Morgunblaðið - 23.04.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 37
HARALDUR
EINARSSON
+ Haraldur Ein-
arsson fæddist
á Brúsastöðum í
Þingvallasveit 26.
april 1913. Hann
lést í Reykjavík 10.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar Harald-
ar voru Þóranna
Kristensa Jónsdótt-
ir og Einar Olafs-
son en fósturfor-
eldrar hans voru
Sigríður Guðna-
dóttir og Jón Guð-
mundsson bóndi og
gestgjafi í Valhöll,
Þingvallasveit. Eftirlifandi eig-
inkona Haraldar er Helga Jak-
obsdóttir og áttu þau tvær dæt-
ur, þær eru 1) Gréta Sigríður,
gift Hrafnkeli Þorvaldssyni og
eiga þau einn son, Þorvald
Skúla, og 2) Sigrún Jakobina,
Harald Einarsson sé ég fyrir mér
undir stýri á glæsilegasta ökutæki
landsins, á sinni tíð. Sjálfur er hann
glæsilega til fara, heimsborgaraleg-
ur,_ virðulegur.
Ég sé hann líka fyrir mér á gangi,
dökkklæddan og snyrtilegan með
hatt á höfði, skórnir gljáfægðir. Ég
sé hann fyrir mér uppi í sumarbú-
stað með skóflu í hönd að græða
upp melinn; ég er átta ára gamall
og Haraldur, sem er á besta aldri,
er persónulegur vinur minn. Ég fæ
að dvelja heila viku uppi í sumarbú-
stað hjá Halla, eins og faðir minn
einn hefur leyfi til að kalla Harald
Einarsson, sem auðvitað er aldrei
kallaður annað en Haraldur.
Haraldur er heillandi persónu-
leiki, nærvera hans sterk en hóg-
vær. Svipmótið alvöruþrungið, gáfu-
legt. Röddin djúp, lágvær; á yfir-
borðinu er framganga hans klippt
og skorin en undir niðri er hann
kíminn og hlýr.
Sérgrein Haraldar er lágvær en
snaggaraleg þurrkímni að hætti bre-
skra, sem fólkið í kringum hann
áttar sig ekki alltaf á. Ég er ungur
að árum og eins og aðrir landar
mínir alinn upp á íslenskri fyndni
og þegar ég kynnist Haraldi tekur
það mig langan tíma að glöggva
mig á því að menn geta verið fyndn-
ir án þess að þurfa að tilkynna það
sérstaklega fyrir fram, hvað þá eftir
á. Haraldur beitir ósjálfrátt þeirri
tegund svipbrigðatækni, þegar hann
spaugar, sem kölluð er meðal at-
vinnu-kómíkera „dead-pan“ (án
svipbrigða) en það er sérlega óís-
lenskt fyrirbrigði en að sama skapi
fágað pg áhrifaríkt.
Haraldur er myndarlegur maður,
grannur og skarpleitur, dökkur á
brún og brá. Augnsvipurinn sterkur
og tjáningarríkur. Háttvís, gætinn
og vandvirkur. Mér finnst hann allt-
af vera eins og „butler“ úr breskri
skáldsögu. Stundum er hann eins
og „sjóförinn" úr sömu skáldsögu,
gott ef ekki „gardenerinn" líka, enda
er Haraldur sannast sagna allt þetta
í senn og meira til.
Bítlamir hafa ekki enn hleypt
heimdraganum og gatnamálastjóri
er ekki tekinn til við að rykbinda
bugðóttar götumar í Kleppsholtinu.
hún var gift Grétari
Karlssyni, sem er
iátinn, og eiga þau
tvö börn, Harald
Þór, sambýliskona
hans er Linda
Hauksdóttir og eiga
þau tvær dætur, og
Eiínu Klöru, nem-
anda í Háskóla Is-
lands. Haraldur og
Helga ólu einnig
upp fósturson, Frið-
þjóf Daníel Frið-
þjófsson, hann var
giftur Jakobínu
Oskarsdóttir og
eiga þau einn son, Friðþjóf
Arnar, sem er giftur Helenu
Magnúsdóttur og eiga þau fjðg-
ur börn.
