Morgunblaðið - 01.05.1996, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mikil öryggisvarsla við sjúkrastofu fjöldamorðingjans frá Tasmaníu
Auðugur sér-
vitringur ákærð-
ur fyrir 35 morð
Kvartanir bárust lögreglu vegna Bry-
ants en ekkert var að gert
Hobart, Port Arthur. Reuter, The Daily Telegraph.
Reuter
MARTIN Bryant myrti 35 manns á ferðamannastað á áströlsku
eynni Tasmaníu á sunnudag og mánudag. Hann hefur nú verið
ákærður. Hér er nýleg mynd af Bryant.
YFIRVÖLD í Ástralíu ákærðu í gær
Martin Bryant í kjölfar þess að hann
myrti 35 manns og særði 19 í ferða-
mannabænum Port Arthur á ástr-
ölsku eynni Tasmaníu á sunnudag.
Bryant er auðugur einfari. Hann erfði
stórfé eftir aldraða vinkonu, sem lést
árið 1992. Skömmu síðar lést faðir
hans með dularfullum hætti.
Mikil öryggisgæsla er nú á sjúkra-
húsínu í Hobart, höfuðstað Tasma-
níu, þar sem Bryant liggur nú í ein-
angrun á gjörgæsludeild. Herbergi
hans á sjúkrahúsinu var breytt í
réttarsal á meðan kæran var lögð
fram. Bryant sagði ekki orð, en verj-
andi hans, sem skipaður hefur verið
til bráðabirgða kvaðst hafa rætt við
sakborninginn og hefði hugsun hans
virst óbrengluð.
Nokkrir þeirra, sem særðust í
árás Bryants, liggja á sömu deild.
Lögregla óttast að reynt verði að
ráða Bryant af dögum.
„Auga fyrir auga“
Orðin „auga fyrir auga“ höfðu
verið letruð á einn vegg sjúkrahúss-
ins og morðhótanir hafa borist gegn-
um síma.
Bryant, sem er 28 ára gamall, dró
fram hálfsjálfvirkan riffil á ferða-
mannasvæði í Port Arthur á sunnu-
dag og skaut 32 menn til bana og
særði 19 á einni klukkustund. Hann
kom sér því næst fyrir í húsi einu
ásamt þremur gíslum.
Eftir 18 klukkustunda umsátur
lögreglu um húsið kviknaði í því og
náðist Bryant þegar hann kom
hlaupandi út. Logaði þá í fötum
hans og hlaut hann brunasár, sem
nú er gert að á sjúkrahúsinu.
Gíslarnir þrír létu lífið í húsinu.
Það var staðfest að jarðneskar leifar
þriðja gíslsins hefðu fundist í brunar-
ústunum í gær. Lík hinna tveggja
fundust á mánudag.
Bryant bjó í tveggja hæða húsi í
New Town, úthverfi Hobart, höf-
uðborgar eyjarinnar Tasmaníu, sem
liggur úti fyrir syðsta odda Ástralíu.
Fyrrverandi nágranni kvaðst hafa
óttast hann 'mjög og sagði: „Eina
stundina virtist hann í lagi og allt í
einu var hann það ekki.“
í dagblaðinu Hobart Mercury var
honum lýst þannig að hann hefði
haft margar hliðar. „Hann gæti ekki
gert flugu mein,“ hafði blaðið eftir
nágranna og lýsti honum sem ham-
ingjusömum, vingjarnlegum og bros-
mildum manni.
Nágrannar sögðu að Bryant um-
gengist ekki margt fólk og aðeins
móðir hans hefði heimsótt hann.
Erfði eina af ríkustu
konum Tasmaníu
Bryant er auðugur maður. Hann
komst í álnir þegar hann erfði Helen
Harvey, eina af ríkustu konum Tas-
maníu.
Bryant var ráðinn til að sjá um
heimili og lóð Harvey og aldraðrar
móður hennar. Bryant og Harvey
urðu brátt vinir og hann var í stöð-
ugum samvistum við hana.
Árið 1992 lét Helen Harvey lífið
þegar bifreið hennar hafnaði á tré.
Við hliða hennar í bifreiðinni sat
Bryant, en hann slapp lítið meiddur.
