Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 19%
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
NEMENDUR í Ölduselsskóla fóru í „ferð út í bláinn“ í gær og
nutu blíðunnar úti í guðsgrænni náttúrunni.
Morgunblaðið/Ásdís
UNGLINGARNIR reyndu með sér í ýmsum leikjum eins og tram-
bólínstökki á Kringlutorginu.
Grunnskólanemar fagna
próflokum í blíðu
Mörg hundruð grunn-
skólanemendur söfnuð-
ust saman við Kringl-
una í gær en að sögn
lögreglu og starfs-
manna Kringlunnar fór
samkoman að mestu
fram með spekt
GRUNNSKÓLANEMENDUR á höf-
uðborgarsvæðinu fögnuðu próflokum
í gær í miklu blíðviðri. Straumur
unglinga lá í verslunarmiðstöðina
Kringluna sem er yelþekktur sam-
komustaður þeirra. Á Kringlutorginu
höfðu starfsmenn Iþrótta- og tóm-
stundaráðs komið upp leiktækjum
og útisalernum. Að sögn lögreglu fór
allt fram með friði og spekt og ungl-
ingarnir virtust í besta skapi. Tíundu
bekkingar sem luku prófum í gær
eru yfir 1.000 talsins í Reykjavík.
Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
sagði að lögreglan hefði ekki áhyggj-
ur af því að grunnskólanemendur
söfnuðust saman og gerðu sér glaðan
dag. í undantekningartilfellum, svo
sem ef unnin væru skemmdarverk
eða ofbeldisverk, yrði lögreglan þó
að sjálfsögðu að grípa inn í. Ómar
Smári sagði að alltaf á þessum tima
söfnuðust unglingarnir saman á
Kringlutorginu, yfirleitt án nokkurra
vandræða. Lögreglan hafði ekki haft
fréttir af ölvun á meðal krakkanna.
Dagskrá Tónabæjar aflýst
Félagsmiðstöðin í Tónabæ aflýsti
í gær fyrirhuguðum ferðum í Bláa
lónið og til Viðeyjar ásamt dansleik
í Tónabæ vegna ónógrar þátttöku.
Skúli Skúlason, starfsmaður
íþrótta- og tómstundaráðs, sagði að
engin sérstök dagskrá væri á vegum
ráðsins á þessum degi. Samstarf
hefði hins vegar tekist milli félags-
miðstöðvarinnar í Tónabæ, Hlíðar-
skóla og Æfingaskóla Kennarahá-
skólans um þessa dagskrá. Tölu-
verður fjöldi hafði skráð sig í þessa
dagskrá en Skúli sagði að vegna
neikvæðrar fjölmiðlaumræðu hefði
áhuginn dvínað hjá fjölmörgum. Um
tveir tugir unglinga höfðu skráð sig
í dagskrána.
„Menn eru jafnvel á því að þessi
mikla umræða leiði til þess að upp
komi kjöraðstæður fyrir útihátíð í
miðbænum í kvöld [gærkvöld]. Þeir
sem við höfum talað við hafa bent á
að það sé mun meiri dagdrykkja
núna en áður. Við hefðum viljað sjá
fréttaflutninginn meira á þeim nótum
að bent hefði verið á hvað foreldrar
geta gert. Það hefur ekki heldur
komið fram að allar félagsmiðstöðvar
eru opnar í kvöld. Við erum með
starfsmenn á vettvangi, úti í hverfun-
um og eins í miðbænum. Stóru mis-
Morgunblaðið/Ásdís
FRIÐUR, kærleikur og Hfsþróttur þeirra sem landið erfa.
Morgunblaðið/Sverrir
MYNDATÖKUMENN sænskrar sjónvarpsstöðvar voru staddir
í Kringlunni í gær og festu á filmu íslenska æsku.
tökin eru þau að ljúka samræmdu
prófum daginn fyrir frídag. Fyrir
fjórum eða fimm árum var þessu
breytt þannig að samræmdum próf-
um lauk á mánudegi og síðan var
vinnudagur dagi'nn eftir. Með því
tókst að slá á þann mikla spenning
sem var í krökkunum eftir sam-
ræmdu prófin," sagði Skúli.
SAMFOK, samtök foreldra grunn-
skólabama, voru með sérstakt átak
í gær og voru foreldrar mun meira á
ferðinni í miðbænurn og annars stað-
ar og fylgdust með bömunum. Sam-
starf var milli forvarnardeildar lög-
reglunnar og SAMFOKS.
Ferðalag hjá Ölduselsskóla
Nemendur í Ölduselsskóla fóru í
„ferðalag út í bláinn" í gær og dvöld-
ust þar yfir nótt. Bryndís H. Bjartm-
arsdóttir, aðstoðarskólastjóri, segir
að Ölduselsskóli hafi skipulagt ferðir
af þessu tagi allt frá árinu 1990. „í
samvinnu við foreldrafélagið höfum
við boðið tíundu bekkingum í ferða-
lag í einn sólarhring að loknu síðasta
samræmda prófi. Foreldrafélagið
hefur greitt kostnaðinn að mestu
leyti þannig að ferðin er nemendum
að kostnaðarlausu. Við ákveðum
áfangastaðinn en látum hann ekki
uppi við krakkana fyrr en við erum
lögð af stað. Það gerum við vegna
þess að við viljum varast það að
þeir sem ekkert erindi eiga í svona
ferðalag komist á staðinn eftir á.
Skilyrðið fyrir þátttöku í ferðinni er
að neyta ekki áfengis og vímuefna.
