Morgunblaðið - 23.04.1996, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Skagstrendingur hf. áætlar að
hagnaður verði 45 milljónir í ár
Hlutafé aukið
um 50 milljónir
AÐALFUNDUR Skagstrendings
hf. á Skagaströnd á föstudag sam-
þykkti að heimila stjórn félagsins
að auka hlutafé félagsins um allt
að 50 milljónir króna að nafnvirði.
Þá var jafnframt samþykkt að auka
hlutafé um 20% með útgáfu jöfnun-
arhlutabréfa og greiða 5% arð.
Reiknað er með að heimildin til
hlutafjáraukningar verði nýtt fljót-
lega og jafnvel verði ráðist í útboð
á næstu vikum. Miðað við núver-
andi markaðsgengi félagsins á
Verðbréfaþingi gæti söluandvirði
bréfanna numið um eða yfir 200
milijónum. Þessu íjármagni verður
einkum varið til að fjármagna kaup
á Hólanesi hf. og endurbætur á
rækjuverksmiðjunni, en einnig
breytingar á skipum félagsins.
Hagnaður félagsins nam á árinu
alls um 71 milljón eftir að tekið
hafði verið tillit til söluhagnaðar
af skipum að fjárhæð 24 milljónir
og niðurfærslu á hlutafé og kröfum
að fjárhæð 9 milljónir. Félagið naut
ennfremur óvenju hagstæðrar þró-
unar ljármagnsgjalda vegna 17
milljóna gengishagnaðar af upp-
greiddum lánum og hagnaðar af
framvirkum gjaldmiðlasamningum
að fjárhæð 22 milljónir.
Félagið seldi frystitogarann Arn-
ar HU-1 á sl. ári og keypti í stað-
inn frystitogara frá Rússlandi sem
smíðaður var í Noregi 1986. Auk
þess seldi félagið Arnar gamla til
Samheija í september 1995 en
keypti í-staðinn rækjufrystitogara
frá Grænlandi sem smíðaður var í
Noregi árið 1977.
Þá keypti félagið meirihlutann í
rækjuvinnslunni Hólanesi og er
stefnt að því að sameina félögin á
þessu ári. Reiknað er með því að
gera töluverðar endurbætur á verk-
smiðjunni og er stefnt að því að
þeim ljúki í ágúst á þessu ári. „Við
höfum sett okkur það markmið að
koma vinnslunni í fremstu röð,“
sagði Óskar Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri í ræðu sinni.
Hann skýrði ennfremur frá því
að verið væri að kanna möguleika
á vinnslu fiskafurða í landi. Lögð
er áhersla á að skoða möguleika á
sérhæfðri vinnslu með 10-20 starfs-
mönnum. Ákvörðun um hvor frysti-
hús Hólaness verði úrelt verður
ekki tekin fyrr en niðurstaða liggur
fyrir um framtíðaráform fiskvinnslu
í landi.
Óskar lýstþ þeirri skoðun sinni
að það að Útgerðarfélag Akur-
eyringa hefði eignast 20% í félaginu
byði upp á tækifæri til að koma_ á
samstarfi milli fyrirtækjanna. „Ég
tel að félögin eigi að hefja viðræður
um slíkt samstarf sem yrði báðum
aðilum til hagsbóta,“ sagði hann.
Áætlanir félagsins gera ráð fyr-
ir 45 milljóna hagnaði á þessu ári
og 148 milljóna hagnaði á árinu
1997. Öll skipin verða ekki komin
í gagnið fyrr en um mitt þetta ár
og uppbygging rækjuvinnslunnar
tekur sinn toll af afkomunni.
Reiknað e.r með að velta félaganna
verði um 1.450 milljónir á þessu
ári og um 1.700 milljónir á árinu
1997. Eiginfjárhlutfall fari í 30%
í lok þessa árs og í um 38% í lok
ársins 1997.
Fulltrúi Eimskips í stjórn
Tveir nýir menn voru kjörnir í
stjóm Skagstrendings, þeir Björg-
ólfur Jóhannsson, fjármálastjóri
ÚA og Þórður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Eimskip. Koma
þeir í stað Gylfa Sigurðssonar og
Róberts Guðfinnssonar. í stjórnina
voru endurkjörnir þeir Lárus Ægir
Guðmundsson, sem nú tekur við
stjórnarformennsku, Adolf H.
Berndsen og Magnús B. Jónsson.
VÖRUSKIPTIN JT MH \ S ,s 1 ‘ ^ . 1996 breyting á jan.-feb. föstu gengi*
VIÐ UTLOND Verðmæti vöruút- og innflutninj jan.- feb. 1995 og 1996 1995 (fob virði í milljónum króna) jan.-feb.
