Morgunblaðið - 27.04.1996, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.04.1996, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Deilur milli flokka, innan flokka og milli bæjarbúa um brúarstæði við Egilsstaðí BÆJARFULLTRÚAR Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalags reikna með að ræða saman næstu daga um meirihlutasamstarf sitt í bæjarstjórn Egilsstaða. Ekki er annað að heyra á forystumönnum flokkanna en að þeir hafi hug á því að starfa áfram saman. Klofningur varð í meirihlutanum í atkvæðagreiðslu um staðsetningu brúar á Eyvindará. Fulltrúar minni- hlutans, framsóknarmenn og óháðir, samþykktu tillögu sjálfstæðismanna um að Eyvindará verði brúuð við hlið núverandi brúar en Alþýðu- bandalagsmenn vildu fara að tiilögu Vegagerðarinnar um brú á nýjum stað sem þýddi að Seyðisfjarðarveg- ur færðist framhjá þorpinu og fetju- umferðin þar með. Alþýðubanda- lagsmenn hafa lýst því yfir að þeir telji sig óbundna af núverandi meiri- hlutasamningi. Sveinn Jónsson, annar fulltrúi Alþýðubandalags, á ekki von á að flokkurinn sé á leið út úr meirihlut- anum. Segir hann að taka verði sam- starfið til endurskoðunar og huga að nýjum áherslum. Vill hann þó ekki fara út í efnisatriði á þessari stundu. Einar Rafn Haraldsson, oddviti sjálfstæðismanna, segist ekki vita hvað felst í yfirlýsingum Alþýðu- bandalagsmanna. Reiknar hann með að fulltrúar flokkanna ræði saman á næstu dögum og þá skýrist málið. Tekur hann fram að meirihlutasam- starfið hafi verið farsælt. Ræða meirihlutasam- starf á næstu dögum Mikill ágreiningur er um brúarmálið meðal bæjarbúa á Egilsstöðum og innan stjómmálaflokkanna. Helgi Bjamason telur þó meiri líkur en minni fyrir áframhaldandi samstarfí Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags í bæjarstjóm, að loknum fyrirhuguðum viðræðum. Óvíst með eftirmála í röðum sjálfstæðismanna Alþýðubandalagsmenn gagnrýna það harðlega að annar fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, Bjarni Elvar Pét- ursson, sem nú starfar sem tann- læknir í Reykjavík þó hann eigi enn lögheimili á Egilsstöðum, hafi flogið austur til þess að sitja bæjar- stjórnarfundinn. Sveinn segir að þetta sé siðlaust athæfi enda hafi Bjarni lítið eða ekkert starfað í Á góðum stað í Hamrahverfi, Grafarvogi er til sölu vel skipulögð og góð íbúð á tveimur hæðum. 3-4 svefnherbergi, stórar stofur, rúmgott eldhús. Svalir mót suðri. Tveir bílskúrar. Uppl. gefur Örn ísebarn, byggingameistari, í síma 896 1606. 352 1150-552 1370 IARUS Þ VALDIMARSSON, framkvamoasijori KRISTJAN KRISTJANSSON, lOGGiuuR fasieignasali Nýkomnar til sýnis og sölu m.a. eigna: Skammt frá Landspítalanum Sólrík 3ja herb. hæð um 80 fm í 4órbýlish. við Þorfinnsgötu. Nýir gluggar og gler. Nýl. eldhús. Nýjar raflagnir. Laus 1. júní nk. Vinsæll staður. Góð íbúð á góðu verði Sólrík 3ja herb. íb. á 1. hæð rúmir 80 fm rétt við Sæviðarsund. Parket á gólfum. Tvennar svalir. Rúmgóð geymsla í kj. Vinsæll staður. Nýleg suðuríbúð - hagkvæm skipti Sólrík 3ja herb. íb. á 3. hæð 82,8 fm við Víkurás. Vönduð innrétting. Parket, gólfflísar. Sólsvalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðisl. kr. 2,5 millj. Skipti mögul. á lítilli íb. „niðri í bæ“. Lækkað verð - lítil útborgun Nýleg og góð íb. á 3. hæð og i risi rúmir 104 fm við Hrísmóa, Gbæ. 40 ára húsnæðisl. kr. 5,1 millj. Skammtímal. kr. 900 þús. geta fylgt. