Morgunblaðið - 23.04.1996, Side 44

Morgunblaðið - 23.04.1996, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens /?í> /to £/<sum Eirr Srt/ttmG/NL E<BT- ViO E&UM BÆPt BtT/Ui ,.þÓ BÍTUfiGKAS-- BN éG 8>T A/<S/ 8ÍTT(jí—l\ O 11 V/ ii O t—^ -n=> O l > \ ii Grettir Ljóska ■sTpasta icaiíaw Tommi og Jenni H/rwn- fi'm/n sóa/c*. o/ð wff/~ \ rC/OL. og uonB/igðO Smáfólk I vE OFTEH WONOERED MOU) YOU COPE.. I MEAN, MOUi DO YOU 5URVIVE ? Líf þitt er óvenjulegt, er það Ég hef oft undrast það hvernig Hundavit., ekki? þú spjarar þig____ég á við hvem- ig lifirðu af? Plorigmihlöfeiíi BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 • Netfang: lauga@mbl.is Opið bréf til presta Frá Guðrúnu Öldu Harðardóttur: UNDIRRITUÐ hefur fylgst með prestum vinna mörg göfug og erfíð verk, meðal annars við erfíðar að- stæður þar sem náttúruöfl landsins hafa heijað. Það var við slíkar að- stæður ekki alls fyrir löngu sem trú mín styrktist. En á síðustu vikum hefur minni trú verið misboðið innan þjóðkirkjunnar og því tók ég þá ákvörðun að segja mig úr henni. Ummæli presta um úrsagnir úr þjóðkirkjunni Samkvæmt tölum frá Hagstofu íslands hafa óvenju margir gert það sama og ég, það er sagt sig úr þjóð- kirkjunni. Vegna ummæla ýmissa presta um að þeir skilji ekki hvað veldur þessum úrsögnum og áhyggjuleysi þeirra, vil ég gera perst- um grein fyrir hvað liggur að baki minni úrsögn. En fyrst eru hér tvö dæmi um ummæli presta. í viðtali við Tímann 4. apríl sl. sagðist sr. Bolli Gústavsson, vígslu- biskup á Hólum, halda að „þetta gengi nú svona til og frá með kirkj- una og trúfélögin. Eg get alveg eins búist við því að þetta fólk gangi aft- ur í þjóðkirkjuna. “ Hann kvaðst ekki hafa hugmynd um hver gæti verið meginorsök flóttans, enda verði flótt- ans ekki vart í Hólastifti. „Ég á af- skaplega erfítt með að setja mig þannig inn í hugsunarhátt fólks að ég sjái hvað það er sem veldur þessu. Það er misjafnlega mikill áhugi fyrir trúmálum í landinu.“ Sr. Ragnar Fjalar Lárusson sagði eitthvað á þá leið í sjónvarpi að fólk yrði að átta sig á því að mennimir væru breyskir og þjóðkirkjan aðeins mannanna verk. Þora að horfast í augu við sannleikann Líf mitt hefur veitt mér mikla reynslu og ég hef leitast við að nýta reynslu gleði og sorgar á uppbyggi- legan hátt. Meðal annars með því að leitast við að styðja aðra, sérstak- lega börn, á erfiðum stundum. Ég hef haft það að leiðarljósi að trúa á það góða í manninum og er þannig af guði gerð að ég met manngerð einstaklinga mikils. Ég geri kröfur til manngerðar og heiðarleika fólks og vel mína nánustu vini samkvæmt því. Ein mín besta vinkona til margra ára heitir Sigrún Pálína Ingvarsdótt- ir og mörg eru síðan ég vissi í hvaða ógæfu hún lenti í prestshöndum. í jafnmörg ár hef ég fylgst með henni í hæversku sinni leita réttar síns hjá prestum, sem hún hefur sagt sann- leikann. í gegnum árin hefur að mínu áliti komið æ betur í ljós að það hefur reynst þessum prestum um megn að horfast í augu við óþægilegan sann- leikann. Um þverbak keyrði þó er sóknarprestur Sigrúnar Pálínu, sr. Vigfús Þór Árnason, sem hafði tjáð henni að hann skyldi styðja hana, birtist á sjónvarpsskjá og lét orð falla sem bentu síður en svo til stuðnings. Skyldi engan undra að mælir