Morgunblaðið - 23.04.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 35
ÞAU Brynjar Örn Þorleifsson og Sesselja Signrðardóttir unnu
til fernra verðlauna; 1. sæti í sambakeppni, 3. sæti í stóru latín-
keppninni, 1. sæti í jive-keppninni og 3. sæti í quickstep-keppninni.
DAVÍÐ Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir komust lengst
paranna í flokki 11 ára og yngri. Þau unnu cha, cha, cha-keppnina,
í 2. sæti í jive-keppninni og í 5. sæti í stóru latín-keppninni.
í cha, cha, cha- og rúmbu; keppninni í flokki 12-13 ára komust Snor-
ri Engilbertsson og Dóris Ósk Guðjónsdóttir í úrslit og enduðu í 7. sæti.
ÞETÍA eru pörin þrjú að lokinni verðlaunaafhendingu í stóru
latin-keppninni, svo sannarlega glæsilegt afreksfólk.
BENEDIKT Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir gerðu það gott,
þau urðu í 4. sæti í samba-keppninni, 5. sæti í stóru latín-keppn-
inni og 2. sæti í jive-keppninni.
boltaleik. í öðru sæti var par frá
Ástralíu og svo kom íslenzkt par í
3. sæti, en það voru Brynjar Örn
Þorleifsson og Sesselja Sigurðar-
dóttir, sem höfðu átt mjög góðan
dag og styrktust mjög er á leið
úrslitin, sem endaði á þvi að þau
unnu jive-ið. Þriðja íslenzka parið,
sem komst í úrslit, endaði í fimmta
sæti, en það voru Benedikt Einars-
son og Berglind Ingvarsdóttir, þau
dönsuðu mjög vel og verður enn
skemmtilegra að sjá til þeirra að
ári, því þau hafa rétt á að keppa
einu sinni enn í Blackpool.
Þetta er sterkasta keppni sem
haldin er fyrir unglinga í suður-
amerískum dönsum í heiminum, og
við íslendingar áttum þrjú pör í
úrslitum og það er ekki einungis
glæsilegasti árangur íslendinga í
dansi, nokkumtíma, heldur einn sá
glæsilegasti á sviði íþrótta um ára-
raðir.
íslendingar fóru glaðir í bragði
heim á leið, því jive-keppnin beið
daginn eftir, en þetta var síðasta
keppni Sigursteins og Elísabetar,
því samkvæmt brezkri hefð keppa
sigurvegarar í stóm keppninni ekki
í einsdanskeppninni, sem haldin er
daginn eftir.
Föstudagur
„Stóra“ keppnin í suður-amerísk-
um dönsum, fyrir yngri keppnishóp-
inn, fór fram á föstudeginum og
stóðu íslenzku pörin sig með mikl-
um ágætum. Um 110 pör voru
skráð til leiks og komust öll ís-
lenzku pörin áfram í 2. umferð,
þijú fóru í þá þriðju og tvö pör
komust í 24 para úrslit; Guðni Krist-
insson og Helga Dögg Helgadóttir
og Davíð Gill Jónsson og Halldóra
Sif Halldórsdóttir sem komust alla
leið í úrslit og enduðu í 5. sæti.
Bæði eru þessi pör mjög sterk og
gaman að horfa á þau dansa. Dav-
íð og Halldóru hefur farið sérlega
fram að undanförnu og eru að gera
sérstaklega góða hluti í suður-
amerísku dönsunum.
Eldri hópurinn keppti í jive og
voru 19 íslenzk pör skráð til leiks
og komust 16 pör í aðra umferð, í
þá þriðju fóru 12 pör og 3 fóru í
fjórðu umferð. Alla leið í úrslit fóru
2 islenzk pör. Brynjar Öm Þorleifs-
son og Sesselja Sigurðardóttir
endurtóku leikinn frá því daginn
áður og sigruðu í jive-inu, þau döns-
uðu mjög vel og unnu verðskuldað.
Eg veit að þau höfðu stefnt að því
að vinna jive-ið, því þau unnu líka
jive-keppnina í flokki 11 ára og
yngri fyrir nokkrum árum. Benedikt
Einarsson og Berglind Ingvarsdótt-
ir dönsuðu einnig mjög vel í úrslit-
unum og lentu í 2. sæti.