Þátttaka hefur verið misjöfn frá ári
til árs en jafnan þó mjög góð, eða
allt upp í 95%. í fyrra vantaði tvo
eða þijá úr hópnum en núna vantar
þó fleiri," sagði Bryndís.
I ferðinni er grillaður matur og
farið í leiki fram á nótt. Bryndís
sagði að það væri vandamál að
fimmtán ára krakkar hópuðust sam-
an eftir próf af þessu tagi tií þess
að drekka og vera með óspektir. Til
þess að stemma stigu við þessu hefði
verið ákveðið að fara í þessar ferðir.
„Mér hefur þó fundist umræðan
óþarflega hávær því ég tel að hún
virki ákveðinn hóp unglinga í óspekt-
um og ölvun," sagði Bryndís.
Engin vandræði í Kringlunni
Magnús Pálsson, sem starfar á
skrifstofu Kringlunnar, sagði að
búist hefði verið við meiri fjölda ungl-
inga yfir daginn en raun bar vitni.
Hann sagði að engin vandræði hefði
orðið þrátt fyrir að töluverður fjöldi
unglinga væri einnig inni í húsinu.
Aðspurður um hvers vegna ungling-
arnir sæktu svo mjög í Kringluna
sagði Magnús að því mætti líkja við
það að laxar sæktu í sömu á og þeir
alast upp í sem seiði. Unglingarnir
komi í Kringluna á hveijum degi og
hittist seinnihluta dags. Kringlan sé
orðinn samkomustaður unglinga.
„Það er hins vegar ekki sjáanleg
ölvun á þeim núna enda tækjum við
þá strax í taumana. Við höfum ekki
meinað neinum aðgang að húsinu en
það gildir eins og hefur gilt frá opnun
hússins að ölvun innandyra er ekki
leyfð. Ef við sjáum unglinga sem eru
áberandi ölvaðir og með slátt þá er
þeim vísað út,“ sagði Magnús. Hann
átti þó von á því að meira bæri á
ölvun þegar liði á daginn og kvöldið.
Framhaldsskóla-
frumvarpið úr nefnd
Þaká
innritun-
argjöld?
MEIRIHLUTI menntamálanefndar
Alþingis leggur til að innritunargjald
í framhaldsskólum verði ekki hærra
en 6.000 krónur og efnisgjald vegna
verklegrar kennslu verði ekki hærra
en 25 þúsund krónur á ári.
Þetta er ein af breytingartillögum
fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks í menntamálanefnd við
frumvarp um framhaldsskóla sem
afgreitt var frá nefndinni í vikunni.
Upphaflega var í frumvarpinu aðeins
sagt að skólanefndir skuli ákveða
upphæðir þessara gjalda.
I greinargerð nefndarmeirihlut-
ans er ítrekað mikilvægi þess að við
endanlega ákvörðun upphæðar þess-
ara gjalda beri að hafa hliðsjón af
því meginmarkmiði að þau séu ekki
hærri en sá kostnaður sem hlýst af
af því að veita umrædda þjónustu.
Raunverulegur kostnaður
Lagt er til að heitið innritunar-
gjald nái til þeirra gjalda sem hingað
til hafa verið nefnd pappírsgjöld,
efnisgjöld eða staðfestingargjöld og
er gert ráð fyrir að skólar noti þau
til að greiða kostnað af ýmiss konar
þjónustu við nemendur, svo sem út-
gáfu námsvísis, gerð stundaskráa,
tilkynninga, dreifibréfa og annarra
pappírsgagna sem dreift er innan
skólans.
Miðað er við að skólanefndir
ákveði upphæð innritunargjalds, upp
að 6.000 krónum og taki mið af
raunverulegum kostnaði. Þá verði
efnisgjald innheimt af nemendum
sem njóta verklegrar kennslu og á
upphæðin að miðast við þriðjung af
raunverulegum kostnaði vegna efnis
sem skóli lætur nemendum í té, upp
að 25 þúsund krónum.
Tekið er fram að ætlunin er að
gjöld til nemendafélaga séu umfram
þær 6 þúsund krónur, sem á að lög-
binda sem innritunargjald.
--------------
Borgarráð
Skattabreyt-
ingum verði
frestað
BORGARRÁÐ leggur til að af-
greiðslu stjórnarfrumvarps um
breytingu á lögum um tekju- og
eignaskatt verði frestað. Hugmyndín
um tvískipt tekjuskattskerfi sem
frumvarpið byggist á skapi meiri
vandamál en hún leysi.
I bókun borgarráðs segir enn-
fremur að sveitarfélögin, fyrirtæki
og stofnanir, sem þau reka og bera
ótakmarkaða ábyrgð á, séu undan-
þegin skattskyldu samkvæmt gild-
andi lögum. Óll rök hnígi að því að
hið sama eigi að gilda gagnvart
skattlagningu fjármagnstekna. Þá
verði ekki við það unað, að útsvars-
stofninn verði skertur frekar en orð-
ið er.
í umsögn Önnu Skúladóttir og
Eggerts Jónssonar borgarhagfræð-
ings, sem lögð var fram í borgar-
ráði, kemur fram að yrði stjórnar-
frumvarpið óbreytt að lögum kynni
tjón sveitarfélaganna að nema
minnst 300 milljónum auk óvissu
vegna ófyrirsjáanlegra áhrifa á út-
svarsstofn. I frumvarpi flokksform-
annanna sé hins vegar gert ráð fyr-
ir að útsvarstekjur hækki um 200
millj. í upphafi og síðar um 340-425
milljónir á ári.
Þá segir að sýnt þyki að tap
Reykjavíkurborgar, borgarsjóðs og
fyrirtækja borgarinnar nemi minnst
170 milljónum.
i
)
I