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Einbýli - fjársterkur kaupandi Leitum að góðri eign - raðhúsi, parhúsi eða einbýlishúsi - um 120-130 fm fyrir traustan kaupanda sem flytur til landsins á næstunni. Hafnfirðingar athugið Leitum að góðri íbúð um 100 fm með 35-40 fm bílsk. Rétt eign verð- ur borguð út að mestu í peningum strax við kaupsamning. • • Opið ídag frá kl. 10-14. Margskonar eignaskipti. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 14. júlí1944. ALMENNA FASTEIGNASALAN Hli6<VE6l 18 S. 552 1151-552 iTT nefndum og bæjarstjórn undan- farna mánuði. Bendir hann jafn- framt á að Guðmundur Steingríms- son, fyrsti varamaður flokksins, sé fylgjandi breytingum á brúarstæði Eyvindarár. Guðmundur Steingrímsson stað- festir í samtali við Morgunblaðið að skiptar skoðanir séu um það í röðum sjálfstæðismanna hvorn kostinn ætti að velja í brúarmálinu og hann sé á annarri skoðun en aðalfulltrúar flokksins. Hann vill þó ekki tjá sig um það hvort sú ákvörðun Bjarna Elvars að sitja fundinn og óska eftir leyfi frá störfum í bæjarstjórninni í Iok hans hafi einhveija eftirmála, segist ræða það fyrst við félaga sína á listanum. Einar Rafn segir að Bjarni Elvar sé löglega kjörinn bæjarfulltrúi og leggur á það áherslu að hann hafi sjálfur ákveðið að sitja umræddan bæjarstjórnarfund en ekki verið sér- staklega til þess kallaður af félögum sínum. í dag ætla sjálfstæðismenn að funda um málið og samkvæmt heim- ildum blaðsins er unnið að sáttum í flokknum. Agreiningur í öllum flokkum Einhver ágreiningur virðist vera í öllum flokkum til brúarmálsins, þó hann sé greinilega mestur í Sjálf- stæðisflokki og hjá aðstandendum H-lista óháðra. Asta Sigfúsdóttir, bæjarfulltrúi óháðra, segir að greidd hafi verið atkvæði um málið innan listans og ákvörðun meirihlutans verið látin ráða. Ásta tók ekki þátt í atkvæðagreiðslunni en kallaði inn varamann. Hún rekur gróðrarstoð og blómabúð á Egilsstöðum en telijr sig þó ekki vanhæfa við afgreiðslu málsins. Hins vegar hafí hún verið að fría sig málaferium vegna hótana Alþýðubandalagsmanna. Annar full- trúi Framsóknarflokks vék einnig sæti af sömu ástæðum. Skiptar skoðanir eru um það hjá viðmælendum hver sé hugur bæt- arbúa til málsins. Ljóst er að eijj- endur margra þjónustufyrirtækja og annarra atvinnufyrirtækja eiju mjög ákafir í andstöðu sinni vlð breytingar á veginum en umhverfis- verndarfólk er meðmælt breyting- um. Einar Rafn nietur það svo ajð hlutföllin í bæjarstjórninni endur- spegli vilja bæjarbúa en Sveinjn Jónsson telur að niðurstaðan gefi ranga mynd af afstöðu fólks enda hafi tíminn unnið með þeirra mál- stað. Þó bæjarstjórn Egilsstaða hafi mælt með því að brúin verði ekki færð mun Vegagerðin áfram geia tillögu um færslu hennar. Skipulag ríkisins mun auglýsa tillögu Vega- gerðarinnar og gefst þá tækifæri fil athugasemda. Síðan úrskurði.r Skipulagið um það hvort það fellst á tillögu Vegagerðarinnar eða ekki- Þá ákvörðun er loks unnt að kæi a til umhverfisráðherra. Miðað við hi;- ann í málinu er líklegt að þangí ð fari málið, á hvorn veginn sem ú'- skurður Skipulagsins verður. Óðal skiptir um eigendur Vilja reka næturklúbb hið fyrsta GARÐAR Kjartansson og fjölskylda hafa fest kaup á veitingahúsinu Óðali, en hann var opnaður eftir gagngerar breytingar í júní í fyrra og hefur skipt um eigendur þríveg- is síðan þá. Eigendaskipti urðu um síðustu helgi og segir Garðar að hann hafi þegar hafið endurskoðun á starf- semi staðarins í því skyni að höfða til sem flestra gesta. Nú þegar sé búið að færa dansgólfið sem var á efstu hæð niður á