Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 21
ERLENT
Reuter
. I . SYNUM SAMUÐ Bcrurn sorgar- og samúðarmcrkin við minningar- athafnir og jarðarfarir og almcnnl þcgar sorg bcr að höndum. Söluslaðir: Kirkjuhúsið .Laugavcgi, bcnsin- stöðvar og blómabúðir um allt land. hökkurn sluðninginn. —.»■■■■■!«■ | Hápiif, úlpur, droQiir 09 jahhar |
7ískuskemmcm Bankastræti 14, sími 561 4118. . — ' “ ' ■
Allir
Mótmæla ójöfnuði
VERKAMENN lögðu víða niður
vinnu í Suður-Afríku í gær til
að mótmæla framferði stjórn-
málamanna sem þeir saka um
tilraunir til að viðhalda ójöfnuði
milli kynþátta í landinu. Var
myndin tekin frá mótmælaað-
gerðum í Jóhannesarborg.
Zjúganov fær mikið fylgi í nýrri könnun
Gæti fengið
tæpan helm-
ing atkvæða
Moskvu. Reuter.
EF MARKA má nýja skoðanakönnun
rússnesku félagsfræðistofnunarinnar
ISP gæti Gennadí Zjúganov, fram-
bjóðandi kommúnista, fengið tæpan
helming atkvæðanna í forsetakosn-
ingunum 16. júní. Samkvæmt könn-
uninni eni sigurlíkur Borís Jeltsíns
forseta mun minni en aðrar skoðana-
kannanir hafa gefíð til kynna að und-
anfömu, en samkvæmt þeim er lítill
munur á fylgi Jeltsíns og Zjúganovs.
Kannanir ISP þykja mun vandaðri
og áreiðanlegri en aðrar kannanir sem
birtar hafa verið í Rússlandi. Stofnun-
in reyndist til að rriynda sannspá í
þingkosningunum 1993 þegar hún
spáði þjóðemissinnum miklu kjör-
fylgi. Kannanir hennar fyrir þing-
kosningamar í desember reyndust
einnig nákvæmar.
ISP spáir nú því að Zjúganov fái
38-47% atkvæðanna í forsetakosning-
unum og Jeltsín aðeins 16-20%.
Nugzar Betaneli, yfirmaður stofnun-
arinnar, sagði ekki útilokað að Jeltsín
færi með sigur af hólmi en lagði til
að forsetinn semdi við aðra frambjóð-
endur um að þeir tækju höndum sam-
an og drægi jafnframt úr árásum sín-
um á kommúnista til að auka sigurlík-
ur sínar.
„Fylgi Jeltsíns er að aukast en
ekki nógu hratt til að hann geti sigr-
að einn síns liðs,“ sagði Betaneli í
samtali við fíeuter-fréttastofuna.
„Jeltsín getur sigrað - sigurlíkur
hans eru mjög miklar - en hann og
aðrir frambjóðendur verða að sameina
krafta sína. Telji hann sér trú um að
hann þurfí ekki að sameinast öðrum
gæti hann tapað.“
Fjodorov andvígur samvinnu
við Jeltsín
Góðu fréttimar fyrir Jeltsín eru
þær að könnun ISP bendir til þess
að Zjúganov fái ekki helming atkvæð-
anna í kosningunum 16. júní og verði
niðurstaðan sú ganga Rússar að kjör-
borði á ný í júlí til að kjósa á milli
þeirra tveggja frambjóðenda sem fá
mest kjörfylgi.
Betaneli sagði að forsetinn ætti að
semja við þijá frambjóðendur - Gríg-
orí Javlínskí, umbótasinnaðan hag-
fræðing, Svjatoslav Fjodorov augn-
skurðlækni og Alexander Lebed, fyrr-
verandi hershöfðingja - um að þeir
drægju sig í hlé og hvettu stuðnings-
menn sína til að kjósa Jeltsín.