Útför Haraldar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Svartur kátiljákur ekur inn Selvogs-
gmnninn. Rykmökkurinn stígur
undan gljáandi vindskeiðinni. Har-
aldur situr undir stýri. Hann beygir
inn heimreiðina hjá Erlendi, forstjóra
SÍS. Ég ímynda mér að Erlendur
og Haraldur, sem eru allsendis
óskyldir, séu bræður; þeir eru jú
báðir Einarssynir. Ég geng líka með
þær grillur í höfðinu að þeir bræð-
urnir eigi SÍS í sameiningu. Annað
kemur á daginn.
Haraldur er úti í garði hjá Er-
lendi. Utan yfir stífpressuðum jakka-
fötunum klæðist hann hlífðarsloppi
að hætti „gardeners11, eins og í ævin-
týrabók eftir Enid Blyton. Hann er
berhöfðaður. Það hef ég aldrei séð
til hans áður. Barðastór hatturinn
situr í framsætinu á kátiljáknum -
eða var það rauði Bjúikkinn í þetta
skiptið eða sá svarti; ég man það
ekki glöggt. Haraldur er eingöngu
látinn aka listivögnum. Hann slær
garðinn. Ég stend hissa álengdar
og virði fyrir mér þennan hávaxna
og virðulega mann taka til hend-
inni. „Af hveiju ert þú látinn slá
garðinn, Haraldur?" spyr ég. „Ég
hélt þú værir forstjóri." Haraldur
stöðvar sláttuvélina, snýr sér að mér
nokkuð brúnaþungur, allt að því
sorgmæddur og segir: „Nei, ég er
að vísu bara bflstjóri. En ég er látinn
í allt það hættulegasta." Svo ræsir
hann vélina á ný og heldur áfram
að slá garðinn.
Við emm upp í sumarbústað.
Dagur er að kvöldi kominn. Við
Haraldur emm einir. Lagt er á borð
fyrir tvo. Við emm búnir að vera í
sveitinni í fáeina daga og eigum
eftir að vera fáeina í viðbót. Það er
farið að ganga á birgðimar í búrinu.
Mjólkurflaska með bláum, beygluð-
um áltappa, hefur verið skilin eftir
í gluggakistunni kvöldið áður til
kælingar. Innihaldið hefur fengið að
geijast í ró og næði yfir daginn og
er á suðupunkti. Haraldur er búinn
að elda. Nætursaltaðar gellur. Har-
aldur skammtar okkur þegjandi og
hugsi. Mér þykja gellur ekki góðar.
Þær em raunar það versta sem ég
veit fyrir utan skötu. En þær em
hollar og ég vil ekki særa gestgjaf-
ann. Ég ákveð því að bera harm
minn í hljóði. Ég reyni að ímynda
Islenskur efniviður
íslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
BjS. HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SlMI 557 6677
HH
mér að ég áé að borða ora-fiskiboll-
ur og geri a.m.k. þijár tilraunir til
að sporðrenna einum hundraðasta
úr gellu en gefst upp. Fæ mér mjólk-
ursopa og kúgast. Mjólkin er súr.
Haraldur nartar I gellu og fylgist
svipbrigðalaus með mér. Fluga suðar
í gluggakistunni. Haraldur fær sér
mjólkursopa. Ég fæ ég ekki betur
séð en Haraldur súrni til augnanna
rétt sem snöggvast. Hvorugur okkar
mælir orð af vörum. Ég berst hetju-
lega í hlutverki hins þakkláta gests
en ég er ekki nema átta ára gamall
og hlutverkið reynist mér ofviða.
Ég gefst upp. „Haraldur,“ segi ég
eins kurteislega og mér er unnt.
„Mjólkin er súr. Og mér finnast
gellur vondar." Haraldur leggur frá
sér hnífapörin og segir loks, alvar-
legur á svip: „Mér finnst það líka.
En við verðum að láta okkur hafa
það.“
Ég er sex ára. Ég á eitthvað bágt.
