Morgunblaðið - 01.05.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.05.1996, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frumvarp um opinbera starfsmenn afgreitt úr nefnd Slj ómarandstaðan sakar meirihlutann um ofbeldi Askorun um lækkun á vörugjaldi FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda hefur beint þeirri áskorun til ríkis- stjórnarinnar að vörugjald af bensíni verði lækkað tímabundið vegna mik- illar hækkunar á bensínverði á heimsmarkaði. Að sögn Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra FÍB, hefur bensínverð ekki verið hærra síðastliðin fimm ár eða síðan á tím- um Persaflóaátakanna. Runólfur sagði engin rök hníga að því að ríkissjóður hagnist á spá- kaupmennsku með eldsneyti erlend- is og eðlilegt sé að stjómvöld grípi inn í, þegar svona verðsveiflur verði á markaðinum, með aðgerðum til að draga úr mikilli verðhækkun á markaði hér á landi. Hann sagði að ef verðið héldist óbreytt allt þetta ár myndi sú hækkun vörugjaldsins, sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði, þýða 300 milljóna króna skattahækkun í ríkissjóð. Vörugjald á bensín er 97% af innflutningsgjaldi en aðrir bensín- skattar eru fastar krónutölur. Yfir 70% af verði bensínlítrans rennur í ríkissjöð. Víkingar skylmast LJÓSMYNDARINN rakst á þessa tvo víkinga í Hafnarfirði í gær, þar sem þeir biðu í vegarkantin- um eftir rútu með ferðamönnum, sem þeir hugðust „ræna“. Til þess að stytta sér biðina æfðu þeir skylmingar. FLÓTTAMANNARÁÐ íslands hefur samþykkt að hefja undirbún- ing að för íslenskrar sendinefndar til Belgrad til að ræða við hóp bosnískra flóttamanna. fjallað var á fundi nefndarinnar í fyrradag um lista Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna yfir 42 flóttamenn sem hugsanlega gætu komið hingað til lands. Um ér að ræða tíu fjölskyldur af blönduðum uppruna, segir í STJÓRNARANDSTAÐAN á Alþingi gagnrýndi harðlega í gær að frum- varp um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins hefði fyrr um daginn verið afgreitt úr efnahags- og við- skiptanefnd þingsins. Líklegt var talið í gær, að frumvarpið komi til annarrar umræðu á Alþingi á föstu- dag. I gær var einnig lagt fram á Al- þingi frumvarp um breytingar á sérákvæðum í lögurn um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Um er að ræða svonefndan bandorm í 177 greinum um breytingar sem leiða með einum eða öðrum hætti af frumvarpinu um réttindi og skyld- ur starfsmanna ríkisins. Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðu- bandalagi, kvaddi sér hljóðs um störf þingsins og sagði að efnahags- og viðskiptanefnd hefði afgreitt frum- varpið gegn andstöðu stjórnarand- stöðunnar og samanlagðri kröfu verkalýðshreyfingarinnar um að frumvarpið, og fleiri frumvörp því tengd, verði tekin af dagskrá. Steingrímur sagði að það hefði verið sameiginlegt mat allra for- frétt frá félagsmálaráðuneyti. Þá er átt við að annað hjóna sé Serbi og hitt Króati. í hópnum eru 19 börn 16 ára og yngri og hafa fimm fjölskyldur verið settar í forgangs- hóp. Töf á afgreiðslu Ríkisstjórnin samykkti á fundi hinn 10. október á síðasta ári að bjóða 25 flóttamönnum frá Bosníu hæli á íslandi. Þá var jafnframt svarsmanna verkalýðshreyfingar- innar sem komið hefðu fyrir nefnd- ina, að þessi framgangsmáti myndi stórspilla andrúmsloftinu í komandi kjarasamningum og væri ávísun á ófrið og átök. Það liti út fyrir að þetta ætti að verða kveðja ríkis- stjórnarinnar til verkalýðshreyfing- arinnar 1. maí að halda fast við áform um að knýja frumvörpin fram. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu þessa niðurstöðu sýna hroka stjórnarmeirihlutans og fyrirlitningu hans á stjórnarandstöðunni. Beitt hefði verið þingræðislegu ofbeldi í þessu máli og málið hefði ekki verið útrætt í nefndinni. Þannig hefði fjár- málaráðherra m.a. neitað að koma á fund efnahags- og viðskiptanefnd- ar. Ekki misbeiting Viihjálmur Egilsson formaður nefndarinnar sagði að haldnir hefðu verið 10 fundir um málið og starfað að því ötullega og málefnalega í nefndinni þrátt fyrir ágreining. Hann sagði að það hefði ekki tíðk- ast að ráðherrar kæmu á fund efna- samþykkt að taka upp viðræður við ísafjarðarkaupstað um mót- töku fólksins. Var ákvörðuninni komið á fram- færi við Flóttamannastofnun Sam- einuðu þjóðanna en töf hefur orðið á afgreiðslu málsins innan stofn- unarinnar því nauðsynlegt reynd- ist að endurskoða alla flutninga flóttamanna eftir að Dayton-sam- komulagið var gert, segir í frétt frá ráðuneytinu. hags- og viðskiptanefndar og hann hafnaði því að verið væri að mis- beita þingræði eða sýna einhveijum fyrirlitningu. Ríkisstjórnin og meiri- hluti þingsins hefði ákveðna stefnu í starfsmannamálum ríkisins, sem ætti að láta reyna á. Með því að afgreiða málið með eðlilegum hætti út úr þingnefnd, þegar umræðu þar væri lokið, væri verið að standa við þessa stefnu og framkvæma það sem kjósendur hefðu trúað ríkisstjórninm til að koma fram. Margir stjórnarandstöðuþing- menn tóku þátt í umræðunni og sögðu ljóst að þingstörf yrðu í upp- námi það sem eftir lifði vors. MORGUNBLAÐIÐ kemur ekki út á morgun, fimmtudag 2. maí, vegna hátíðisdags verkalýðsins, sem er í dag, 1. maí. Morgunblaðið kemur næst út föstudaginn 3. maí. MORGUNBLAÐINU í dag fylgir fjögurra síðna auglýs- ingablað frá BYKO. Sendinefnd fer til Belgrad til að ræða við bosníska flóttamenn Tekið við tíu fjölskyldum Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um nýtingu auðlinda sjávar á aðalfundi SH Verðum að vera vakandi fyrir kröfum markaðarins ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að íslendingar verði að vera vakandi fyrir kröfum markaðarins um það hvernig sjávarauðlindin er nýtt. í ávarpi á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á Akureyri í gær ,benti hann á að þjóðin hefði ákveðið forskot í þessu efni og velti því fyrir sér hvort hagsmunaaðilar ættu ekki að taka höndum saman við stóra kaupendur um þetta efni, frekar en að láta það eftir friðunarsamtökum. Sjávarútvegsráðherra lýsti því yfir að hann muni beita sér fyrir samstarfi stjórnvalda og hagsmunaaðila í sjávarútvegi um afstöðuna til þessara viðfangsefna. Þorsteinn sagði í erindi sínu að Islendingar stæðu á vissum tímamótum í sjávarútvegsmál- um, nú þegar vænta mætti aukningar þorsk- afla á næstu árum. Hann nefndi þrjú atriði sem hann telur að geti skipt nokkru máli við þróun sjávarútvegsins í nýrri framtíð: Efna- hagsleg skilyrði heimafyrir, tengslin við Evr- ópusambandið og ábyrg fiskveiðistjórnun. Sjálfbær þróun í umfjöllun sinni um ábyrga fiskveiðistjórn- un lagði Þorsteinn áhersiu á að íslendingar hefðu borið gæfu til þess að ná allvíðtækri samstöðu um langtímahagsmuni við nýtingu mikilvægustu fiskistofna. Akvarðanir um nýt- ingu þeirra hefðu verið teknar á grundvelli hugtaksins um sjálfbæra þróun. „Vitaskuld eru um þetta skiptar skoðanir. Vitaskuld toga brýnir stundarhagsmunir stundum í, eins og átti sér stað nú á dögunum þegar kröfur voru uppi um að auka þorskveiðiheimildir á þessu ári. En ég tel mjög mikilvægt að við höldum mjög fast í markaða stefnu í þessu efni, ekki síst í því ljósi að hún er farin að skila okkur árangri. En líka vegna þess að hún mun skipta okkur máli útávið, í samskiptum við þá sem eru að kaupa af okkur físk. Við ræðumst ekki einir við í þessu efni. Og