Útflutningur alls (fob) 17.310,9 19.182,4 10,6
Sjávarafurðir 11.119,0 14.925,7 34,0
Ál 1.952,6 2.128,3 8,8
Kísiljárn 341,5 306,8 -10,3
Skip og flugvélar 2.124,1 126,2
Artnað 1.773,7 1.695,4 -4,6
Innflutningur alls (fob) 13.927,9 16.644,1 19,3
Sérstakar fjárfestingarvörur 252,0 86,1
Skip 236,4
Flugvélar 75,4
Landsvirkjun 15,6 10,7
77/ stóriðju 1.071,9 1.336,6 24,4
íslenska álfélagið 953,0 1.177,0 23,3
íslenska járnblendifélagið 118,9 159,6 34,0
Almennur innfiutningur 12.604,0 15.221,4 20,5
Olía 965,3 1.263,6 30,6
Matvörur og drykkjarvörur 1.374,4 1.762,6 28,0
Fólksbílar 480,5 867,4
Aðrar neysluvörur 2.705,7 3.296,5 21,6
Annað 7.078,1 8.031,3 13,2
Vöruskiptajöfnuður 3.383,0 2.538,3
Án viðskipta íslenska álfélagsins 2.383,4 1,587,0
Án viðskipta íslenska álfélagsins,
íslenska járnblendifélagsins
og sérstakrar fjárfestingarvöru 288,7 1.399,7
• Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða var meðah/erð erlends gjaldeyris 0,2%
lægra í janúar-febrúar 1996 en á sama tima árið áður. Heimild: HAGSTOFA ISIANDS
Vöruskiptajöfnuður hag-
stæður um 2,5 milljarða
VORUSKIPTAJOFNUÐUR við út-
lönd var hagstæður um rúma 2,5
milljarða fyrstu tvo mánuði þessa
árs, samkvæmt samantekt Hagstof-
unnar. Þetta er nokkuð lakari vöru-
skiptajöfnuður en var á sama tíma
í fyrra, er vöruskiptajöfnuður var
hagstæður um 3,4 milljarða. Þá var
hins vegar sala á einni þotu Flug-
leiða meðtalin og ef ekki er tekið
tillit til hennar batnar vöruskinta-
jöfnuður talsvert á milli ára.
Verðmæti útfluttra sjávarafurða
jókst um 34% fyrstu tvo mánuði árs-
ins, miðað við sama tíma í fyrra.
Verðmæti útflutts kísiljárns dróst
hins vegar saman um 10%. Töluverð
aukning í innflutningi vegna stóriðju
kemur ekki á óvart, en almennur
innflutningur jókst einnig verulega.
Alls jókst útflutningur um 11% að
verðmæti en innflutningur um 19%.
Viö skiptum við
SPARISJÓÐ VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18,105 Reykjavík
sími 552 5252
Síðumúla 1,105 Reykjavík
sími 588 5353
Rofabæ 39,110 Reykjavík
sími 567 7788
Frd vélvsðin tu...
Þegar vélvæðing fiskibáta hélt innreið sína á Islandi varð starfsstéttin
vélstjóri til sem í upphafi tengdist aðeins vélrænum búnaði bátanna.
Nú er öldin önnur, bátarnir hafa breyst í tæknivædd hafskip með
margþættum búnaði. Störf vélstjóranna hafa jafnframt orðið flóknari
og fjölbreyttari, menntun þeirra margfaldast og hluti þeirra ber nú
starfsheitið vélfræðingur.
il véllrœðings
Starfssvið vélfræðinga vex stöðugt með aukinni
vélvæðingu þjóðfélagsins. Vélfræðingar eru hámenntaðir
með sérþekkingu á öllu því sem varðar háþróaðar vélar
og tölvuvæddan tæknirekstur nútífnáns
Atvinnurehendur!
Jöfur hf.
Tillaga um
60 milljóna
hlutafjár-
aukningu
TILLAGA verður lögð fyrir aðal-
fund bílaumboðsins Jöfurs hf. á
morgun, miðvikudag, um að
heimila stjóm félagsins að auka
hlutafé um 60 milljónir króna.
Um leið er lagt til að núverandi
hlutafé verði fært niður, en ekki
lá fyrir endanlega í gær að hve
miklu marki.
Jöfur hefur átt nokkuð á bratt-
an að sækja á undanfömum árum
eins og mörg önnur bílaumboð
en rofað hefur til undanfarið
vegna aukinnar bílasölu. Fyrir-
tækið hefur umboð fyrir Skoda,
Peugeot, Jeep og Chrysler-bíla.
