Morgunblaðið - 27.04.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 31
AÐSENDAR GREINAR
Orkuútflutningnrinn
Friðrik
Daníelsson
ENN ER kominn á
kreik gamall draugur:
hugmyndin um sæ-
strenginn til að fara
með auðlind landsins,
raforkuna, ónýtta til
Evrópu. Hann er að vísu
ekki svipur hjá sjón hjá
því sem fyrr var, aðeins
5 TWh en var 18 TWh
(5 TeraWatttímar eru
svipaðir og öll sú raf-
prka sem notuð er á
íslandi nú). Það lítur út
fyrir að þeim sem að
málinu standa sé orðið
ljóst að íslendingar eru
ekki ginnkeyptir fyrir
draugum, allra síst stór-
um, kannske auðveldara að lauma
inn fleiri smáum. Svo virðist sem
þeir sem að málinu koma af hálfu
Islendinga séu að draga úr kraftin-
um, vonandi tekst þeim að koma
þessari þjóðhættulegu hugmynd
fyrir kattamef innan skamms svo
menn geti snúið sér að uppbyggj-
andi málum.
Það var fyrir tæplega 2 áratug-
um að ég heyrði fyrst af hugmynd-
inni um að koma orkulindum ís-
lands til Evrópu. Þá komu fram
hugdettur um að senda orkuna á
bylgjum ljósvakans um gervihnött
til Evrópu þar sem stór móttöku-
diskur átti að taka á móti henni.
(Ég held að diskurinn hafi átt áð
vera á Jótlandsheiðum þar sem ís-
lendingar áttu einusinni að byija
nýtt líf eftir misheppnað daður við
frelsið úti á Sögueyjunni.) Þessi
hugmynd hafði stóran kost fram
yfir þá núverandi: hún var skemmti-
leg og gaf tilefni til mikils hugar-
flugs.
En aftur til þess draugs sem
hefur nú rumskað. Til að rifja upp
hvað er á ferðinni athugum eftirfar-
andi:
a) Hugmyndin er að leiða hag-
kvæmustu orku sem fæst á íslandi
til Evrópu gegnum sæstreng. Það
kostar meiri fjármuni en við höfum
áður heyrt um.
b) Vatnsorkulindir íslands eru
mjög takmarkaðar, má gróflega
segja að þær nýtilegu séu alls sam-
anlagt svipaðar og tvö sæmileg
kjarnorkuver en af þeim eru tugir
í nágannalöndum okkar í Evrópu
c) Upprunalegu sæstrengshug-
myndirnar voru að leiða burt allt
að 18TWh, það er nokkurn veginn
alla þá vatnsorku sem hagkvæmt
er að virkja hérlendis til orkunýt-
andi iðnaðar.
d) Sæstrengshugmyndin hefur
nú rýrnað talsvert, virðist vera að
nálgast um 5 TWh.
e) Engin mælanleg frambúðar
atvinnusköpun hérlendis hlýst af
að selja orku með þessum hætti.
f) Orkan í ám og jörðu er stærsta
og mikilvægasta vannýtta náttúru-
auðlind íslands og eina náttúruauð-
lindin sem getur skapað atvinnu
þeim vaxandi kynslóðum íslendinga
sem á eftir okkur koma.
g) Rétt nýttir, til orkunýtandi
iðnaðar, gætu þessir litlu 5 TWh
aukið útflutningstekjur landsins um
50%.
h) Þeir 18 TWh sem hugur þeirra
sem fyrst vöktu upp þennan draug
virðist standa endanlega til að koma
burt, gætu tvö-og-hálf-faldað út-
flutningstekjur þjóðarinnar.
i) Tekjur af útflutningi þessa
rjóma íslenskrar orku gegnum sæ-
streng til ineginlands Evrópu (um
Skotland) yrðu litlar, kostnaður við
sæstrengslögnina tröllaukinn.
j) Uinhverfisbreytingar af völd-
um virkjana gera að verkum, að
Islendingar ganga á þann forða af
óspilltri og upprunalegri náttúru
sem landið á, eyða orkulindunum
til útflutnings hráorku gegn litlum
tekjum og ganga þannig á mögu-
leikann á að virkja hér síðar meir,
en gætu aftur á móti þurft í staðinn
að virkja annað, síður hagkvæmt
og meira umhverfisspillandi.
Vegna umhverfisröskunar og
áhættu, þó lítil sé, má telja líklegt
að hagkvæmustu
vatnsföllin (N-A
Vatnajökulsár) verði
ekki virkjuð nema
þjóðarnauðsyn eða
hennar ígildi komi til.
Vegna þess hve litlar
tekjur og atvinna
skapast af raforkuút-
flutningi um sæstreng
má telja líklegt að af
því geti ekki orðið
meðan landinu er
stjórnað af íslending-
um sjálfum.
