Morgunblaðið - 23.04.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL1996 43
FRÉTTIR
Sjálfstæðisflokkurinn
Mikilvægi
menntunar
ANNAR fundurinn á vegum Sjálf-
stæðisflokksins í fundaröðinni
Framtíð íslands á 60 mínútum
þriðjudaginn .23. apríl verður á
Hótel Borg, hefst kl. 17.15 og
mun standa í eina klukkustund.
Á fundinum verður fjallað um
mikilvægi menntunar og menning-
ar fyrir samkeppnisstöðu íslands
til framtiðar. Horft verður fram á
við og meðal ananrs spurt: Hvaða
gildi hefur góð menntun og fjöl-
breytt menning á stöðu íslands í
samkeppninni við aðrar þjóðir?
Hafa Islendingar vanmetið mikil-
vægi þessara þátta og hvaða hlut-
verki er líklegt að þeir gegni í
framtíðinni?
Framsögumenn á fundinum
verða Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra, Sigrún Gísladóttir
skólastjóri og Súsanna Svavars-
dóttir blaðamaður. Fundarstjóri
verður Guðlaugur Þór Þórðarson,
formaður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna.
Þriðji og síðasti fundurinn í
fundaröðinni verður þriðjudaginn
30. apríl. Þar verður rætt um ný-
sköpun og nýjar auðlindir, sérstak-
lega á sviði hugvits og upplýsinga-
tækni. Framsögumenn verða Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra,
Guðbjörg Sigurðardóttir tölvunar-
fræðingur og Geir Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Marels hf.
Fundarstjóri verður Elsa Valsdótt-
ir, varaformaður Heirhdallar.
Hörpuhátíð
í Gjábakka
HALDIN verður Hörpuhátíð í Gjá-
bakka, félags- og tómstundamið-
stöð eldri borgara í Kópavogi,
miðvikudaginn 24. apríl og hefst
hún kl. 14.
Meðal efnis á dagskrá syngur
Hera Björk Þórhallsdóttir íslensk
lög við undirleik Gísla Magnússon-
ar, Heiðrún Hákonardóttir stjórn-
ar kór ungmenna frá Snælands-
skóla, Inga Gísladóttir les kvæði
um vorið, Sigríður Grendahl sér
um tónlistaratriði, dansarar frá
Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar
sýna gömlu dansana og að lokum
verða gamanmál flutt í umsjón
eldri borgara.
Dagskráin er öllum opin og
aðgangur ókeypis en vöfflukaffi
verður selt í kaffhléi á vægu verði.
Opið hús hjá Styrk
Krabbamein í
blöðruhálskirtli
500 þúsund króna peningagjöf
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
verða með opið hús í nýjum sal á
efstu hæð húss Krabbameinsfé-
lagsins, Skógarhlíð 8, þriðjudag-
inn 23. apríl kl. 20.30.
Eiríkur Jónsson þvagfærasjúk-
lingur talar um krabbamein í
blöðruhálskirtli. Allir velkomnir.
Fyrirlestur
um hugarfar
og hagvöxt
STEFÁN Ólafsson, prófessor,
heldur fyrirlestur um hugarfar og
hagvöxt í boði Félagsfræðingafé-
lags íslands miðvikudaginn 24.
apríl kl. 12.05.
Stefán kynnir nýútkomna bók
sína Hugarfar og hagvöxtur. Fyr-
irlesturinn verður haldinn í Odda,
stofu 201, húsi Félagsvísinda- og
Viðskiptafræðideilda HÍ. Allir eru
velkomnir.
FÉLAGIÐ Svölurnar færði litningarannsóknadeild
Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg nýlega
peningagjöf að upphæð 500.000 kr.
Verður fjárhæðin nýtt til kaupa á smásjá sem
verður notuð við leit að örsmáum litningagöllum
hjá nýfæddum börnum og hjá fóstrum á meðgöngu-
tima. Með þessu verður hægt að taka upp hér á
landi nýja aðferð sem miklar vonir eru bundnar
við til framfara í litningagreiningu. Svölurnar afla
fjár til líknar- og hjálparstarfsemi með sölu jóla-
korta. Myndin var tekin þegar stjórn félagsins
afhenti starfsfólki rannsóknarstofunnar gjöfina.
Námskeið um einkaleyfi
hjá Háskóla Islands
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Háskóla íslands mun föstudaginn 26.
apríl kl. 9-17 gangast fyrir nám-
skeiði um einkaleyfi.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim
sem vilja koma hugmyndum sinum
og uppfínningum á framfæri, svo og
öllum þeim sem stunda rannsóknir
og nýsköpun, lögfræðingum og öðrum
sem koma eitthvað nálægt gerð
einkaleyfa og samningum er þeim
fy'gja.