Harvey var 59 ára gömul. Yfii-völd
komust að þeirri niðurstöðu að um
bílslys hefði verið að ræða. Nágrann-
ar voru á öðru máli.
Þeir héldu því fram að Harvey
hefði nokkrum sinnum kvartað und-
an því að hann hefði þvingað hana
til að aka út af veginum með því
að grípa í stýri bifreiðar sinnar og
hrifsa það úr höndum hennar.
Bryant sagði 'að hún hefði misst
stjórn á bílnum þegar hundarnir í
aftursætinu hefðu ærst.
Bryant erfði 26 milljónir króna,
áðurnefnt hús í New Town, stóran
búgarð, sem nefnist Taurusville,
nokkrar bifreiðir og skartgripi.
Erfðaskrá Harvey kvað á um að
faðir Bryants, Maurice Bryant,
skyldi vera umsjónarmaður arfsins.
Í erfðaskránni fær Bryant ein-
kunnina „minn tryggi vinur“ og þar
segir að hann skuli hijóta hinstu
hvílu í sama grafreit og Helen Harv-
ey og móðurafi hennar.
Faðirinn flutti á búgarðinn, en
Martin Bryant fór á sjúkrahús til að
jafna sig eftir slysið. í blaðinu Tbe
Hobart Mercury var haft eftir vinum
Bryants að hann hefði ekki verið
sami maður eftir andlát Harvey.
Faðirinn finnst látinn í skurði
Árið 1993 fannst faðir Bryants
látinn í skurði. Um háls og mitti líks-
ins var vafið blýbelti, sem kafarar
nota til að þyngja sig. Nágrannar
sögðu að Bryant hefði hótað að
myrða föður sinn. Þeir sögðu einnig
að skotsár hefði verið á líkinu, en í
lögregluskýrslu, sem vitnað var til
í ástralska dagblaðinu The Sydney
Morning Herald í morgun, segir að
engin merki um áverka hafi verið á
því. Niðurstaða lögreglu var sú að
um sjálfsmorð hefði verið að ræða.
Barry Featherstone, bóndi á
næsta bæ við Taurusville, skráði hjá
sér hegðun Bryants í bifreið Helen
Harvey og greindi lögreglu frá grun-
semdum sínum eftir andlát hennar.
í skýrslu lögreglu er engar vísbend-
ingar um framburð bóndans að
finna. Featherstone og mágkona
hans sögðu einnig í samtölum við
The Sydney Morning Heraid að þau
hefðu kvartað við lögreglu eftir að
Bryant hefði í tvígang hótað að
skjóta þau til bana milli 1991 og
1993.
í blaðinu sagði að lögreglan á
Tasmaníu hefði í gær sagt að hún
hefði ekki vitað af kvörtunum ná-
granna. í frétt blaðsins er því bætt
við að ef til vill hefði verið hægt að
koma í veg fyrir blóðbaðið á sunnu-
dag ef mark hefði verið tekið á þess-
um kvörtunum.
Featherstone hélt því fram að
Bryant hefði ekki haft byssuleyfi.
Hann hefði fengið mikinn áhuga á
skotvopnum fyrir skömmu og keypt
sér vopn í póstkröfu.
Park Deitz, yfirsálfræðingur
bandarísku alríkislögreglunnar
(FBI), hefur borið fram þá tilgátu
að Bryant hafi ákveðið að láta til
skarar skríða þegar hann sá hvílíka
athygli fjöldamorðinginn Thomas
Hamilton, sem myrti fjölda barna í
skoska bænum Dunblane, fékk í fjöl-
miðlum.
Munurinn á Hamilton og Bryant
er hins vegar sá að Hamiltbn framdi
sjálfmorð þegar hann hafði framið
ódæðisverkið í Dunblane. Bryant
náðist á lífi.
Þrýstingur um hert byssulög
Mikill þrýstingur er nú á stjórn-
völd í Ástralíu að breyta stjórnar-
skrá landsins þannig að hægt verði
að setja landslög um byssueign, en
hingað til hefur slík lagagerð verið
á valdi fylkisstjórna.
Stjórnvöld á Tasmaníu hafa verið
andvíg hertum lögum um að tak-
marka byssueign, en lýstu yfir því
í gær að hálfsjálfvirk skotvopn yrðu
bönnuð sem fyrst.
