Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ 4- _________________________FRÉTTIR__________________________ Utandagskrárumræða á Alþingi um loftárásir ísraelsmanna á Líbanon Stjómvöld hvött til að beita sér fyrir friði ALMENN fordæming kom fram á Alþir.gi í gær á loftárásir Israelsmanna á Líbanon, einkum þó árás þeirra á varðstöð Samein- uðu þjóðanna. Voru íslensk stjórnvöld hvött til að beita sér fyrir því að allt yrði gert til að stuðla að því að friðarferlið í Austurlönd- um nær færi ekki út um þúfur. Ágúst Einarsson þingmaður Þjóðvaka óskaði eftir umræðu utan dagskrár um ástandið í Austurlöndum nær og spurði m.a. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hvort hann myndi beita sér fyrir því á al- þjóðavettvangi að komið yrði á vopnahléi og skilyrðislausri framkvæmd friðarsamn- inga. Ágúst spurði einnig hvort ríkisstjórn- in hygðist endurmeta samskipti íslendinga við Israelsmenn vegna árásarinnar á búðir Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Samráð Norðurlanda Halldór sagði að samráð hefði verið um málið milli Norðurlandanna og í dag verður sérstakur samráðsfundur fulltrúa Norður- landanna hjá Sameinuðu þjóðunum út af þessu máli. Þá yrði málið örygglega rætt enn frekar á vettvangi Sþ. Höfuðatriðið væri að hvika ekki frá friðarferlinu, sem nyti enn víðtæks stuðn- ings þar og um allan heim. Öfgasamtökum mætti ekki líðast að vega að rótum þessar-- ar friðarviðleitni. Haildór sagði íslendingar hefðu ávallt reynt að styðja þær pólitísku aðgerðir sem miðuðu að því að koma á varanlegum friði í þessum heimshluta. Einnig hefðu íslend- ingar lagt sitt af mörkum til stuðnings efna- hagslegrar uppbyggingar á hernumdum svæðum Palestínumanna og nú hefði verið ákveðið að skipa sérstakan sendiherra með aðsetur á íslandi til að sinna þessum málum. Þá sagði Halldór að ekki stæði til að endur- meta samband íslands og ísraels. Slíkt væri engum til hagsbóta. íslensk stjórnvöld myndu nýta stjómmálasambandið við ísrael til að koma skoðunum sínum á framfæri, en íslenska ríkisstjómin hefur fordæmt loftárásina á varðstöð Sþ. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Ál- þýðubandalags sagði loftárásir ísraels- manna óveijandi enda væru fórnarlömb þeirra saklausir borgarar og flóttamenn í öðm ríki. „Ekkert getur réttlætt slíkar að- gerðir, ekki einu sinni barátta við hryðju- verkasamtök, og með því að taka upp slík- ar aðgerðir þá gera þeir sem þeim beita sig ekki hótinu skárri en hryðjuverkamenn- irnir era,“ sagði Steingrímur. Mega ekki breytast í hryðjuverkaríki Jón Baldvin Hannibalsson Alþýðuflokki sagði að það mætti aldrei gerast að ríki sem ógnað væri af hryðjuverkasamtökum brygð- ist við með því að breytast í hryðjuverka- ríki. Og það mætti aldrei gerast að hryðju- verkamönnum yrði að þeim vilja sínum að ögra til slíkra gagnráðstafana að friðarfer- illinn yrði sprengdur í loft upp. Spurningin væri sú hvort Ísraelsríki væri svo ógnað, að það réttlætti þessar gagnráðstafanir. Dapurlegast væri að þessir atburðir gerðust í kjölfar pólitískra mistaka innanlands, og það væri opinskátt rætt að til þessara gagnráðstafana hefði verið gripið af innanlandspólitískum ástæðum. Leita friðsamlegra leiða til að binda endi á ófriðinn Geir H. Haarde þingmaður Sjálfstæðis- flokks sagði að árás ísraelsmanna á varð- stöð SÞ hefði verið óafsakanleg. En það væra andstæðingar friðarferlisins sem stæðu á bak við hryðjuverk sem beindust að Israel og þá væri að finna bæði í röðum Palestínumanna og ísraelsmanna. Geir sagði að Islendingar ættu að beita kröftum sínum til að leitað yrði friðsamlegra leiða til að binda enda á ófrið sem þarna hefði skapast. Þórunn Sveinbjarnardóttir varaþingmað- ur Kvennalista sagði að ísraelsstjórn hefði nú loks tekist að ganga fram af nánasta bandamanni sínum, Bandaríkjastjórn, og helstu utanríkisráðherrar heims virtust ekki geta komið vitinu fyrir Israelsstjórn. Til sölu í Hafnarfirði Álfaskeið: Góð 2ja herberbja íbúð 58 fm á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Bílskúr. Verð 5,4 millj. Boðahlein - Hrafnista: 85 fm eodaraðhús með sól- skála. Þjónusta frá Hrafnistu. Tilboð óskast. Laufvangur: 3ja herbergja íb. á 2. hæð. Verð 6,4 millj. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. CEQ 11Cn CCO IQin LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdasuori UUb I luU'uUfc lu/u KRISTJAN KRISTJANSSON, lÓGGlUUR fASiEiGNASAii Til sýnis og sölu m.a. eigna: Neðri hæð - allt sér - lækkað verð í reisulegu þríbýlishúsi á vinsælum stað í Heimunum. Skipti möguleg á minni eign. Nánari uppl. veitir Lárus á skrifst. Hringið og pantið viðtal. Góð íbúð - gott lán - góð kjör 3ja herb. íb. á 1. hæð við Leirubakka. Sérþvottahús. Vestursvalir. Útsýni. Gott kjherb. fylgir með snyrtingu. Laus fljótl. Sólrík - gott lán - góð kjör 2ja herb. íb. á 1. hæð, tæpir 60 fm á vinsælum stað við Rofabæ. Sólverönd. Langtimalán kr. 3,0 millj. Tilboð óskast. Lítið timburhús - byggingarlóð Á vinsælum stað í gamla góða er lítið timburhús, hæð og geymslukj. Byggingarlóð. Nánari uppl. aðeins á skrifst. Á söluskrá óskast m.a.: Raðhús eða parhús á einni hæð um 120-130 fm, í borginni eða nágr. fyrir fjársterkan kaupanda sem flytur til landsins á næstunni. Rétt eign greidd við kaupsamn. 3ja herb. góð íb. óskast á 1. hæð við Álftamýri, Heima, Laugarnes eða nágr. Rétt eign verður greidd við kaupsamn. Auglýsingar eftir réttri eign gera fjórðu hverja sölu frá síðustu áramótum. • • • Gott raðhús óskast við Háaleitisbraut, í Fossvogi eða á Nesinu. Fjársterkur kaupandi. ALMENNA FASTEIGNASALAN L«D6AVE6118 S. 552 1151-552 1371 r 555-1500 Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 35 fm bílskúrs. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti mögul. á 3ja herb. íbúð. Reykjavík Baughús Glæsil. ca 90 fm 3ja herb. íb. í tvfbýli með góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj. húsbr. Verð 8,5 millj. Kóngsbakki Mjög góð 3ja herb. íb. ca 80 fm á 3. hæð. Áhv. ca 3,1 millj. Verð 6,5 millj. Hafnarfjörður Reykjavíkurvegur Góð 2ja herb, íb. í fjölb. á 3. hæð. Verð 4,6 millj. Sóleyjarhlíð Góð 3ja herb. ca 92 fm íb. Ath. tilb. u. trév. Laus strax. Verð 6.450 þús. Áhv. 2,9 millj. Miðvangur Gott raðhús ca 150 fm + 38 fm bilsk. Möguleiki á 4 svefnh. Skipti mögul. á minni eign. Álfaskeið Einb. á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Lítið áhv. Ath. skipti á lítilli íb. Höfum kaupanda að þjónustuíbúð á Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Höfum kaupanda að eldra einbýlishúsi í Hafnar- firði. Vantar eignir á skrá. FASTEIGNASALA, Strandgötu 25, Hfj., Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl. V m mmm Nú er tækifæri að taka ákvörðun til framtíðar! í þessu glæsilega húsi er enn til leigu 2. hæðin, samtals 576 fm. Húsið er með sérinngangi, möguleika á lyftu og skiptanlegt niður í smærri einingar. Aðilum sem áhuga hafa á að leigja umrætt húsnæði er bent á að hafa samband við ^ -^Byggingafélag Gylfa og Gunnars hf. v í síma 562-2991 og 893-4628. Morgunblaðið/Kristinn Málverk af Jóni Helgasyni í ALÞINGISHÚSINU hefur verið hengt upp málverk af Jóni Helgasyni fyrrverandi forseta sameinaðs Álþingis. Málverkið, sem Eiríkur Smith málaði, var afhjúpað formlega sl. föstudag að viðstöddum fyrrverandi deild- arforsetum Alþingis, núverandi þingforsetum, þingmönnum Framsóknarflokks og fleiri gest- um. Á myndinni sjást Jón og Guðrún Þorkelsdóttir kona hans ásamt Ólafi G. Einarssyni forseta Alþingis fyrir framan málverkið. Skráningu að ljúka hjá Vinnumiðlun skólafólks FRESTUR skólafólks 16 til 25 ára til að sækja um sumarstörf á veg- um Reykjavíkurborgar rennur út 30. apríl nk. Líkt og undanfarin ár, er á árinu 1996 rekin sérstök vinnumiðlun fyrir skólafólk á vegum Reykjavík- urborgar. Leitast verður við að finna úrlausn fyrir sem flesta, en búast má við að vinnutilboð verði miðuð við tiltekinn fjölda vinnu- vikna. Skráning fer fram að Engjateigi 11, á eyðublöðum sem þar fást og er umsóknarfrestur, eins og áður segir, til nk. mánaðamóta. Ekki Gail flísar -+4 4=: l'c \\[ m 1 5K: Stórhöfða 17, við Gullinhrú, sínii 567 4844 verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Þegar skóla er lokið og umsækjendur era tilbúnir til vinnu verða þeir að koma til Vinnum- iðlunar skólafólks og staðfesta umsóknir sínar, annars falla þær úr gildi. Þeir sem fyrstir ljúka skóla fá að jafnaði fyrstir störf og þannig koll af kolli, og mega umsækjendur reikna með að þurfa að bíða ein- hverja daga eða jafnvel vikur, áður en störfin heíjast. Miðað er við að bjóða öllum í sama aldursárgangi jafnmargar vinnuvikur. Ljóð mis- ritaðist í AKUREYRARBRÉFI Leifs Sveinssonar laugardaginn 20. apríl misritaðist tilvitnun í kvæði Davíðs Stefánssonar, Vagnar. „Það er annað að kveðja á Kotum, en komast í Bakkasel. 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.