Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hitafundur hjá BSRB um vinnumarkaðsfrumvörp ríkisstjórnarinnar Enn áformað að af- greiða frumvörpin á yfirstandandi þingi Morgunblaðið/Kristinn FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráðherra, Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, og Páll Pétursson, félagsmála- ráðherra, á málþingi BSRB um réttindamál opinberra starfsmanna í Félagsmiðstöð bandalagsins í gær. FRUMVÖRP til laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og um stéttarfélög og vinnudeilur munu verða afgreidd á Alþingi í vor, þrátt fyrir andmæli verkalýðshreyfingar- innar, að því er kom fram í máli þeirra Páls Péturssonar félagsmála- ráðherra og Friðriks Sophussonar fjármálráðhen-a á málstofu BSRB um þessi mál í gær. Sagðist Páll ekki kippa sér upp við hótanir um verkföll í tengslum við þessi mál. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, lýsti því hins vegar yfir að launafólk myndi minnast þess í kjarasamningum í haust, ef ríkis- stjórnin léti verða af því að „þröngva þessum frumvörpum í gegnum þingið nú í vor.“ Benedikt Davíðsson, formaður ASI, tók í svipaðan streng. Fjármálaráðherra fór í máli sínu yfír helstu efnisatriði frumvarpsins um réttindi og skyldur opinberra starfsmannna og þær breytingar sem á því hefðu orðið eftir að efna- hags- og viðskiptanefnd hafði af- greitt það frá sér í gær. Þessar breytingar fælu það í sér að ekki væri hróflað við þeirri reglu að skylda bæri til að áminna starfs- mann áður <3n honum væri sagt upp störfum. „í öðru lagi munu lög- reglumenn, fangaverðir og tollverð- ir halda samningsréttinum. í þriðja Iagi er uppsagnarfrestur 3 mánuðir að öðru ósömdu og í fjórða lagi verður biðlaunarétturinn óbreyttur að lengd hjá þeim sem þegar starfa hjá ríkinu,“ sagði Friðrik. Lagði hann hins vegar á það áherslu að ekki væri verið að hrófla á neinn hátt við þeim réttindum opinberra starfsmanna sem þeim væru tryggð í kjarasamningum. Afstaða ASÍ óbreytt Benedikt Davíðsson sagðist ótt- ast það að ef ríkisstjórnin héldi áfram á sömu braut og þvingaði þessi frumvörp í gegnum Alþingi gegn vilja allrar verkalýðshreyfíng- arinnar og um leið þorra almenn- ings í landinu, þá yrði málum kom- ið í mikið óefni, ekki aðeins fyrir verkalýðshreyfinguna, heldur fyrir allt efnahagslífið. ítrekaði Benedikt á fundinum þá afstöðu sem miðstjórn ASÍ hefði sett fram í þessum málum, en hún væri andvíg því að þessi frumvörp yrðu að lögum á yfírstandandi þingi. Sagði hann frumvarp félags- málaráðherra algerlega óboðlegt sem myndi í mörgum tilfellum frek- ar skapa vandamál en leysa. Félagsmálaráðherra ítrekaði á fundinum yfirlýsingar sínar um að frumvarp um stéttarfélög og vinnu- deilur yrði ekki dregið til baka. Það yrði samþykkt á Alþingi í vor, enda hefðu stjórnarflokkarnir ákveðið að svo yrði. Hann sagðist hins vegar vera tilbúinn til þess að hlusta á efnisleg rök um efni þess. „Ég vonaðist eftir því að það yrði sæmileg sátt um þetta frum- varp. Því miður varð það nú ekki,“ sagði Páll. Bætti hann því við að straumhvörf hefðu orðið í þessu máli þegar það hafi komið fyrir formenn landssambanda ASÍ þar sem sumir formenn hafi ekki viljað sjá þetta frumvarp og í kjölfarið