Farið verður í þá þætti sem hafa
áhrif á gerð góðra einkaleyfisum-
sókna. Hvernig þau eru fengin og
hvaða réttindi sá hefur sem gerir
uppfínningu. Einnig verður farið í
markaðssetningu einkaleyfa og þá
þætti sem að þeim lúta.
Fyrirlesarar verða þau Ole Ploug-
mann og Mette K. Agger frá einka-
leyfísstofunni Plougmann og Vingtoft
A/S í Kaupmannahöfn en sú stofa
er ein virtasta einkaleyfisstofa í Evr-
ópu. Auk þeirra flytja stutt erindi
þeir Vilhjálmur Lúðvíksson frá Rann-
sóknarráði Islands og Aðalsteinn
Emilsson frá Einkaleyfísstofunni.
Sveinbjöm Gizurarson dósent hefur
umsjón með námskeiðinu.
Fiat Uno
stolið
FIAT Uno, ljósgráum að lit,
var stolið af bílastæði við
Vonarstræti, sunnan Alþing-
ishússins, aðfaranótt laugar-
dagsins.
Skráningarnúmer bílsins
er RO-321. Þeir sem kynnu
að hafa séð bílinn eða vita
hvar hann er nú, eru beðnir
um að hafa samband við
slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Dagbók lögreglunnar
Rólegt í miðborg
þrátt fyrir mannsöfnuð
- UM HELGINA var tilkynnt
um 25 innbrot, 16 þjófnaði og 2
nytjastuldi. Auk þess var tilkynnt
um 13 minniháttar eignarspjöll,
3 líkamsmeiðingar og 27 umferð-
aróhöpp. I þremur þeirra urðu
meiðsli á fólki. Lögreglumenn
þurftu 20 sinnum að fara í heima-
hús vegna hávaða og ónæðis að
næturlagi og 4 sinnum vegna
heimilisófriðar. Afskipti þurfti að
hafa 22 vegna ölvunarháttsemi
á almannafæri. Vista þurfti 20
manns í fangageymslunum yfir
helgina. Ellefu ökumenn eru
grunaðir um ölvunarakstur, 56
voru kærðir fyrir að virða ekki
reglur um leyfðan hámarkshraða
og 23 ökumenn voru kærðir
vegna annarra umferðarlaga-
brota. Rólegt var í miðborginni
þrátt fyrir að um 2.000 manns
hafi verið þar aðfaranótt sunnu-
dags. Færa þurfti einn ungling
undir 16 ára aldri í athvarf, en
þeir hafa ekki sést í miðborginni
um alllangt skeið líkt og annars
staðar á starfssvæðinu. Stúlka
varð fyrir líkamsmeiðingu í Hafn-
arstræti aðfaranótt laugardags.
Hún hlaut bólgið auga. Átta
grömm af amfetamíni fundust í
fórum manns, sem stöðvaður var
i akstri í Lækjargötu. Hann var
færður á stöðina og lagt var
hald á ætlað þýfi, sem fannst í
bifreiðinni. Aðfaranótt sunnu-
dags var maður handtekinn eftir
að hafa slegið tvær konur og
gefið manni rafstuð með svo-
nefndri „stun gun“ á veitingastað
við Fischersund.
-Tveir 15 og 16 ára piltar
voru færðir á stöðina skömmu
eftir miðnætti föstudags eftir að
hafa makað tjöru á veggi húss
við Hólmgarð. Þeir voru sóttir
af foreldrum sínum. Um nóttina
voru þrír menn handteknir á bif-
reiðastæðunum við Glæsibæ. Þeir
voru grunaðir um að hafa gert
tilraun til innbrots í bifreið í Ár-
bæjaríiverfi skömmu áður.
- Á föstudagskvöld voru höfð
afskipti af krökkum sem höfðu
kveikt eld á þaki leikskóla við
Suðurhóla. Krakkarnir höfðu
verið að leika sér þar með eld-
spýtur. Þær voru teknar af þeim.
Engar skemmdir hlutust af til-
tækinu. Auk þessa fíkts var
nokkrum sinnum tilkynnt um
sinuelda innan borgarmarkanna
um helgina. Af því tilefni er rétt
að taka fram að sinubrennur og
meðferð elds innan kaupstaða og
kauptúna eða í þéttbýli er bönn-
uð. Brot varða sektum. Nauðsyn-
legt er að foreldrar og forráða-
menn reyni að sjá til þess að
börn þeirra hafi ekki eldfæri
undir höndum og brýni fyrir þeim
þær alvarlegu afleiðingar sem
sinubrennsla getur haft í för með
sér. Aðfaranótt laugardags var
kveikt í barnavagni í stigagangi
húss við Dvergabakka. Lögreglu-
menn slökktu eldinn. Miklar
reykskemmdir hlutust af. Einn
lögreglumannanna var fluttur á
slysadeild með minniháttar reyk-
eitrun. Grunur er um að gestir,
sem yfirgefið höfðu húsið á rauð-
um smábíl skömmu áður, hafi
verið valdir að íkveikjunni. Á
laugardag kveiktu krákkar í sófa
í geymslu húss við Grýtubakka.
