Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ1996 29
LISTIR
Kammersveit Kaup-
mannahafnar á Islandi
KAMMERSVEIT Kaupmannahafnar
heldur þrenna tónleika á íslandi dag-
ana 2.-5. maí. Fimmtudaginn 2. mai
verða tónleikar á ísafirði kl. 20.80,
föstudaginn 3. maí á Selfossi kl. 20.30
og sunnudaginn 5. maí verða tónleik-
arnir kl. 16 í Norræna húsinu í Reykja-
vík.
Kammersveit Kaupmannahafnar var
stofnuð fyrir 20 árum og hefur haldið
tónleika í Danmörku og Færeyjum og
víða um heim: M.a. i Venesúela, Israel,
Bandaríkjunum, Grænlandi og víðar,
og tekið þátt í kammersveitahátíðum
t.d. í Cheltenham og Marlborough á
Englandi. Kammersveitin hefur tvisvar
sinnum áður haldið tónleika á Islandi.
Meðlimir Kammersveitarinnar eru:
Steen Lindholm, sem spilar á sembal.
Hann er organisti og kórstjóri og er
mörgum að góðu kunnur á Islandi.
Hann hefur haldið hér tónleika með
blönduðum kór og drengjakór, unnið
með íslenskum kórsöngvurum á
„Isklang“ í Reykjavík og á Akureyri
og haldið námskeið fyrir íslenska kór-
Kammersveit Kaupmannahafnar.
stjóra. Hann hefur einnig verið gesta-
stjórnandi hjá íslensku óperunni. Hans
Gammeltoft-Hansen spilar á flautu, en
er jafnframt umboðsmaður danska
þingsins. Birte Holst Christensen spilar
á selló og Gert Herzberg, sem spilar á
óbó, eru fastráðin hjá Radiosymfoni-
orkestret í Kaupmannahöfn og Wlad-
yslaw Marchwinski, sem spilar á fiðlu,
er fastráðinn hjá Sjællands Symfoni-
orkester.
A dagskránni er barokktónlist eftir
Telemann, Vivaldi og sænska barokk-
meistarann Roman, ásamt danskri og
íslenskri tónlist. M.a. spilar kammer-
sveitin tvö verk, sem eru samin sérstak-
lega fyrir Kammersveit Kaupmanna-
hafnar: „Akvarel" eftir danska tón-
skáldið Erik Norby og „Lófalagið" eft-
ir Þorkel Sigurbjörnsson, en það frum-
flutti kammersveitin í Vensúela.
EITT verka Kristjáns Jóns.
*
Imyndir
landsins
MYNPLIST
S t ö ð I a k o t
GRAFÍK
Kristján Jón Guðnason. Stöðlakot:
Opið kl. 14-18 alla daga til 5. inaí.
Aðgangur ókeypis.
LANDIÐ er listinni nær ótakmörk-
uð uppspretta ímynda og viðfangs-
efna. Jafnt erlendir sem innlendir
listamenn fara þar víða í leit að því
sem þeir vilja síðan vinna úr í list-
inni og bjóða öðrum að skoða, líkt
og til að sannreyna eigin sýn á land-
ið, og leyfa öðrum að njóta með sér;
hver myndgerð hlýtur þó ætíð að
vera persónuleg náigun við afar per-
sónuleg myndefni.
Kristján Jón Guðnason sýnir hér
þær ímyndir landsins, sem hafa orð-
ið honum hugstæðastar á ferðum um
landið fyrir einum og hálfum áratug.
Þessar myndir eru ýmist dúk- eða
tréristur, unnar í svart/hvítu, og það
eru hin sterku, einföldu form sem
ráða heildarmyndinni öðru fremur.
Þessi myndgerð er í raun allt að
því bernsk í látleysi sínu. Sterk form
náttúrunnar ber við auðan himin, og
eru nánast sýnd sem skuggamyndir
í fletinum, djúpir dökkir fletir sem
gleypa allt ljós. Listamaðurinn lætur
gróf vinnubrögðin sjást í fletinum,
og misjafnt þrykkið gerir handunn-
inn pappírinn einnig virkan þátt í
formspili myndanna, sem þannig
virðast margar hveijar krauma undir
niðri.
Þetta kemur vel í ljós í myndum
eins og „Ritur“ (nr. 3) og „Kögur“
(nr. 5), sem sýna náttúruvættina rísa
móti birtunni, líkt og íslensku fjöllin
gera ætíð í ímynd okkar. „Frá Horni"
(nr. 7) sýnir síðan með góðri skipt-
ingu myndsviðsins á hvern hátt hús-
in líkt og kúra undir fjallinu, í skjóli
þess og vernd, en um leið ofurseld
valdi þess, kjósi það að hræra sig.
Þessar einföldu grafíkmyndir hafa
þannig til að bera ýmsar tilvísanir,
þegar nánar er að gáð. Hið bernska
yfirbragð verður um leið virkur þátt-
ur í að sýna að maðurinn getur ekk-
ert annað gert en að sætta sig við
það vald náttúrunnar, sem hann býr
við - allar hans aðgerðir fá þar litlu
um breytt.
Eiríkur Þorláksson
á þessari sérstæðu
sumarbók, j 25% afsláttur í ölluni
bókabúðum út maimániið * .
1 BÓKINNI...
eru inngangskaflar þar sem m.a. er fjallað
um nafngiftir plantna, ræktun, fjölgun og
umhirðu garðblóma, jarðveg, áburð,
safnhauga, skjól í görðum, sólreiti, blómabeð,
steinhæðir og steinbeð, plöntuval í
blómabeð, sumarblóm, lauk- og hnýðisjurtir,
grasfladr og blómaengi
er fjallað um 61 ætt burkna,
tvíkímblöðunga og einkím-blöðunga
er fjallað um tæplega 400 ætt-kvíslir og
einkennum þeirra lýst
er fjallað um nokkuð á annað þúsund
tcgundir garðblóma og auk þess fjölmörg I
afbrigði þeirra, tilbrigði og sortir
eru yfir 600 litmyndir af garðblómum I
i islenskum görðum
eru íslenskar og latneskar skrár yfir I
öll plöntunöfn
eru m.a. skrár yfir steinhæðaplöntur, I
skuggþolnar plöntur, hávaxnar
plöntur, blaðfagrar plöntur, sígrænar j
plöntur, vor- ög síðblómstrandi
plöntur, þekju- og klifurplöntur og J
skrár yfir plöntur eftir blómalitum, j;
t.d. plöntur með hvítum blómum, I
rauðum eða bláum i
er umfjöllun um langflestar
tegundir, afbrigði og sortir
garðblóma sem reynd hafa verið I %
í íslenskum görðum og gefið I m
liafa góða raun. ;|i —
■'Újlbdiv*,,
Tilnefnd til íslensku bókmennta
verðlaunanna 1995
ISL^NS^A
BÓKAUTGAFAN
mcðan byrgðir endast - takmarkað upplag
Síðumúla 11 • Sími 581-3999