„Veikleiki hans felst í því að ef
hann verður einn síns liðs verður erf-
itt eða jafnvel ógjörningur fyrir hann
að sigra. Styrkleiki hans felst í því
að hann er nógu öflugur til að sigra
ef hann sameinast Fjodorov, Lebed
og Javlínskí," sagði Betaneli.
Fjodorov, Javlínskí og Lebed hafa
rætt möguleikann á að þeir taki hönd-
um s'iman en augnskurðlæknirinn
hefur sagt að ekki komi til greina
að semja um samvinnu við Jeltsín.
Þeir gætu þó lýst yfír stuðningi við
forsetann í síðari umferð kosning-
anna.
Miklu stærra úrtak
Könnun ISP var gerð 10.-15. apríl
og er byggð á svömm 6.000 manna
sem sögðust örugglega ætia að neyta
atkvæðisréttar síns. Urtakið er miklu
stærra en í öðmm könnunum sem
birtar hafa verið að undanfömu.
Lebed fékk 8-10% atkvæðanna í
könnuninni, Javlínskí 8-9%, þjóðem-
issinninn Vladímír Zhírínovskí 6-7%
og Fjodorov 2-4%.
Fréttastofan Interfax birti í gær
aðra könnun sem gefur allt aðra
mynd af fylgi frambjóðendanna. Sam-
kvæmt henni er Jeltsín með naumt
forskot á Zjúganov, með 23% fylgi á
móti 22%. Könnunin var gerð 13.
apríl og hún bendir til þess að fylgi
Jeltsíns hafí aukist um tvö prósentu-
stig á einni viku, en fylgi Zjúganovs
minnkað um ijögur prósentustig.
Ræðst gegn bensínhækkun
Washington. Reutcr.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti fyr-
irskipaði í fyrrakvöld tafarlausa og
skipulega sölu um það bil 12 milljóna
fata af bensínvaraforða landsmanna
til að draga úr bensínverðhækkunum.
Ennfremur fól Clinton Hazel O’Le-
aiy orkumálaráðherra að endurskoða
markaðsaðstæður og skila skýrslu
innan 45 daga um ástæður þess að
bensínverð til neytenda hefur hækkað
að undanförnu. Ennfremur að leggja
mat á hugsanlegt bensínverð í sumar
þegar eftirspurn eftir bensíni er hvað
mest á ári hverju.
vnma
-engin
núll!
Gríptu græna miðann og náðu í
vinninginn útá næstapósthús
Gírótombólan er eina happdrættið á íslandi þar sem allir vinna.
Þú þarft ekki einu sinni að vera heppin(n). Á hverjum miða er vinningur, enda er
þetta tombóla engin núll. Það er einfalt að taka þátt í Gírótombólunni. AUir
íslendingar á aldrinum 16 tíl 75 ára fá senda tUkynningu frá pósthúsinu sínu um
að þar bíði þeirra póstkrafa. Þegar póstkrafan, 989 kr. hefur verið greidd kemstu
að því hvaða vinning þú hefur hlotið og hvar hægt er að nálgast hann. Hvorki meira
né minna en 200.000 þúsund vinningar eru í Gírótombólunni, stórir og smáir.
ÖUum ágóða af Gírótombólu er varið til styrktar starfsemi Landsbjargar.
Einn afþessum 200.000 vinningum erþinn!
10.000 kr. raatarúttektlr £rá 10-11 búðunum
VV í j
ir
2 ~ ÍÖO 25 25
Honda Ctvic feröir til Evrópu meö Mongoose fjallahjól 10.000 kr. matarúttektir
frá Honda umboöinu Flugleiðum fráGÁP fiá 10-11 búðunum
lS.OOOpizzurfráPizzahúsinu. 30.000geisladiskar. 25.838 Uglubækur.
4.000töskur. 10tðlvurmeðmargmiðlunarpakkafráACO. SS.OOOblandlpoka
fráNúaSfríusi. 55.000CocaColaog80g01wsnakkfráVífllfelll. 15.000\asatöivur.
LANDSBJORG
Landssamband björgunarsveita
PÓSTUR OG SlMI
Allirvinna - engin nútl!
{