Eigandanum tókst sjálfum að
slökkva eldinn. Um kvöldið var
kveikt í gömlu tengiverki frá
stríðsárunum við Borgarveg.
Slökkviliðið slökkti eldinn.
- Ökumaður flutningabifreið-
ar kærður fyrir að róta sandi
yfir fólksbifreið, sem hann mætti
á Suðurlandsvegi á föstudags-
kvöld, svo skemmdir hlutust af.
Af þessu tilefni eru ökumenn í
sandflutningum minntir á yfir-
breiðslurnar.
- Á föstudagskvöld var kvart-
að yfir hávaða frá ungu fólki á
leikvelli við Þverás. Unga fólkið
hafði m.a. gert sér það að leik
að kasta af sér vatni í sandkass-
ana. Ekki er ólíklegt að uppeldið
hafi eitthvað haft með það að
gera. Um kvöldið var aðili hand-
tekinn á Amtmannsstíg grunaður
um að hafa haft 6 g af amfetam-
íni undir höndum. Þá stöðvuðu
lögreglumenn ungan ökumann í
akstri á Reykjavegi. Sá reyndist
vera 15 ára gamall. Farþegi í
bifreiðinni var 17 ára. Hann hafði
verið að leyfa hinum yngri að
prófa. Undir miðnætti voru tveir
aðilar í bifreið, sem stöðvuð var
á Þingholtsstræti, handteknir,
enda grunaðir um fíkniefnamis-
ferli. Eitthvað af efnum, s.s. ætl-
að amfetamín, hassfræ og hass-
moli, fannst við leit.
- Bifreið var ekið á ljósastaur
við Túngötu aðfaranótt laugar-
dags. Ökumaðurinn var fluttur á
slysadeild, en hann hafði hlotið
einhver höfuðmeiðsl. Um nóttina
var brotist inn í skóla við Öldu-
sel. Þijár rúður voru brotnar og
einhveijar skemmdir unnar þar
innan dyra. Þá voru tveir piltar
handteknir við Búnaðarbankann
í Austurstræti þar sem þeir höfðu
reynt að ná peningum úr hrað-
bankanum út á stolið krítarkort.
Undir morgun hlutust skemmdir
á lögreglubifreið þegar hún lenti
á umferðareyju og síðan á um-
ferðarmerki við Asparfell. Öku-
maðurinn hafði verið að veita
bifreið þar eftirför með fyrr-
greindum afleiðingum. Ökumað-
ur þeirrar bifreiðar var stöðvaður
um svipað leyti. Hann er grunað-
ur um ölvunarakstur.
- Auk innbrotsins í Ölduseli
var tilkynnt um innbrot í bíla við
Brúarás, Blönduhlíð, Skaftahlíð,
Logafold, Goðheima, Markarholt,
Klapparberg, Hólaberg, Keilufell,
Laugaveg, Sporhamra, Leið-
hamra, Hrísrima, Kjartansgötu
og Sæbraut, í hús við Brekkubæ
og í söluturn við Arnarbakka.
Lögreglumenn voru við
Kringluna eftir hádegi á laugar-
dag í tengslum við Sænska daga.
Þeir afhentu börnum og öðrum
gangandi bæklinga um nauðsyn
þess að hjólreiðamenn noti
hjálma, en lögreglan á Suðvest-
urlandi fylgist einmitt sérstak-
lega með notkun slíkra öryggis-
tækja þessa dagana. Hún hefur
beint þeim tilmælum til fólks að
það noti ávallt hjálma við hjól-
reiðar. Notkun þeirra hefur sem
betur fer farið ört vaxandi, sér-
staklega á meðal þeirri yngri.
- Drengur féll af hestbaki við
Breiðholtsbraut á laugardag.
Hann var fluttur á slysadeild til
öryggis, en reyndist ómeiddur.
Þá var knattspymumaður fluttur
á slysadeild með sjúkrabifreið
vegna meiðsla sem hann hlaut
við samstuð leikmanna. Grunur
lék á að hann væri fótbrotinn.
- Snemma á sunnudagsmorg-
un braust maður inn á unga konu
við Laugalæk. Hann var hand-
tekinn og fluttur á stöðina.
- Aðfaranótt mánudags var
maður á bifreið handtekinn í
Naustunum. Vlð leit fundust 2
grömm af amfetamíni. Þá fannst
hassmoli á ökumanni sem stöðv-
aður var um svipað leyti í Höfða-
túni.
- Dimmiteringar framhalds-
skólanna verða á næstunni og
eru viðkomandi hvattir til að fara
þar að öllu með gát. Þá er þeim
skilaboðum hér með komið til
grunnskólayfírvalda að huga sér-
staklega að 30. apríl nk.