Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• ÚT ER komin ný prentun alda-
gömlu spekibókarinnar Bókin um
veginn sem er taiin vera ein af
útbreiddustu bókum sögunnar eftir
Lno-Tse. Þýðendur hinnar ís-
lensku útgáfu eru; Yngvi Jóhann-
esson og Jakob J. Smári. Margir
þekktustu rithöfundar veraldar og
andans menn vitna í þessa bók í
ritum og ræðum. Halldór Kiljan
Laxness hefur vitnað oftar í hana
en nokkra aðra á rithöfundarferli
sínum og ritar formála þessarar
útgáfu.
Hörpuútgáfan á Akranesigefur
út. Bókin um veginn er 110 bls.
Teikningar gerði Bjarni Jónsson
listmálari. Prentvinnsla Oddi hf.
Bókin fæst í bókaverslunum og
kostar 1.180 kr.
- kjarni málsins!
Hinar óviðjafnanlegu Borgnrdætur leika við hvern sinn
fingur með spaugi og sprelli og flutningi á mörgum
vinsælustu laga sinna. Asamt þeim koma fram Ragnar
Bjamason og stórhljómsveit undir stjórn
Eyþórs Gunnarssonar.
Hljómsveitin Saga Klass leikur fyrir dansi ásamt
söngvurunum Sigrúnu Evu Ármannsdóttur °g
Reyni Guðmundssyni. Innifalin er þríréttuð veislumáltíð,
skemmtun og dansleikur.
Uppselt er laugardaginn 4. maí nk.
Athugið! Allra síðasta sýning
laugardaginn 11. maí.
Tryggið ykkur skemmtun ársins og pantið tímanlega.
Kynnið ykkur einnig sértilboð á gistingu.
Nánari upplýsingar eru veittar í söludeild
í síma 552 9900.
-þín saga!
SÝNING á verkum eftir Rúrí verð-
ur opnuð í Ingólfsstræti 8, fimmtu-
daginn 2. maí. Verkin á sýning-
unni hafa ekki verið sýnd áður
hér á landi, en fjögur ár eru frá
síðustu sýningu Rúríar hérlendis.
„Rúrí er landskunn fyrir verk
sín, allt frá gjörningunum frá
miðjum áttunda áratugnum til
útilistarverkanna „Regnbogi" sem
VERK eftir Rúrí.
Rúrí í Ing-
ólfsstræti 8
stendur við Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og „Fyssa“ sem er í Fjöl-
skyldugarðinum í Laugardal.
Rúrí hefur sýnt víða um heim
og hlotið viðurkenninar fyrir verk
sín. Sýningin í Ingólfsstræti 8 sem
heitir „Gildi 11“ stendur til 25.
maí og ætti enginn listáhugamað-
ur að láta hana fram hjá sér fara,"
segir í frétt frá galleríinu.
Ingólfsstræti 8 er opið frá kl.
14-18 alla daga nema mánudaga,
þá er lokað.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SÖNGSVEITIN Fílharmónía.
Sköpunin eftir
Joseph Haydn
Leiðtogafundurinn
í Reykjavík -
Tíu árum síðar
Brýr
byggðar
ÞANN 2. maí næstkomandi
verður opnuð listasýning í Mart-
in Luther King Memorial safn-
inu í Washington D.C. með ofan-
greindri yfirskrift. Eins og með-
fylgjandi sýningarskrá ber með
sér er sýningin haldin til að
minnast þess að 10 ár eru liðin
á þessu ári frá því að Reykjavík-
urfundurinn var haldinn í
Höfða.
Eftirtaldir listamenn taka
þátt í sýningunni; Peter Shapiro
myndhöggvari frá Rússlandi,
Sigrún Jónsdóttir kirkjulista-
maður frá íslandi og Nancy
Hamilton listmálari frá Banda-
ríkjunum.
Einnig verða á sýningunni
tréútskurður, gerður af Gunn-
ari R. Gunnarssyni. Sérstök at-
hygli er vakin á verkinu „vin-
átta“, sem sýnir táknrænan hátt
samband íslands og Bandaríkj-
anna. Frumverkið er í eigu
Önnu og Parker Borg, sendi-
herra Bandaríkjanna á Islandi.