hafí ASÍ slitið viðræðum við ráðu- neytið. Sagðist Páll hafa beðið í-2 mánuði eftir því að viðræður ASÍ og vinnuveitenda um málið skiluðu (jinhverjum árangri, en þær hafi orðið árangurslausar. „í fyrsta lagi hefðu launamenn aldrei getað komið sér saman um það hvemig þeir ætluðu að hafa þetta. Því ef Benedikt hefði slegið einhveiju fram, þá hefði Bjöm Grét- ar komið eins og skot og sagt að þetta væri ómögulegt." Þessi um- mæli fóru hins vegar eitthvað fyrir bijóstið á Birni Grétari Sveinssyni, sem var meðal fundarmanna, og greip hann fram í fyrir ráðherra og sagðist sjálfur tala fyrir sína hönd. Umbunarákvæðin umdeild Ögmundur Jónasson sagði það rangt hjá flármálaráðherra að þetta frumvarp fæli ekki í sér neina skerð- ingu á samningsbundnum réttindum opinberra starfsmanna. Sagði hanu að markmið þessara laga væru greinilega að tryggja völd atvinnu- rekenda, og í opinbera geiranum völd forstjóra ríkisstofnana. „Forstjórar eiga.að geta ráðskast með launakjörin og vinnutímann og í þessum anda em þessar lagabreyt- ingar keyrðar fram til að sýna launafólki hvar húsbóndavaldið liggur. Því þrátt fyrir öll mótmælin, þrátt fyrir allar rökræðurnar og þrátt fyrir allar óskirnar og kröf- umar um samráð og samninga, þá skal mönnum vera ijóst hvar völdin liggja. Hvetjir eru húsbændur og hveijir eru hjú.“ Sagðist Ögmundur telja að með því að veita forstöðumönnum ríkis- stofnana formlegt vald væri verið að auka á launamismun milli opin- berra starfsmanna, m.a. þar sem þeir sem næstir væru yfirmönnun- um myndu njóta umbunar umfram aðra, auk þess sem minna svigrúm væri til þess að veita slíka umbun í mannfrekari stofnunum samfé- lagsins, svo sem heilbrigðiskerfinu og menntakerfínu, þar sem launin væru þegar lág og konur væru mun íjölmennari en karlar. Fjármálaráðherra mótmælti þessum fullyrðingum og sagði að þvert á móti væru þessi ákvæði sniðin til þess að reyna að draga úr launamun kynjanna með því að setja formfastari reglur um þessar umbunanir. 200 kærðir fyrir hrað- akstur TALIÐ er að rúmlega 200 öku- menn í Reykjavík hafi verið kærð- ir fyrir of hraðan akstur í hraða- mælingaátaki lögreglunnar und- anfarna tvo blíðviðrisdaga. 128 ökumenn voru kærðir á mánudag og lögreglan hélt áfram miklum radarmælingum á þriðju- dag. Að sögn lögreglu var lögð áhersla á að mæla annars vegar hraða á fjölförnum stofnbrautum og hins vegar á fáfarnari götum í grennd við skóla og leiksvæði barna. Ólafur Ragnarsson vegna skýrslu um afleiðingar 14% vsk á ritað mál Furðu sætir að ekki er aflað upplýsinga hjá hagsmunaaðilum ÓLAFI Ragnarssyni, formanni Félags íslenskra bókaútgefenda, þykir furðu sæta að fjármálaráðuneytið skuli ekki hafa aflað upplýsinga um stöðu bókaútgáfunnar hjá hagsmunaðilum sjálfum vegna skýrslu um afleiðingar 14% virðisaukaskatts á bóka-, blaða- og tímaritaútgáfu. Þorgeir Baldursson, forstjóri prentsmiðjunnar Odda, sagðist eiga von á því að Samtök iðnaðarins kynntu sér skýrsluna sérstaklega. Niður- staða skýrslunnar felst í því að ekki sé ástæða til að ætla að álagning virðisaukaskattsins hafi rýrt stöðu atvinnugreinarinnar. Morgunblaðið/Ásdís FLESTIR þeirra ökumanna, sem hafa verið kærðir vegna hrað- aksturs, hafa, að sögn lögreglunnar, mælst aka