Ég fæ að gista hjá Haraldi og Helgu
á Hjallaveginum. Helga á stóra, fal-
lega, hnausþykka gula potta. Hún á
líka stóran amerískan blender eða
var það rafmagnskaffikvöm? Helga
býr til ævintýralega góðan frosting
á brúnkökur. Ég get enn framkallað
bragðið í munninum. Það er komið
hádegi. Ég á að borða hafragraut.
Vinir Haraldar og Helgu, Jón og
Svenni, em í heimsókn. Svenni er
sérlega skemmtilegur maður. Hann
er fullorðinn en afar smávaxinn.
Mér er sagt að hann sé dvergur.
Ég vil ekki borða hafragrautinn.
Haraldur riQar það upp með Svenna,
þegar sá síðarnefndi var á mínum
aldri og neitaði að borða hafragraut-
inn. Haraldur snýr sér síðan að mér
og segir áhyggjufullur: „Og það var
þá sem hætti Svenni að stækka."
Ég tek hraustlega til matar míns
og klára hafragrautinn á svipstundu
og bið um meira.
Við Haraldur hittumst í afmælis-
veislu. Hálfur fjórði áratugur hefur
liðið frá því að við reyndum að borða
saman gellur uppi í sumarbústað.
Haraldur er orðinn talsvert roskinn.
Við tökum upp þráðinn. Sem fyrr
veitist Haraldi létt að græta mig úr
hlátri með lágværum, þurrkrydd-
uðum athugasemdum sínum. Rétt
eins og gamall, rútíneraður kómíker,
sem engu hefur gleymt. Og enn finn
ég fyrir hlýjunni og öryggistilfinn-
ingunni af því að vera í návist þessa
manns, alveg eins og þegar ég var
lítill.
Elsku Helga mín, Gréta, Sigrún,
Friðþjófur, tengdaböm og bama-
böm: ég votta ykkur mína dýpstu
samúð og bið algóðan guð að sefa
sorg ykkar.
Gísli Rúnar.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru
einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess
Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru
vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
ASGRÍMUR
HALLDÓRSSON
i
+ Asgrímur Helgi Halldórsson
fæddist í Bakkagerði á
Borgarfirði eystra 7. febrúar
1925. Hann lést í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 28. mars og fór
útförin fram frá Hafnarkirkju
3. apríl.
Fáein kveðjuorð langar mig að
setja á blað um sómamanninn Ás-
grím Halldórsson, heiðursborgara
og athafnamann á Höfn í Homa-
firði, er kvaddi jarðlífið snöggt og
óvænt þann 28. mars sl. Aðdragandi
andláts hans varð aðeins fáeinar
klukkustundir. Hann veiktist snögg-
lega - stóra stundin, hinsta kallið
var að koma.
Ásgrímur var alveg sérstakur
maður, góðvild hans og skilningur á
því að menn þurfa svigrúm og að-
stöðu til að njóta sin var óvenjuleg.
Dugnaður hans, hjálpsemi og velvild
var hreint og beint einstök. Ég efast
um að auðvelt sé fyrir aðra en þá,
sem reynt hafa, að skilja þann mikla
mismun er varð á aðstöðu fólks og
líðan hér í héraðinu, eftir að Ásgrim-
ur tók við kaupfélaginu á Höfn, sem
þá var eina verslunin í sýslunni og
allir hlutu þvf að skipta við. Áður
en hann tók þar við stjóm tíðkaðist
allmikil harka í viðskiptum. Fólkið
í héraðinu var fátækt og í þessari
einu verslun var stundum erfitt að
fá nauðsynjar. Það var eins og mað-
ur væri horfinn aftur í löngu liðinn
einokunartíma. Með Ásgrími breytt-
ust viðhorfin rækilega. Hann skildi
aðstæður fólksins og ef það gat
ekki greitt upp skuldir sínar á haust-
dögum með innleggi sínu, var algjör-
lega hætt að fara um sveitimar og
heimta og taka af bændum hluta
líflambanna, svo ógeriegt var fyrir
þá að fjölga búsmalanum. „Hvemig
eiga bændumir að geta greitt, ef
þeir fá ekki að stækka bústofninn,"
sagði Ásgrímur. „Kaupfélagið þolir
vel að skuldirnar standi eitthvað
lengur." Og hvað skéði? Byggðalög-
in jafnt sem Kaupfélagið blóms-
tmðu. Bændurnir fengu skilyrði til
að stækka við sig og stóðu svo vel
I skilum að Ásgrímur sagði mér að
Kaupfélagið hefði aldrei tapað á því
að liðka þannig til. Allir hefðu stað-
ið við sitt, þegar þeir gátu.
