Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 68
23YIINQAI Hátækni til framfara §§§ Tæknival Ske.funní 17 • Slmi 568-1665 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKIAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: IIAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Atli Vigfússon Krappur dans á kajak Laxamýri. Morgunblaðið. SIB stefnir bönkum fyrir Félagsdóm KAJAKÆFINGAR hafa verið stundaðar á Laxá í Aðaldal að undanförnu, en það eru þeir fé- •lagar Aðalsteinn Arnason, Hallur Gunnarsson, Jón Óðinn Óðinsson, Jón Hjaltason og Þorsteinn Hjaltason hjá Siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri sem hafa ver- ið að hressa upp á róðrarlistina. Um helgina var æft stíft í Brú- arfossi og fanð var mður Bakka- streng og Heiðarendaflúð. í sum- ar verður vikunámskeið hjá klúbbnum og gefst almenningi þá tækifæri að læra kajaklistina og sýna kunnáttu sína í Hörgá. Að sögn þeirra félaga er best að byrja að æfa sig í sundlaugum en fossar og flúðir eiga að koma síðar. SAMBAND íslenskra bankamanna hefur höfðað mál fyrir Félagsdómi til að fylgja eftir þeirri kröfu gagn- vart samninganefnd bankanna að launaliður kjarasamnings aðilanna frá 8. júní 1995 verði tekinn til end- urskoðunar með hliðsjón af upplýs- ingum frá Þjóðhagsstofnun um launahækkanir viðmiðunarhópa SÍB. Krafan er gerð á grundvelli sam- komulags um kjarasamninga félags- manna SÍB frá árinu 1977, _að því er segir í fréttatilkynningu SÍB. Samkvæmt því skuli aðilar helja viðræður óski annar hvor þeirra, að gefnu tilefni, endurskoðunar á launa- lið á samningstímanum. Náist ekki samkomulag innan 30 daga skuli ágreiningsatriðum skotið til úrlausn- ar gerðardóms. Þá segir að í febrúar sl. hafi SÍB óskað eftir endurskoðun launaliðsins með hliðsjón af upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun um launahækkanir nokkurra viðmiðunarhópa SÍB en samninganefnd bankanna hafi hafn- að þessari ósk og borið því við að SÍB hafi ekki sýnt fram á að tilefni til epdurskoðunar væru til staðar. SÍB hafi nokkrum sinnum áður lagt fram ósk um endurskoðun launaliðar og hafi samningar tekist án milligöngu gerðardóms. 1981 og 1986 hafi gerðardómur fjallað um ágreining og komist að þeirri niður- stöðu að skilyrði væru til hækkunar launaliðar. Túlkun SÍB á ákvæðinu sé m.a. í samræmi við niðurstöðu gerðardóms- ins í báðum tilvikum. Ekki fleiri ný vínveit- ingaleyfi BORGARRÁÐ hefur samþykkt að fela skrifstofustjóra og borg- arlögmanni að undirbúa auglýs- ingu um að ekki verði mælt með nýjum vínveitingaleyfum í miðborg Reykjavíkur um tiltek- inn tíma. í umsögn borgarlögmanns vegna vínveitingaleyfa fyrir nýjan matar- og skemmtistað við Pósthússtræti 9 og vínveit- inga- og skemmtanaleyfi fyrir nýjan veitingastað við Hafnar- stræti 7, segir að umsækjendur eigi rétt á vínveitingaleyfum á grundvelli almennrar jafnræðis- reglu. Vilji borgrráð ákveða að mæla ekki með útgáfu nýrra leyfa um ákveðinn tíma sé nauðsynlegt að slík ákvörðun verði auglýst með fyrirvara þannig að þeim, sem hafi í hyggju að leggja inn umsókn, gefist tækifæri til þess áður en til stöðvunar kemur. Frumvarp ekki ólögmæt íhlutun LAGASTOFNUN Háskóla Islands telur að framlagning frumvarps um breytingu á lögum frá 1938 um stétt- arfélög og vinnudeilur- feli ekki í sér ólögmæta íhlutun ríkisvaldsins um málefni sem stéttarfélögum er rétt að kveða á um sjálf. Félagsmálanefnd Alþingis óskaði hinn 29. mars eftir áliti Lagastofnun- ar um hvort ákvæði fyrrnefnds frum- varps brytu í bága við stjórnarskrá og þjóðréttarsamninga. Lagastofnun bendir á að félaga- frelsisnefnd Alþjóða vinnumálastofn- unarinnar (ILO) hafi lagt áherslu á rétt manna til að stofna félög. Hún telji að launþegum eigi að vera frjálst hvort þeir kjósi að stofna vinnustaða- félag eða starfsgreinafélag sem grunneiningu sína. Bent er á að það sé álitamál hvort bann við því að félagssvæði stéttarfélags sé minna en eitt sveitarfélag samrýmist al- þjóðasáttmálum um félagafrelsi, eins