Morgunblaðið - 01.05.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 33
LISTIR
LEIKLIST
UtvarpslcikhúsiA
SUMARDAGURINN
FYRSTI
Eftir Braga Ólafsson.
Leikendur: Randver Þorláksson,
Saga Jónsdóttir, Valgerður
Þórsdóttir, Helga E. Jónsdóttir
og Dofri Hermannsson.
Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir.
Upptökustjóri: Sverrir Gíslason.
Á SUMARDAGINN fyrsta var
frumflutt á rás 1 samnefnt leikrit
eftir Braga Ólafsson. Leikritið er
annað tveggja sem vann til verð-
launa í leikritasamkeppni Útvarps-
leikhússins og Félags íslenskra
leikskálda. Hitt var, eins og kunn-
ugt er, Frátekna borðið í Lourdes
eftir Anton Helga Jónsson.
Leikritið gerist á fámennum
vinnustað og lýsir því þegar vinnu-
félagarnir hyggjast gera sér daga-
mun og fagna sumarkomu með
því að fara í ímyndaða „skógar-
ferð“ í kaffitímanum, leika fugla-
söng af bandi og fá sér koníak
með kaffinu. Tvennt verður til að
trufla þessa sakleysislegu fyrirætl-
Litlaust
verð-
launa-
leikrit
an þeirra, stöðug símtöl frá óþolin-
móðum viðskiptavini, svo og
óvænt heimsókn eiginkonu for-
stjórans.
Randver Þorláksson leikur for-
stjórann. Lýsingin á honum er
nokkuð klisjukennd: miðaldra
maður sem eyðir flestum stundum
í vinnunni, hefur ekki farið í al-
mennilegt frí í áraraðir og sýnir
fjölskyldunni sinnuleysi. Túlkun
Randvers var fremur litlaus og var
erfitt að sjá „karakter“ hans fyrir
sér, en til góðs útvarpsleikara hlýt-
ur maður að gera kröfu um að
hin munnlega túlkun hans kveiki
einhveija sýn í huga áheyrandans.
Hérna er kannski ekki bara við
leikarann að sakast því textinn var
verkið út í gegn flatur og tilþrifa-
lítill og einkenndist af endurtekn-
ingum sem eru algengar í talmáli
en eru leiðinlegar áheyrnar. Sama
litleysi einkenndi einnig aðrar per-
sónur verksins, það var helst að
Valgerði Þórsdóttur tækist að
draga upp mynd fyrir hugskots-
sjónum hlustandans. Leikurinn í
heild var slakur og tilgerðarlegur
og skrifast líklega á hvoru tveggja
leikstjórn og rislítinn texta.
í dagskrárkynningu á þessu
leikriti er vísað í umsögn dóm-
nefndar um leikritið og komist svo
að orði að „hér kveði við nýjan tón
í íslenskri leikritun“. Þetta eru
stór orð og ég fæ ekki séð að
nokkur innstæða sé fyrir þeim, eða
hver er sá „nýi tónn“ sem hér er
sleginn? Formlega er þetta mjög
svo hefðbundið útvarpsleikrit, efn-
ið sannast sagna lítið áhugavert,
málfar flatt og lítt skapandi. I
stuttu máli ojli leikritið vonbrigð-
um hjá undirritaðri, sem bjóst við
spennandi verki frá Braga Ólafs-
syni, sem hefur getið sér gott orð
sem ljóðskáld.
Soffía Auður Birgisdóttir
SAMSKIP
Adalfundur Samskipa hf. 1996 veróur
haklinn fímmtudaginn 2. maí 1996
kl. 16.00 í A-sal Hótel Sögu.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aóalfundarstörf samkvæmt samjoykktum félagsins
Arsrcikningar félagsins og endanlegur tillögur liggja frammi á skrifstofu fclagsins
hluthöfum til sýnis. Aðgóngumiðar og atkvœdaseðlar cru afhentir á skrifstoju fclagsins.
Stjórnin
SAMSKIP
Holtabakka v/Holtaveg, 104 Revkjavík. Sími: 569 8369
Stökktu til
Benidorm
21. maí
fyrir 29.932
Í2vikur
Við seljum nú síðustu sætin til
Benidorm 21. maí og bjóðum
þér einstakt ferðatilboð þar sem
þú getur notið þess besta í
yndislegu veðri á Benidorm
í maí.
Þannig gengur það fyrir sig:
Við höfum tryggt okkur viðbótargistingu á
frábærum kjörum. Þú bókar á morgun eða á
föstudag og tryggir þér sæti og gistingu og
fímm dögum fyrir brottför hringjum við í þig
og segjum þér hvar þú gistir í fríinu.
Verð kr.29.932
m.v. hjón með 2 böm, 2-114ra, 2 vikur,
skattar innifaldir.
Verð kr.
m.v. 2 fulloi
skaltar innif
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
39.960
ina í íbúð, 21. maí, 2 vikur,
Idir.
:;wr
TIL. S>4 M/4WAÐA
Teppaland
Mörkinni 4 • Pósthólf 8735 • 108 Reykjavík
Sími: 588 1717 & 581 3577 • Fax: 581 3152
K.L. 10-14
Við bjóðum til
dúkaveislu
á 2, 3, og 4 metra
breiðum dúkum sem
ekki þarf að líma.
Komdu og gerðu
einstök kaup!