Morgunblaðið - 27.04.1996, Page 19

Morgunblaðið - 27.04.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 19 FORSETAKJÖR 1996 ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON að Hverflsgötu 33 Opið verður alla daga trákl. 13 til 21 í dag kl. 14 verður opnuð að Hverfisgötu 33 kosningamiðstöð Ólafs Ragnars Grímssonar vegna framboðs hans til embættis forseta íslands. Þar verður landsmiðstöð þess starfs sem framundan er. Auk hefðbundinna kosningastarfa munu listviðburðir af margvíslegu tagi setja svip á staðinn til kjördags. Óiafur Ragnar og Guðrún Katrín taka á móti stuðningsfóiki í kosningamiðstöðinni umkl. 14 og 16 á iaugardag og 15 og 17 á sunnudag. Dagskrá helgarinnar: Opnun kosninga- miðstöðvarinnar í dag, laugardag, kl. 14 með ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar. Þá og oftar um helgina mun landsþekkt tónlistarfólk koma fram og skáld lesa úr verkum sínum. Verk fjölmargra þekktra myndlistarmanna prýða kosningamiðstöðina. Um helgina, eins og alla aðra daga fram að kosningum, verður stuðningsfólki boðið upp á hressingu. Meðmælendaskrár Meðmælendaskrár munu liggja frammi þar sem stuðningsfólk framboðsins er beðið um að rita nöfn sín. Meðmælendaskrár verða einnig sendar í aðra landshluta á næstu dögum. Stuðningsfólk Stuðningsfólk um land allt er hvatt til að hafa samband við miðstöðina, líta inn eða hringja. Tekið er á móti framlögum í kosningasjóð alla daga. Síminn er 562 6555 Sjáumst í kosningamiðstöðinni!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.