Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 19 VIÐSKIPTI Forstjóri Eimskips var fulltrúi Islands á fundi 16 forystu- manna viðskiptalífsins frá aðildarríkjum Eystrasaltsráðsins Auka má hagvöxtí5% á EystrasaJtssvæðinu SEXTÁN forystumenn í viðskipta- lífi aðildarríkja Eystrasaltsráðsins undirrituðu á fundi sínum í Stokk- hólmi í síðustu viku sérstaka stefnu- skrá um lýðréttindi, viðskipti, lögg- jöf, efnahagsmál, skilyrði til at- vinnurekstrar o.fl. á Eystrasalts- svæðinu. Stefnuskráin verður lögð fyrir ráðherrafund Eystrasaltsráðsins sem haldinn verður dagana 3.-4. maí nk. í Visby, höfuðborg Got- lands. Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, sækir fundinn af hálfu ís- lands. Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips var fulltrúi íslands á fund- inum í Stokkhólmi í síðustu viku, en auk hans voru þar áhrifamenn í viðskiptalífi á Norðurlöndunum fjórum, Eystrasaltsríkjunum, Rúss- landi, Þýskalandi og Evrópusam- bandinu. Þar var um að ræða for- stjóra í stórfyrirtækjum eða for- ystumenn atvinnurekendasamtaka. Nöfn þeirra birtust í heilsíðuauglýs- ingu frá Stokkhólmsborg í Financial Times sl. miðvikudag, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Fundurinn i Stokkhólmi, sem bar yfirskriftina „The Baltic Sea Bus- iness Summit", var haldinn af Sænska verslunarráðinu með dygg- um stuðningi Stokkhólmsborgar. Meðal fundarmanna var hinn kunni sænski iðnjöfur Dr. Peter Wallen- berg, sem stýrir einni mestu iðnað- arsamsteypu heims. Wallenberg og Toomas Luman, fulltrúi Eistlands, munu fara með stefnuskrána á fundinn í Visby að boði Göran Pers- son, forsætisráðherra Svíþjóðar, og leggja hana þar fyrir. „Hægt að tífalda viðskiptin“ í opnunarræðu sinni í Stokkhólmi lýsti Wallenberg því yfir að mögu- legt væri að tífalda viðskiptin á Eystrasaltssvæðinu. Fram kom að búist er við 3-5% aukningu á lands- framleiðslu á þessu ári í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Jákvæð þróun að þessu leyti hefði einnig átt sér stað í Rússlandi. Stefnuskráin er í níu liðum og er þar m.a. fjallað um að setja þurfi skýran lagaramma um eignarrétt og gjaldþrot. Draga þurfi úr skrif- ræði og koma í veg fyrir spillingu. Ganga þurfi lengra í fijálsræðisátt í viðskiptum. Þá þurfi að veita Pól- landi, Eistlandi, Lettlandi og Lithá- en aðild að Evrópusambandinu um leið og löndin uppfylla skilyrði þar um. Forystumennirnir telja enn- fremur þörf á auknum sveigjanleika í vinnulöggjöf og þeirri starfsemi hins opinbera sem ekki er hægt að einkavæða. Eimskip með umsvif á svæðinu „Ástæðan fyrir því að mér finnst þetta áhugavert er sú að Eimskip er að vinna á svæðinu,“ sagði Hörð- ur í samtali við Morgunblaðið. „Það er mjög frábrugðið því að vinna í Georg Khrnrooth Mogens Granborg Sören Gyil ^ Dr. Hans Dieter Harig Jukka Harinalii Viktors Kulbergs Sgfl ' i Brpnislovas Lubys-----J Toomas Luman í larald Norvik ‘tSiz. Professor Yuri M. Perunov Dr. I ,ars Ramqvist Gerhard Roggcmann ■ Friedel Rödig Hördur Sigurgestsson fl Dr. Andrzej Skovvrónski m Dr. Peter Wallenberg ■ S roCKHOl.M HEILSÍÐUAUGLÝSINGIN í Financial Times um fund við- skiptajöfranna í Stokkhólmi. sumum baltnesku löndunum borið saman við flest önnur þau svæði sem við erum að vinna á. Okkur eru ljós þau vandamál sem dregin eru fram í stefnuskránni og þarf að ráða bót á. Þarna er núna 3% hagvöxtur og mönnum er ljóst að hægt væri að auka hagvöxt í 5% á næstu 10-15 árum. Það myndi hjálpa til að auka hagsæld þarna og gera þetta traustara og áhuga- verðara svæði. Við höfum komið okkur þarna fyrir og höfum áhuga á að vera þarna áfram.