Morgunblaðið - 23.04.1996, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
NIKOLAY Zykov með brúður sínar.
Rússneskur
brúðuleikhúshópur
RÚSSNESKUR brúðuleikhús-
hópur Nikolay Zykov Puppet
Theatre er nú staddur hér á
landi. Þessi hópur hefur ferðast
með sýningu sína vítt og breitt
um Rússland, og þar að auki
heimsótt margar borgir bæði í
Evrópu og Asíu. Hann hefur
tekið þátt í mörgum alþjóðleg-
um brúðuleikhúshátiðum og
hlotið mörg verðlaun.
Nikolai Zykov er fæddur
1965 í Moskvu. Hann fékk
snemma áhuga á brúðuleikhúsi
og gekk 11 ára í lið með áhuga-
brúðuleikhúsi þar sem hann
byrjaði að búa til og þróa eigin
brúður. Árið 1980 byrjaði hann
að vinna við atvinnuleikhús og
fékk 1984 gullverðlaun á lista-
hátíð í Austur-Þýskalandi. 1985
stofnaði hann sitt eigið brúðu-
leikhús. Hann er í dag einn
fremsti brúðuleikhúsmaður
Rússlands.
í sýningum sínum notar
hópurinn eingöngu strengja-
brúður sem eru um það bil einn
metri á hæð. Nikolai Zykov býr
til allar brúðurnar sjálfur, velur
tónlist og setur saman sýning-
arnar. Hann stýrir brúðunum
sjálfur, stundum tveim eða fleiri
í einu, og hefur tvo aðstoðar-
menn sem sjá um tæknileg atriði.
Sýningarnar byggja á tónlist
og eru án orða sem hefur þann
kost í för með sér að fólk á öll-
um aldri og af mismunandi þjóð-
erni getur notið þeirra. Sú sýn-
ing sem þau koma með til Is-
lands er um klukkutíma Iöng
og er eins konar kabarett, sett-
ur fram af níu sjálfstæðum at-
riðum.
Nikolai Zykov mun sýna í
Selinu við Vallarbraut í Kefla-
vík laugardaginn 27. apríl kl.
15 og í Gerðubergi í Reykjavík
sunnudaginn 28. apríl kl. 14.
Thor Vilhjálmsson
Dagar bókarinnar
Fjölbreytt
dagskrá
DAGUR bókarinnar er í fyrsta
skipti haldin hátíðlegur í dag
en 23. apríl varð fyrir valinu
að undirlagi Menningarmála-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Hér á landi hefur Bókasamband
Islands staðið að skipulagningu
dagsins og verður dagskrá hans
sem hér segir:
Thor Vilhjálmsson flytur
ávarp dagsins í fjölmiðlum.
Rithöfundar lesa úr verkum
sínum á Café Reykjavík og
Sólon íslandus kl. 21-22.
Rithöfundar lesa upp í Deigl-
unni á Akureyri kl. 21.30-
22.30.
Bókaútgefendur gefa sér-
stakan afslátt af íslenskum
bókum út vikuna.
Prentsmiðjur auglýsa starf-
semi sína.
Bókasöfnin minna á dag bók-
arinnar með sérstökum uppá-
komum.
Samtök iðnaðarins afhenda
bókaviðurkenningu.
Vaka-Helgafell afhendir
barnabókaverðlaun.
Félag bókagerðarmanna sýn-
ir vandaða gripi í Þjóðarbók-
hlöðunni.
ÞAÐ er brum á tijánum núna, jafn-
vel laufsprotar hér og þar. Þessi tré
sem hafa staðið með berar kjúkur
í allan vetur og notað hentuga vinda
til að klappa á rúður okkar, og
minntu á að þau hefðu ekkert að
bjóða, það geti staðið til bóta. Og
nú verða þau senn græn og teygja
laufblöðin nýju mót
regni og sól og færa ilm
í tilveruna.
