Morgunblaðið - 23.04.1996, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 17
VIÐSKIPTI
Aðalfundur Bílgreinasambandsins
Stjórnvöld lækki
gjöld á bílum
AÐALFUNDUR Bílgreinasam-
bandsins á laugardag samþykkti
að skora á stjórnvöld að lækka gjöld
sem lögð eru á bíla og bílgreinina
en innheimta þau gjöld, sem lögð
eru á, með líkum hætti allsstaðar
á landinu og gagnvart öllum.
í ályktun fundarins er bent á að
þrátt fyrir nauðsyn bílsins hafi
stjórnvöld lagt gífurlega há gjöld á
bílakaup og bílanotkun þannig að
í dag sé kostnaður heimilanna í
landinu vegna bílsins orðinn stærsti
kostnaðarliður þeirra. Bílgreina-
sambandið skorar á stjórnvöld að
marka nú þegar stefnu til lækkunar
gjalda á bíla og bílgreinina með það
að markmiði að bílar geti áfram
verið í almenningseign á íslandi.
Þá lýsti fundurinn því yfir að
mikið vanti á að starfsskilyrði þeirra
aðila sem vinni við bílgreinina séu
jöfn. Eftirlit sé mismunandi eftir
landshlutum og innheimt séu gjöld
fyrir eftirlit sem aldrei fari fram. I
skjóli þessa ójafnvægis blómstri
svört atvinnustarfsemi sem sett
hafi mark sitt á greinina. Gefin séu
út starfsleyfi til fyrirtækja án þess
að fyrir liggi starfferéttindi og án
þess að fyrirtækin fullnægi kröfum
til starfa í viðkomandi starfsgrein.
í stjórn Bílgreinasambandsins
voru kjörin þau Hallgrímur Gunn-
arsson, formaður, Bogi Pálsson,
Gísli Olafsson, Geir Gunnarsson,
Úlfar Hinriksson, Bjarki Harðar-
son, Snjólfur Fanndal, Birgir Þ.
Þórðarson, Erna Gísladóttir og Sig-
ríður Sigurbergsdóttir.
Aðalfundir Kaupfélags Dýrfírðinga og Fáfnis hf.
ísaflrði. Morgunblaðið.
Samdráttur hjá
kaupfélaginu
AÐALFUNDIR Kaupfélags Dýrfirð-
inga og dótturfyrirtækis þess, Fáfnis
hf. á Þingeyri, voru haldnir 9. apríl
sl. Á aðalfundi Kaupfélags Dýrfirð-
inga kom fram að hagnaður hafði
orðið af rekstri félagsins sem nemur
rúmum 5 milljónum króna og þar
af var hagnaður af reglulegri starf-
semi um 1,5 milljónir. Heildartekjur
fyrirtækisins voru 106,4 milljónir,
sem er nokkur samdráttur frá fyrra
ári.
Rekstur sérvörudeildar fyrirtækis-
ins var dreginn saman á árinu með
takmarkaðri afgreiðslutíma og mun
minna vöruúrvali og nam söluminnk-
unin á þeirri deild einni um 26%. Tap
kaupfélagsins á árinu 1994 var 131,2
milljónir króna og þar af 130,6 millj-
ónir vegna afskrifta hlutafjár og við-
skiptakrafna hjá dótturfyrirtækinu
Fáfni hf.
Fyrir utan 60% eignaraðild Kaup-
félags Dýrfirðinga í Fáfni hf. er kaup-
félagið nær helmings hluthafí í Slát-
urfélaginu Barða hf. Bæði þessi féiög
hafa átt í fjárhagslegum erfiðleikum
og skiptir miklu fyrir framtíð kaupfé-
lagsins að vel takist til í rekstri þeirra
og efnahag í framtíðinni. s
Tap af reglulegri
starfsemi 84,3 miiljónir
Á aðalfundi Fáfnis hf. var fjallað
um afbrigðilegt rekstursár eftir
nauðasamninga félagsins, en þeir
byggðust á þvj að selja frystitogar-
ann Sléttanes ÍS í byijun apríl 1995.
