Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Jón Þórðarson, formaður stjórnar Útgerðarfélags Akureyringa á aðalfundi félagsins í gær Skerðing aflaheimilda í þorski 4 milljarðar JÓN Þórðarson stjórnarformaður Utgerðarfélags Akureyringa sagði á aðalfundi félagsins í gær afkomu síðasta árs vera stjórn þess áhyggju- efni, en hins vegar horfði til betri vegar á þessu ári. Unnið hefði verið að langtímaáætlun um hvernig bæta á afkomuna og arðinn til lengri tíma litið. Hann sagði hlutafé félagsins hafa verið aukið með útboðum frá árinu 1990 og margir nýir eigendur komið að félaginu. Það fjármagn sem á þann hátt hefði komið inn í félagið hefði fyrst og fremst verið nýtt til að kaupa aflaheimildir. Með því móti hefði verið haldið í horfínu þrátt fyrir árlega skerðingu á lcvóta á tímabilinu. Byggðasafn eða lífvænleg atvinnugrein „Þetta hefur verið gert í þeirri trú að yfirlýsingar stjórnvalda um stöð- ugleika í efnahagsumhverfinu til lengri tíma ættu við um fiskveiði- stjórnunina. Því miður eru aðrar blikur á lofti. Skerðingin setn Út- gerðarfélag Akureyringa hefur orðið fyrir í aflaheimildum í þorski miðað við núverandi verðlag er um það bil 4 milljarðar króna, þ.e. verðmæti þeirra aflaheimilda í þorski sem fé- lagið átti við upphaf kvótakerfisins eða hefur keypt og nýtast ekki nú. Nú þegar hugsanlega verður aukn- ing aftur í veiðiheimildum á þorski, ræða stjórnmálamenn um að þessir fjármunir séu betur komnir hjá öðr- um. Þetta eru kaldar kveðjur til Útgerðarfélags Akureyringa og þeirra 600-700 starfsmanna sem eiga sína afkomu undir. starfsemi félagsins og þeirra sem fjárfest hafa í félaginu á undanförnum árum. Ef þessi stefna verður ofan á fer trú- lega um íslenskan sjávarútveg eins og hliðstæða atvinnugrein í Norður- Noregi þar sem starfsemin nú minnir meira á byggðasafn en lífvænlega atvinnugrein," sagði Jón. Stjórn ÚA hefur unnið að fram- tíðarstefnumótun fyrir félagið sem m.a. felst í að það sé stór og áreið- anlegur matvælaframleiðandi og í forystu fyrir matvælaframleiðendur sjávarafurða, að starfsmenn hafi þekkingu á kröfum og þörfum við- skiptavina sinna á hverjum tíma, að ástunduð sé vöru- og vinnsluþró- un, að arðsemi hlutabréfa verði ávallt betri en ríkisskuldabréfa og með því besta í matvælavinnslu og að starfsemi félagsins sé umhverfis- væn og stuðli að sjálfbærri þróun þeirra náttúruauðlinda sem félagið nýtir. Afkoma landvinnslunnar væri óviðunandi, hún væri ekki sam- keppnisfær við sjófrystingu um nýt- ingu hráefnis. Erlendir ráðgjafar gerðu úttekt á landfrystingunni á liðnu ári og lá niðurstaða fyrir í lok janúar en hún var á þá leið að hægt væri að gera landfrystinguna sam- keppnisfæra. Lykilatriðin væru betri nýting hráefnis og vinnuafls. „Við stöndum frammi fyrir því að hætta að reka frystihús og helja rekstur matvælaverksmiðju með þeirri hug- arfarsbreytingu sem það ber með sér fyrir alla aðila. Áætlanir um þessar breytingar hafa verið sam- þykktar og stefnt að nýrri bytjun í ágústmánuði.