Sigrún- ar Pálínu væri fullur. I framhaldinu leitaði hún til siðanefndar Prestafé- lagsins eins og kunnugt er með hæ- verskri beiðni um að taka mál sín til meðferðar. Síðan þá hefur þjóðin mátt horfa upp á farsakennd við- brögð og ótrúleg vinnubrögð í þesu margfræga máli. Framganga presta Eitt dæmi um undarleg vinnu- brögð birtist mér þegar þátttaka mín í stuðningshópi við Sigrúnu Pálínu og Stefaníu Þorgrimsdóttur varð opinber en þá varð ég fyrir þeirri einkennilegu reynslu að tveir mér allsendis ókunnugir prestar, þeir sr. Ragnar Fjalar Lárusson og sr. Vig- fús Þór Ámason, fundu hjá sér ein- hvetja þörf til að hringja heim til mín, augljóslega hræddir um að ég byggi yfir einhverri hættulegri vitn- eskju í málinu. Hef ég ekki heyrt í þessum mönnum fyrr eða síðar. Annað dæmi um ófagleg vinnu- brögð presta að mínu mati og í því tilfelli fínn ég ekki hugtak í mínum orðaforða sem lýsir undrun minni en það snertir framgöngu tveggja presta sem áunnu sér traust Sigrún- ar Pálínu til að leysa málið. Ekki veit ég hvað fram fór á margra klukkutíma fundi þessara presta með Sigrúnu Pálínu og kærasta hennar. Nema að þar var samin sáttatillaga sem biskup hafnaði. Þegar prestun- um varð ljóst að biskup vildi engar sættir, þá töldu þeir sig augljóslega ekki hafa frekari skyldum að gegna gagnvart Sigrúnu Pálínu. Er ég hitti hana strax eftir þennan fund varð mér það ljóst að eitthvað hafði gerst sem hafði haft djúpstæð áhrif á hana. Við mér blasti vonleysi á að sannleik- ur, traust, trú og mannkærleikur ættu samleið með prestum. Aldrei hefði égtrúað þvi að kirkjunnarþjón- ar legðust svo lágt að misnota trúar- þörf einstaklings á þennan hátt og nánast ræna hann trúnni en þannig túlka ég þennan fund. Ofangreind vinnubrögð presta í þessu máli, að viðbættri margfrægri yfírlýsingu prófasta og kirkjuráðs og sláandi þögn prestastéttarinnar gerði það að verkum að kristilegri trú minni var freklega misboðið í þeirra höndum. Tilfinning mín var og er að flutningur kærleiksboðskaps kristninnar innan kirkjunnar í dag sé í ríkum mæli innantómt hjal og manni dettur helst í hug að halda að prestar hugsi um- að veija eigin hag og biskup í stað þess að rétta fólki hjálparhönd sem boðberar kris- tinnar trúar. Þess vegna sá ég mér ekki annað fært en að iðka mína trú utan veggja þjóðkirkjunnar, líkt og svo fjölmargir aðrir. Prestar líti ábyrgum augnm á fjöldaúrsagnir fólks í fyrrgreindu viðtali við sr. Bolla segist hann eiga erfítt með að setja sig inn í hugsunarhátt fólks, segist ekki hafa hugmynd um orsök flótta þess úr þjóðkirkjunni, þetta gangi nú svona til og frá með kirkjuna. Hans orð segja mér að hann hafí ekki mikl- ar áhyggjur af fjöldaúrsögnum fólks úr þjóðkirkjunni og sama var að skilja á sr. Ragnari Fjalari. Ég hef hér í mínu bréfi aðeins gert grein fyrir hvaða hugsun var að baki úrsögn minni en skoðun mín er sú að framganga presta í þessu máli hljóti að eiga mjög stóran þátt í að svo margir hafa sagt sig úr þjóð- kirkjunni. Ég skora á prestastéttina að líta ábyrgum augum á fjöldaúrsagnir fólks úr þjóðkirkjunni og leggja sitt af mörkum til að taka á vandanum en ekki horfa framhjá honum. GUÐRÚN ALDA HARÐARDÓTTIR, Marbakkabraut 11, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.