Óreglulegar tekjur Fáfnis vegna sölu
togarans og niðurfellingar skulda
urðu um 498 milljónir króna. Tap
af reglulegri starfsemi var um 84,3
milljónir og því var hagnaður ársins
til ráðstöfunar um 413,4 milljónir
króna. Árið 1994 var tap af reglu-
legri starfsemi 120,2 milljónir og
heildartap 100,5 milijónir króna.
Tap af reglulegri starfsemi á árinu
1995 fór lækkandi enda átti það
verulegar rætur í taprekstri Slétta-
ness fyrstu mánuði ársins og rekstr-
arstöðvun í frystihúsi Fáfnis vegna
hráefnisskorts. Engu að síður er tap-
rekstur í bolfiskvinnslu mikið
áhyggjuefni og leita forsvarsmenn
fyrirtækisins leiða til að vinna félag-
ið úr þeirri stöðu. Fyrstu þijá mán-
uði þessa árs hefur framleiðsla Fáfn-
is í frystingu og söltun nær þrefald-
ast miðað við sömu mánuði ársins
1994.
Áhersla lögð á aukið hlutafé
Við núverandi aðstæður í rekstri
Fáfnis er ekki reiknað með tap-
rekstri í ár. Lögð hefur verið áhersla
á að fá aukið hlutafé inn í féiagið
auk þess sem vilji er hjá stjórnendum
fyrirtækisins fyrir þátttöku í viðræð-
um á Vestfjörðum um öflugt fisk-
vinnslu- og útgerðarfyrirtæki eða
skoðun á hverri þeirri samvinnu sem
gæti orðið til ávinnings fyrir atvinnu-
lífið og þar með grundvöll fyrirtækj-
anna.
Þær breytingar urðu á stjórn
Kaupfélags Dýrfirðinga að Guð-
mundur Friðgeir Magnússon gaf ekki
kost á sér til endurkjörs og var Sæv-
ar Gunnarsson kosinn í hans stað.
Áður hafði Ólafur Kr. Skúiason færst
upp í aðalstjórn í stað Kristins Jónas-
sonar. Á aðalfundi Fáfnis varð sú
breyting á stjórn að Ólafur Stein-
þórsson var kjörinn aðalmaður í stað
Kristins Jónassonar. Stjórnarfor-
maður Fáfnis hf. og Kaupféiags
Dýrfirðinga er Guðmundur Ingvars-
son en framkvæmdastjóri og kaupfé-
lagsstjóri er Sigurður Kristjánsson.
----------» » »---
Hagnaður
Peugeot
minnkar
París. Reuter.
HAGNAÐUR PSA Peugeot Citroen
minnkaði um 45% í 1.7 milljarða
franka (332 milljónir dollara) í fyrra
vegna gengiserfiðleika og sölutregðu
að sögn fyrirtækisins.
Sala fyrirtækisins minnkaði um
1,2% í 164.25 miiljarða franka og
skuidir þess jukust um tæplega 30%.
Bíliðnaður Frakka hefur átt í
harðri samkeppni við Fiat og fleiri
framleiðendur vegna styrkleika
frankans gegn öðrum gjaldmiðlum.
Bílasala í Frakklandi minnkaði um
2,1% í fyrra á sama tíma og bílasala
í ESB-löndum jókst um 0,6%.
Keppinautur Peugeot, Renault SA,
hefur skýrt frá því að hagnaður þess
fyrirtækis, sem ríkið ræður yfír, hafi
minnkað um 41% 1995 og að bíla-
deild þess hafí verið rekin með 1.7
milljarða franka tapi.
fyttenb°toUr,ú
í tilefni dagsins verður meistaraverk Davids Attenborough EINKALÍF PLANTNA á tilboðsverði
í bókaverslunum dagana 23. -27. apríl.
á ú
~ 27 *p‘ 2.695 m
J — w
inkalíf plantna
Einkalíf plantna er þungamiðjan í verkum hins heimsfræga sjónvarpsmanns og rithöfundar, Davids
Attenborough. Þetta nýja og heillandi yfirlit um gróðurríkið sýnir okkur hvemig plöntur ná þroska,
lenda í átökum, verjast óboðnum gestum eða nýta sér þá, ná sér í fæðu og fjölga sér, svo eitthvað
sé nefnt. Bókina prýðir mikill fjöldi einstæðra litmynda. Gjöf sem gleður hvem sem er.
Skjaldborg
Ármúla 23 * 588-2400
t