvernig breytt hugarfar tengdist þjóðfélagsbreytingum, einkum tilkomu kapítalisma, lýðræð- isskipulags og iðnvæðingar, sem skapaði vestrænum þjóðum sérstöðu og gerði þær að ríkustu og voldug- ustu þjóðum jarðarinnar. Markmið höfundar er að þróa kenningu er getur skýrt helstu þjóðfélagslegu forsendur efnahagsframfara. í seinni hluta bókarinnar fjallar höfundur um hugarfar og hagsæld meðal fimmtán aðildarríkja OECD- samtakanna. Spurt er hvort hag- sælli þjóðirnar hafi nú markvert öðruvísi hugarfar en þær þjóðir sem minni hagsældar njóta. Sérstaklega er fjallað um vinnumenningu, við- skipta-menningu, framfarahyggju og samfélagsmenningu. Þar er íjall- að jöfnum höndum um ísland og önnur nútímaþjóðfélög og veitir sú umfjöllunþví athyglisverða innsýn í hugarfar Islendinga og forsendur framfara hér á landi samanborið við önnur vestræn ríki.“ Stefán Ólafsson lauk MA-prófi í þjóðfélagsfræðum frá Edinborgar- háskóla og D.Phil. prófi frá Háskól- anum í Oxford (Nuffíeld College). Hann er prófessor við Háskóla ís- lands og hefur verið forstöðumaður Félagsvlsindastofnunar háskólans frá því hún var stofnsett, árið 1986. Bókin ersú nítjánda íritaröð Félagsvísindastofnunar. Hún er356 bls. aðlengd ogkostar kr. 3.990. Háskólaútgáfan annast dreifíngu hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.