Morgunblaðið - 23.04.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1996 45
_____BREF TIL BLAÐSINS_
Hvað dvelur heilsu-
vernd starfsmanna?
Frá Guðmundi Helga Þórðarsyni:
SIGURÐUR T. Sigurðsson, for-
maður Verkamannafélagsins Hlíf-
ar í Hafnarfirði, skrifar grein í
Morgunblaðið 28. mars sl. sem
hann kallar Til hvers eru lög í land-
inu? Þar fjallar hann um heilsu-
vernd starfsfólks og deilir á heil-
brigðisyfirvöld fyrir að hafa ekki
gegnt þeirri skyldu sinni að skipu-
leggja og sjá um heilsuvernd á
vinnustöðum samkvæmt gildandi
lögum. Hann víkur sérstaklega að
því, að trúnaðarlæknar fyrirtækja
séu að sýsla við einhvers konar
heilsuvernd og bendir á, að þar sé
um óheppileg hagsmunatengsl að
ræða, og starfsemin því ekki trú-
verðug.
Að sjálfsögðu hefur Sigurður
þarna lög að mæla. Ákvæðið um
heilsuvernd starfsfólks hefur mér
vitanlega hvergi verið framkvæmt.
Hins vegar hafa trúnaðarlæknar
fyrirtækjanna annast þjónustu, sem
þeir vilja kenna við heilsuvernd, en
hefur í fæstum tilvikum risið undir
því nafni, enda í engum tengslum
við heilbrigðiskerfið í landinu.
Frá Steinunni Arnþrúði
Björnsdóttur:
SONUR minn, 4ra ára, er í leikskól-
anum Árborg í Árbæjarhverfi og
hefur líkað prýðilega. Starfsfólk er
áhugasamt og sinnir bömunum
mjög vel. I þessum leikskóla eru
börn ættuð frá sex löndum: Frakk-
landi, Bretlandi, Tælandi, Filipps-
eyjum, Suður-Kóreu og íslandi.
Undanfarið hefur staðið yfir átak
þar sem öll þessi lönd eru kynnt.
Átakið hófst með franskri viku.
Börnin lærðu nokkur orð á frönsku,
lituðu fánann, sáu myndir og mynd-
band, smökkuðu franskan mat og
sungu á frönsku. Síðan tók við hvert
landið á fætur öðru. Átakið er ákaf-
lega vel skipulagt og mikið í það
lagt. Hverri viku hafa fylgt mynd-
Á síðasta áratug var gerð tilraun
til að koma á samningum um þetta
efni milli ÍSAL og Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Sólvangi, en ÍSAL
komst upp með að slíta þeim um-
ræðum einhliða. Sennilega hafa þar
komið til áhrif frá samtökum vinnu-
veitenda.
Árið 1991 skipaði Læknafélag
íslands nefnd til að gera tillögur
um heilsuvernd starfsfólks, en um-
ræður höfðu þá verið um þau mál
meðal lækna. Þessi nefnd skilaði
áliti, sem birtist í Fréttabréfi lækna
1. mars 1992. Þar er m.a. vikið að
hugsanlegum hagsmunatengslum í
sambandi við þessa starfsemi og
hvatt til „að þróað verði launafyrir-
komulag, þar sem læknir er ekki
eins háður stjórnendum fyrir-
tækja“.
Vegna þátttöku minnar í þessari
nefnd og sömuleiðis í samningatil-
raunum milli Heilsugæslustöðvar-
innar á Sólvangi og ISAL hafði ég
símsamband við höfuðstöðvar
stærstu verkalýðsfélaganna á höf-
uðborgarsvæðinu til að kynna mér
álit þeirra á málinu. Það vakti
bönd og matarkynningar, tungu-
málakennsla og kynning á fána og
ég hef heyrt son minn syngja „Höf-
uð, herðar, hné og tær“ á filippísku
máli, heilsa á kóresku og ensku og
lýsa fyrir mér tælenskum sögu-
dansi með tilþrifum.
