Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ i MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ1996 41 AÐSENDAR GREINAR FRÁ Úlfljótsvatni. eldrabókina Árin sem koma á óvart afhenta sem gjöf frá Vímulausri æsku á fyrri fundinum. Því miður var hvorugur fundurinn nógu vel sóttur. En að sögn þeirra sem mættu fannst þeim fundirnir góðir og gagnlegir. Við álítum samvinnu við foreldra mjög mikilvæga. Nauðsynlegt er að foreldrar kynnist þessu námsefni til að geta tekið þátt í heimavinnu nemenda og til að kynnast þeim markmiðum sem við setjum okkur með þessari kennslu, því það er jú vitað má! að vímuvarnir hefjast heima fyrir. Einnig gerir þetta for- eldrum ídeift að koma saman, kynn- ast og ræða uppeldi barnanna. í framhaldi af þessum fundum hafa foreldrar t.d. tekið ákvarðanir um vasapeninga, svefntíma o.fl. Höfundai• eru kennarar í 6. bekk Foldaskóla. lífeyrisréttindi og tilverugrundvöll launþegahreyfinga og þar með kjarabaráttu. þversögn þarf að komast fyrir og sparka henni burt úr öllum samn- ingum. Sundurlyndi Sameining Veika stöðu íslenskrar vinstri- hreyfingar og launabaráttu má skýra með einu orði: sundurlyndi. Upprunann má rekja til stofnunar Alþýðubandalagsins og stjórnmála- arms þess Alþýðuflokksins. Flokk- urinn hefur því miður margklofnað síðan og með síendurteknu sam- starfi við Sjálfstæðisflokkinn hefur hann færst of langt til hægri til að geta verið sá málsvari launafólks sem honum var ætlað að vera. Það sem eitt sinn var heildstæður flokk- ur hefur verið að greinast í alls konar brotabrot allt fram á þennan dag. Það mega heita undarleg ör- lög, að vinstri menn, sem eiga allt sitt undir samstöðu og samheldni, skuli hér á landi hafa lent í sífelld- um tvístringi. Að liluta til má skýra það svo, að stjórnmálaöflin og launahreyf- ingin hafi orðið fyrir þeirri ógæfu (sem er engan veginn sérstakt fyr- ir ísland), að hugsjónalitlir tæki- færissinnar hafa annað slagið komist þar í forystu með fyrirsjá- anlegum afleiðingum, því að sá sem hefur sjálfan sig að hugsjón getur ekki þjónað öðrum. En til þess að þjóna hugsjón þarf óeigin- gjarna fórnfýsi. Það eru dapurleg örlög að vera persónulegur smá- kóngur undir yfirskini jafnréttis og bræðralags. Sá sem berst fyrir öðrum, verður að deila kjörum þeirra sem hann berst fyrir. Þegar hann er orðinn forréttindamaður og hafinn yfir samstarfshóp sinn, er hann kannski fær um að skilja, en ekki að finna á sjálfum sér þörf þeirra, sem hann á að þjóna. Annar vandi er fólginn í því að láta andstæðinginn ekki skammta sér forsendur fyrir sjálfri barátt- unni. Réttlætismál verður aldrei unnið með hagfræðilegum útreikn- ingum. Þeir eru í eðli sínu fjarri áþreifanlegu mannlífi, en stjórna samt að miklu leyti lífi okkar. Þá Ef til vill á hinn sundurleiti hóp- ur vinstri manna á Islandi sér þó eina góða von. Og það skyldi þó ekki vera að hún kæmi úr þeirri átt er síst mætti ætla. Kannski tekst ríkisstjórninni með ofsóknum sínum á hendur launafólki það sem því hefur ekki tekist sjálfu; að sam- eina þá sem eiga samstöðu. Mis- munandi launahreyfingar hafa snúist hver gegn annarri við óblandinn fögnuð þeirra, sem vilja veika og sundurlynda launþega- hreyfingu. Nú virðist von til þess að þessar hreyfingar neyðist til þess að standa saman gegn sam- eiginlegum óvini. Og vonandi getur það orðið til þess að kalla á nauð- syn stjórnmálalegrar sameiningar. Sundurlyndi íslenskra jafnaðar- manna (sem eru í öllum stjórn- málaflokkum landsins) hefur verið mesta ógæfa íslenskra stjórnmála. í raun er þróunin orðin sú, að flokkakerfið íslenska er orðið með öllu úrelt og krefst algerrar upp- stokkunar. En til þess að það megi takast verða smákóngarnir að víkja fyrir nýrri forystu, sem hefur það siðferðilega þrek, sem eitt getur axlað ábyrgð sameiningar. Von- andi verður unnt að finna slíka forystu. Höfundur cr prófessor í íslensk- um bókmenntum við Háskóla íslands. I jþaesi flísar - >’ ^TT jH r íi^r > TT Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567*4844 Morgunverðariimdur I j ármálaráðherra •Ilvað eru bretar að gera til að draga úr ríkisútgjöldum og bæta rekstur hins opinbera? •llvernig hefur ríkisreksturinn og fyrirkomulag stjórnsýslunnar áhrif á samkeppnisstöðu breskra fyrirtækja á heimsmarkaði? Þessum spumingum svarar Lesley Emin, yfirmaður stefnumótunar um nýskipan í ríkisrekstri í breska forsætisráðuneytinu, á morgtmverðarfundi fjármálaráðherra. Leslay Emin Friðrik Sophusson Fnridurinn verður haldinn ú Kornhlöðulóftinu jostudaginn 3. rnaí kl. 08:15 - 09:45 Allir áhugarnenn velkornnir Nýskipan í ríkisrekstri • Einföldun • Ábyrgð • Árangur VORVERÐ KR. 5980,- 2stk Buxur Kringlan s: 581-1944] «■*$ 2,3,4 MAÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.