á 20-30 km/klst. umfram leyfilegan hámarkshraða. „Þó ég hafi ekki heyrt í neinum vegna þess finnst mér eðlilegt að samtökin fullvissi sig um að þarna sé farið með rétt mál eða komið með athugasemdir ef ástæða er til,“ sagði Þorgeir og tók fram að menn í iðnaðinum væri mjög undrandi á þessum tilbúnu niðurstöðum. Póli- tíkusar væru mjög lunknir við að búa sér til þægilegar niðurstöður. Þorgeir sagðist ekki hafa farið í saumana á tölulegum grunni skýrsl- unnar. Engu að síður væri hann undrandi á niðurstöðunni. „Ef horft er yfir sviðið sjá menn hvað hefur verið að gerast í prentiðnaðinum og í útgáfustarfseminni. Þó ég hafi ekki tekið saman tölulegar uppiýs- ingar um reksturinn finnst mér mjög augljóst hvað gerst hefur á tímabilinu. Fyrirtækin hafa verið að lenda í vandræðum og fara á hausinn. Auðvitað má svo alltaf ræða fram og til baka um hvað er afleiðing af þessu og hvað er afleið- ing af efnahagsástandinu,“ sagði hann og tók fram að sú tilhneiging þeirra sem stæðu að bóka- og blaða- útgáfu að reyna að taka á sig kostn- aðaraukann kæmi út í mjög dap- urri afkomu margra útgáfufyrir- tækja. Þau veikustu hefðu einfald- lega lagt upp laupana. „Við höfum alltaf verið þeirrar skoðunar að skatturinn væri til óþurftar og í raun og veru þyldi útgáfustarfsemi í landinu ekki þennan skatt; þótt hann sé lægri en almennt er væri greinin svo veik að öll svona viðbótar-íþynging teldi mjög,“ sagði hann og tók fram að íslendingar lifðu á svo litlu mál- svæði að útgáfustarfsemi á okkar tungumáli yrði alltaf mjög við- kvæm. Minni velta Ólafur Ragnarsson, formaður Fé- lags íslenskra bókaútgefenda, minnti á fyrirvara skýrslunnar og tók fram að í niðurlagi væri sérstak- lega tekið fram að ógerlegt væri að greina áhrif virðisaukaskatts frá öðrum áhrifum. Þrátt fyrir það kæmust skýrsluhöfundar að því að álagning virðisaukaskatts hefði ekki rýrt stöðu atvinnugreinarinnar. „Skýrsla Hagfræðistofnunar Há- skólans segir hins vegar aðra sögu. í henni kemur fram að velta í bóka- útgáfu minnkaði umtalsvert þegar virðisaukaskatturnn var lagður á eða milli áranna 1993 og 1994. Titl- um fækkaði að sama skapi. Tólf bókaforlög gáfu samkvæmt skýrsl- unni út 438 bókatitla árið 1993 en 383 ári síðar og nemur samdráttur- inn 21%,“ sagði Ólafur. Hann tók fram að kjarni málsins fælist í því að bókaútgefendur hefðu á sínum tíma tekið virðisaukaskatt- inn á sig vegna ótta við að markað- urinn myndi ekki sætta sig við hækkun. „Á sama tíma og skýrsla Hagfræðistofnunar sýnir að bóka- verð hafi staðið i stað rýrnaði því afkoma bókaforlaganna. Bókaút- gáfan ber enn byrðar þessa 14% virðisaukaskatts því að honum hef- ur enn ekki verið velt út í verðlag- ið. Ef sú leið hefði hins vegar verið farin á sínum tíma hefði útkoman væntanlega orðið önnur. Verulega meiri samdráttur hefði orðið í bók- sölu en raun varð á,“ sagði Ólafur og bætti því við að sér fyndist furðu sæta að íjármálaráðherra skyldi leggja fram skýrslu með upplýsing- um frá ríkisskattsstjóra og Þjóð- hagsstofnun, þar sem bókaútgáfu, tímaritaútgáfu og smásölu væri blandað saman, án þess að gera tilraun til að fá upplýsingar beint frá þeim hagsmunaaðilum sem málið snerti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.