Morgunblaðið - 23.04.1996, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Bensínhækkanír til
Samkeppnisstofnunar
Verð á bensíni það sama hjá öllum olíufélögunum
NEYTENDASAMTÖKIN og Fé-
lag íslenskra bifreiðaeigenda hafa
farið fram á að Samkeppnisstofn-
un fjalli um verðhækkun olíufélag-
anna á bensíni.
í erindi sem Neytendasamtökin
hafa sent Samkeppnisstofnun seg-
ir: „Á skömmum tíma hafa orðið
tvær verðhækkanir á bensíni. Að
sögn olíufélaganna eru þessar
hækkanir vegna hækkana á
heimsmarkaðsverði. Athygli vekur
að verð á 95 og 98 oktana bensíni
er nákvæmlega það sama hjá öll-
um stóru olíufélögunum. Á sam-
ráðsfundi sem olíufélögin héldu
nýlega og Neytendasamtökin sátu
ásamt fleiri hagsmunaaðilum kom
fram að 92 oktana bensín yrði
tekið af markaði. Þessi breyting
hefði það í för með sér að í stað
dreifingar á þremur tegundum af
bensíni um land allt myndi aðeins
þurfa að dreifa tveimur tegundum.
Þetta hefði í för með sér ótvíræða
hagræðingu sem myndi skila sér
í lækkuðu verði til neytenda. í
stað verðlækkunar standa neyt-
endur hins vegar frammi fyrir ít-
rekuðum verðhækkunum.“
Hefur hagræðing skilað sér í
lækkuðu verði?
„Neytendasamtökin hafa stutt
fijálsa verðmyndun enda hafa
neytendur mestan ávinning af
slíkri skipan enda sé um virka
samkeppni að ræða. Sé um að
ræða fákeppni eða einokun eru
það fyrst og fremst seljendur sem
hagnast. Vegna þessa óska Neyt-
endasamtökin eftir því að kannað
verði eftirfarandi:
1. Eru þær tvær hækkanir sem
orðið hafa nýverið að fullu í sam-
ræmi við hækkanir á heimsmark-
aði?
2. Hefur sú hagræðing sem olíu-
félögin boðuðu þegar 92 oktana
bensín var tekið af markaði skilað
sér til neytenda?
3. Er ástæða til að álykta að
hér sé um fákeppnismarkað að
ræða og ef svo er hvað hyggjast
samkeppnisyfirvöld gera í þessu
máli?“
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir að félagið
vilji að kannað verði hvort þarna
sé um óeðlilegt samráð um verð-
myndun að ræða. Bensínverð olíu-
félaganna þriggja sé það sama
miðað við sama þjónustustig.
Umræða um verðbreyt-
ingar á villigötum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Skelj-
ungi:
„Skeljungur hf. telur þær full-
yrðingar á misskilningi byggðar
sem hafa verið hafðar eftir fulltrú-
um Neytendasamtakanna og Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda síð-
ustu daga, um að ekki hafi verið
forsenda til þeirrar verðhækkunar
á bensíni sem grípa þurfti til nú
um helgina. Þetta skýrist ef litið
er til þeirra hækkana sem orðið
hafa á alþjóðamörkuðum frá síð-
ustu áramótum.
Sem dæmi má nefna að frá því
í janúar síðastliðnum hefur meðal-
verð á 95 oktana bensíni á Rotter-
dammarkaði hækkað úr 169 doll-
urum tonnið í 220 dollara. Ef
fylgja hefði átt þessari hækkunar-
þörf hér innanlands hefði verðið
á hveijum lítra af 95 oktana bens-
íni átt að hækka um 6 krónur og
88 aura.
Vegna hagræðingar, sem meðal
annars fólst í því að hætt var
sölu á 92ja oktana bensíni, hefur
hins vegar verið hægt að halda
verðhækkunum hér á landi í lág-
marki. Frá byijun janúar til dags-
ins í dag hefur verðið á hveijum
lítra af 95 oktana bensíni frá
Skeljungi hf. hækkað um 3 krónur
og 50 aura, eða úr 69,90 í 73,40.
Það skal tekið fram að um 90
prósent af öllu bensíni sem nú er
selt hjá félaginu er 95 oktana
bensín.
Erlendar verðhækkanir vegna
mikillar eftirspurnar
Eins og áður hefur komið fram
má rekja ástæðu hinna erlendu
verðhækkana til mikillar eftir-
spumar eftir eldsneyti í Evrópu
og í Bandaríkjunum í kjölfar mik-
illa kulda sem þar hafa verið í
vetur.
Þá er því einnig vísað á bug
að Skeljungur hf. hafi haft samráð
við önnur innlend olíufélög þegar
bensínverðinu var breytt. Ef litið
er til þess hvenær verðbreyting-
amar komu til framkvæmda, má
sjá að þær hófust á fímmtudag
þegar Orkan ehf. hækkaði bensín-
verð. Á föstudag tilkynnti Olíufé-
lagið hf. um verðhækkun og Olíu-
verslun íslands hf. skömmu síðar.
