Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 25
__M__
tllM'STUTT
Skógar-
eldar í
Banda-
ríkjunum
SKÓGARELDAR geisuðu í
suðvesturhluta Bandaríkjanna
í gær og ógnuðu m.a. kjarn-
orkurannsóknarstöðinni í Los
Alamos í Nýju Mexíkó. Þó eld-
urinn næði að stöðinni var sagt
að heilsu fólks yrði engin hætta
búin. Skógareldar lýstu upp
himininn í fyrrinótt á stóru
svæði kringum Los Angeles í
suðurhluta Kaliforníu og einnig
í Arizona.
Leitað að Colby.
Slæða árbotn
í leit að Colby
LEITIN að William Colby fyrr-
verandi yfirmanni bandarísku
leyniþjónustunnar CIA hafði
engan árangur borið í gær.
Óttast er að hann hafí drukkn-
að eftir slys á mótum ánna
Potomac og Wicomico, 64 km
suður af höfuðborginni Wash-
ington. Hafist var handa um
að slæða árbotninn í gær.
Kosningaórói
í Albaníu
ALBANSKA lögreglan eyði-
lagði kosningaspjöld og myndir
og reif niður fána í skrifstofum
sósíalistaflokksins í suðurhluta
Albaníu í gær. Farið er að gæta
kosnignaskjálfta í landinu
vegna þingkosninga, sem fram
26. maí nk., en þar verður kos-
ið um 140 þingsæti. Leiðtogi
sósíalista, Fatos Nano, situr í
fangelsi. Stuðningsmenn hans
saka Sali Berisha forseta um
að hafa misnotað dómskerfið til
að halda honum inni fram yfir
kosningar. í þingkosningum í
mars 1992 fékk flokkurinn 38
sæti en Lýðræðisflokkurinn 92.
Draugabani í
Albertshöll
FORRÁÐAMENN Albert Hall
tónleikahússins í London hafa
ráðið Andrew Green, einn
kunnasta draugabana Bret-
lands, til þess að kveða niður
reimleika í húsinu. Á hvetju ári
segist fólk hafa séð tvær hlæj-
andi konur íklæddar 19. aldar
fötum sveima þar um ganga
og sali. Einnig er talið að orgel-
smiður frá síðustu öld haldi þar
til en hans verður vart þegar
árlegt viðhald stóra orgelsins í
aðalsalnum fer fram.
Gonzalez
hreinsaður
FELIPE
Gonzalez frá-
farandi for-
sætisráðherra
Spánar var í
gær formlega
hreinsaður af
ásökunum
þess efnis að
hann hefði
Gon/.alez ]agt. blessun
sína yfir herferð gegn aðskiln-
aðarsinnum Baska, sem kostaði
27 manns lífið á árunum
1983-87.
Nýjar hagtölur auka vonir ráðamanna í París um nýjan hagvöxt
Vísir að efna-
hagsbata í
Frakklandi
París. Reuter.
FRANSKT efnahagslíf virðist byij-
að að rétta úr kútnum, samkvæmt
nýjum hagtölum sem ríkisstjórn
landsins gerði opinberar í gær. At-
vinnuleysi er hætt að aukast og
könnun meðal forystumanna í við-
skiptalífinu sýnir fram á aukna
bjartsýni.
Franska vinnumálaráðuneytið
greindi frá því að atvinnuleysi hefði
aukist úr 11,8% í febrúar í 11,9% í
mars en að heildarfjöldi atvinnu-
lausra hefði minnkað um 4.200 milli
mánaða. Alls eru nú 3,03 milljónir
Frakka án atvinnu.
Hagfræðingur hjá INSEE,
frönsku hagstofunni, sagði þessar
tölur benda til að stöðugleiki hefði
komist á varðandi atvinnuleysi og
að ósamræmið í tölunum mætti
skýra með ólíkum reikningsaðferð-
um.
Sérfræðingar í efnahagsmálum
segja tölurnar ýta undir vonir um
aukin hagvöxt á þriðja ársfjórðungi
þessa árs "þó að búast megi við að
hagvöxtur verði lítill á fyrsta helm-
ingi ársins. Stjórnvöld vona hins veg-
ar að hagur efnahagslífsins fari að
batna þegar á öðrum ársfjórðungi,
ekki síst vegna vaxtalækkana. Auk-
inn hagvöxtur myndi auðvelda bar-
áttu Frakka við að draga úr halla á
ríkisútgjöldum í tengslum við áform
Evrópusambandsins um efnahags-
legan og peningalegan samruna.
„Það er góðs viti að mörg fyrir-
tæki telja að framleiðsla þeirra
muni aukast,“ segir Steve England-
er, hagfræðingur hjá Smith Barney.
„Það þýðir hins vegar ekki að efna-
hags uppsveifla sé hafin í Frakk-
landi. Við erum annaðhvort í kyrr-
stöðu á botninum eða þá byrjaðir
að mjakast hægt upp á við.“
LOKADU QÓKIIMIMI
-FÁÐU ÞÉR
VERÐBRÉF
- Skyndibréf Skandia eru alltaf
innleysanleg og gefa íflestum tilvikum
hœrri ávöxtun en bankabœkur og
bankareikningar.
Skyndibréf Skandia cru þægileg fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem
þurfa að ávaxta fé til skemmri tíma, t.d. allt að einu ári.
Skyndibréf Skandia má innleysa hvenær sem er án
nokkurs aukakostnaðar og því einfalt að kaupa þau og
selja. Nafiiávöxtun Skyndibréfa síðustu 6 mánuði var 9,7%,
nýttsimanúmer
540 50 60
jáiö nánari upplýsingar
Verðbréfasjóðir Skandia eru byggðir upp með hámarks ávöxtun og ömgga
áhættudreifingu að leiðarijósi. Þeir bera í flestum tilvikum hærri vexti en banka-
bækur og bankiueikningar og em því góður kostur fyrir þá sem vilja góða
fjíii'lestingu með betri ávöxtun.
Lokaðu bókinni og skoðaðu Skyndibréf. Ráðgjafar Skandia veita
allar frekari upplýsingar.
Skandia