“ Sérstæðar umræður um ÚA „Umræða um Útgerðarfélag Ak- ureyringa í fjölmiðlum á liðnu ári hefur verið með afar sérstæðum hætti og ekki verið til hagsbóta fyr- ir félagið. Ýmsir sem tjáð hafa sig um rekstur félagsins á opinberum vettvangi hafa ekki leitað til stjórnar eða starfsmanna eftir upplýsingum. Enda virðist tilgangur umræðunar jafnvel vera að koma því inn hjá almenningi að félagið sé komið að fótum fram og þess bíði ekkert nema vesaldómur í framtíðinni nema til komi sérstakt undur eða krafta- verk,“ sagði Jón og benti á að ÚA væri meðal sterkustu félaga í land- inu í sinni atvinnugrein. ATVINNUMÁLANEFND AKUREYRAR STRANDGÖTU 29 AKUREYRI Ráðstefna um matvæla- iðnað í Eyjafirði Föstudaginn 3. maí 1996 á Hótel KEA, Akureyri. Dagskráin hefst kl. 9.30. STAÐA MATVÆLAIÐNAÐAR Neysluþróun og markaðurinn. Kristján Hjaltason, framkvæmdastjóri IFPG dótturfyrirtækis SH I Hamborg. Hvenær á landbúnaður samleið með iðnaði? Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands. Hindrar núverandi skipan landbúnaðarmála frekari sóknarfæri? Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Sólar hf. Virðisauki í fullvinnslu. Aðalsteinn Helgason, framkvæmdastjóri Strýtu hf. Hvar eru sóknarfærin? Ingjaldur Hannibalsson, dósent við Háskóla Islands. EYJAFJÖRÐUR SEM MATVÆLASVÆÐI fmynd Eyjafjarðar sem matvælaframleiðslusvæði. Sigurður G. Tómasson, fréttamaður. Verður matvælaiðnaður stóriðja Eyfirðinga? Tómas Ingi Olrich, alþingismaður. Skipulagsmál og stefnumörkun. Bjarni Kristinsson, framkvstj. Iðnþróunarf. Eyjarfjarðar hf. ERLEND FJÁRFESTING OG MARKAÐURINN Markaðssetning erlendis — hindranir og nýjar leiðir. Þorgeir Pálsson, yfirmaður sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs. Fjárfesting í matvælaiðnaði — liður í aðgengi að nýjum mörkuðum. Guðný Káradóttir, verkefnastjóri Fjárfestingaskrifst. íslands. Útflutningur á fullunnum sjávarafurðum. Ari Þorsteinsson, forstöðumaður sjávarútvegssviðs KEA. FRAMLEIÐSLUUMHVERFI — ÚRRÆÐI Hvernig tengist menntun atvinnulífinu? Jón Þórðarson, deildarstjóri sjávarútvegsdeildar HA. Þróunarsetur. Gunnar Már Kristjánsson, deildarstjóri vöruþróunardeildar íslenskra sjávarafurða. Reynsla Islendinga af Evrópusamstarfi á sviði matvælaþróunar. Emil B. Karlsson, upplýsingafulltrúi Iðntæknistofnunar. Umræður og fyrirspurnir verða á milli erinda. Ráðstefnustjórar verða: Gylfi Þór Magnússon framkvæmdastjóri markaðsdeildar SH og Guðmundur Stefánsson formaður atvinnumálanefndar Akureyrar, Forseti bæjarstjómar Akureyri, Sigfriður Þorsteinsdóttir, setur ráðstefnuna. Ráðstefnugjald er 3.500 kr. Hádegisverður og kaffi eru innifalin í ráðstefnugjaldi. Skráning fer fram á Atvinnumálaskrifstofu Akureyrar í síma 462 1701. Lokadagur skráningar er 27. apríl. Afkoma UA fyrstu þrjá mánuði ársins Jákvæð um 80 millj. króna AFKOMA Útgerðarfélags Akur- eyringa á fyrstu þremur mánuðum þessa árs er jákvæð um 80 milljón- ir króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi er um 41 milljón króna og um 39 milljónir eru söluhagnað- ur eigna og aðrir liðir. Þetta er nokkuð betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir að því er fram kom í máli Gunnars Ragnars sem lét af starfi framkvæmdastjóra ÚA eftir aðalfund í gær. Gunnar nefndi að aflaheimildir félagsins hefðu verið skertar um tæplega 52% frá árinu 1989. Þær voru rúmlega 20 þúsund tonn árið 1988 en voru komnar niður í tæp- lega 10 þúsund tonn á yfirstand- andi fiskveiðiári. Félagið hefði á tímabilinu keypt aflaheimildir sem nema rúmum 4 þúsund tonnum og grunnheimildir þess voru 1. september síðastliðinn tæp 14 þús- und tonn. „Þess vegna er eðlilegt að því sé kröftuglega mótmælt ef við eig- um ekki að fá þessa skerðingu STEFNT er að því að fyrsti við- ræðufundur fulltrúa Akureyrarbæj- ar, ÚA og Samherja um hugsanlega sameiningu þriggja dótturfyrir- tækja Samheija og ÚA og möguleg kaup Samheija á þriðjungshlut hlutabréfa bæjarins í Útgerðarfé- laginu verði haldinn í vikunni. Þorsteinn Már Baldvinsson fram- kvæmdastjóri Samheija sagði á aðalfundi ÚA að öll fyrirtækin fjög- Morgunblaðið/Kristján GUNNAR Ragnars flytur skýrslu sína á aðalfundi ÚA I gær, en hann lætur nú af störfum hjá félaginu. ur væru stöndug og vel rekin og hann gerði sér grein fyrir því að þeim Samheijamönnum yrðu ekki færð þau á silfurfati. Sameinuð myndu þau hins vegar mynda enn öflugra fyrirtæki. Þorsteinn Már vonaðist til að við- ræður aðila tækju stuttan tíma, ef á þeim yrði dráttur myndi það skaða alla aðila. Hann vænti þess að nið- urstaða lægi fyrir eftir einn mánuð. hreina til baka en nýlegir samning- ar sjávarútvegsráðuneytisins við smábátasjómenn gera það einmitt að verkum," sagði Gunnar. Hann sagði að breyting á útreikningum á þorskígildum á yfirstandandi fiskveiðiári hefði leitt til aukningar í ígildum við síðustu úthlutun en í raun verið um að ræða lækkun í tonnum talið. Þetta hafi leitt til lægri bóta frá jöfnunarsjóði. Tap af rekstri MHF í máli Gunnars um málefni þýska dótturfyrirtækisins MHF kom fram að rekstur þess hefur batnað eftir gagngera endurskipu- lagningu árið 1994 og á fyrstu mánuðum síðasta árs. Tap varð þó af reglulegri starfsemi félagsins upp á 3,9 milljónir þýskra marka en það er svipað og áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Efnahagsstaða fyr- irtækisins er enn traust en Gunnar sagði miklar sveiflur í aflabrögðum valda áhyggjum. ÚA á nú 53% í MHF eða 329 milljónir króna. Dagur bók- arinnar DAGUR bókarinnar verður haldinn hátíðlegur í Deiglunni á Akureyri í kvöld, þriðjudagskvöldið 23. apríl kl. 20.30. Rithöfundarnir Helga Ágústs- dóttir, Heiðdís Norðfjörð og Lárus Hinriksson lesa úr verkum sínum sem og Kristján Kristjánsson heim- spekingur og Jón Hjaltason sagn- fræðingur. Auk þess verður lesið úr bók Vigfúsar Björnssonar og úr verðlaunabókinni Sossu litlu skessu eftir Magneu frá Kleifum. Að dagskránni standa Amts- bókasafnið á Akureyri, Rithöfunda- samband íslands, Hagþenkir og Café Karólína. Hugsanleg sameining ÚA og dótturfyrirtækja Samheija Viðræður hefjast í vikunni Glerárgötu 28 - Akureyri Áskriftarsími 462 4966 xMl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.