og þeir hafa verið túlkaðir. Samkvæmt niðurstöðu álitsins er heimilt að stofna vinnustaðafélag, en ekki er talið öruggt að krafa um 250 manna lágmarksij'ölda standist. Ákvæði um samningsumboð og samþykkt kjarasamninga, lagaskil- yrði fyrir verkföllum og atkvæða- magn til verkfallsboðunar eru ekki talin ganga gegn alþjóðasáttmálum. Lagastofnun bendir á að ákvæði i-liðar 6. gr. frumvarpsins um sam- eiginlega miðlunartillögu ríkissátta- semjara og atkvæðagreiðslu um hana bijóti í bága við túlkun ILO. Þá er talið hætt við að ákvæði frumvarps- ins um samþykki miðlunartillögu telj- ist ekki samrýmast rétti manna til fijálsra samninga samkvæmt al- þjóðasáttmálum. Einnig er vakin at- hygli á því að fram hafi komið sjónai'- mið um að skipan Félagsdóms kunni að bijóta í bága við ákvæði Mann- réttindasáttmála Evrópu. Morgunblaðið/Ásdís Yiljayfirlýsing bæjarfélaganna Hafnarfjarðar og Reykjavíkur Samstarf um uppbygg- íngu orkuiðnaðar BÆJARFÉLÖGIN Hafnarfjörður og Reykjavík hafa undirritað sameiginlega viljayfirlýsingu um aukið samstarf til að flýta fyrir uppbyggingu orku- iðnaðar og þróun iðnaðarsvæða á höfuðborg- arsvæðinu. Viljayfirlýsingin var kynnt og sam- þykkt á fundi borgarráðs í gær og jafnframt ákveðið að halda sérstakan kynningarfund með borgarfulltrúum um málið. Yfirlýsingin felur í sér að bæjarfélögin munu sameiginlega beita sér fyrir sérstöku átaki til rann- sókna og öflunar jarðgufu frá Krísuvíkursvæðinu meðal annars til iðnaðarnota. Bent er á að reynsla, aðstaða og sérþekking Hitaveitu Reykjavíkur gæti nýst einkar vel í þessu sambandi, auk þess sem gufuvirkjun, til dæmis á Trölladyngjusvæð- inu, gæti nýst á hagkvæman hátt til orkuafhend- ingar inn í heitavatnskerfið úr gagnstæðri átt við það sem nú er. £ öðru lagi felur yfirlýsingin í sér að bæjarfélög- in stefna að formlegu samstarfi um uppbyggingu og rekstur hafnarmannvirkja á fyrirhuguðum at- hafnasvæðum við Straumsvík og Eiðisvík. Slíku samstarfi er ætlað að samræma áfangaskiptingu við uppbyggingu hafnarmannvirkja og eftir atvik- um áherslur við þróun aðliggjandi athafnasvæða, auk þess sem samstarf á þessu sviði gefi tæki- færi til sameiginlegrar markaðssetningar stóriðju- hafna og hægt sé að bregðast við möguleikum sem upp koma með skjótum hætti. Óvilhallur aðili tilnefndur Þá er gert ráð fyrir að óvilhallur aðili verði til- nefndur til að leggja fram tillögur og/eða val- kosti varðandi ýmis tæknileg og ljárhagsleg úr- lausnaratriði sem leiða kunni af þessu samstarfi og hvort bæjarfélagið um sig á að tilnefna sam- skiptafulltrúa til þess að greiða götu þeirrar til- lögugerðar. Einnig kemur fram að á grundvelli viljayfirlýs- ingarinnar verði leitað eftir samstarfi við við- skipta- og iðnaðarráðuneytið um sameiginlegt átak í rannsóknum á jarðgufu sem skapað geti ný tækifæri á sviði orkuiðnaðar. Gert er ráð fyrir að kostnaður og útlagður kostn- aður sem lúti að gerð samstarfssamnings á grund- velli viljayfirlýsingarinnar skiptist jafnt á milli bæjarfélaganna. Fram kemur að tilefni þessarar viljayfirlýsingar sé að starfshópur á vegum Aflvaka Reykjavíkur hafl að undanförnu kannað á hvern hátt verði best brugðist við fyrirspurn erlendra aðila sem óskuðu atbeina borgaryfirvalda við stofn- un pappírsverksmiðju á höfuðborgarsvæðinu og er vísað til skýrslu starfshópsins um jarðgufu til iðnað- ar á höfuðborgarsvæðinu í því sambandi. Léttir að loknum prófum SAMRÆMDUM prófum lauk í gær og andaði ungdómurinn léttar um leið og prófum var lokið og naut veðurblíðunnar. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var nokkuð af ungu fólki á ferli í gærkveldi í miðborg Reykjavíkur og virtist fara fjölgandi. Allt virtist fara friðsamlega fram. Mikill mannfjöldi var hins vegar í Kringlunni um miðjan dag í gær og mun eitthvað hafa borið á ölvun, en að sögn lög- reglu fór þó allt friðsamlega fram, en myndin er tekin þar um miðjan dag. ■ Grunnskólanemar fagna/6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.