Laugardagur
Síðasti dagurinn var runninn upp
og flokkur 11 ára og yngri átti að
keppa í enskum valsi. í aðra um-
ferð komust 7 íslenzk pör og 4 pör
komust í 24 para úrlit. Það voru
Hilmir Jensson og Jóhanna Berta
Bemburg, Sigurður Gunnarsson og
Stefanía Tinna Miljevic, Guðni
Kristinsson og Helga Dögg Helga-
dóttir og Davíð Gill Jónsson og
Halldóra Sif Halldórsdóttir, en þau
síðastnefndu komust í undanúrslit.
Síðasta daginn var einnig keppt
í flokki 12-13 ára og að þessu sinni
var keppt í foxtrot og tangó. Sjö
íslenzk pör voru skráð til leiks og
komust þau öll áfram í 2. umferð.
í 24 para úrslit komust 3 pör; Haf-
steinn Jónasson og Laufey Karítas
Einarsdóttir, Gunnar Gunnarsson
og Ragnheiður Eiríksdóttir og
Skapti Þóroddsson og Ingveldur
Lárusdóttir, allt mjög glæsilegir og
efnilegir dansarar.
Elzti flokkurinn, 12-16 ára,
keppti í quickstep þennan síðasta
keppnisdag að þessu sinni. Þrettán
pör fóru í 2. umferð og 3 fóru í þá
þriðju og í 24 para úrslitin, en það
voru Eyþór Gunnarsson og Berglind
Petersen, Benedikt Einarsson og
Berglind Ingvarsdóttir og Brynjar
Öm Þorleifsson og Sesselja Sigurð-
ardóttir, en þau síðastnefndu fóru
í undanúrslit og alla leið í úrslitin,
þar sem þau fengu þriðju verðlaun,
sem er einn bezti árangur sem ís-
lenzkt par hefuc náð í standard-
dönsum í þessum aldursflokki.
Landakeppnirnar
Landakeppnirnar fóm fram á
þriðjudeginum og fimmtudeginum.
Eldri keppendurnir kepptu á þriðju-
deginum. Því miður var það ekki
sterkasta liðið sem hægt var að
skipa og er aldrei að vita hvaða
árangri íslenzka liðið hefði náð ef
okkar sterkasta lið hefði verið sett
fram. Dansaramir sem dönsuðu
stóðu sig samt mjög vel og eiga
hól skilið fyrir góðan dans. íslenzka
liðið endaði í 3. sæti af 7 liðum.
Það sama var upp á teningnum
með yngra liðið, það dansaði vel,
en það var ekki sterkasta liðið sem
hefði getað keppt fyrir okkar hönd.
Yngra liðið endaði í 4. sæti af 6
liðum.
Landakeppnirnar era ávallt mjög
skemmtilegar og spennandi, í þeim
er einungis einn dómari og gefur
hann einkunn og svo eru einkunnir
liðsins lagðar saman og það lið sem
hæst hefur stigin hefur sigrað.
Par á heimsmeistaramót
16 ára og eldri
Með í ferðinni til Blackpool var
par sem var á leið til Parísar að
taka þátt í heimsmeistaramóti 16
ára og eldri í standarddönsum. Það
vori’. þau Þorvaldur S. Gunnarsson
og Jóhanna Ella Jónsdóttir. Þau ku
hafa staðið sig mjög vel og dönsuðu
að 24 para úrslitunum, sem er mjög
góður árangur í svona sterkri
keppni.
Sunnudagurinn fór að mestu leyti
í afslöppun, reyndar fór ijöldinn
allur af fólki í Tívolí, sem er í Black-
pool, þar sem hæsti og hraðskreið-
asti rússíbani í heimi er staðsettur.
Það er ýmislegt fleira hægt að gera
í Blackpool, þar er fallegur golfvöll-
ur, ágætis dýragarður, góð strönd
(þegar veður leyfir) og margt fleira,
sem gerði þennan stað að einum
mesta sumardvalarstað Breta til
margra ára. Nú er aftur verið að
byggja upp þennan stað og endur-
bæta og sífellt fleiri era farnir að
heimsækja Blackpool á nýjan leik.
Það var svo hópur þreyttra en
umfram allt ánægðra Blackpool-
fara, sem hélt heim á leið seint á
sunnudagskvöldi, eftir að hafa unn-
ið stærstu sigra sem íslendingar
hafa unnið á sviði dansíþróttalistar-
innar. Það að vera með er þó alltaf
stærsti sigurinn, að komast áfram
er bónus!
Jóhann Gunnar Arnarson.