Og enn seinna get-
um við lesið þau einsog
bækurnar sem hafa
dugað okkur til að ná
vorinu, og geyma vor
með öllum öðrum árs-
tíðum innra með okkur.
Nú er svo langt síð-
an að það var í dagleg-
um reynzluheimi þess-
arar þjóðar að færa
lömbin frá mæðrum
sínum til að nýta
mjólkina úr þeim í ann-
að heldur en lömbin.
Og þá sátu böm yfir
fénu ein í hinni voldugu náttúru
íslands ■ og var trúað fyrir því að
gæta þess sem allur velfamaður
heimilisins byggðist á, að gæta fjár-
ins, sauðfénaðar. Og voru nánast í
dauðafæri við forynjur ævintýranna
sem voru sögð og lesin á dimmum
kvöldum og í vetrarskammdeginu.
Og ekkert til halds og trausts nema
hundur sem stundum kunni ekki
einu sinni mannamál. En það bjarg-
aðist allt ef þau fengu að hafa lítið
kver með sér í hjásetuna, stundum
með ljóðum sem þau skildu ekki og
lásu aftur og aftur þó ekki væri
nema til þess að veijast illvættum
og leita skjóls fyrir ógn sem bjó í
huganum án þess að þau vissu; og
lásu þangað til þau kunnu ljóðið svo
þau gátu farið með það hvar sem
var og hvenær sem var á ævinni
við alls kyns aðstæður, stundum í
borgargný og mannharki þangað til
þau skildu það til fullnustu, sínum
skilningi sem dugði bezt.
Nú eru ekki hjásetur. Og forynj-
urnar búa ekki lengur í afli okkar
Thor Vilhjálmsson
Fyrirmæli dagsins
Verkefni
EFTIR ALLAN KAPROW
SÓPAÐU gólfið í einhveiju
herbergi.
Dreifðu sópinu á gólfið í
öðru herbergi þannig að
enginn taki eftir.
Endurtakist daglega.
0 Fyrirmæli dagsins ísamvinnu við Kjarvalsstaði og Dagsljós
eigin hugar til ímyndunar heldur
hamast á okkur óvirkum: framandi
og ýktar og afskræmdar og ósenni-
legar með offorsi ýtrustu tækni úr
fjölmiðlum, og ná ekki að ánetjast
okkur heldur ryðjast yfir okkur og
ryðja öllu um koll sem við þurfum
að hafa til þess að styðjast við, allt
frá barnagæzlu teikni-
myndaiðnaðarins á skjá
í hryðjuverkakennslu
fyrir lengra komna og
kalddeifingu skilning-
arvitanna í ofbeldis-
myndum sem ræna
okkur manneðli og dáð.
Meðan skjáfréttirnar
sem sýna okkur slíkt
flóð af hörmungum,
níðingsverkum og
fólsku að skilningarvit
okkar dofna við í stað •
þess að bregðast til
andófs. Okkur er sýnt
tættir líkamir, limir á
stangli, beinagrindur
eftir falinn val sem
fannst, splundruð hús og böm í
andarslitrum, æpandi konur sem.eru
einar eftir yfir líkum sinna, hlakk-
andi hermenn eftir áfangasigur, og
svo koma prókúruhafar grimmdar-
verkanna alltaf á leið eitthvað annað
en aldrei hér eða þar og segja eina
eða tvær setningar í ólgandi kös af
hljóðnemum, og segja okkur ekki
neitt. Og við sitjum og skiljum ekki
þessa ábyrgð á þönum, fáum ekkert
samhengi. Enga sögu. Hvernig eig-
um við að geta skilið að menn geti
gert mönnum þetta og annað eins.