“ Innkaupa- ráðstefna á vegum Rík- iskaupa RÍKISKAUP og stjórn opinberra innkaupa boða til innkauparáð- stefnu þriðjudaginn 7. maí kl. 13.00 á Hótel Loftleiðum. í fyrsta hluta ráðstefnunnar verður fjallað um innkaupasamstarf stofnana sem hefur farið vaxandi. Frummælendur um þetta efni verða Ragnar Stefánsson innkaupastjóri RARIK, Kristján Á. Antonsson inn- kaupastjóri Ríkisspítala og Hálfdan Þ. Markússon deildarstóri Ríkis- kaupa. Þá verður fjallað um notkun upp- lýsingakerfa við innkaup. Upplýs- ingakerfi innkaupamanna eru í örri þróun því strikamerkingar og EDI- skjallaus viðskipti eru að koma til sögunnar. Frummælendur verða Tryggvi Hafstein innkaupastjóri Ríkiskaupa og Karl F. Garðarsson formaður ICE-pro samtakanna á íslandi. í þriðja hluta ráðstefnunnar verð- ur fjallað um gæðastjórnun við inn- kaup sem er æ mikilvægari þáttur í starfi innkaupamanna. Frummæl- endur verða Jón Bergsson gæða- stjóri Delta hf. og Halldór Ó. Sig- urðsson innkaupastjóri Osta- og smjörsölunnar. Ráðstefnustjóri verður Júlíus Sæberg Ólafsson for- stjóri Ríkiskaupa. --------------- Fjármálaráðherra greinir frá niðurstöðum starfshóps um gjaldtöku af bifreiðum Vill draga úr neyslustýringu 17 íBorgar- kringluna NÚVERANDI vörugjaldskerfi í inn- flutningi ökutækja verður líklega lagt niður en skráningargjald tekið upp í staðinn ef ekki koma í ljós verulegir annmarkar á slíkri breyt- ingu í sumar. Þá stefna stjórnvöld að því að minnka neyslustýringu í bíiakaupum og samræma gjöld á atvinnubifreiðar og tæki. Þetta kom fram í ræðu Friðriks Sophussonar íjármálaráðherra á aðalfundi Bíl- greinasambandsins fyrir skömmu. Fjármálaráðherra sagði að sterk staða bílgreinarinnar skipti miklu fýrir samkeppnishæfni þjóðarinnar. „Ekki síst þess vegna hef ég lagt á það áherslu að unnið yrði að heild- stæðri athugun á skattlagningu ökutækja og notkun þeirra. í sem stystu máli er það stefna mín að draga úr neyslustýringu og bæta samkeppnisstöðu atvinnufyrir- tækja, m.a. í ferða- og flutninga- starfsemi, án þess þó að tekjur ríkis- sjóðs skerðist.“ Vinnuhópur um breytt fyrir- komulag á gjaldtöku bifreiða skilaði nýlega tillögum sínum til ráðherra. Hópurinn benti á að á næstu árum verði mikil endurnýjunarþörf í ís- lenska bílaflotanum og því sé mjög æskilegt að neyslustýring minnki P&S býður fjármagns flutninga milli landa PÓSTUR og sími hefur hafið mark- aðssetningu á svokallaðri Eurogíró- þjónustu, sem er net 16 póstgíró fyrirtækja í Evrópu auk póstgíró- þjónustu Japans. Þjónustu þessari er ætlað að auðvelda fjármagns- flutninga á milli landa, en hér á ferðinni ódýrari kostur en fjár- magnsflutningar fyrir milligöngu banka, að sögn Bjarneyjar Harðar- dóttur, markaðsstjóra Póstgírós. Bjarney segir að ráðgert sé að þjónustan muni ná til flestra ríkja heims fyrir árslok með aðild Chase Manhattan bankans. Þá muni bandaríska póstþjónustan einnig gerast aðili að netinu í ár. Þjónusta þessi er bæði ætluð fyrirtækjum og einstaklingum, en Bjarney segir að markaðssetning hennar muni þó einna helst beinast að fyrirtækjum til að byija með. Hún segir að kostnaður deilist niður á milli sendanda og móttakanda. Kostnaðurinn við að senda peninga héðan er 400 kr. og 150 kr. fyrir að taka við sendingu. í sumum aðildarríkjum er þessi kostnaður hlutfall af upphæð. Verð á þjón- ustunni fer þó eftir því hversu hratt óskað er eftir því að sending ber- ist, en sendingarnar eru rafrænar og taka því skamma stund. Bjarney segir að Póstgíró ábyrgist að send- ing berist