Morgunblaðið - 01.05.1996, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Sinueldur í Fitja-
hlíð í Skorradal
Grund - Stillt veður, snarræði ná-
granna og rétt viðbrögð komu í veg
fyrir stórtjón á gróðri og ef til vill
mannvirkjum þegar böm kveiktu
eld ofarlega í Fitjahlíðinni, en eldur-
inn læsti sig þegar í sinuna sem
var góður eldsmatur eftir góðviðri
síðustu daga.
Innarlega og ofan við sumarbú-
staðina voru börn að leik og í óvita-
skap tíndu þau saman fúasprek og
kveiktu í en skógarbotninn er þarna
þakinn sinu sem eldurinn læsti sig
þegar í og dreifðist óðfluga út.
Nágrannar í næstu sumarbústöð-
um sáu þegar reykurinn steig upp,
hringdu þegar í slökkviliðið í gegn-
um neyðarnúmerið 112 og fóru síð-
an að beijast við eldinn. Þama
skammt frá er ofanáliggjandi plast-
slanga frá uppistöðubmnni ofarlega
í hlíðinni og til allrar hamingju var
ekki búið að fjarlægja hana en hiut-
verki hennar var lokið þar sem nið-
urgrafin vatnsveita var lögð um
allt sumarbústaðahverfíð sl. haust.
Eigandi slöngunnar, Trausti Ing-
ólfsson, tók það til bragðs að
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
SLÖKKVILIÐSMENN að störfum í Fitjahlíð í Skorradal.
höggva leiðsluna í sundur og gat
síðan bleytt jarðveginn austan og
ofan við brunastaðinn og gat með
því náð að hemja útbreiðslu eldsins,
en íbúar úr sumarbústöðunum
börðu eldinn niður eftir bestu getu.
Þegar liðsmenn úr slökkviliði
Borgarfjarðadala mættu síðan með
búnað sinn 30-45 mín. eftir útkall-
ið, luku þeir verkinu með því að
slökkva alla glóð og rennbleyta allt
svæðið.
Bletturinn sem brann er ca 30 m
breiður og um 200 m langur eða
rúmlega '/i ha að stærð. Þetta
óhapp staðfestir enn og aftur að
aldrei er nægjanlega brýnt fyrir
börnúm og raunar fullorðnum líka
að leika sér ekki að eldinum þar
sem sina og trágróðnr er því þar
er fljótt að verða tjón sem ekki
verður með peningum bætt.
HÚSASMIÐJAN
0-200.000 kr. 8%
200.000 - 500.000 kr. 9%
Allt yfir 500.000 kr. 10%
Engin plastkort nauðsynleg.
Allir fjölskyldumeðlimir geta
nýtt sér kosti reikningsins.
4% af afslættinum greiðist strax út,
afgangurinn er inneign í lok árs.
Aukin viðskipti bæta kjör þín.
■ Síðastliöin 10 ár hefur Húsasmiðjan tryggt viðskiptavinum sínum betri kjör með
Staðgreiðslureikningi heimilisins
■ Komdu í llúsasmiðjuna og nœldu þér í umsóknareyðublað
og við tryggjum þér betri kjör.
■ / kaupbœti er fyrsta flokks þjónusta, mikið vöruúrval og sterk vörumerki.
Pizza 67
opnuð í
Hveragerði
Hveragerði. Morgunblaðið.
NÝR veitingastaður er ber heitið
Pizza 67 var opnaður í Hveragerði
á sumardaginn fyrsta.
Eigendur hins nýja staðar eru
tvenn hjón, þau Anna Hlíf Gísladótt-
ir og Arngrímur Baldursson, Hvera-
gerði, og Erla Ó. Gísladóttir og
Kristinn Ó. Grímsson, Selfossi. Erla
og Kristinn reka þegar annan veit-
ingastað undir sama nafni á Sel-
fossi. Aðspurðir sögðust eigendurnir
vera bjartsýnir á reksturinn. Móttök-
ur bæjarbúa hefðu verið framar öll-
um vonum og greinilegt að Hver-
gerðingar kynnu vel að meta að j.
geta nú keypt hinar þekktu Pizza
67 pizzur í heimabyggð.
Pizza 67, Hveragerði, er til húsa
við aðalgötu bæjarsins, Breiðumörk.
Fyrir utan pizzur verða á boðstólum
pastaréttir og aðrir léttir réttir
ásamt kaffiveitingum. Pizza 67 býð-
ur ókeypis heimsendingarþjónustu á
Stór-Hveragerðissvæðinu.
Pizza 67 í Hveragerði hefur opið
frá kl. 10 til 23 virka daga en til 1
um helgar.
Morgunblaðið/Aldís Hafstcinsdóltir
EIGENDUR Pizza 67 í Hvera-
gerði, Arngrímur Baldursson,
Anna Hlíf Gísladóttir, Erla
Gísladóttir og Kristinn Gríms-
son, við opnum hins nýja staðar.
DANMORK
Veröfrákr. A AAA
hvoraleiömeö U 9B I
flugvallarskatti ^
Sala: Wihlborg Rejser, Danmörku,
Sími: 0045 3888 4214
Fax: 0045 3888 4215
Stretsbuxur kr. 2.900
Konubuxur kr. 1.490
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opiö ó laugardögum
Nýbýlovegi 12, sími 554 4433.