Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 1
98. TBL. 84. ARG.
Hitamet
slegið
1995
Genf. Reuter.
ÁRIÐ 1995 var heitasta árið
frá því að marktækar mæl-
ingar hófust, samkvæmt
skýrslu sem Alþjóðaveður-
fræðistofnunin í Genf gaf út
í gær.
Stofnunin, sem rekin er
af Sameinuðu þjóðunum,
safnar upplýsingum frá tug-
um veðurathugunarstöðva
um allan heim. Ekki hefur
mælst hærri meðalhiti frá
því mælingar hófust 1861.
Nokkrar undantekningar
eru þó tilgreindar í skýrsl-
unni. Snjómagn var í meðal-
lagi eða yfir meðallagi á
norðurhveli jarðar og á
Grænlandi og hluta Kyrra-
hafs mældist hitastig lægra
en í meðalári.
Peter Scholfield, yfirmað-
ur Alþjóðaveðurfræðistofn-
unarinnar, sagði ónákvæmni
í mælingum frá síðustu öld,
þegar loftslag hlýnaði einnig,
gera að verkum að erfitt
væri að meta nákvæmlega
hversu miklar sveiflur væru
eðlilegar. Hann sagði þó eng-
an vafa leika á því að loftslag
færi hlýnandi í heiminum en
erfitt væri að meta að hve
miklu leyti mætti rekja það
til náttúrulegra þátta og að
hversu miklu leyti breyting-
arnar væru af manna völdum.
Vopnahlé
rofið í
Suður-
Líbanon
Magayoun. Reuter.
SKÆRULIÐAR vörpuðu í gær
sprengjum á hernaðarmannvirki í
Suður-Líbanon og er það fyrsta árás-
in sem gerð er frá því að_ ísraelar
létu af árásum á Líbanon. Árásirnar
voru gerðar á Sojoud og al-Ghizlan
stöðvar Suður-líbanska hersins fyrir
norðan Marjayoun. Þeim var svarað
en engar fréttir hafa borist um
mannfall.
Hizbollah neitar ábyrgð
Stöðvarnar eru á fjallasvæði sem
Hizbollah-skæruliðar hafa margoft
skotið frá þegar þeir hafa gert árás-
ir á svæði ísraela. Talsmaður Hiz-
bollah kvaðst hins vegar í gær ekki
hafa neina vitneskju um að samtök-
in hefðu staðið að árásum.
Vopnahléð sem komið var á fyrir
tilstilli Bandaríkjamanna 27. apríi
sl. og batt endi á leifturárásir ísra-
ela kveður ekki á um að skæruliðar
verði að hætta árásum sínum á ísra-
eli og Suður-líbanska herinn. Yfir
200 manns létust í leifturárásunum,
flestir óbreyttir borgarar. Aðgerðir
Israela komu hins vegar ekki í veg
fyrir árásir Hizbollah á norðurhluta
ísraels. Engir ísraelar hafa látist í
þeim árásunum.
88 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jeltsín fer lík-
lega til Grosní
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA fréttastofan Interfax
skýrði frá því í gær að Borís Jeltsín,
forseti Rússlands, færi líklega til
Grosní, höfuðstaðar Tsjetsjníju, í
maímánuði. Það yrði fyrsta ferð for-
setans til héraðsins frá því hann
sendi hersveitir þangað til að kveða
niður uppreisn aðskilnaðarsinna fyr-
ir 16 mánuðum.
Interfax hafði eftir Doku
Zavgajev, sem fer fyrir stjórninni í
Grosní, að Jeltsín hefði rætt þá hug-
mynd að hann færi til Grosní í maí
á fundi með embættismönnum í
Moskvu.
Jeltsín hefur sagt að hann verði
að binda enda á átökin í Tsjetsjníju,
sem hafa kostað 30.000 manns lífið,
til að auka sigurlíkur sínar í forseta-
kosningunum 16. júní. Haft var eft-
ir aðstoðarmönnum hans nýlega að
forsetinn gæti styrkt stöðu sína fyr-
ir kosningarnar með því að fara til
Tsjetsjníju.
Oryggisviðbúnaður
aukinn
Jéltsín ræddi í gær við æðstu yfir-
menn öryggissveita Rússlands og
fyrirskipaði þeim að herða öryggis-
viðbúnaðinn í Moskvu og fleiri stöð-
um í Rússlandi vegna hugsanlegra
árása Tsjetsjena í dag, á baráttudegi
verkalýðsins. Talsmaður Jeltsíns
sagði forsetann óttast að tsjetsjensk-
ir „glæpamenn" kynnu að reyna að
hefna Dzhokhars Dúdajevs, leiðtoga
aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníju, sem
beið bana í flugskeytaárás Rússa
21. apríl.