Hlutafé er nú 80 milljónir en
þar af á Aflgjafi hf. um helming.
Aflgjafi er í eigu Vátryggingafé-
lags íslands hf., Eignarhaldsfé-
lags Alþýðubankans og nokkurra
einstaklinga.
Betri afkoma hjá bæj-
arsjóði Hornafjarðar
99 milljóna
kr. rekstrar-
afgangur
FJÁRHAGSSTAÐA Homafjarð-
ar batnaði um 70 millj. á sl. ári,
eða um 50%. Rekstrarafgangur
varð 99 milljónir og jókst um 30
milljónir frá fyrra ári, skv. frétt.
Rekstraráætlun stóðst í öllum
megindráttum og var afkoman
heldur betri en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Þannig fóru tekjur tæp-
um Í0 millj. fram úr áætlun og
námu rúmum 250 millj.. Útgjöld
vegna reksturs málaflokka voru
hins vegar minni en áætlað var,
og námu þau 181 milljón.
Þá lækkaði greiðslubyrði lána
úr tæpum 50 milljónum króna í
37,9 milljónir.
Flugleiðir byggja upp
markaði í SA-Asíu
Nánari upplýsingar veitir:
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bæði bókiega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
t /
Islands
Borgartúni 18,105 Reykjavík
Sími: 562-9062
FLUGLEIÐIR hafa gengið frá sam-
starfssamningi við TMTC group í
Singapore. Samningur þessi felur í
sér að TMTC group mun hafa sölu-
umboð Flugleiða með höndum jafn-
framt því sem fyrirtækið mun sjá
um uppbyggingu markaðs- og
kynningarmála fyrir félagið og ís-
land í Singapore. Fyrirtækið mun
einnig sjá um öll fjölmiðlatengsl í
landinu.
Að sögn Símons Pálssonar, for-
stöðumanns markaðsdeildar Flug-
leiða, er þessi samningur liður í
framtíðar uppbyggingu Flugleiða í
álfunni. Hann segir að búast megi
við sams konar samningum við
umboðsaðila í Kuala Lumpur og
Beijing innan skamms og þá sé
einnig unnið að samningum í Kóreu.
Símon segir að þessi markaður
fari mjög vaxandi. Á undanförnum
5 árum hafi ferðamönnum frá Asíu
til íslands og Norðurlandanna
fjölgað um tæp 170%, en aukning-
in hafi verið um 30% árlega. Á
síðasta ári hafi t.a.m. um 4.000
farþegar komið hingað til lands í
gegnum skrifstofu félagsins í
Tokíó.
Þá skipti það ekki síður miklu
máli að stór hluti þeirra komi hing-
að yfir vetrarmánuðina. Til dæmis
hafi gengið mjög vel að markaðs-
setja svokallaðar norðurljósaferðir.
Á síðasta ári hafi yfir 300 ferða-
menn komið frá Japan í þessar
ferðir, og næsta vetur stefni allt í
að fjöldi þeirra verði 5-600.
Telur Símon því nauðsynlegt að
styrkja og fjölga umboðsskrifstof-
um í álfunni, auka markaðshlut-
deild og stuðla að aukinni kynningu
á starfsemi Flugleiða og ferðaþjón-
ustu á íslandi. Auk skrifstofunnar
í Tókíó og Singapore hafa Flugleið-
ir gengið frá samskonar samning-
um við aðila í Hong Kong og Tapei.
Önnur kynslóð Oracle hönnunar- og þróunarverkfæra
Gartner Group, ADM. Research Note C-ORA-1143, 1995:
„Við teljum að Oracle haldi forystu sinni á
sviði þróunarverkfæra á komandi árum..."
ORACLE'
Bnabling the Information Age™
Ef þú vilt vita meira um Designer/2000, Developer/2000 og Discoverer/2000
eða fá tækifæri til að prófa hugbúnaðinn án endurgjalds í takmarkaðan tíma,
hringdu þá strax í síma 561-8131 og pantaðu ókeypis geisladisk til reynslu.
Designer/2000, Developer/2000 og Discoverer/2000 eru að fullu samþætt Oracle7,
sem er útbreiddasti gagnagrunnsmiðlari heims með 44% markaðshlutdeild. Nú
bjóðum við þessi þtjú verkfæri saman með 40% afslætti.
Borgarfóní 24, 105 Reykjavík
Slmi 561 8131
Bréfslmi 562 8 1 31
N e t f a n g teymi@oracle.is