aðra hæð og setustofan flytjist upp á þriðju hæð hússins. Garðar, sem auk þess að hafa verið einn eigenda Gauks á Stöng í upphafi, hefur í fimmtán ár rekið sportvöruverslanir í Reykjavík. Hann kveðst horfa sérstaklega til þess að fá leyfi til reksturs nætur- klúbbs í húsakynnum Óðals, og að staðurinn uppfylli að hans mati sér- lega vel öll skilyrði til slíkrar starf- semi. „Yfirvöld eiga að fá hingað til lands erlenda matsmenn, frá þeim löndum sem eiga ríkulega nætur- klúbbahefð, sem myndu þá skoða íslenska skemmtistaði og vera til ráðgjafar um leyfisveitingar. Óðal yrði þar fremst í flokki að mínu mati.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Kosningamiðstöð opnuð GUÐRÚN Pétursdóttir, sem boðið hefur sig fram í forseta- kosningunum í sumar, opnaði kosningamiðstöð á sumardag- inn fyrsta í Pósthússtræti 9 og sýnir myndin hana við það tækifæri í hópi stuðnings- manna. Samningi um flug- virkjanám sagt upp BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra segir að slitið verði samningi milli íslenskra og sænskra stjórn- valda um flugvirkjanám Islendinga í Vásterás í Svíþjóð. íslenska ríkinu hefur verið stefnt vegna skólagöngu flugyirkjanem- anna, sem Svíar telja að íslendingar eigi að greiða. Upphæðin er 3,5 milljónir sænskra króna, eða um 35 milljónir íslenskra vegna náms ís- lendinga við skólann frá 1991. „Við munum grípa til varna enda eru kröfurnar algerlega óréttmætar," segir menntamálaráðherra. Björn Bjarnason segir ágreining enn óleystan milli ríkjanna um það hver eigi að bera kostnað af náini flugvirkjanna. íslensk stjórnvöld telji að kostnaðurinn eigi ekki að falla á ríkissjóð, hvorki samkvæmt samkomulagi við skólann né ncir- rænum samningum um framhalds- skólanám. FASTEIGNASALA BÆJARHRAUNI 1Q SÍMI 5B5 11SS Munið myndagluggann! Opið kl. 9-18, laugard. kl. 11-14 Erum fluttir f nýtt húsnæði að Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði. Einbýli — raðhús FURUBERG - PARHUS Vorum að fá parh. á einni hæð ásamt bílsk. og sólstofu. Vel staðsett og glæsil. innr. eign. sem vert er að skoða nánar. KLETTAHRAUN - EINB. Vorum að fá einb. á einni hæð ásamt bílsk. Húsið stendur í botnlanga við lokaða götu þar sem suðurgarður er algjör paradís. VESTURTÚN - EINB. 150 fm einb. ásamt 26 fm bílsk. Skipti æskil. á 4ra-5 herb. íb. ÁLFTANES - RAÐH. Vorum að fá lítiö raðh. með eða án bilsk. Verð frá 5,9 á fokheldisstigi. Stærri eignir HRINGBRAUT - LAUS 5-6 herb. 101 fm miöhæð í þríbýli. Góð staðsetn. Verð: Tilboð. NORÐURBÆR Góðar 4ra og 5-6 herb. íbúðir með eða án bílsk. ALFHOLT - 4RA Góö 4ra herb. íb. á 2. hæö. Útsýni yfir bæinn. Góð lán. Verð 8,5 millj. 2ja—3ja herb. SKULASKEIÐ - 3JA Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð. íb. er öll end- urn. Góð lán. Verð 6,2 millj. HRINGBRAUT - LAUS Vorum að fá 3ja herb. íb. á jarðh. á góðum útsýnisstað. ib. sem þarfnast lagfæringar. Leitið uppl. FAGRIHVAMMUR - 3JA Góð 3ja herb. risíb. í fjölbýli. Áhv. byggsj. MELHOLT - 3JA Góð 3ja herb. 91 fm íb. á 2. hæð í góðu þríbýli. FRAMNESVEGUR - LAUS 3ja herb. íb. á 1. hæð (ekki jarðh.). Verð : 4,8 millj. HÆÐARGARÐUR - GÓÐ STAÐSETN. 2ja herb. íb. á jarðh. austurenda. Sérinng. Verð 4,8 millj. ÁLFASKEIÐ - 2JA Vorum að fá 2ja herb. íb. á 3. hæð ásamt , bílsk. íb. hefur öll veriö endurn. og er sem \ ný. Áhv. góð lán. Gjörið svo vel að líta inn! Sverrir Albertsson, Sveinn Sigurjónsson, sölustj. Valgeir Kristinsson hrl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.