Morgunblaðið - 27.04.1996, Side 20

Morgunblaðið - 27.04.1996, Side 20
20 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT 10 ár liðin frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl Dapur dagur í sögu alls mannkynsins Reuter STARFSMAÐUR Tsjernobyl-versins grætur við athöfn nálægt verinu í gær í tilefni þess að tíu ár eru Iiðin frá kjarnorkuslysinu. Margir starfsmenn versins eru andvígir þeirri ákvörðun stjórnarinn- ar í Ukraínu að loka verinu fyrir aldamót. Slavútytsj, Uppsölum, London. MIKILL mannfjöldi safnaðist sam- an skammt frá Tsjernobyl-verinu í Ukraínu í fyrrinótt til að minnast þeirra þúsunda manna, sem látið hafa lífið af völdum kjarnorkuslyss- ins fyrir 10 árum. Tugþúsundir manna eiga enn um sárt að binda vegna slyssins, ýmist vegna veik- inda eða ástvinamissis, og það hef- ur haft alvarleg áhrif á líf milljóna manna í Ukraínu og Hvíta Rúss- landi. Við athöfnina í fyrrinótt komu börn kertum fyrir við marmara- myndir af fyrstu fórnarlömbum slyssins, þeim 29 mönnum, sem létu lífíð í baráttunni við eldinn, sem kom upp eftir að kjarnakljúfurinn sprakk. Yfírmaður rétttrúnaðar- kirkjunnar í Úkraínu messaði í Volodymyr-kirkjunni í Kíev og kirkjuklukkum var samhringt um allt landið. í viðtali, sem úkraínska útvarpið átti við Leoníd Kútsjma, forseta landsins, sagði hann, að slysið hefði breytt Úkraínu í hamfara- og hörm- ungasvæði. Þjóðin væri að sligast undir byrðunum, sem það hefði lagt henni á herðar, og vissi ekkert hve- nær þeim krossi yrði létt af henni. Útvarpið var einnig með viðtöl við starfsmenn kjarnorkuversins, sem sögðu, að kjarnakljúfarnir tveir, sem nú væru í notkun, væru öruggir en ekki höfðu þeir fyrr sleppt orðinu en tilkynnt var um nýtt geislaslys í Tsjernobyl, á sjálf- um afmælisdegi slyssins fyrir 10 árum. Hafði geislavirkt ryk sloppið út inni í verinu en talsmaður þess gerði lítið úr atburðinum og kenndi um kæruleysi starfsmanna. Hélt að kjarnorkustríð væri hafið Cliff Robinson, starfsmaður kjarnorkuversins í Forsmark ekki langt frá Uppsölum í Sviþjóð, varð fýrsti maðurinn utan Sovétríkjanna til að átta sig á, að eitthvað alvar- legt hafði gerst. Hann var á undan öðrum til vinnu að morgni 26. apríl 1986 og þegar hann gekk í gegnum geislamælingahlið fór allt af stað aldrei þessu vant. Kannaði hann þá sérstaklega hugsanlega mengun á skónum sínum og ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum þegar hann sá mælana ijúka upp úr öllu vaidi. Sýndu þeir geislavirk efni, sem höfðu aldrei áður sést í Forsmark. „Mín fyrsta hugsun var, að styrj- öld væri skollin á og kjarnorku- sprengja hefði sprungið," sagði Robinson í viðtali við Reuters- fréttastofuna. „Ég var í sannleika sagt skelfíngu lostinn en gat auðvit- að ekki útilokað, að eitthvað hefði komið fyrir í Forsmark." Robinson lét yfirmann sinn strax vita af þessu og viðvörunin, sem barst frá Forsmark, var fyrsta vís- bendingin til umheimsins um að eitthvað alvarlegt hefði gerst. Fljótlega varð ljóst, að upptök geislamengunarinnar voru í suð- austri frá Forsmark en samt liðu næstum þrír dagar áður en Moskvu- stjórnin viðurkenndi, að kjarna- kljúfur hefði sprungið í Tsjernobyl. Algert ráðleysi Míkhaíl Gorbatsjov var forseti Sovétríkjanna á þessum tíma og á fréttamannafundi í Moskvu í gær varði hann gerðir sínar og viðbrögð