Samhengið er í bókunum. Þar er
skjólið og veðrin og vöxturinn og
þroskinn í boði. Spurningamar
þannig að við fáum hjálp til þess
að orða sjálf og beina að okkur sjálf-
um með skýrara móti þeim spurn-
ingum sem sækja á okkur og fær-
ast frá einhvers konar svari til nýrra
spuminga. í bókunum miðar allt að
því að koma á skipulagi. Temja
óskapnað, hemja fenrisúlf. Sálufé-
lag svo við stöndum ekki ein í allri
ringulreiðinni og finnist enginn hafa
verið eins illa settur og við. Hvort
sem er skáldskapur eða fræði, þá
getur okkur nýtzt það til að fóta
okkur á háiku heimsálanna.
Það vantar raunverulega ein-
semd, að semja sjálfan sig, að koma
sjálfum sér saman í eina virka heild.
í einveru þinni með bók þá léttir
vanda þess að vera einn af því þú
verður heill með sjálfum þér í sálufé-
lagi sem nærir þig svo þú getur
unað við það sem var kallað ein-
semd, og sótzt eftir þvf. Mestallur
vandi samtímans byggist á því að
ná sambandi við sjálfan sig, þau öfl
sem búa í hveijum manni, læra á
þau, stýra þeim og virkja. Með hjálp
bókar.
Kvikmynd um lífið við Þingvallavatn
Maður, fugl, vatn
NÚ STANDA sem hæst tökur á kvikmynd um lífið
við Þingvallavatn, sem hefur vinnuheitið Maður, fugl,
vatn. Kvikmyndafélagið Lífsmynd framleiðir myndina.
Ríkisútvarpið Sjónvarp hefur keypt sýningarrétt á
myndinni, en stefnt er að því að ljúka gerð hennar á
þessu ári. Nýlega veitti Menningarsjóður útvarpsstöðva
Lífsmynd tveggja milljóna króna styrk til myndarinn-
ar. Einnig hefur Umhverfisráðuneytið styrkt gerð
myndarinnar, auk nokkurra stofnana og fyrirtækja.
í myndinni er fylgst með daglegum störfum bónda
við vatnið og lífsháttum manna og dýra. Samspil manns
og náttúru árið um kring er meginstef myndarinnar.
Dýralífið við vatnið leikur stórt hlutverk í myndinni
og er sérstaklega fylgst með himbrimanum, sem kalla
má einkennisfugl vatnsins.
Þingvallavatn og Þingvallasvæðið eru stórmerkileg
fyrirbrigði frá sjónarhóli líffræðinnar og jarðfræðinn-
ar. Þetta er eina vatnið í heiminum svo vitað sé, þar
sem fjögur afbrigði af bleikju fínnast. Þarna er hátind-
ur Atlantshafshryggjarins og þar má sjá hvernig ís-
land hefur klofnað og er að klofna.
AÐSTANDENDUR Þingvallamyndarinnar. F.v.
Valdimar Leifsson kvikmyndatökumaður, dr.
Pétur M. Jónasson ráðgjafi og Einar Örn Stef-
ánsson handrítshöfundur.
Valdimar Leifsson annast myndatöku, handrit skrif-
ar Einar Örn Stefánsson og ráðgjafar við gerð myndar-
innar eru dr. Pétur M. Jónasson, fyrrv. prófessor í
vatnalíffræði við Kaupmannahafnarháskóla og Kjartan
G. Magnússon, dósent í stærðfræði við Háskóla ís-
lands. Hann er mikill áhugamaður um fuglalíf við Þing-
vallavatn og hefur ritað um það, m.a. í hina miklu bók
um Þingvallavatn, sem dr. Pétur M. Jónasson ritstýrði.
LjÓS-
myndir í
ÁTVRí
Kringlunni
SÝNING er hafin í ÁTVR
í Kringlunni á ljósmynd-
um eftir Magnús Blöndal
auglýsingaljósmyndara.
Sýndar eru tvenns
konar myndir, annars
vegar myndir af börnum
og hins vegar eru sýndar
kyrralífsmyndir.
Magnús Blöndal nam
við Brook’s Institute of
Photography í Banda-
ríkjunum þar sem hann
lauk námi úr auglýsinga-
og myndskreytingadeild
með heiðursgráðu.
MYND eftir Magnús Blöndal.