Gildi slíkrar kynningar er ekki
síst fyrirbyggjandi. Það vinnur
gegn fordómum, eykur víðsýni og
virðingu fyrir öðrum þjóðum. Eg
hef haft mikla ánægju af að fylgj-
ast með þessu átaki og hið sama á
án efa við um fleiri foreldra. Þetta
er forstöðumanni og starfsfólki
Árborgar til mikils sóma og verðug
fyrirmynd fyrir aðra leikskóla og
grunnskóla.
STEINUNN ARNÞRÚÐUR
BJÖRNSDÓTTIR,
Hraunbæ 70, Reykjavík.
undrun mína, hvað svörin sem ég
fékk, lýstu mikilli vanþekkingu á
þessu máli og jafnframt áhuga-
leysi á því. Það var t.d. ekki talið
neitt óeðlilegt, að trúnaðarlæknir
fyrirtækis annaðist heilsuvemd
starfsmanna. Og það virtist vera
búið að telja þessu fólki trú um,
að það væri heilsuvernd að kontról-
era íjarvistir starfsfólks og halda
um það skrá ásamt greiningum á
orsök fjarvistar. Sömuleiðis að yf-
irfara fjarvistarvottorð í því skyni
að vefengja þau. í hópi lækna voru
þeir, sem þessa þjónustu önnuðust,
kallaðir fjarvistarlögregla og ekki
orðaðir við heilsuvernd, enda var
þarna um að ræða hagsmunagæslu
fyrir fyrirtækin, en ekki heilsu-
vernd.
Lögin um vinnuvemd vom sett
að frumkvæði launþegasamtak-
anna, enda hugsuð til verndar
launþegum. Þau hefðu aldrei kom-
ið nema vegna þess að verkalýðs-
forysta þeirra tíma beitti sér af
alefli í málinu og naut atfylgis fé-
lagshyggjuaflanna á alþingi. Hins
vegar virðist hluti verkalýðsforyst-
unnar hafa orðið viðskila við þetta
mál síðar, og það er þess vegna,
sem ákvæðið um heilsuvernd
starfsmanna hefur ekki verið fram-
kvæmt enn. Launagreiðendur
munu eðli málsins samkvæmt berj-
ast gegn því, vegna þess að það
hefur í för með sér kostnað fyrir
þá. Ríkisvaldið er ekki líklegt til
að sýna hér frumkvæði frekar en
verið hefur, nema launþegarnir
láti málið til sín taka í langt um
ríkari mæli en hingað til. Laun-
þegahreyfingin í heild verður að
setja sig inn í málið, gera sér grein
fyrir um hvað það snýst og taka
beinan þátt í samningpim milli heil-
brigðisstofnana og fyrirtækja.
Þetta er fyrst og fremst mál starfs-
mannanna, en ekki bara fyrirtækja
og heilbrigðisstarfsmanna.
Orkugjafínn í þessu máli er laun-
þegahreyfingin. Sá orkugjafi drap
á sér, þess vegna gerðist ekkert.
GUÐMUNDUR HELGI
ÞÓRÐARSON,
fyrrverandi heilsugæslulæknir.
Nýbúaátak í Arborg
Þakkir
til Rauða
kross
*
Islands
Frá Vilhelmínu Böðvarsdóttur:
ÉG VARÐ þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að dvelja á sjúkradeild Rauða
kross Islands á Rauðarárstíg 18
um hálfs mánaðar skeið. Það var
góður tími. Ég kom þarna hölt og
skökk eftir aðgerð á mjöðm. Ann-
arri eins umhyggju í einu og öllu
hef ég aldrei kynnst. Hef þó farið
á eftirmeðferðarstaði og alloft leg-
ið á sjúkrahúsum. Ég vil þakka
Sigfríð hjúkrunarforstöðukonu og
starfsfólki öllu fyrir mig, fyrir ein-
staka umönnun og þolinmæði svo
og matreiðslumönnunum á Hótel
Lind. Maturinn þama er til fyrir-
myndar svo og framreiðslan á all-
an hátt. Nokkrum sinnum fór ég
niður á Hótel Lind. Þjónustan þar
er einnig frábær. Ung, falleg
stúlka og þjónn eru eins innileg
og best getur verið. Ég held að
verð þama sé í algjöru lágmarki.