innan tilskilins tíma. Að sögn Bjarneyjar er ódýrast að flytja af einum póstgíróreikningi yfir á annan, en einnig er hægt að flytja af póstgíróreikningi yfir á bankareikning í viðkomandi landi. Innflytjendur á vörum frá Eistlandi Verðum með leiguskip sem lestar í Tallin ca. 20.05 1996. Ennþá er pláss fyrir nokkurt magn í skipinu. Vinsamlegast Itafið samband sem fyrst. Cikin-ís hf. Skútuvogi 12K, 104 Reykjavík, sími 588 2588, fax 588 4177. Sigmundur Fr. Kristjánsson. þannig að nýting hans verði sem hagkvæmust. Friðrik sagðist telja einna brýn- ast að skoða hvernig samræma mætti gjöld á atvinnubifreiðar og tæki. Skattlagning á kaup sumra atvinnutækja væri ívið hærri hér en í mörgum samkeppnislöndum og því yrði hún tekin til sérstakrar athugunar. Nú eru bifreiðar flokkaðar við innflutning samkvæmt tollskrá og vörugjald lagt á eftir þeirri flokkun. Síðan er bifreið flokkuð á ný við skráningu samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja. Fjámiála- ráðherra sagði að ekki væri fullt samræmi milli þessara flokkana og hefði misræmið kostnað í för með sér. Starfshópnum var faiið að kanna upptöku skráningargjalds í stað vörugjalds á bifreiðar. Friðrik sagði að kostir slíks gjalds væru m.a. þeir að aðeins ein flokkun ökutækja yrði við lýði, fullt sam- ræmi yrði milli flokkunar og gjald- flokks, kerfið yrði einfaldara og ódýrara, álagning færi fram við skráningu og því yrðu sýningarleyfi m.a. óþörf. „Það er til mikils að vinna ef hægt er að byggja tolla- kerfið þannig að afgreiðsla verði hraðari og kostnaðarminni og óvissuþáttum fækkað. Ég tel að ef ekki komi fram verulegir annmark- ar á skráningargjaldi við frekari skoðun í sumar muni ég leggja til að núverandi vörugjaldskerfi í inn- flutningi ökutækja verði lagt niður og tekið upp skráningargjald." EIGENDUR 17 verslananna fyrir- huga að opna nýja 17 verslun í Borgarkringlunni í október nk. Engin áform eru þó uppi um að loka versluninni sem fyrir er í Kringlunni heldur verður nýja versl- unin starfrækt samhliða henni. Þeg- ar hefur verið gengið frá samning- um um húsnæði í Borgarkringlunni. Að sögn Ásgeirs Bolla Kristins- sonar, kaupmanns í 17, verður nýja verslunin opnuð í kjölfar þeirra breytinga sem nú eru fyrirhugaðar á húsnæði Borgarkringlunnar. Hann segir að hann hafi tröllatrú á þessu húsnæði og hafi um nokk- urt skeið haft í hyggju að opna þar verslun. Hins vegar sé ótímabært að greina frekar frá þessum áform- um að svo stöddu. © Útgefandi: Sölutímabil: Forkaupsréttur: Nafnverð hlutabréfanna: Sölugengi: Skilmálar: Söluaðilar: Skráning: Umsjónaraðili útboðs: Sláturfélag Suðurlands svf. Almennt hlutafjárútboð Sláturfélag Suðurlands svf. 2. maí - 2. nóvember 1996. Félagsmenn í A-deiId stofnsjóðs og eigendur bréfa í B-deild stofn- sjóðs hafa forgangsrétt til kaupa á útboðinu í réttu hlutfalli við inn- eignir á tímabilinu 2. maí-16. maí 1996. Hlutabréf sem óseld kunna . að verða mun félagið selja á almennum markaði frá 20. maí 1996. 65.000.000 króna. Sölugengi til forgangsréttarhafa og á fyrsta degi í almennri sölu er L50. Gengið getur breyst eftir að almenn sala hefst. Hlutabréf í almennu útboði skulu staðgreidd við kaup. Lágmarksupphæð í almennri sölu er kr. 15.000 að nafnverði. Kaupþing hf. og Kaupþing Norðurlands hf. Oskað er skráningar bréfa í B-deild stofnsjóðs á Verðbréfaþing Islands. Kaupþing hf. Útboðslýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda. £ KAUPÞING HF Ármúla I3a 108 Reykjavík - Sími 515-1500, fax 515-1509
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.