I tilefni af opnun sýningar-
innar efna sendiráð Rússlands
og íslands í Washington D.C. til
mótttöku í safninu kl. 17 til
18.30 á sýningardaginn, þar
sem minnst verður þessara
tímamóta.
AÐALVERKEFNI Söngsveitarinnar
Fílharmóníu á þessu ári verður flutn-
ingur á óratóríunni Sköpuninni eftir
Joseph Haydn, laugardaginn 4. maí
kl. 17 og sunnudaginn 5. maí kl. 17
í Langholtskirkju.
Flytjendur auk söngsveitarinnar
eru einsöngvararnir Sigrún Hjálm-
týsdóttir sópran, Þorgeir J. Andrés-
son tenór og Bergþór Pálsson baríton
ásamt hljómsveit, konsertmeistari er
Szymon Kuran. Stjórnandi er Úlrik
Ólason og raddþjálfarinn Elísabet
Erlingsdóttir." Sköpunin telst til
stórvirkja tónbókmenntanna og er
ásamt Árstíðunum þekktasta verk
Haydns fyrir kór, einsöngvara og
hljómsveit. í byijun verksins er text-
inn tekinn úr lýsingu Fyrstu Móse-
bókar á sköpun heimsins en síðan
tekur við texti sem byggist á Paradís-
armissi Miltons. Ekki er vitað hver
tók þennan texta saman en Haydn
virðist hafa haft hann með sér heim
til Vínar úr síðari Lundúnaferð sinni
og fengið hann þýddan á þýsku.
Tónlist Haydns við þennan texta er
margslungin og hrífandi og er af
ýmsum talin með því besta sem þetta
afkastamikla tónskáld samdi. Sköp-
unin var frumflutt í Vín 1798 undir
stjórn tónskáldsins sjálfs. Verkið
varð fljótlega vinsælt og í byijun 19.
aldar var farið að flytja það í helstu
borgum Evrópu. Til er samtímalýsing
á flutningi verksins í Vín árið 1808,
ári áður en Haydn lést, en stjórnandi
á þeim tónleikum var Salieri sem
margir muna eftir úr kvikmyndinni
Amadeus. Hér á landi hefur Sköpun-
in verið flutt nokkrum sinnum en lið-
in eru fáein ár síðan það var gert
síðast,“ segir í kynningu.
Mótettukórinn á frlandi
DAGANA 1.-6. maí tekur Mótettukór Hallgrímskirkju
þátt í alþjóðlegri kórahátíð í Cork á írlandi, Cork Inter-
national Choral Festival. Hátíðin hefur verið haldin í
Cork undanfarin 43 ár og er mikill viðburður í bæjarlíf-
inu. Að þessu sinni munu um 100 kórar, víðsvegar að,
taka þátt í mótinu. Mótettukórinn mun bæði halda sjálf-
stæða kirkjutónleika og koma fram ásamt fleiri kórum
á götum úti og í sölum bæjarins.
Samhliða hátíðinni fer fram keppni, The Cork Inter-
national Trophy Competition, sem 13 kóranna taka þátt
í og er Mótettukórinn einn þeirra. Keppnisverkin eru:
Víst ertu Jesú kóngur klár, í útsetningu Jóns Hlöðvers
Áskelssonar, Ave Maria eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
Die mit Tránen sáen eftir Henrich Schiitz og Exulate
Deo eftir Francis Poulenc. Kórfélagar hafa undirbúið
sig af kappi undanfarnar vikur og hlakka mikið til að
taka þátt í keppninni og heyra hvað ólíkir kórar frá
fjölda landa hafa fram að færa.
Strax eftir heimkomuna munu hefjast æfingar á nýju
verki eftir Hafliða Hallgrímsson. Þetta verk verður frum-
flutt í messu, í beinni sjónvarpsútsendingu, við setningu
listahátíðar 2. júní næstkomandi. í haust mun kórinn
taka þátt í Norræna kirkjutónlistarmótinu í Gautaborg.
Höfuðverkefni þar verða Óttusöngvar á vori eftir Jón
Nordal, en kórinn hefur fengið mikið hrós lærðra sem
leikra fyrir flutning sinn á því verki.