Ég vil enda grein þessa með inni-
legu þakklæti.
VILHELMÍNA BÖÐVARSDÓTTIR,
Miklubraut 42, Reykjavík.
Sértilboð
/ • / /
i jum
tii Cancun
frá kr. 59« 922«-
Beint flug frá íslandi í Karíbahafið siðustu
Cancun er vinsælasti staðurinn í Karíbahafinu i '? \ tjúm
í dag. Hér finnur þú frábæra gististaði, stórkost-;
legar strendur og spennandi kynnisferðir.
Tryggðu þér síðustu sætin til Cancun í júní. Við höfum nu tryggt
okkur viðbótargistingu á Laguna Verde Suites, afar fallegu íbúðar-
hóteli þar sem þú býrð við besta aðbúnað og þægindi.
Allar svítur með sjónvarpi, síma, loftkælingu, baði, eldhúsi, stofu
og einu svefnherbergi.
Verð kr. 59.922
10. júní m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára
Laguna Verde, 2 vikur.
Verðkr. 69.950
M.v. 2 í íbúð, 10. júní, Laguna Verde,
skattar innifaldir, 2 vikur.
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
Fyrir Sumardaginn fyrsta
Heilsársúlpurog sumarjakkar
í miklu úrvali. Mörg snið.
Verð kr. 4.900 og kr. 7.900.
Mörkin 6 - sími 588 5518 (við hliðina á
Opið laugardag kl.Jg
• Bílastæði vi<3 t>Ci<3ary<a
'
Ný sending
Stuttkápur og
heilsársúlpur
Þú færð fallegar sumargjafir á góðu verði í Kolaportinu á sumardaginn fyrsta.
Kolaportið er opið á
sumardaginn fyrsta
-fagnið sumri og gefið sumargjöf úr Kolaportinu
Stundum bregðast veðurguðimir á sumardaginn fyrsta, en það
er hægt að lofa því að það verður sól og sumar í Kolaportinu.
Markaðstorgið verður opið kl. 11-17 og hátt í 200 seljendur verða
með frábær sumartilboð í tilefni dagsins og því upplagt að kaupa
sumargjöfina í Kolaportinu. Enn er hægt að bæta við seljendum
þennan stóra markaðsdag og sölubásinn er með 20% afslætti.
“Ég verð með sérstök tilboð á
sumargjöfum í tilefni dagsins og
það er hægt að gleðja börnin án
þess að það geri út af við fjárhag-
inn” sagði dótakallinn í Kolaport-
inu, en flestir seljendur á markaðs-
torginu verða með sumargjafir á
sérstöku tilboðsverði.
Útsæðiskartöflurnar komnar!
Fannar og Anna úr Þykkva-
bænum selja kartöflur í Kolaport-
inu alla markaðsdaga og eru komin
með stóran hóp fastra viðskipta-
vina sem kunna að meta gæða-
kartöflur. Þau verða á sínum stað
á sumardaginn fyrsta og verða þá
einnig komin með útsæðis-
kartöflur á frábæru verði. “Þetta
er mjög gott útsæði sem hefur
gefið mjölmiklar og bragðgóðar
kartöflur" sagði Fannar.
Bresku seljendumir skapa góða
stemmningu
Cal O'Brian, sem reyndar er
írskur, hefur verið í hópi þessara
seljenda og hefur sett svip á
umhverfið með tilboðum sem
hann kallar yfir markaðstorgið.
“Kolaportið er einn skemmti-
legasti markaðinn sem ég hef
komið á í Evrópu og ég stefni að
því að koma sífellt á óvart með
nýjum vörutegundum nánast
vikulega.”
Kompudagar um næstu helgi
Það verða Kompudagar um
næstu helgi í Kolaportinu og þá
verður boðið upp á sölubása fyrir
kompudót á kr. 1800,- á dag. Það
hefur verið góða sala á kompudóti
að undanförnu og því upplagt að
ná sér í aukapening um helgina.
Pantanir eru í síma 562 50 30.
blabib
- kjarni máisins!