Óttast er að örtröð verði í versl-
unum, sem selja skotvopn og tilheyr-
andi búnað. Eigandi einnar stærstu
vopnaverslunar landsins sagði að
íjöldi fyrirspurna hefði borist um
öflugustu skotvopnin vegna þess að
byssueigendur héldu að nú ætti að
fara að banna slík tól.
Ólíklegt verður að teljast að rök
Félags ástralskra skotvopnaeigenda
fyrir óbreyttum byssulögum hafi
mikil áhrif. „Nokkur hundruð
manns, sem brjálæðingar hafa drep-
ið, hverfa í samanburði við það, sem
Maó og Stalín hafa gert af sér,“
sagði í yfirlýsingu félagsins.
Oryggisbelti
lögleidd í rútum
Brusseí. Reuter.
Reglugerð
um alnetið
til skoðunar
Bologna. Reuter.
RÍKI Evrópusambandsins hafa
samþykkt að kannað verði hvern-
ig unnt er að hafa stjórn á efni
því sem finna má á alnetinu (Inter-
net). Er þá einkum horft til barna-
verndarstjónarmiða og glæpsam-
legs athæfis.
Agostino Gambino, sem fer með
fjarskiptamál í ítölsku ríkissljórn-
inni, skýrði frá þessu eftir óform-
legan fund með starfsbræðrum
sínum evrópskurn sem fram fór í
Bologna á Italíu. „Mörg aðildar-
ríki telja að nauðsynlegt sé að ein-
hverjar reglur gildi, einhver viðm-
ið eða siðaboð,“ sagði ráðherrann
að fundinum loknum.
Frakkar lögðu til að samdar
yrðu siðareglur sem gilda ættu
um allan heim varðandi alnetið.
EVRÓPA^
Reglugerðin, sem kvæði á um
ákveðin takmörk, tæki til allra
ríkja heims.
Martin Bangemann, fjarskipta-
stjóri Evrópusambandsins, kvað
hugmyndina ekki þá að hamla
gegn þróun alnetsins með miklum
skógi lagaboða og reglugerða.
Hins vegar vildu menn skoða ýmsa
þætti tengda þessum miðli og
nefndi hann sérstaklega hvernig
tryggja bæri upplýsingaleynd og
höfundarrétt á hugverkum.
Gambino sagði að fram-
kvæmdastjórnin myndi takatil
athugunar hvort rílqum ESB bæri
að semja sérstakar reglur í þessu
skyni eða hvort leitað yrði eftir
viðræðum á alþjóðlegum vett-
vangi.
RÚTUR og smærri fólksflutninga-
bílar, sem skráðir eru í ríkjum Evr-
ópusambandsins, munu þurfa að
vera búnar öryggisbeltum fyrir far-
þega frá árinu 1999 í fyrra tilfellinu
og 2001 í því síðara.
Framkvæmdastjórn ESB komst
að þessari niðurstöðu í vikunni en
hart hafði verið deilt um tímasetn-
ingar í þessu viðfangi. Nokkuð er
hins vegar um liðið frá því að sam-
bandið ákvað að lögleiða bílbelti í
fólksflutningabílum og urðu tíð og
mannskæð slys tilefni þessarar
lagasetningar.
„Frá árinu 1999 verða allir nýir
smærri fólksflutningabílar að vera
búnir þriggja punkta öryggisbeltum
í öllum sætum farþega," sagði tals-
maður framkvæmdastjórnarinnar.
Hann bætti við að þessi reglugerð
myndi taka til allra tegunda árið
2001. Hann sagði samkomulagið
kveða á um að búa bæri miðlungs-
stóra fólksflutningabíla og rútur
tveggja punkta beltum 1997 og
krafan væri sú að allar nýjar teg-
undir yrðu þannig búnar árið 1999.
Jafnan er miðað við 1. október hvert
ár.
Hagsmunasamtök hafa flest hver
borið lof á framkvæmdastjórnina
fyrir þetta frumkvæði. Nokkuð var
hins vegar deilt um nýju reglurnar
en Frakkar greiddu einir atkvæði
gegn þeim. Þjóðverjar og ítalir
tregðuðust við að veita samþykki
sitt og náðu að tryggja lengri aðlög-
unartíma en upphaflega var gert
ráð fyrir.