Ég vildi óska þess að jafn vitur
maður á viðskiptasvipinu og Ásgrím-
ur var, kæmi til sögu og aflétti t.d.
kvótakreppu nútímans af sem flest-
um sviðum atvinnulífsins - og ekki
síst af bændastéttinni, sem hann
skildi vel hve mikilvæg er þjóðinni.
í stað þess illvilja, sem á þeirri stétt
hefur dunið úr ótrúlegustu áttum
undanfarin ár, hefði Ásgrímur vafa-
laust tekið undir þessa stöku:
Drottinn láttu dreifða byggð
dalina áfram geyma,
svo að eigi íslensk dyggð
einhvers staðar heima.
Eftir að Ásgrímur lét af kaupfé-
lagsstjórastarfinu sneri hann sér að
útgerð á Höfn og stofnaði fyrirtæk-
ið „Skinney", sem hefur verið miksi-
vægt atvinnulífinu þar og veitt fjölda
manns vinnu og þar með sitt lífsvið-
urværi.
Þó aðalstörf Ásgríms væm við
verslun og útgerð, gleymdi hann því
ekki hve íslensk gróðurmold er gjöf-
ul og góð. Hann var mikill áhuga-
maður um ræktun, unni gróðri jarð-
ar og sýndi það I verki t.d. með því
að fegra og rækta, ásamt konu sinni,
reitinn þeirra kringum sumarbústað-
inn að Karli í Lóni, þar sem varð
þeirra annar aðsetursstaður, einkum
á summm. Skógrækt í héraðinu
sinnti Ásgrímur af stórhug og dugn-
aði. Hann stóð fyrir að Skógræktar-
félag A-Skaft. keypti jörðina Hauka-
fell á Mýmm, og sá um stórfellda
útplöntun á tijám þar ásamt fleiru
ágætu áhugafólki.
Ásgrímur var mikill gæfumaður
í einkalífi sínu. Kona hans, Guðrún
Ingólfsdóttir, var hans styrka stoð
og hægri hönd alla tíð. Hún bjó
honum og bömum þeirra gott heim-
ili og var þeim sá bakhjarl sem aldr-
ei brást, þó stundum gæfi á bátinn,
eins og alltaf hlýtur að verða hjá
þeim, sem í stónæðum standa. Það
var 'Austur-Skatfellingum mikið lán
að Ásgrímur og fjölskylda hans
völdu sér hér starfsvettvang og þeir
fengu þannig að njóta óvenjulegra
mannkosta, áræðis, atorku og at-
hafnasemi afburðafólks.
Að leiðarlokum vil ég þakka vin-
áttu þeirra hjóna í okkar garð og
margar ánægjulegar samverustund-
ir.
Nú blasir við Ásgrími nýtt lífssvið
og í huga mér hljóma þessi orð úr
Heilagri ritningu: „Sá sem sáir með
blessunum mun og með blessunum
uppskera.“ Það fyrirheit hlýtur að
tilheyra Ásgrími Halldórssyni og
fylgja honum inn í eilífðina.
Guð blessi hann og ástvini hans
alla.
Sigurlaug Ámadóttir,
Hraunkoti.
A GOÐU VERÐI
10% staðgreiðslu
afsláttur
Stuttur afgreiðslufrestur'
Frágangur á legsteinum
í kirkjugarð á góðu verði
Graníl
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707