Spurningar vakna
nú sem fyrr um hvaða
skammsýni fær menn
til að hugleiða raf-
orkuútflutning um sæstreng. Eitt
atriði sem nefnt hefur verið er að
kostir séu því fylgjandi að tengjast
dreifineti Evrópu. Lítum á þá: Orku-
framleiðandinn hér kemst í sam-
band við stóran orkuhungraðan
markað sem borgar hátt verð. En
þegar búið er að borga kostnaðinum
við flutninginn verður verðið sem
fæst ekki orðið sérlega aðlaðandi
Hvaða skammsýni fær
menn til að hugleiða,
spyr Friðrik Daníels-
son, raforkuútflutning
um sæstreng?
miðað við fyrri áætlanir sem sést
hafa.
Lítum á annað sem tínt hefur
verið til:
Íslenskir orkunotendur hefðu að-
gang að orkufamleiðendum Evrópu.
Það er sannast að segja mjög erfitt
að sjá kostina við þetta. Bæði er
orkan dýrari í framleiðslu niðri í
Evrópu og ekki eftirsóknarverð af
þeim sökum. Einhver orkufram-
leiðslufyrirtæki í Evrópu gætu tekið
uppá að vilja selja einhveijum hér
rafmagn, t.d. í álagstoppana í ein-
hveijum sértilvikum (líklega mest
í auglýsingaskyni!), en ekki eru for-
sendur til að það yrði til frambúðar.
Sumir virðast halda að þetta
skapaði visst aðhald fyrir innlenda
framleiðendur og dreifendur. Það
er á misskilningi byggt vegna þess
hversu hár orkuframleiðslukostnað-
urinn er niðri í Evrópu og hversu
dýr flutningurinn væntanlegi gegn-
um sæstreng hingað norður í
Dumbshaf er. Aðhaldinu hér heima
væri hægt að koma á með öðrum
hætti sem meira er til frambúðar
fallinn, með því að auka samkeppni
á markaðnum hér meðal innlendu
framleiðendanna og dreifendanna.
Er að vænta einhverra tilfella
sem gerðu orku frá Evrópu nauð-
synlega íslendingum? Helst koma
til greina meiriháttar náttúruham-
farir þar sem virkjunarlónin kar-
spryngju og héldu ekki vatni en
háhitasvæðin eyðileggðust. Orku-
ver verða væntanlega í a.m.k 3
landshlutum þannig að ekki er lík-
legt að alger eyðilegging yrði, það
nauðsynlegasta gæti gengið meðan
viðgerðir fara fram. Aftur á móti
er líklegt að flutningslínur, þar með
taldir strengir, gætu skemmst.
Orkunýtandi iðnaðurinn hér gæti
ekki keypt orkuna frá Evrópu, hún
er einfaldlega of dýr.
Lítum að lokum á grófan saman-
burð á tekjuhliðinni: 5 TWh seldar
gegnum sæstreng gætu mögulega
aukið útflutningstekjur þjóðarbús-
ins um nálægt 5% að nafninu til,
það er tekjur til sjálfs virkjunarfyr-
irtækisins, sem ætti virkjanirnar
hér, en hugmyndin var að það yrði
í erlendri eign þannig að þær tekjur
kæmu að litlu leyti hingað. En þess-
ir 5 TWh væru nægjanlegir fyrir
þau stóriðjuuppbyggingaráform
sem eru á döfinni: magnesíumverk-
smiðjuna, nýtt stórálver og Járn-
blendistækkunina. Auk þessa er
ÍSAL að stækka og bjartsýni ríkj-
andi um að ÍSAL muni halda áfram
að vaxa og dafna hér og nýta meiri
orku.
Þessi uppbyggingaráform munu
veita á annað þúsund manns fram-
tíðaratvinnu og þar með allt að
tugþúsunda manna byggð viður-
væri og, ekki að gleyma, skapa
ýmsa atvinnuuppbyggingarmögu-
leika í úrvinnslugreinum. Þau
mundu þar að auki veita Lands-
virkjun, sem er íslenskt fyrirtæki,
sömu eða svipaðar tekjur og út-
flutningurinn um sæstrenginn gæti
gert en með dreifðari áhættu og
framkvæmdakostnaði. Og útflutn-
ingstekjur landsins gætu mögulega
aukist um 50% en ekki 5%. Ungir
íslendingar gætu þannig fengið
frambúðarstarfa heima hjá sér.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
, Mazda
hefur yinninginn!
Berum saman nokkrar gerðir 4ra dyra fólksbíla af millistærð:
TEGUND MA2DA323 Toyota Corolia NissanAlmera MMC Lancer Suzuki Baleno OpelAstra
LENGD 434,5 427.0 432.0 429.5 419.5 424.0
BREIDD 169.5 168.5 169.0 169.0 169.0 169.6
260.5 246.5 253.5 250.0 248.0 251.7
(Öll mál eru í cm. og fengin úr bæklingum bifreiðaumboðanna).
Hjólhaf segir mikið um lengd farþegarýmis og fótarými.
Eins og sést er MAZDA 323 stærstur þessara bíla.
Um gæðin þarf ekki að fjölyrða, en komdu, mátaðu og taktu í MAZDA 323,
því stuttur reynsluakstur segir meira en mörg orð!
MAZDA 323 sedan LXi kostar nú aðeins kr. 1.346.ooo.
OPIÐ FRÁ KL. 9-18, LAliGARDAGA 12-16
óbilandi traust!
SKÚLAGÖTU 59 - SIMI 561 9550