við getum ekki leyft okkur að taka ákvarðanir bara út frá eiginhagsmunum í þessu efni, þó þeir séu rík- ir, heldur verðum við líka að horfa á þá hags- muni sem eru á mörkuðunum," sagði sjávarút- vegsráðherra. I þessu sambandi sagði hann nauðsynlegt að bæta umgengnina við fiskveiðiauðlindina, hún hafi ekki verið nógu góð. Brýnt væri að afgreiða löggjöf um þetta efni. Hann sagði einnig nauðsynlegt að undirbúa samstarf við aðrar þjóðir um veiðar á úthafinu og nefndi að mikilvægt væri að samstaða tækist á Al- þingi í vor um fullnægjandi löggjöf í þessu efni. Markaðurinn setur kröfur Vakti Þorsteinn máls á því að markaðurinn setti kröfur um það með hvaða hætti auðlind- in væri nýtt. Rifjaði upp að í fyrrasumar hafi stór þýsk fiskvinnslufyrirtæki og fiskkaupend- ur hafið viðræður við verndunarsamtök eins og Greenpeace, um að kaupa aðeins fisk frá þjóðum sem stunduðu ábyrgar fiskveiðar. Nýlega hafi komið til umræðu samningur Unilever við Word Wild Fund er miðaði að því að þessi stóri aðili keypti ekki annan fisk eftir árið 2005 en þann sem veiddur væri á grundvelli sjálfbærrar nýtingar. Aðrir viidu ekki kaupa lýsi sem unnið væri úr bræðslu- fiski, þar sem með því væri verið að taka fæðu fiskistofna sem nýttir væru til manneld- is. „Þessir aðilar segja: Stjórnmálamennirnir hafa brugðist í að koma á ábyrgum fiskveið- Morgunblaðið/Kristján ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráð- herra ávarpar aðalfund SH. um. Krafa okkar neytenda er hins vegar að fiskveiðar séu stundaðar með ábyrgum hætti og ef stjórnmálamennirnir bregðast verðum við í samslarfi við þau samtök sem hafa á þessu áhuga að taka málin í okkar hendur," sagði Þorsteinn. Gat Þorsteinn þess að aðilar úr mjöl- og lýsisiðnaði hefðu nýlega komið á sinn fund til þess að lýsa áhyggjum sínum vegna þessarar þróunar, þeir óttuðust að hún muni á næst- unni hafa alvarleg áhrif á lýsissölu héðan. „Ég tel að þarna stöndum við frammi fyrir mjög alvarlegum hlutum og hljótum að taka mjög fast og ákveðið á þessum viðfangsefnum. Ef við horfum til að mynda á það hvernig við höfum nýtt okkar loðnustofn, þá hefur það í mjög langan tíma verið gert á grundvelli mjög skynsamlegrar aflanýtingarreglu, þar sem við höfum ávallt tekið ákvarðanir um heildarafla á þeirri forsendu að skilja nægjanlegt magn eftir í sjónum til þess að viðhalda stofninum og til þess að hafa eðlilegt fæðuframboð fyrir aðra fiska í umhverfinu við ísland. Við getum ekki sætt okkur við það að ákvarðanir séu teknar af kaupendum í samráði við hagsmuna- samtök, gervifriðunarsamtök, sem í reynd taka ekki tillit til sjónarmiða sem við höfum lagt til grundvallar okkar fiskveiðistjórnun en flagga þeim sem yfirvarpi fyrir stefnu sína,“ sagði ráðherra. Gætum haft forskot Hann sagði að jafnframt skyldu menn átta sig á því að íslendingar gætu haft hér ákveðið forskot. Við ættum að geta tekið höndum sam- an með þeim aðilum sem vildu uppfylla þessar kröfur. „Við höfum náð lengra en ýmsar aðrar þjóðir í þessum efnum og getum þess vegna haft ákveðið forskot. Við skulum ekki gera ráð fyrir því að á komandi árum verði hægt að bægja því sjónarmiði frá að neytendur vilji hafa þetta í huga. Þess vegna er það áleitin spurning hvort við erum ekki betri samstarfsað- ilar við stóra kaupendur á fiski um þessi efni heldur en friðunarsamtök sem staðin hafa ver- ið að því að virða grundvallarviðhorf að vett- ugi þegar á hefur reynt. Við höfum afdrifaríka reynslu af því í hvalveiðum. Við stöndum frammi fyrir þeirri áleitnu spurningu hvort við erum að mæta sömu aðstæðum á öðrum svið- um,“ sagði Þorsteinn. ; -
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.