yfirvalda. Sagði hann, að í hnot- skurn hefði þó málið verið það, að Sovétstjórnin hefði verið gjörsam- lega óviðbúin slysi af þessu tagi. „Ef eitthvað var ekki gert var það vegna þess, að við vissum ekki hvað gera skyldi," sagði hann. Gorbatsjov minntist andvöku- nóttanna eftir slysið og sagði, að það væri rétt, sem sumir segðu, að hann hefði þá elst mikið á fáum vikum. Forysta kommúnistaflokks- ins og ríkisstjórnarinnar voru á fundum með sérfræðingum dag og nótt en fréttamenn segja, að lýsing Gorbatsjovs á því, sem fór fram, hafi verið lýsing á algeru ráðleysi. Þótt geislavirkt skýið frá Tsjernobyl breiddist yfir alla Evrópu tók það Sovétstjórnina þijá daga að skýra frá slysinu og Gorbatsjov segir, að hörð viðbrögð á Vestur- löndum hafi komið honum og öðrum ráðamönnum í Sovétríkjunum á óvart. „Sagt er, að við hefðum verið að leyna þvíj sem gerðist, en það er vitleysa. Astæðan er sú, að við vissum varla sjálfír hvað hafði gerst.“ Gorbatsjov sagði, að hann skipti sjálfur lífí sínu í tvö tímabil, fyrir og eftir Tsjernobyl, og sumir sér- fræðingar segja, að slysið hafi greitt fyrir „glasnost", opnuninni, sem Gorbatsjov beitti sér fyrir, og þar með flýtt fyrir hruni Sovétríkj- anna. Ómannlegar byrðar Ástandið í Úkraínu og Hvíta Rússlandi var ekki gott fyrir Tsjernobyl-slysið, heilsugæsla og önnur samfélagsleg þjónusta í lág- marki, en afleiðingar slyssins og hrun Sovétríkjanna ofan á það hafa lagt ómannlegar byrðar á þessi fá- tæku ríki. í Hvíta Rússlandi fer fjórðungur allra tekna ríkisins til að fást við afleiðingar slyssins og Kútsjma, forseti Úkraínu, sagði í gær, að kostnaður ríkisins frá 1991 væri um 200 milljarðar ísl. kr., fímm sinnum meiri en útgjöld til mennta-, menningar-, heilsugæslu- og varn- armála á þessum tíma. í Úkraínu eru 4.299 dauðsföll rakin beint til Tsjernobyl-slyssins en það er aðeins toppurinn á ísjak- anum. Alls tóku um 350.000 manns þátt í hreinsunarstarfinu eftir slysið og 1987, ári síðar, voru 78% þeirra við góða heilsu en aðeins 20% nú. Áætiað er, að 3,5 milljónir Úkraínu- manna hafi beðið tjón á heilsu sinni vegna slyssins, þar af ein milljón barna. Vekur sérstaka athygli mik- il tíðni skjaldkirtilskrabbameins í börnum. Þá hafa vísindamenn í fyrsta sinn fundið erfðabreytingar í börnum, sem fædd eru skammt frá Tsjernobyl. Sjálfsvíg og ofdrykkja Eftir slysið urðu hundruð þús- unda manna að hrökklast frá heim- ilum sínum vegna geislamengunar og Volodymyr Bebeshko, yfirlæknir á geislalækningamiðstöð ríkisins skammt frá Kíev, segir, að sálrænu áhrifin séu jafnvel alvarlegri en geislunin sjálf. Komið hefur í ljós, að frá 1986 hafa 280 starfsmenn í Tsjernobyl, 19% starfsmannafjötdans, stytt sér aldur og margir hafa orðið áfengi og annarri óreglu að bráð. Á þeim svæðum, sem urðu verst úti, er áberandi hvað börn eru taugaveikl- uð og þroskast illa. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sendi Kútsjma, forseta Úkra- ínu, bréf í gær þar sem hann sagði, að fyrirheit hans um loka Tsjerno- byl-verinu um aldamótin væri „göf- ugt markmið" og Borís Jeltsín, for- seti Rússlands, sagði þegar hann minntist fórnarlambanna, að 26. apríl væri ekki aðeins dapur dagur í sögu Rússlands, Úkraínu og Hvíta Rússlands, heldur alls mannkyns. Sparnaðaraðgerðir ríkisstjórnar Þýskalands kynntar Dregið úr ríkisútgj öldum og kostnaði fyrirtækja Bonn. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, kynnti í gær á þingi umbótaá- ætlun sem miðar að því að draga úr útgjöldum hins opinbera og kostn- aði fyrirtækja. Kanslarinn hvatti þjóðina til að fylkja sér að baki ríkis- stjórninni í þessum efnum til að unnt _yrði að rétta þýskt efnahagslíf við. Áætlunin var samþykkt á ríkis- stjórnarfundi á fimmtudag og hefur hún vakið hörð viðbrögð launþega- samtaka og stjórnarandstöðunnar. Viðræður Kohls og hagsmuna- samtaka fóru út um þúfur á þriðju- dagskvöld þegar samtök launþega neituðu að fallast á hugmyndir rík- isstjórnarinnar m.a. um skert laun sjúkra og breytingar á vinnulöggjöf- inni til að auðvelda fyrirtækjum að fækka starfsmönnum. Eftirlaunagreiðslur lækka Nú hyggst ríkisstjórnin knýja þessar umbætur í gegn. Auk þess sem á undan var talið er gert ráð fyrir að hækkun barnabóta verði frestað og að eftirlaunagreiðslur lækki. Þá er að fínna þar fjölmörg atriði til að draga úr rekstrarkostn- Stjóm Helmuts Kohls kanslara hyggst leiða hjá sér mótmæli hags- munasamtaka og knýja fram breytingar til að rétta efnahagslífíð við. aði fyrirtækja, öðrum en launakostn- aði, sem er að sliga atvinnulífíð í Þýskalandi. Áætlun ríkisstjórnarinnar miðar að því að ná fram 50 milljarða marka sparnaði (svarar til um 2.200 millj- arða króna) á næsta ári í því skyni að draga úr halla á rekstri ríkis- sjóðs. Það er skilyrði fyrir því að Þjóðveijar geti orðið aðilar að hinum sameiginlega gjaldmiðli aðildarríkja Evrópusambandsins. Velferðarríkið í hættu Kohl kanslari biðlaði til þjóðarinn- ar um stuðning í bréfí sem birtist í dagblaðinu Bild Zeitung. „Björt framtíð þjóðar vorrar er undir því komin að við berum gæfu til að starfa saman. Fyrir okkur liggja mikilvægar ákvarðanir. Sökum þess að atvinnuleysið er komið á stig sem ekki verður liðið, á ríkisstjórnin ekki annarra kosta völ en að grípa til sértækra aðgerða í því skyni að stuðla að hagvexti og skapa ný störf.“ Kanslarinn kvaðst sannfærður um að þjóðin gerði sér ljósa nauðsyn þess að dregið yrði úr fjárlagahallan- um og kostnaði fyrirtækja. „Ef við bregðumst ekki við nú munu fleiri störf tapast. Þá gætum við ekki leng- ur staðið undir kostnaði við rekstur velferðarríkisins." Heimildarmenn sögðu ákvarðanir ríkisstjórnarinnar m.a. felast í því að veikindalaun yrðu skorin niður um 20% á þeim sex vikum sem fyrir- tækjum er ætlað að standa undir slíkum greiðslum, lögum sam- kvæmt. Eftir þann tíma myndu hin- ir sjúku fá tryggingagreiðslur. Þær verða einnig skornar niður um fimmtung. Reuter Bandarísku ijárlögin samþykkt BILL Clinton, forseti Banda- ríkjanna, undirritaði fjárlög þessa árs í gær, daginn eftir að þingið samþykkti þau. Þar með lauk langvinnustu fjárlagadeilu í sögu Bandaríkjanna og hún varð til þess að margar stofnan- ir höfðu ekkert öruggt rekstr- arfé fyrstu sjö mánuði fjárhags- ársins og tvisvar varð að loka mörgum ríkisstofnunum. Clint- on forseti kvaðst ánægður með niðurstöðuna og hvatti leiðtoga repúblikana til að hefja á ný viðræður um hvernig eyða ætti fjárlagahallanum á næstu sjö árum. Á myndinni eru Bob Dole, Ieiðtogi repúblikana í öldunga- deildinni, og Newt Gingrich, forseti fulltrúadeildarinnar, á leið á blaðamannafund um fjár- lögin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.