Á laugardag var tilkynnt um sam-
svarandi hækkun hjá Skeljungi
og á sunnudag hækkaði verðið
öðm sinni á stöðvum Orkunnar.
Sú verðhækkun sem tilkynnt var
um hjá Skeljungi hf. hefur verið
að koma til framkvæmda á Shell-
stöðvunum frá því um hádegi á
laugardag og fram til dagsins í
dag.“
^ ■
A handrita-
hátíð
Menntamálaráðuneytið og Stofn-
un Árna Magnússonar á Islandi
að minntust þess með hátíðarsam-
komu í Háskólabíó á sunnudag,
að þá voru liðin 25 ár frá því að
Islendingar veittu viðtöku fyrstu
íslensku handritunum frá Dan-
mörku, Konungsbók Eddukvæða
og Flateyjarbók. Menntamálaráð-
herrar Islands og Danmerkur,
Björn Bjarnason og Ole Vig Jens-
en, fluttu ávörp og Gylfi Þ. Gísla-
son, fyrrverandi menntamálaráð-
herra, fjallaði um lausn handrita-
málsins. Jónas Kristjánsson, fyrr-
verandi forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar á íslandi, fjall-
aði um gildi handritanna fyrir
íslenska menningu og Stefán
Karlsson, núverandi forstöðu-
maður stofnunarinnar, um hlut-
verk stofnunarinnar. Leikin voru
dönsk og islensk þjóðlög. Þá var
opnuð sýning þessara tveggja
kjörgripa sem fyrst bárust og á
myndinni skoða menntamáiaráð-
herrarnir og forstöðumaður
stofnunar Arna Magnúsonarverð-
ur handritin. Sýningin verður
opin til 21. apríl kl. 16-18 ogsíð-
an daglega kl. 14-16 til 5. maí.
*
Olafur o g
Guðmundur
ekki í kjöri
ÓLAFUR Egilsson sendiherra og
Guðmundur Eiríksson þjóðréttar-
fræðingur ætla ekki að sækjast
eftir kjöri til forsetae/nbættis.
í yfirlýsingu, sem Ólafur Egils-
son sendi frá sér í gær, segir: „Ég
er afar þakklátur þeim sem hafa
talið æskilegt að ég yrði í fram-
boði við kjör forseta íslands í sum-
ar og met traust þeirra allra mik-
ils. Eftir vandlega íhugun er það
ætlan mín að verða ekki í kjöri.“
Guðmundur Eiríksson sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hefði fengið talsvert mikla hvatn-
ingu frá mörgum um að bjóða sig
fram, en að vandlega athuguðu
máli hefði hann ákveðið að verða
ekki í kjöri.
Hann sagði enga eina ástæðu
fyrir þessari ákvörðun. Þetta væri
niðurstaða sem hann hefði komist
að eftir að hafa skoðað málið frá
öllum hliðum. Guðmundur sagðist
vilja koma á framfæri þakklæti til
allra sem skorað hefðu á sig að
bjóða sig fram.
Heitt vatn um alla verslun
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Inntak fyrir heitt vatn bilaði í
leðurversluninni Höfuðleðrinu
við Hverfisgötu undir hádegi á
sunnudag og flæddi vatnið um
alla verslun. Slökkviliðið var
nokkra stund að komast fyrir
lekann, þar sem rjúfa þurfti vegg
til að komast að rörinu. Skemmd-
ir urðu nokkrar vegna vatnsins
og gufunnar af því. Vörur og
ýmis búnaður var borið út á stétt,
á meðan skrúfað var fyrir lekann
og þrifið inni í versluninni, þar
á meðal þessi gina sem hallaði
undir flatt í öllum látunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Beitu-
kóngur
gýtur
BEITUKÓNGUR gaut egg-
búi í sædýrakeri við Reykja-
víkurhöfn í fyrrinótt. Margir
kannast við tóm eggbú beitu-
kóngsins sem oft sjást í fjör-
um. Sjaldgæfara er að sjá
eggbú fullt af eggjum. í egg-
búinu eru mörg egg en aðeins
eitt þeirra virðist fijóvgast.
Nýi einstaklingurinn sem
þannig myndast notar hin
eggin í búinu til fæðu, að
sögn Einars Egilssonar um-
sjónarmanns sædýrakeranna
við höfnina.
Sjó er dælt í kerin úr höfn-
inni og er sístreymi í þeim.
Skipt er um dýr í kerunum
reglulega, dýrunum sleppt og
önnur veidd í staðinn. I vetur
hafa dýr verið í langtímavist-
un í einu kerinu. Þeim hefur
verið gefið að éta og var
hrygningin í því keri.
VaJdð mikla athygli
Einar Egilsson hefur veitt
sjávardýr í gildrur í höfninni
og á Kollafírði, beitukóng,
bogkrabba, kuðungakrabba
og tijónukrabba, krossfíska,
ígulker, sæbjúgu og slöngu-
stjörnur. Eins hafa komið
marhnútar, koli og sprett-
fískar í gildrurnar. Að sögn
Einars hafa kerin vakið mikla
athygli og margir gera sér
ferð til að skoða sjávarlífið í
nærmynd.