Játar
fjöldamorð
ágötu-
bömum
Rio de Janeiro. Reuter.
TÆPLEGA þrítugur brasílskur lög-
reglumaður var í gær dæmdur í 309
ára fangelsi fyrir að hafa átt aðild
að morðum á götubörnum sem fram-
in voru fyrir þremur árum. Átta börn
létust er skotið var á hóp götubarna
en lögreglumaðurinn játaði fyrr í vik-
unni að hafa verið einn morðingj-
anna. Atburðurinn vakti mikla reiði
um allan heim. Lögregluþjónninn er
fyrstur hinna ákærðu sem dreginn
er fyrir dóm. Lögreglumaðurinn,
Marcus Vinicius Borges Emmanuel,
játaði fyrir rétti að hafa skotið tveim-
ur skotum að börnunum en alls var
skotið á hóp um 70 götubama. Em-
manuel var fundinn sekur um sex
morð og samanlagt til 309 ára fanga-
vistar. Þrátt fyrir hinn langa dóm,
kveða brasilísk lög á um að hámárks-
fangavist sé 30 ár.
Einn þeirra sem lifði árásina af,
lýsti því í gær hvernig fjórir menn,
þéirra á meðal Emmanuel, hefðu
þvingað sig og tvö önnur börn inn í
bíl. Drengurinn kvaðst hafa verið
skotinn og misst við það meðvitund
en vaknað síðar til meðvitundar á
götu með félaga sína tvo látna við
hlið sér. Drengurinn hefur verið und-
ir lögregluvernd frá morðunum en
tvær tilraunir hafa verið gerðar til
að ráða hann af dögum frá því að
þau voru framin.
-----» ♦ ■«----
Borgar-
stjórnin í
Zagreb
leyst upp
Zagreb. Reuter.
STJÓRN Franjo Tudjmans, forseta
Króatíu, ákvað í gær að leysa upp
borgarstjórn Zagreb vegna valdabar-
áttu við stjórnarandstöðuflokka, sem
eru í meirihluta í borgarstjórninni.
Efna verður því til nýrra kosninga í
Zagreb innan tveggja mánaða.
Stjórnarandstöðuflokkarnir fengu
30 fulltrúa af 50 í borgarstjórnar-
kosningunum í október en hafa ekki
getað skipað borgarstjóra þar sem
Tudjman hefur beitt stjórnarskrár-
búndnu neitunarvaldi sínu til að
hafna fjórum mönnum, sem meirihlu-
taflokkarnir hafa tilnefnt í embættið.
Stjórn Tudjmans hefur skipað „um-
boðsmann" til að stjórna borginni
fram yfir kosningar.
Ríkisstjórnin leysti upp borgar-
stjómina eftir að stjórnlagadómstóll
Króatíu úrskurðaði að fjárhagsáætl-
un meirihlutaflokkanna bryti í bága
við lög landsins. Vestrænir stjómar-
erindrekar telja að flokkur Tudj-
mans, sem hefur skipað flesta dóm-
arana, hafí haft áhrif á niðurstöðu
dómstólsins.
Áhrifamikið embætti
Leiðtogar stjórnarandstöðuflokk-
anna saka Tudjman um einræðistil-
burði en forsetinn segist vilja afstýra
því að flokkarnir grafi undan efna-
hagsstefnu stjómarinnar. Erlendir
stjórnarerindrekar segja að stjórn
Tudjmans vilji koma í veg fyrir að
stjómarandstöðuflokkamir komist til
valda í Zagreb til að veija efnahags-
stefnuna og leyna spillingu vegna
einkavæðingar ríkisfyrirtækja sem
áhrifamenn í stjórnarflokknum hafi
auðgast á.
Fjórðungur 4,7 milljóna íbúa
Króatíu býr í Zagreb og þar eru einn-
ig stærstu fyrirtæki landsins, þannig
að áhrif borgarstjórans eru mikil.
Talið er að flokkur Tudjmans tapi
fylgi í komandi borgarstjórnarkosn-
ingum en hann vill breyta kosninga-
lögunum þannig að stærsti flokkur-
inn geti stjórnað borginni en ekki
samsteypur smærri flokka.