■ Tæpan helming/21
Útflutningsbanni aflétt?
Lúxemborg. Reuter.
RAÐHERRAR landbúnaðarmála
innan Evrópusambandsins gáfu í
gær, að loknum tveggja daga fundi,
í skyn að þeir væru reiðubúnir að
aflétta útflutningsbanni á breskar
nautgripaafurðir í áföngum.
Embættismaður sagði ráðherrana
hafa verið sammála um að til greina
kæmi að aflétta banninu en að það
krefðist þess að Bretar gripu til víð-
tækari ráðstafanir til að útrýma
kúariðu.
„Bretar eru á réttri leið til að fá
banninu aflétt," sagði Ivan Yates,
landbúnaðaráðherra írlands, en tók
jafnframt fram að það myndi ekki
gerast með hótunum um málsókn
og pólitískum yfirlýsingum.
Bannið var sett á þann 27. mars
í kjölfar þess að breska stjórnin
greindi frá því að ekki væri hægt
að útiloka að kúariða í nautgripum
tengdist heilarýrnunarsjúkdómnum
Creutzfeld-Jakob í mönnum.
Reuter
VERKAMENN unnu í gær hörðum höndum við að skreyta Rauða
torgið í Moskvu vegna hátíðarhalda í dag 1. maí og 9. maí þegar
minnst er loka síðari heimsstyrjaldarinnar.
Reuter
ÞÚSUNDIR manna fylgdu í gær þeim 102 til grafar sem létu lífið
í árásum ísraela á Qana-flóttamannabúðirnar 18. apríl sl.
Varabensínforði seldur
Olíuverð lækkar
London. Reuter.
OLÍUVERÐ snarlækkaði í gær í
kjölfar þeirrar ákvörðunar Bills
Clintons forseta að hefla sölu á
varabensínforða Bandaríkjanna til
þess að vega gegn verðhækkun á
bensíni að undanförnu.
Fatið af viðmiðunarolíu úr Norð-
ursjó til afhendingar í júní seldist á
19 dollara í gær. Verðið var 19,04
dollarar við lokun og var fatið því
83 sentum ódýrara en deginum áður.
Verð á bensíni á olíumarkaði í
New York lækkaði í gær en það
hafði hækkað um 50% frá í febrúar.
Sérfræðingum þykir líklegt, að á
samningafundum í næstu viku tak-
ist samkomulag milli fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna og stjórnvalda í
írak um takmarkaðan olíuútflutn-
ing frá írak til að fjármagna kaup
á lyfjum, matvælum og öðrum
nauðsynjum.
Við það ykist framboð á heims-
markaði nær strax um 700.000
tunnur á dag og hefði talsverð áhrif
til lækkunar olíuverðs.
Ekki náðist samkomulag um fjarskiptasamning
Viðræðum haldið áfram
Genf. Reuter.
SAMKOMULAG náðist í gær um
að halda áfram viðræðum um sam-
komulag um nýja skipan ijarskipta-
mála í heiminum til 15. febrúar á
næsta ári. Upprunalegur frestur til
að ná samkomulagi rann út á mið-
nætti í gær en Bandaríkjastjórn
sætti sig ekki við þann árangur, sem
þá hafði náðst.
Þegar þessi afstaða Bandaríkja-
stjórnar lá fyrir áttu viðskiptafulltrú-
ar 53 ríkja fund í höfuðstöðvum
Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) og lagði Evrópusambandið
(ESB) þar til að fresturinn yrði fram-
lengdur til næsta árs. Áfram er þó
stefnt að því að samkomulagið taki
gildi þann 1. janúar 1998.
Bandaríkin
gagnrýnd
Leon Brittan, sem fer með við-
skiptamái í framkvæmdastjórn ESB,
sagði sambandið hafa verið reiðu-
búið að ganga frá samkomulaginu
í gær og gaf í skyn að yfirvofandi
forsetakosningar í Bandaríkjunum
væru ástæða þess, að Bandaríkja-
menn hefðu verið tregir til að gera
slíkt hið sama.
Brittan sagði Evrópusambandið
hafa samþykkt að framlengja við-
ræðurnar þar sem að Bandaríkja-
stjórn taldi tilboð annarra ríkja, aðal-
lega ríkja í Asíu, ganga of skammt.
Nefndu Bandaríkjamenn sérstak-
lega að Malaysía og Indónesía hefðu
engum tilboðum skilað. „Við hörm-
um og fordæmum þá niðurstöðu sem
Bandaríkjamenn komust að,“ sagði
Brittan og fulltrúar margra annarra
ríkja tóku í sama streng.
Reuter
GEOFFREY Lang, viðskipta-
fulltrúi Bandaríkjanna, ræðir
við fréttamenn eftir fundinn.